Dagur - 29.07.1993, Page 9
Fimmtudagur 29. júlí - DAGBJARTUR - 9
Sýning a skátamunum í
Zontahúsinu á flkureyri
I tengslum við landsmótið hef-
ur verið sett upp sýning á
skátamunum i Zontahúsinu á
Akureyri. Gefur þar að Hta
marga skemmtilega muni úr
skátastarfí svo sem skátabún-
inga, tjöld, bakpoka auk bóka
og skjala sem varða skáta-
starf.
Sýningin var sett upp með
tvíþættan tilgang í huga. Annars
vegar að gefa ungum skátum á
landsmótinu tækifæri til að litast
um í veröld sem var, skoða
gamla muni og útbúnað, bækur
og blöó sem tengja fortíð við
nútíö. Hins vegar til þess aó gefa
eidri skátum kost á að rifja upp
minningar um „liðin sumur og
yndisleg vor“ og ef til vill að
miðla öðrum reynslu sinni og
þekkingu á sögu skátastarfs.
Ekki er um yfirlitssýningu að
ræða heldur er stiklað á stóru og
reynt að skapa andrúmsloft sem
minnir á skátastarf á ýmsum
tímum. KR
(Stuðst við bækling um sýninguna.)
Gamall karlskátabúningur, sem er
til sýnis í Zontahúsinu.
Liggja skátaminjar
undir skemmdum hjá þér?
- rabbað við önnu Kristjánsdóttur,
formann minjanefndarskáta
Minjasýning skáta í Zontahús-
inu er m.a. haldin fyrir tilstilli
minjanefndar skáta. Anna
Kristjánsdóttir, formaður
nefndarinnar, er á landsmót-
inu í Kjarna og var hún fús til
að veita upplýsingar um störf
og markinið minjanefndar-
innar.
Skráning og hvatning til
skráningar á gömlum minjum
skáta sem hafa sögulegt gildi
fyrir skátastarf í landinu er hlut-
vcrk nefndarinnar, sem var end-
urvakin fyrir um ári. „Það sem
vakir fyrir okkur er aö hlutir
sem liggja undir skemmdum eða
enginn passar uppá komist í
okkar hendur og séu skráðir,
flokkaóir og varðveittir. En hlut-
ir sem til eru í félögum og jafn-
vel hjá einstaklingum út um land
séu ekki teknir úr sínum heima-
högum, heldur reynt að styðja
við bakið á fólki svo það geti
kynnt þá fyrir sínum skátum og
sínu byggðarlagi,“ sagði Anna.
„Það er mjög gaman að sífellt
fleiri félög sýna góðan skilning
á þessu máli. Þcss ber sýningin
sem hér er glöggt vitni.“
Undirbúningur cr hafínn að
söfnun munnlegra heimilda um
skátastarf. „Þar með erum við að
reyna að safna saman ýmsum
upplýsingum sem aðeins eru til í
Anna Kristjánsdóttir formaður
minjancfndar skáta.
munnlegri geymd. Þar með get-
um við tengt betur saman þekk-
ingarmola og jafnvel lagt grunn-
inn að ritun sögu hreyfingarinn-
ar sem varð 80 ára á síðasta ári.
Við leitum eftir góðu samstarfi
við opinbera aðila s.s. Þjóö-
skjalasafn og héraðsskjalasöfn.“
I undirbúningi er lciöbeining-
arbæklingur fyrir félaga í skáta-
hreyfingunni. Lögó er áhcrsla á
að skráningarkerfið verði þann-
ig að auðvelt sé að tölvuvæða
þaó og auðvelt að sjá hvar á
landinu hvaða hlutur sé til vanti
einhvern upplýsingar um það.
KR
Vísindahornið:
Líkur aukast á
að líf sé utan jarðar
í gærkvöld héldu helstu stjörnu-
fræðingar og vísindamenn um
allan heim fund gegnum alþjóð-
legt vísindatölvukerfi. Rætt var
um hvers konar líf gæti verið á
reikistjömunni og hvernig væri
hægt að hafa samskipti ef um
hugsandi lífverur væri að ræða.
Þar sem rcikistjarnan er mjög
langt frá sólinni er hitinn langt
undir frostmarki. Sennilega er
hámarkshitinn ekki meiri en 250
gráður neðan við frostmark
(brrrrrrr!). Það þýðir að þar þekk-
ist ckki vatn í fljótandi formi og
ekki heldur eins mikið veður og
við þekkjum! Allt jarðneskt líf
mundi deyja undir svona kring-
umstæðum. Lífverur þar líta því
sennilega allt öðruvísi út og eru
allt öðruvísi gerðar en þær sem
við þekkjum.
