Dagur - 06.08.1993, Page 9
Föstudagur 6. ágúst 1993 - DAGUR - 9
Dagskrá fjölmiðla
Sjónvarpið
Föstudagur 6. ágúst
18.50 Táknmálsfréttir.
19.00 Ævintýri Tinna (26).
Kolafarmurinn - seinni hluti.
19.30 Barnadeildin (6).
20.00 Fréttir.
20.30 Veður.
20.35 Sækjast sér um líkir (1).
(Birds of a Feather.)
21.10 Bony (6).
(Bony.)
22.05 Kjaftshögg á kerfið.
(A Shock to the System.)
Bandarísk bíómynd frá 1990.
Gráglettnisleg mynd um við-
brögð starfsmanns eftir að
fram hjá honum hefur verið
gengið við stöðuráðningu
innan fyrirtækis hans.
Aðalhlutverk: Michael
Caine, Elizabeth McGovern
og Peter Riegert.
23.35 Stefan Andersen.
Upptaka frá norrænni rokk-
hátíð í Finnlandi í fyrra.
00.20 Útvarpsfréttir í dag-
skrárlok.
Stöð 2
Föstudagur 6. ágúst
16.45 Nágrannar.
17.30 Kýrhausinn.
18.10 Mánaskífan.
18.35 Ási einkaspæjari.
19.19 19:19
20.15 Hjúkkur.
(Nurses.)
20.45 Á norðurhjara.
(North of 60.)
21.40 Töfrandi táningur.
(Teen Witch.)
Gamansöm mynd um tán-
ingsstelpuna Louise sem er
skemmtileg og vel gefin en
ósköp venjuleg í útliti.
Aðalhlutverk: Robyn Lively,
Zelda Rubinstein, Dan
Gathier og Joshua Miller.
23.10 Hörkutól í flotanum.
(Hellcats of the Navy.)
Myndin segir frá baráttu
bandarísks kafbátsforingja
við japönsk herskip.
Aðalhlutverk: Ronald
Reagan, Nancy Davis
(Reagan) og Arthur Franz.
00.40 Richard Pryor á sviði.
(Richard Pryor - Live on
Sunset Strip.)
Ef Richard Pryor kæmi fyrir
rétt, ásakaður um að vera
fyndnasti skemmtikraftu'r
Bandaríkjanna, yrði þessi
mynd sönnunargagn númer
eitt hjá saksóknaranum.
Aðalhlutverk: Richard Pryor.
02.05 Skýjum ofar.
(Higher Ground.)
Myndin fjallar um Jim
Clayton alríkislögreglumann
sem lendir í baráttu við
óprúttna glæpamenn þegar
hann lætur drauminn um að
gerast þyrluflugmaður
rætast.
Aðalhlutverk: John Denver,
Meg Wittner og David
Renan.
Bönnuð börnum.
03.40 CNN - Kynningar-
útsending.
Rás 1
Föstudagur 6. ágúst
MORGUNÚTVARP
KL. 06.45-09.00
06.45 Veðurfregnir.
06.55 Bæn.
07.00 Fréttir.
Morgunþáttur Rásar 1.
- Sólveig Thorarensen og
Trausti Þór Sverrisson.
07.30 Fréttayfirlit • Veður-
fregnir.
* 07.45 Heimsbyggð - Verslun
og viðskipti.
Bjarni Sigtryggsson.
08.00 Fréttir.
Gestur á föstudegi.
08.30 Fréttayfirlit.
Fréttir á ensku.
08.40 Úr menningarlífinu.
ÁRDEGISÚTVARP
KL. 09.00-12.00
09.00 Fréttir.
09.03 „Ég man þá tíð.“
Þáttur Hermanns Ragnars
Stefánssonar.
09.45 Segðu mér sögu, „Átök í
Boston, sagan af Johnny
Tremaine", eftir Ester
Forbes.
10.00 Fréttir.
10.03 Morgunleikfimi.
10.10 Árdegistónar.
10.45 Veðurfregnir.
11.00 Fréttir.
11.03 Samfélagið í nærmynd.
11.53 Dagbókin.
HÁDEGISÚTVARP
KL. 12.00-13.05
12.00 Fréttayfirlit á hádegi.
12.01 Heimsbyggð - Verslun
og viðskipti.
12.20 Hádegisfróttir.
12.45 Veðurfregnir.
12.57 Dánarfregnir • Auglýs-
ingar.
