Dagur - 29.07.1993, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 29. júlí 1993 - DAGUR - 15
Iþróttir
Svanur Valgeirsson
Getraunadeildin í kvöld:
Þór og KR mætast á Akurevrarvclli
Hörkuleikur verður á Akureyr-
arvelli í kvöld þegar Þórsarar
taka á móti KR í Getrauna-
deildinni í knattspyrnu. Þórsar-
ar þurfa nauðsynlega á sigri að
halda til þess að koma sér upp í
þægilegri stöðu ofar á stigatöfl-
unni. Deildin er ótrúlega jöfn
núna, fyrir utan efsta og neðsta
liðið, IA, sem virðist vera að
stinga af, og Víking sem þó er
langt frá því að vera fallið. Til
marks um hversu jöfn deildin er
má minna á að KR er með 13
stig í fjórða sæti en Þór með 12
í því áttunda. Leikurinn hefst
klukkan 20.00.
Búast má við baráttuleik í
kvöld. Flestum er eflaust í fersku
minni leikur KR og Þórs í næst-
síðustu umferð deildarinnar í
fyrra. Þá áttu Þórsarar mikla
möguleika á sæti í Evrópukeppni
en KR-ingar gerðu þær vonir að
engu með 3:1 sigri. KR-ingar
unnu einnig fyrri leik liðanna í
Getraunadeildinni, 2:0. Síðan þá
hafa þeir þó eitthvað misst damp-
inn og það eitt er víst að Þórsarar
munu reyna aó bíta frá sér í leikn-
- aðeins eitt stig skilur liðin að
Knattspyrna, meistaraflokkur:
Akureyrarmótið á þriðjudag
Seinni leikur Akureyrarmótsins
í knattspyrnu karla fer fram á
Akureyrarvelli kl. 19.00 á
þriðjudag.
Fyrri leikurinn hefur þegar far-
ið fram og vann KA þann leik,
1:0. KA-mönnum nægir því jafn-
tefli í leiknum. Leikið verður til
þrautar á þriðjudag og því fram-
lengt ef þörf krefur. Þórsarar eru
núverandi Akureyrarmeistarar. SV
Landsmót í haglabyssuskotfimi
á Blönduósi:
Akureyringamir
á uppleið
Landsmót í haglabyssuskotfimi
var haldið á Blönduósi um síð-
ustu helgi. Keppt var í þremur
flokkum, auk sveitakeppni en
raðað er í styrkleikaflokka eftir
árangri og keppnisreynslu.
Sveitir Skotfélags Akureyrar
röðuðu sér í tvö efstu sæti í
sveitakeppni.
Urslit í 1. flokki urðu þau að
Heimir Garðarsson úr Skotfélagi
Suðurlands varö efstur með 80
stig, annar varð Kári Grétarsson
úr Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar
með 77 stig og þriðji Jóhannes
Jensson, Skotfélagi Reykjavikur
meó 76 stig.
I 2. flokki voru keppendur Ak-
ureyringa sigursælir en þeir eru á
hraðri leið upp í 1. flokk eins o§
glöggt má sjá af stigafjöldanum. I
1. sæti varð Ellert Aðalsteinsson,
Skotfélagi Akureyrar með 88 stig,
í öðru sæti Björn Stefánsson úr
S.A. meö 84 og í þriðja sæti varó
Hannes Haraldsson, S.A. með 80
stig.
Urslit í 3. flokki urðu þau aó
Halldór Halldórsson, S.A. sigraði
með 69 stig, annar varð Ólafur
Matthíasson, S.Í.H. með 66 stig
og þriðji Kristján Jónsson S.A.
meö 66 stig.
A-sveit Skotfélags Akureyrar
sigraði í sveitakeppni með 172
stig en hana skipa þeir Hannes
Haraldsson, Björn Stefánsson og
Gísli Ólafsson. B-sveit Skotfélags
Akureyrar varð í öðru sæti meó
166 stig og í þriðja sæti varð A-
sveit S.I.H. með 159 stig. JÓH
Knattspyrna:
Leiftur-BÍ
í kvöld
Leik Leifturs og BI, sem fara
átti fram í 2. deildinni í
knattspyrnu á ísafírði í
kvöld, hefur verið frestað.
