Dagur - 29.07.1993, Page 10
10 - DAGBJARTUR - Fimmtudagur 29. júlí
Tryggvi Marinósson, mótsstjóri:
Anægður með mótið
þrátt fyrír veðrið
„Krakkarnir standa sig eins og
hetjur og mótið gengur ótrú-
lega vel þrátt fyrir veðrið. Hér
er engin eymd og ekkert vol-
æði,“ sagði Tryggvi Marinósson,
mótsstjóri, sem gaf sér tíma í tíu
mínútna spjall þrátt fyrir mikl-
ar annir.
„Fyrst okkur tekst að reka mót-
ið áfallalaust í svona brjáluðu
veóri með þeim breytingum sem
af því hljótast þá er ekki hægt aö
segja annað en aó ég sé ánægður
með mótið,“ sagði Tryggvi og
bætti því við aó sér fyndist börn
ótrúlega seig að aðlaga sig að-
stæðum. „Þau taka veðrinu sem
gefnum hlut og eru ekkert að
spyrja um vcðurspá, þetta er bara
svona og því verður ekki breytt.“
Eins nefndi Tryggvi fjölskyldu-
búöir og aó þar væri jafnvel fólk
með ung börn sem léti sig hafa
það að búa í tjaldi þessa viku.
Til að svona stórt mót gangi
þarf auóvitað fjölda starfsmanna
og sagói Tryggvi ekki eins marga
hafa skráó sig í vinnubúðir og
kannski reiknað var með. „Það
hafa margir komið okkur til að-
stoðar í þessu máli og foreldrar
og fólk úr fjölskyldubúðum geng-
ið í störf hér. Ef einhver hefur
áhuga þá getum við bætt við
fleira fólki.“
Skiptar skoðanir hafa verið um
þaö að mótió skuli ná yfir versl-
unarmannahelgina. „Það var tal-
inn raunhæfur kostur að láta mót-
ið enda um verslunarmannahelg-
ina fyrst og fremst til þess að
bjóða okkar krökkum og foreldr-
um þeirra möguleika á að vera á
algjörlega vímulausri útihátíð
þessa helgi. Viö töldum það gott
fyrir foreldra skáta að hafa þenn-
an möguleika aó benda á þegar
krakkarnir færu að hugsa um
hvað þeir ættu að gera um versl-
unarmannahelgina," sagði
Tryggvi.
Akureyrarbær hefur veitt lands-
mótinu mikinn stuðning að sögn
Tryggva og lagt var upp með
ákveðnar óskir um lagfæringu á
aðstöðunni í Kjarnaskógi sem
Tryggvi Marinósson, mótsstjóri.
strax var vel tekið. „Vió miöuðum
að miklu leyti okkar óskir við það
að það sem gert yrði nýttist svæö-
inu áfram, gerði svæðið betur til
þess fallið að taka á móti fjölda
fólks. Gert var tún og byggt sal-
ernishús uppundir Arnarkletti og
þaó kemur til með aó nýtast öllu
svæðinu vel á eftir. Síðan var lagt
rafmagn og vatn um allt svæóið,
þannig að nú er komin rafmagns-
lögn og vatnslögn hringinn um
miðsvæðió. Einnig voru bílastæói
stækkuó og lagfærð og vegirnir
líka. Hátíðarsvæði þar sem viö
höfum varðelda og skemmtanir
var líka útbúið.“
Tryggvi sagði stefnuna hafa
verið að skila svæðinu jafngóðu
eða jafnvel betra, en vegna bleyt-
unnar sæi hann fram á einhverjar
skemmdir á túnum. Það yrði þó
fljótt að jafna sig.
Hann vildi í lokin þakka bæjar-
búum og fyrirtækjum á Akureyri
fyrir ómetanlegan stuóning. „Allir
hafa verið boðnir og búnir að
hjálpa okkur og margir búnir að
leggja á sig gríðarlega vinnu und-
anfarna mánuði eða jafnvel ár til
þess að mótið mætti heppnast sem
best,“ sagði Tryggvi Marinósson,
mótsstjóri. KR
Eigin veröld
Eigin veröld er á þrióju hæð í
Kjarnalundi. 1 Eigin veröld, eins
og nafnið gefió til kynna, ræður
hver og einn sér að mestu sjálfur.
Súlnaberg - Hótel KEA
HÓTEL KEA
AKUREYRI
I veröldina geta skátar komið við
ef þeir eiga lausan tíma og búió til
ýmsa forvitnilega hluti. Það sem
virðist vera vinsælast í Eigin ver-
öldinni er það að sýna hæfileika
fmgranna með því að móta marg-
litan FIMO-leir í hinar ýmsu
myndir s.s. lyklakippur og eyrna-
lokka. Einnig laðar barmmerkja-
framleióslan marga að og eru
flestir sem þangaó hafa komið
merktir í bak og fyrir. Hinum
megin gangsins er síðan smíða-
stofa þ.e. menn fá poka af íspinna-
stöngum og trélím og síðan er
sköpunargleðinni gefinn laus
taumurinn. Einnig má minnast á
perlupóst, en þar perlar fólk, eins
og nafnið gefur til kynna, hina
ýmsu hluti t.d. dýrindis glasamott-
ur. Ef þig vantar hnút á hyrnuna
þína geturðu síðan farið í hnúta-
póstinn. Bent skal á að fólk fær
ekkert ókeypis í Eigin veröld, allt
í veröldinni kostar eitthvað smá-
ræði. En veröldin er upplagður
staður fyrir þá sem eiga frí og vita
ekkert hvaó þeir eiga að gera við
tímann. Hún er opin fyrir hinn al-
menna skáta eftir hádegi en fyrir
þá sem eru í fjölskyldubúðum fyr-
ir hádegi.
Spurning dagsins Hvernig finnst þér maturinn bragöast hérna á mótinu?
æO. jf
Snjólaug og íris - Klakki Góður. Hmm hvað er svona gott við hann, það cr bara allt gott við hann.
Ólöf, Kristín og Rut - Birkibeinum Hakkið og spaghettíið var ýkt gott cn kjúkiingasaiatið var vont.
Karólína - Nesbúum Góður, nema þegar Valdi sér um matinn.
Guðný - Stróki Hann er bara ágætur.
I I Teidi - Sverige (Svíþjóð). t’s good, but I didn't like thc mushroomssoup.
5
í I iævar - Birkibeinum lann er bara mjög góður.