Dagur - 06.08.1993, Page 12
Akureyri, föstudagur 6. ágúst 1993
Kvöldseðlar
Seðill I: Rauðvínssoðnir sveppahattar á villigrjónum.
Grillsteiktar lambalundir, kryddaðar blóðbergi.
Jarðarberjaostaterta.
Seðill II: Glóðað laxafiðrildi með spergilssósu.
Kolagrilluð nautalund, „A la Mexican".
Heimalagaður mokkaís með ristuðum möndlum.
Risaþyrla frá bandaríska hernum fluttl hús fyrir Ferðafélag
Akureyrar í Dyngjufjalladal á miðvikudag. A stóru myndinni má
sjá þegar þyrlan flýgur síðasta spölinn með húsið en á innfclldu
myndinni er það komið á sinn stað. Myndir: hi
Risaþyrla frá bandaríska hernum:
Flutti hús Ferðafélags Ak-
ureyrar í Dyngjufjalladal
Risaþyrla frá bandaríska hern-
um flutti hús frá Svartárkoti í
Bárðardal í Dyngjufjaliadai í
Dyngjuijöllum síðastliðinn mið-
vikudag. Er húsið í eigu Ferða-
félags Akureyrar og var það
flutt á bíl að Svartárkoti fyrir
nokkrum vikum. Þyrlan flutti
húsið í tveimur hlutum - ann-
arsvegar meginhluta þess og síð-
an forstofu, sem losuð hafði ver-
ið frá því. Bílfært er frá Svart-
árkoti í Dyngjufjalladal en hent-
ugra þótti að hafa þennan hátt á
varðandi flutningana þar sem
þyrlan var stödd hér á landi og
stóð til boða varðandi þetta
verkefni.
„Það hefur verið gamall
draumur okkar ferðafélagsmanna
að mynda gönguleiðir um þetta
svæói,“ sagði Ingvar Teitsson,
læknir, í samtali við Dag en hann
var þá staddur í Svartárkoti við
flutning hússins. „Við höfum þeg-
ar mótað nokkrar leióir og þessi
húsakostur er raunar í beinu fram-
haldi af því. Við keyptum þetta
hús af Rafmagnsveitum ríkisins
en það var upphaflega flutt hingað
til lands frá Noregi vegna bygg-
ingar Búrfellsvirkjunar. I mars á
síðastliðnum vetri hófum við
vinnu vió breytingar og lagfæring-
ar á húsinu og var það tilbúió til
flutnings nú fyrir um það bil
tveimur vikum.“
Ingvar sagði að sótt hafi verið
um leyfi til Skútustaðahrepps og
Náttúruvemdarráðs um aó mega
staðsetja húsiö í dalnum en þetta
landssvæði tilheyrir hreppnum og
sé auk þess friðlýst þannig aó
mannvirki megi ekki setja þar nið-
ur án samþykkis ráðsins. Ingvar
sagói að tekið hefði verið tillit til
ábendinga frá Náttúruvemdarráði
varðandi staðsetningu og útlit
hússins þannig aö það félli sem
bcst að landslaginu.
„Við fréttum af því á síðasta
vetri að þessi risaþyrla yrói staó-
sett hér á landi á þessum tíma og
væri hugsanlega hægt að fá hana
til að flytja húsið. Fljótlega eftir
það hófum við viðræóur vió Utan-
ríkisráðuneytið um þetta mál og
reyndist það sjálfsagt af þess hálfu
og varnarliðsins. Flutningur húss-
ins tókst mjög vel og sparaði þessi
aðferð okkur mikla vinnu við
flutningana þótt aðeins sé um 30
kílómctra leið að ræöa í beinni
fluglínu.