Vegna slæmra vallarskil-
yrða á ísafirði varð að fresta
leik Leifturs og BÍ sem fara
átti fram í gær. Hann fer fram í
kvöld klukkan 20.00. SV
Knattspyrna, 3. deild:
Jafnt hjá Magna og Víði
Magni lék við Víði úr Garði í 3.
deildinni í knattspyrnu í fyrra-
kvöld, leik sem frestað var fyrr í
sumar. Veðrið var, eins og svo
oft áður, leiðinlegt, rok og kuldi
og leikurinn markaðist töluvert
af því. Heimamenn léku betur
en oft áður í sumar þótt þeir
næðu ekki að skora. Leikurinn
endaði 0:0.
„Þetta var dæmigerður rokleik-
ur. Okkur gekk mun betur í fyrri
hálfleik þegar viö spiluðum á móti
vindinum en réðum síður við að
spila undan vindinum,“ sagði Nói
Björnsson, þjálfari Magna. Hann
sagöi lcikinn hafa einkennst nokk-
uð af baráttu og ekki hafa verió
mikið um færi. Hann kvaðst
ánægður með öll þau stig sem
hann fengi þótt vitaskuld hafi
hann viljað ná þeim öllum. „Eig-
um við ekki að segja að að við sé-
um komnir á skrið með þessu
stigi sem við fengum í leiknum
gegn Víði,“ sagði Nói Björnsson.
SV
Úrslit, 3. deild:
Magni-Víðir 0:0
IIK-Grótta 1:1
Selfoss 11 8 1 2 20 12 25
HK 11 7 2 2 30 13 23
Völsungur 116 3 22216 21
Dalvik 116141614 19
Víðir 1144 3 14 11 16
Haukar 11 5 1 5 17 17 16
Grótta 113 2617 2011
Reynir 11 3 1 7 21 28 10
Skallagr. 11 227 19 30 8
Magni 11 1 3 7 8 23 6
um og senda gestina heim án
stiga;
„Ég get ekki sagt að ég sé sér-
staklega ánægður. Við vorum með
18 stig eftir fyrri umferðina í fyrra,
nú eru þau 13 og ég hefði viljað sjá
þau fleiri,“ sagði Atli Eðvaldsson,
aðstoðarþjálfari KR, aðspurður
um hvort hann væri sáttur við
gengi liðs síns í sumar. Hann
sagði alltaf erfitt að spila við Þór.
„Þetta verður baráttuleikur og
ég vona að við náum að rétta að-
eins úr kútnum. Þetta er einn af
þessum leikjum sem viö verðum
að vinna ef við ætlum okkur að
ná Evrópusæti. Það hlýtur að vera
takmarkið,“ sagði Atli Eðvalds-
son.
Leikmönnum Þórs hefur verið
bannað aö tala við blaðamann
Dags, sem og einhverra annarra
fjölmiðla, og þegar náðist í Sigurð
Lárusson, þjálfara liðsins, í gær
neitaði hann aö tjá sig um leikinn.
Hann vildi ekki gefa neitt uppi um
ástæður þessa, sagði það skýrast í
haust þegar banninu yrði aflétt.
SV
Júlíus Tryggvason hefur verið traustur í vörn Þórs síðan hann var færður
þangað að nýju. Liðið hefur fengið á sig næstfæst mörk í dcildinni, 9 alis.
Mynd: Pjctur
Leikir yngrí flokka
Eins og venjulega var mikið
leikið í yngri flokkum í liðinni
viku. Krakkarnir láta kulda og
vætu ekki aftra sér frá æfing-
um og keppni og er það vel. Rétt
er að hvetja íþróttafélögin á
Norðurlandi til þess að sjá til
þess að úrslitum og markaskor-
urum sé safnað saman. Hér eru
úrslit og markaskorarar þeirra
leikja sem upplýsingar hafa
fengist um.
Akureyrarmót, 6. flokkur:
KA-Þór, A-lið 3:0
Mörk KA skoruðu: Skúli Eyjólfs-
son, 2 og Tryggvi Sigurbjarnar-
son, 1.
KA-Þór, B-lið 2:1
Jóhann Helgason og Magnús Þór-
isson skoruóu fyrir KA og Vil-
berg Brynjarsson fyrir Þór.