MIÐDEGISÚTVARP
KL. 13.05-16.00
13.05 Hádegisleikrit Útvarps-
leikhússins, „Tom Törn og
svartklædda konan" eftir
Liselott Forsmann.
5. þáttur.
13.20 Stefnumót.
14.00 Fróttir.
14.03 Útvarpssagan, „Grasið
syngur" eftir Doris Lessing.
María Sigurðardóttir les (15).
14.30 Lengra en nefið nær.
15.00 Fréttir.
15.03 Laugardagsflétta.
SÍÐDEGISÚTVARP
KL. 16.00-19.00
16.00 Fréttir.
16.04 Skíma.
16.30 Veðurfregnir.
16.40 Fréttir frá fróttastofu
barnanna.
17.00 Fréttir.
17.03 Fimm/fjórðu.
18.00 Fróttir.
18.03 Þjóðarþel.
Ólafs saga helga. Olga
Guðrún Árnadóttir les (71).
18.30 Tónlist.
18.48 Dánarfregnir • Auglýs-
ingar.
KVÖLDÚTVARP
KL. 19.00-01.00
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar • Veður-
fregnir.
19.35 Stef.
20.00 íslensk tónlist.
20.30 Draumaprinsinn.
21.00 Úr smiðju tónskáld-
anna.
22.00 Fréttir.
22.07 Endurteknir pistlar úr
morgunútvarpi.
22.27 Orð kvöldsins.
22.30 Veðurfregnir.
22.35 Töfrateppið.
23.00 Kvöldgestir.
Þáttur Jónasar Jónassonar.
24.00 Fréttir.
00.10 Fimm/fjórðu.
01.00 Næturútvarp á sam-
tengdum rásum til
morguns.
Rás 2
Föstudagur 6. ágúst
07.03 Morgunútvarpið -
Vaknað til lífsins.
Kristín Ólafsdóttir og
Kristján Þorvaldsson.
- Jón Björgvinsson talar frá
Sviss.
- Verðurspá kl. 7.30.
08.00 Morgunfréttir.
- Morgunútvarpið heldur
áfram.
- Hildur Helga Sigurðardótt-
ir segir fréttir frá Lundúnum.
09.03 í lausu lofti.
Umsjón: Klemens Arnarsson
og Sigurður Ragnarsson.
Sumarleikurinn kl. 10.00.
Síminn er 91-686090.
- Veðurspá kl. 10.45.
12.00 Fréttayfirlit og veður.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Hvitir máfar.
Umsjón: Kristján Sigurjóns-
son.
14.03 Snorralaug.
Umsjón: Lísa Pálsdóttir.
16.00 Fróttir.
16.03 Dagskrá: Dægurmála-
útvarp og fréttir.
- Veðurspá kl. 16.30.
17.00 Fréttir.
- Dagskrá heldur áfram.
Pistill Böðvars Guðmunds-
sonar.
17.30 Dagbókarbrot Þorsteins
Joð.
18.00 Fréttir.
18.03 Þjóðarsálin - Þjóðfund-
ur í beinni útsendinou.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Kvöldtónar.
22.10 Allt í góðu.
Umsjón: Fjalar Sigurðarson.
- Veðurspá kl. 22.30.
00.10 Næturvakt Rásar 2.
01.30 Veðurfregnir.
01.35 Næturvakt Rásar 2
- heldur áfram.
02.00 Næturútvarp á sam-
tengdum rásum til
morguns.
Fréttirkl. 7,7.30,8,8.30,9,10,
11,12,12.20,14,15,16,17,18,
19, 22 og 24.
Næturútvarpið
02.00 Fróttir.
02.05 Með grátt í vöngum.
04.00 Næturtónar.
04.30 Veðurfregnir.
05.00 Fréttir.
05.05 Allt í góðu.
06.00 Fréttir af veðri, færð og
flugsamgöngum.
06.01 Næturtónar.
06.45 Veðurfregnir.
- Næturtónar hljóma áfram.
07.00 Morguntónar.
07.30 Veðurfregnir.
Morguntónar hljóma áfram.
Ríkisútvarpið á
Akureyri
Föstudagur 6. ágúst
08.10-08.30 Útvarp Norður-
lands.
18.35-19.00 Útvarp Norður-
lands.
