Dagur - 06.08.1993, Blaðsíða 6

Dagur - 06.08.1993, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Föstudagur 6. ágúst 1993 Hvað er ad gerast Kvartettinn Út í vorið í M.A. í kvöld ogíSkjólbrekku annað kvöld í kvöld, föstudag, kl. 20:30 mun kvartettinn Út í vorið halda tón- leika á sal Menntaskólans á Akur- eyri. A sama tíma annað kvöld verða tónleikar í Skjólbrekku í Mývatnssveit. Kvartettinn var stofnaður í lok október 1992 og hélt sína fyrstu opinberu tónleika í Listasafni Sigurjóns Olafssonar 22. og 24. júní sl. fyrir troðfullu húsi áheyrenda. Einnig hefur kvartettinn komið fram á lokuðum samkomum í vetur og í Ríkisút- varpinu. Kvartettinn skipa þeir Einar Clausen, 1 .tenór/2.tenór; Halldór Torfason, 2.tenór/l.tenór; Þor- valdur Friðriksson, l.bassi, og As- geir Böðvarsson, 2.bassi. Efnis- skráin mótast af hefð þeirri sem ríkti meóal íslenskra karlakvar- tetta fyrr á öldinni og var helst sótt í sjóði Leikbræðra og M.A.- kvartettsins. Má því fmna á efnis- skránni lög eins og Hanna litla, Seljadalsrósin, Rokkarnir eru þagnaðir og Laugardagskveld. Sænska tónskáldió Bellman er vel þekkt á íslandi því að fjöldi kóra, smærri sönghópa og ein- söngvara hefur flutt tónlist hans. Flestir íslenskir karlakvartettar hafa sungið lög Bellmans og á tónleikunum veróa flutt nokkur af vinsælustu lögum hans. Bandarískar „Barber Shop“-út- setningar hafa verió vinsælar meðal íslenskra kvartetta undan- farin ár og verða þrjú slík lög flutt á tónleikunum en alls eru 20 lög á efnisskránni. Hljóðfæraleikari með kvartett- inum er Bjami Jónatansson píanó- leikari. Útimarkaður áAkur- eyri á morgun Á morgun, laugardag, kl. 11-15 verður útimarkaður á Ráðhústorgi. Margt góöra muna í boði á sann- gjömu verói. Borða- og básapant- anir berist til Kristínar í síma: 26657. FerðafélagAkureyrar á Flateyjardalsheiði Eins og venja er til er fólk út um hvippin og hvappinn á vegum Ferðafélags Akureyrar (FFA) þessa helgi sem aðrar. Á morgun, laugardag, heldur hópur fólks út á Flateyjardalsheiði. FFA hvetur alla til að rífa sig upp úr noróan- þunglyndinu, nú með batnandi veðri, því margt skemmtilegt er á döfinni. Að viku liðinni verður siglt frá Dalvík að Látrum og gengið inn að Grenivík. Sömu helgi, 14.-15. ágúst, verður stefnt á Laugafell - Ingólfsskála; öku- og gönguferð um dali og hálendi. Upplýsingar og skráning á skrifstofu FFA, Strandgötu 23, kl. 16-19 á virkum dögum, sími 22720. Stjórnin á 1929 Hljómsveitin Stjómin leikur fyrir dansi á skemmtistaðnum 29 í kvöld. Veitingastaðurinn Uppinn býður upp á ekta eldbakaðar pizz- ur um helgina. Skriðjöklar á Sjalla- kránniogíSjallanum Skriójöklar spila á Sjallakránni í kvöld, föstudag, og er aðgangur ókeypis. Annað kvöld, laugardag, leika Skriðjöklar fyrir dansi í Sjallanum. I kjallaranum verður Omar Hlynsson trúbador bæði í kvöld og annað kvöld. Myndin, Dagurinn langi, frumsýnd á Akureyri Borgarbíó sýnir í kvöld fjórar kvikmyndir. Kl. 21 verður sýnd ein umtalaðasta mynd ársins, Osiðlegt tilboð (Indecent Propo- sal). Á sama tíma verður frum- sýnd á Akureyri hin stórgóóa mynd Dagurinn langi (Groundhog day) sem er ekki bara fyndin og skemmtileg heldur felst í henni neilmikill boðskapur; sjálfum- glaöir bíógestir geta því lært af henni betri siói og allir geta átt góða stund. Kl. 23 verða sýndar grínmyndin, „Captain Ron“, og Siðleysi sem fjallar um