KA-Þór, C-lið2:l
Hrefna Dagbjartsdóttir skoraði
annað mark KA, hitt var sjálfs-
mark. Mark Þórs skoraði Hcióar
Heiðarsson.
KA-Þór, D-lið 2:0
Mörk KA skoraði Guðjón Orri
Sigurðsson.
KA-Þór, E-lið 2:0
Ivar Kárason og Halldór Brynjar
Halldórsson skoruóu mörk KA.
5. flokkur A:
Leiftur/Dalvík - Tindastóll 2:3
Mörk Leifturs/Dalvíkur skoruðu
Gylfi Jónsson og Gunnar Eiríks-
son. Björn Ingi Óskarsson, Einar
Svan Gíslason og Helgi Freyr
Margeirsson skoruðu fyrir Tinda-
stól.
Hvöt/Kormákur-Þór 0:5
Þóróur Halldórsson gerði tvö
mörk fyrir Þór, Viðar Haraldsson,
Sindri Ólason og Gunnar V.
Gunnarsson gerðu eitt mark hver.
5. flokkur B:
Leiftur/Dalvík - Tindastóll 4:1
Ragnar Frosti Frostason gerói
mark Stólanna en þeir Arnar Óli
Jónsson, Villiam Þorsteinsson,
Magni Barðason og Pétur Sveins-
son gerðu mörk Leifturs/Dalvík-
ur.
Hvöt/Kormákur-Þór 0:7
Mörk Þórs gerðu Ásgeir Halldórs-
son, 3, Pétur Kristjánsson, Andr-
és Jónsson, Eyjólfur Hannesson
og Orn V. Einarsson eitt mark
hver.
4. flokkur:
Leiftur/Dalvík-Tindastóll 4:1
Atli V. Björnsson gerði tvö mörk,
Þorleifur Árnason og Einar Óla-
son eitt fyrir Leiftur/Dalvík. Indr-
iði Einarsson gerði mark Tind-
stóls.
Hvöt/Kormákur-Þór 1:6
Mörk Þórs gerðu Orri Óskarsson,
3, Jóhann Þórhallsson, Sigurður
G. Sigurðsson og Rúnar Jónsson
eitt hver. Markaskorara Hvat-
ar/Kormáks vantar.
3. flokkur karla:
Þór-KS 5:0
Mörk Þórs gerðu Orlygur Helga-
son, 2, Arnar Líndal, Bjarni Guð-
mundsson og Jakob Gunnlaugsson
eitt hver.
Völsungur-Tindastóll 1:2
Guðjón Gunnarsson og Martcinn
Jónsson gerðu mörk Stólanna cn
Arngrímur Arnarson gerði mark
Völsungs.
3. flokkur kvenna:
Dalvík-Tindastóll 2:1
Mark Tindastóls gerði Sólborg
Hermannsdóttir en Inga Lára Óla-
dóttir og Sunna Bragadóttir gcrðu
mörk Dalvíkur.
Völsungur-KA 0:2
Rósa María Sigbjörnsdóttir gcrði
bæði mörk KA.
Þessi mynd var tekin í Akureyrarmótsleik sem fram fór í júní.
Goí
Greifamótið í dag
Þriðja umferð Greifamótsins í
golfi fer fram í dag. Konurnar
tóku vel við sér og töluvert hef-
ur fjölgað frá því fyrir hálfum
mánuði. Urslit mótsins úr lið-
inni viku eru eftirfarandi.
Meðfylgjandi tölur standa fyrir
heildarskor og stig.
Kvennaflokkur - með forgj:
1. María Daníelsdóttir, 27/12
2. Hulda Vilhjálmsdóttir, 32/10
3. Agnes Jónsdóttir, 35/7,5
4. Jónína Pálsdóttir, 35/7,5
5. Aöalheiður Alfreðsd., 37/6
Karlaflokkur - með forgj:
1. Símon I. Gunnarsson, 30/12
2. Númi Friðriksson, 31/10
3. Sigurpáll G. Sveinsson, 33/7
4. Guðmundur Finnsson, 33/7
5. Örn Arnarson, 34/3,5
Karlaflokkur - án forgj:
l . Sigurpáll G. Sveinsson, 34/12
2. Örn Arnarson. 36/10
3. Sverrir Þorvaldsson, 8/8
4. Guðmundur Finnsson, 39/6
5. Sigurður H. Ringsted, 39/6
SV