Stjarnan
Föstudagur 6. ágúst
07.00 Morgunútvarp Stjörn-
unnar.
Ásgeir Páll vekur hlustendur
með þægilegri tónlist, léttu
spjalli, morgunkorni o.fl.
Fréttir kl. 7, 8 og 9.
09.30 Barnaþátturinn Guð
svarar.
10.00 Sigga Lund með létta
tónlist, leiki, frelsissöguna
o.fl.
12.00 Hádegisfréttir.
13.00 Signý Guðbjartsdóttir á
ljúfu nótunum.
„Frásagan" kl. 15.
Óskalagasíminn er 615320.
16.00 Lifið og tilveran - þáttur
í takt við tímann í umsjá
Ragnars Schram.
17.00 Síðdegisfréttir.
17.15 Lífið og tilveran heldur
áfram.
19.00 íslenskir tónar.
19.30 Kvöldfréttir.
20.00 Benný Hannesdóttir.
21.00 Baldvin J. Baldvinsson.
24.00 Dagskrárlok.
Bænastundir: kl. 7.05,
13.30, 23.50 - Bænalinan s.
615320.
Hljóðbylgjan
Föstudagur 6. ágúst
17.00-19.00 Þráinn Brjánsson
hitar upp fyrir helgina með
hressilegri tónlist. Fréttir frá
fréttastofu Bylgjunnar/
Stöðvar 2 kl. 17.00 og 18.00
Þórshöfn:
Menn eru ekki kvart-
sárir en blóta samt
- segir Reinhard Reynisson, sveitarstjóri á Þórshöfn
Reinhard Reynisson.
„Ég vil ekki meina að menn hér
séu kvartsárir, en auðvitað
blóta menn þegar illa gengur
með flskinn, enda væri annað
talinn aumingjaskapur. I það
heila held ég að tónninn sé því
nokkuð góður. Hinsvegar er
hér viðvarandi húsnæðisleysi og
það hefur frekar en annað
dempað innflutning á fólki,“
segir Reinhard Reynisson,
sveitarstjóri á Þórshöfn.
Miklar framkvæmdir standa yf-
ir á Þórshöfn í sumar. Verið er að
ganga frá holræsum, steypa gang-
stéttir og byggja parhús með
tveimur almennum kaupleigu-
íbúðum, svo nokkuð sé nefnt. Auk
þess eru að hefjast framkvæmdir
við húsbyggingu sem í verða fjór-
ar íbúðir fyrir aldraða, en búið er
að gera langtímaáætlun um bygg-
ingu á þremur slíkum húsum.
Fyrir dyrum stendur einnig stækk-
un á hjúkrunarheimili fyrir aldr-
aða, sem er til húsa í gömlu
heilsugæslustöðinni, í kjölfar þess
að læknirinn sem búið hefur á
efri hæð hússins, flytur í nýjan
læknisbústað.
Þokkalegt atvinnuástand
„Atvinnuástandið hefur verió al-
veg þokkalegt, en þá miðar mað-
ur við hvernig það er annars stað-
ar. Vörubílstjórar hafa verið dálít-
ið á skrá, en atvinnuleysi hjá al-
mennu verkafólki hefur ekki verið
umtalsvert. Við höfum undanfarin
sumur vcrið með vinnuskólann
starfandi lengur en gert er víða
annars staðar, en urðum að slá
aðeins af því þetta árið vegna
mikillar þátttöku, sem virðist þó
ekki stafa af því að eldri krakk-
arnir fái ekki vinnu annars staðar.
Ég held að það sé frekar fyrir það
að farið er að harðna aóeins á
dalnum hjá fjölskyldum og þá
þurfa krakkarnir sjálfir að vinna
sér inn vasapeninga,“ segir Rein-
hard.
Þarf að dýpka höfnina
Að sögn Reinhards eru menn
ánægðir með kaupin á skipinu
Júpíter og nú þurfi bara að fara aó
drífa í að dýpka höfnina.
„Árið 1987 var gerð tilraun til
að ná höfninni í það dýpi sem
hún þarf að vera í, en það tókst
ekki og sama sagan var það fyrir
rúmum tveimur árum. Við viljum
því meina að það þurfi að fara að
ljúka þessu verki og gera höfnina
þannig að hún geti þjónað þeim
flota sem hér landar. Þar sem Júp-
íter er kominn liggur einnig meira
á þessari dýpkun, því það er ekki
gott að vera með heimaskip sem
ekki kemst fulllestað til hafnar.