atburði sem eiga ekki að gerast en gerast þó samt. Sömu myndir verða sýndar á sömu tímum annað kvöld, laugar- dag, og á sunnudagskvöld. Á sunnudag kl. 15 veróur ókeypis sýning á myndunum, Þrír Ninjar og „He-man“. Á mánudagskvöld verða mynd- irnar, Dagurinn langi og „Captain Ron“, sýndar kl. 21. Loks er myndin „Hot Shots 2“ væntanleg í Borgarbíó miðviku- daginn 11. ágúst. Herramenn á KEA Hljómsveitin Herramenn leikur fyrir dansi á Hótel KEA annað kvöld, laugardag. Helgartilboð Hótel KEA samanstendur af hum- ar- og laxapaté, svína- og nauta- steik „Black & white" og ítalskri ostatertu í eftirrétt - allt fyrir 2500 kr. Flugmódeldagur á Melgerðismelum á morgun Á morgun, laugardag, verður haldinn llugmódeldagur Flugmód- elfélags Akureyrar. Flogið verður frá morgni til kvölds við vallar- svæói félagsins á Melgerðismel- um ef veður leyfir og verður al- menningi boðið upp á aó prófa að fljúga kennslu-flugmódelum. Þetta er fjórði flugmódeldagurinn sem haldinn er en slíkur dagur er árviss viðburður fyrsta laugardag eftir verslunarmannahelgi. Oll stærstu og fallegustu flugmódelin sem smíðuð eru á landinu verða á svæðinu. Efnisskrá kvartettsins Út í voríd cr m.a. sótt í sjóði M.A.-kvartettsins en fyrri tónleikarnir verða cinmitt haidnir á sal Mcnntaskólans á Akureyri. Ef vcður leyfir getur almcnningur fiogið flugmódclum á morgun. Minning Lóni Kelduhveríi Fædd 9. ágúst 1913 - Dáin 9. júní 1993 í tilefni af áttræðisafmæli Bjargar Björnsdóttur 9. ágúst langar mig að senda þessa minningu, er ég tók saman á útfarardegi hennar. Eg mun ekki rekja ættir hennar hér en vil þó geta þess, aó þar er að finna fjölmargt þjóðkunnugt fólk vel gefið og listrænt. Andlát Bjargar bar brátt að svo að um þaó má segja eins og séra Björn frá Laufási orðaði það í þekktum sálmi „Fótmál dauóans fljótt er stigið“. Fyrir fáeinum dögum sat hún hér hjá mér, kær gcstur. Vió ræddum margt um liðna tíð. Hún var hógvær í dóm- um en sagói í stuttu máli sögu sína á þessa leið: „Eins og þú veist fæddist ég í byrjun fyrri heims- styrjaldarinnar og ólst upp á árum kreppunnar. Ég átti ckki bcinlínis samleió með fjöldanum, en fann köllun mína til tónlistarnáms. Þar kom ég aó læstum dyrum. Mín bció aðeins starf alþýðukonunnar og ég tók því. Samt yfirgaf ég aldrei þá vöggugjöf er ég hlaut og var iðin viðað æfa mig á heimilis- orgelið.“ Síðar varð Björg söngstjóri Garðskirkju hér í sveit í 50 ár. Auk þess aóstoðaði hún vió fleiri kirkjur hér í sýslunni. En að þessu sinni var hún á leið í Skálholt ásamt fleiri organistum íslenskra kirkna, sem tóku þátt í námskeiði er varðaði kórstjórn. Um þaó sagði hún: „Skálholt er minn staður. Stundirnar þar hafa gefið mér einstaklega mikið. Ég fmn ætíð er ég dvel þar, hversu ómetanlegt er að vera þar. Ég er algjörlega sátt við lífið. Mér hefur aldrei liöið jafn vel og nú.“ Þetta voru hennar síóustu orð við mig um leið og hún kvaddi. Ég horfði á eftir henni svipbjartri og þakk- látri fyrir liönar langar lífsstundir. Hún var einstaklega ungleg enda alla tíð góó, hrekklaus sál, scm engum ætlaði illt, en sá þó bros- legu hlióarnar á lífinu. Hún var gædd einstakri frásagnargáfu um menn og málefni. Ég kynntist Björgu fyrir 50 ár- um þegar ég fluttist í hennar sveit. Litlu seinna varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi aó veróa einn meðlim- ur kirkjukórsins, sem hún stjórn- aði. Ég