Flestir vísindamenn telja þó að
um mannlegar lífverur sé hér að
ræða. Ef lífverurnar kæmu til
jarðar yróu þær að verja sig fyrir
hættuiegum kringumstæðum og
því umhverfi sem er hér á jörðinni
(annað loftslag, vatn, súrefni,
vindur).
Verkefni:
Hvernig haldið þið að lífverurnar
líti út? Reynið að teikna þær og
gefa örlitla lýsingu á þeim.
Höldum áfram að þjálfa heilasellurnar!
Það er eins gott að við veróum
viðbúin hverju sem er ef lífver-
urnar skyldu koma hingað.
Kannske tala þær á mjög
flókinn hátt. Hverju mynduð þið
t.d. svara ef þær segðu þctta:
Ef dagurinn á eftir deginum í
gær væri fimmtudagur, hvaða
dagur er þá dagurinn á eftir gær-
degi dagsins á morgun?
Kannske þurfum vió líka aó
geta farió flóknar slóðir á sem
stystum tíma þegar geimverurn-
ar koma. Hugsum okkur t.d. að
þið þurfið að fara allar göturnar
í þorpinu hér fyrir neðan og
koma í öll hús. Hvar getið þið
byrjað og hvar endið þið ef þið
eigið að fara hverja leið en bara
einu sinni?
Creat probability that
there is life in space!
Last night all the greatest scien-
tists in the world had a
discussion over the international
computer network. They wond-
ered what kind of life there
could possibly be on the planet
and how we could communicate
if there were thinking beings on
the planet.
As the planet is very far from
the Sun it’s obvious that the
temperature is very low - not
above 250 centigrades below
zero (brrrrrrr!). This means that
therc’s no liquidised water and
not the kind of whethcr we
know on the Earth. All life
cxixting on thc Earth would
imediatcly dic therc. So
probably living creatures there
have a look very different from
ours and are not like us.
Most of the scientists are of
the opinion that there is life on
the planet. If the living creatures
from there came to the Earth
they would have to protcct
themselves against dangerous
circumstances and the
environment wc live in
(diffcrent atmosphere, water,
oxygcn, wind,...)
Problem:
What do you think the livings
from the new planet look like?
Try to make a drawing showing
thern and dcscribe them
roughly.
Keep on training your brains!
We must really be prepared
whatever might happen if the
living creatures should arrive
from space. It’s possible that
they communicate in a very
complicated manner. What
would your answer be if they
said to you the following:
If yesterday’s tomorrow was
Thursday, what day is the day
after tomorrow’s yesterday?
It may be necessary for us to
travel complicated roads in as
short a time as possible if they
come from the ncw planet. Let’s
imagine that you have to travel
all the roads in the village
shown here and visit every
house. Where can you begin and
where do you end if you travel
each road but only once.
Akureyrar-
veröld
í Akureyrarveröldinni eru ekki
neinir eiginlegir póstar, heldur
fara flokkarnir í stutta dags-
skoðunarferó um Akureyri.
Strætisvagn sækir tlokkana í
Kjarnaskóg og keyrir þá á
nokkra staði í bænum. I ferðun-
um er t.d. farið í sund, sem er til-
valið fyrir þá sem vilja þvo af
sér skítinn eóa þá bara til að
hressa sig upp. Síðan er haldin
smá grillveisla, þar sem pylsur
eru á boðstólnum. Að loknum
mat er síðan gengið að Akureyr-
arkirkju og umhverll hennar er
skoðað. Komió er við á Náttúru-
fræðisafni Norðurlands og á
Steinasafni. Endahnúturinn á
ferðina er rekin út við Minjasafn,
en þá eru Nonnahúsið og Skáta-
minjasafnið í Zontahúsinu skoð-
uð. Inn á sjálfu Minjasafninu er
kynning á hýbýlum manna fyrr
og nú og er þar margt að sjá og
sagt er frá mörgum fræðandi
hlutum. Einnig gefst stundum
smá frjáls tími á Minjasafninu,
svo hver og einn getur skoðað
það sem hann vill. Þegar þessari
stuttu yfirferð um bæinn er lokið
bíður strætisvagninn eftir fólki
og keyrir það til baka á móts-
svæðið.