Við þurfum að fá þetta í lag og
þaó er næsta verkefni, en það er
eins með þetta og annað, að vinna
þarf hlutina í réttri röð. Væntan-
lega lifum við á því að afla fiskj-
arins og vinna úr honum og síðan
er það liður í því að auðvelda
okkur það, að hafa höfnina í lagi,“
segir Reinhard.
Húsnæði langt undir raun-
virði
Reinhard segir að fjölgaó hafi um
u.þ.b. fimmtiu manns á Þórshöfn
síðustu fjögur árin í kjölfar þess
aö betri tök hafi náðst á útgerðinni
og atvinnulífinu í hcild. Það er
því ekki að furða þó húsnæðileys-
is gæti á staðnum.
„Einstaklingar eru mjög tregir
til að fara sjálfir út í byggingar,
enda er markaðsverð á húsnæði
hér nokkuð undir raunvirói.
Áhætta þess sem byggir á stað
eins og Þórshöfn er því nokkur og
menn hafa ekki verið tilbúnir til
að taka þá áhættu. Hvað veldur
þessu verðlagi er ekki gott að
segja. Hvort um er að ræða kald
útreiknaóar ástæður eða þann al-
menna móral sem viröist ein-
hvern veginn vera gegnum
gangandi í öllu þjóófélaginu; að
það sé ekki búandi á þessum
minni stöóum. Eflaust hefur
ákveðin pólitík stjórnvalda hrætt
menn, því það er i rauninni ekki
hægt að sjá fram á, að rikió sam-
þykki að þessir staöir verði áfram
hluti af lýðveldinu,“ segir Rein-
hard.
Urgur vegna skýrslu
Byggðastofnunar
Aó sögn Reinhards var verulegur
urgur í Þórshafnarbúum þegar
skýrsla Byggðastofnunar um
byggðaþróun barst þeim í vetur og
var henni ákaft mótmælt.
„Þama voru á ferðinni fráleitir
hlutir á köflum. Mér fannst t.d.
ekki mjög fagmannlega unnið af
svona stofnun, að fullyrða í einni
setningu að framtíðarmöguleikar
íslensku þjóðarinnar, til að auka
þjóðartekjur sínar, fælust alls ekki
í sjávarútvegi, heldur yrði að
koma eitthvað annaö til. Ég held
að það sé þar sem möguleikarnir
liggja númer eitt. Ná þarf meiri
útflutningsverðmætum út úr sjáv-
arútveginum og gera hann að
meiri iðnaði en hann er í dag. Ég
held að við séum búin að fá nóg
af þessum mýrarljósum eins og ál-
veri og nú síðast sæstreng. Menn
ættu að líta sér aðeins nær, því
sjávarútvegurinn og Fiskvinnslan
er sú atvinnugrein sem við kunn-
um væntanlega langbest og erum
sérfræðingar í. Þegar farið er að
lesa ýmsar aðrar skýrslur sést líka
að þetta er sem bctur fer ekki al-
mennt viðhorf gagnvart sjávarút-
vegi; þessari atvinnugrein sem
staðir eins og þessi byggja lífsaf-
komu sína á,“ segir Reinhard
Reynisson, sveitarstjóri á Þórs-
höfn. SBG
Frá höfninni á Þórshöfn.
Ferðafélag Akureyrar
Strandgötu 23 - 22720
Laugardaginn 7. ágúst: Flateyjardalsheiði.
Um afrennsli Jökullóns.
í fylgd með fróðum og staðkunnugum leiðsögu-
manni fer Ferðafélag Akureyrar í öku- og göngu-
ferð um heiðina og eyðibyggðina norður við sjó.
Allir eru velkomnir.
Við minnum á:
14. ágúst: Látraströnd. Gönguferð.
14.-15. ágúst: Laugafell-Ingólfsskáli. Öku- og göngu-
gerð.
21.-22. ágúst: Jökulsárgljúfur. Öku- og gönguferð.
21. ágúst: Sveppaferð.
28. ágúst: Geitafellshnjúkur-Kringluvatn. Grasaferð.
4. september: Merkigil í Skagafirði.
Átt þú Árbókina?
Upplýsingar og skráning á skrifstofunni, Strandgötu
23, á milli kl. 16.00 og 19.00 virka daga, sími 22720.