hreifst mjög af Keldu- hverfinu. Fólkið var vel gefiö, framsækið og mjög listrænt. Alltaf var Björg þar með í flokki. Hún spilaði undir ef með þurfti við leiksýningar, fór með kórinn sinn á hinar svokölluóu menningarhá- tíðir sem haldnar voru á vorin í Öxarfirði og hélt uppi almennum söng á mannamótum. Hún kunni þá svo mikið af lögum og ljóðum að hið hálfa hefði verið nóg, en til marks um það tók hún þátt í söng- lagakeppni, ásamt fleirum, sem Ríkisútvarpið sá um. Þar var hún sigursælust sem vænta mátti. Síð- ar var hún sæmd Fálkaorðunni fyrir frábær tónlistarstörf. Því fögnuðu allir, vissu sem var að Björg var vel að slíkum heiðri komin. Fyrir utan tónlistina helgaði Björg æskuheimilinu störf sín, þó með nokkrum frávikum. Hún hélt þá á vit framandi staða, var t.d. þjónustustúlka í Reykjavík og kaupakona úti á landsbyggðinni, en fjarvcran frá átthögunum til lengri tíma átti ekki vió hana, svo heim var haldió meó gleði. Síðar á lífsleiðinni kenndi hún í nokkrum skólum svo sem Reykja- skóla í Hrútafirði og Kvennaskól- anum á Blönduósi. Hún hreifst mjög af stjórnendum skólanna einnig af unga fólkinu. Ég veit að það hefur heldur ekki gleymt sam- verustundunum með Björgu. Þær hafa vafalítið sett sérstakan blæ á skóladvölina. Björg var ósérhlífin og stund- vís svo að af bar. Var þó ekki allt- af létt fyrir fæti fyrstu árin er ég kynntist henni t.d. fábreytileg far- artæki og illfærir vegir. Það hindr- aði hana ekki. Hún setti nótna- bækurnar í poka og brá honum yf- ir öxl sér. Ekkert hindraói för hennar nema ef óvænt brast á stór- hríö. Þegar sást til Bjargar örkuð- um við kórfélagarnir af stað. Stundum glumdi í haglinu á úlp- unum okkar, en Björg sá ráð við að kveða niður élin. Þegar ællngin byrjaði hóf hún tónsprotann á loft og vió sungum saman hió ljúfa ljóð og lag: Þó að œði ógn og hríðir aldrei neinu kvíða skal. Alltafbirtir upp uw síðir aftur kemur vor í dal. Allt var á bak og burt hagl og stormur en við endurtókum sam- stilltum röddum: - „aftur kemur vor í dal. “ Ég er þakklát fyrir þessa fal- legu minningu. Björg var mcrk og ógleyman- leg kona. Enginn kann þá sögu að segja hve langt hún heföi náð með tónlistargáfu sína hefði samtíðin skilið hana og tækifærin verió fleiri. Að leiðarlokum stödd í Skálholti vió stjórn á eigin lagi rann stundaglas hcnnar út. Hún hné niður og var örend litlu síðar. Það var fullkomin gjöl' af skapara lífsins að kalla hana til sín á þess- ari stundu. Hún var hans trúi þjónn, söng Drottni lof og dýró alla sína lífstíð. Skálholt var henn- ar stærsti helgidómur. Þar skein hamingjusól hennar bjartasl. Þangað sótti hún fullkomnun og andlegan styrk. í Skálholti kynntist hún söng- stjórum víðs vegar að af landinu, sem lciddi til þess, að Björg fór með þeim til framandi landa. Hið hrifnæma auga hennar ljómaði af fögnuði, þegar hún sagði mér frá þcirri mcrku stund, er hún stóð andspænis páfanum í Róm eða gekk í helgidóm Notre Dame kirkjunnar í París. Margt ánægju- legt hafði dritið á daga hennar hin síðari ár. Vissulega var fengur í að eiga slíkar minningar allt til enda dægurs, en nú hel'ur Björg kvatt okkur og margir munu sakna hennar. Eg kveð hana meó orðum listaskáldsins góða Jónasar Hall- grímssonar. Hœgur er dúr á daggarnótt dreymi þig Ijóðið, sofðu rótt. Guðrún Jakobsdóttir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.