„Þyrlan hefur annast þrjú verk-
efni af þessu tagi nú í sumar,“
sagói Friðþór Eydal, upplýsinga-
fulltrúi Vamarliðsins, en hann var
staddur í Dyngjufjalladal á mið-
vikudaginn ásamt áhöfn þyrlunn-
ar. „I fyrsta lagi voru það flutning-
ar út í Surtsey, þá flutningur á
heyrúllum til landgræðslu á Mý-
vatnsöræfum og nú flutningur á
skála Ferðafélags Akureyrar.
Einnig er áætlað að flytja skála
fyrir vélsleóamenn á Akureyri upp
á Nýjabæjarfjall.“
Risaþyrlur bandaríska hersins
hafa nokkrum sinnum annast
verkefni af þessu tagi fyrir ís-
lenska aðila. Verkefnið í
Dyngjufjalladal tókst meó ágætum
enda var síðastliðinn miðvikudag-
ur einn mesti blíóviðrisdagur scm
komið hefur á norðanverðu land-
inu í sumar. ÞI
Blönduós:
Á115 km hraða í bænum
Ökumaður biflijóls var stöðvað-
ur af lögreglu eftir að hafa ekið
á 115 km hraða innanbæjar á
Blönduósi á miðvikudagskvöld-
ið. Hann var með farþega aftan
á hjólinu.
Á níunda tímanum á miðviku-
dagskvöldið stöðvaði lögrcglan á
Blönduósi ökumann bifhjóls sem
ók á 115 km hraða innanbæjar,
þar sem hámarkshraði cr 50 km.
Okumaðurinn var með farþega
aftan á hjólinu. Hann hefur áóur
hlotið áminningu vegna hraóakst-
urs, að sögn lögreglu. sþ
Vélsmiðja Steindórs byggir göngu- og
reiðbrú yfír Glerá:
Viirna hefst í næstu viku
- jarðvinna undanskilin
Akureyrarbær hefur samið við
Vélsmiðju Steindórs um bygg-
ingu göngu- og reiðbrúar yfir
Glerá og hefst vinna í næstu
viku. Jarðvinna er undan skilin
í samningnum og nema greiðsl-
ur samkvæmt honum 104,5% af
kostnaðaráætlun við smíðina
sjálfa.
Eins og Dagur hefur áður sagt
frá heimilaði bæjarráð Akureyrar
að gengið yrði til samninga við
Vélsmiðju Stcindórs á Akureyri
um smíði göngu- og reiðbrúar yfir
Glerá. Á sínum tíma hafnaói
bæjaráð öllum tilboðum sem bár-
ust í útboði þar aó lútandi enda
námu þau frá 124-127% af kostn-
aðaráætlun sem hljóðaði upp á
2.421.000 kr.
Samningurinn um sjálfa smíði
brúarinnar hljóðar upp á
1.931.500 kr. en kostnaðaráætlun
hönnuðar var 1.848.000 kr. aö frá-
dreginni upphæó til jarðvinnu sem
er undan skilin í samningnum við
Vélsmiöju Steindórs.
Aö sögn Guðmundar er Ytan
hf. meðal annarra aðila sem
fengnir verða til jarðvinnu vegna
brúarinnar undir verkstjórn tækni-
deildar Akureyrarbæjar. Hcfst sú
vinna á mánudag. Áð jarðvinn-
unni lokinni verður hafist handa
Reikningar Grýtubakkahrepps fyrir 1992:
íþróttahúsið veigamesta
framkvæmdaverkeftiið
-peningaleg staðajákvæð um síðustu áramót jum 5,7 milljónir
Reikningar Grýtubakkahrepps
fyrir árið 1992 hafa verið sam-
þykktir. Samkvæmt þeim var
peningaleg staða sveitarfélags-
ins um síðustu áramót jákvæð
um 5,7 milljónir króna en var
7,1 milljón áramótin þar á und-
an. Skatttekjur sveitarfélagsins
voru 43,5 milljónir á síðasta ári.
Að sögn Guðnýjar Sverrisdótt-
ur, sveitarstjóra Grýtubakka-
hrepps, fór í rekstur um 60% af
tekjum svcitarfélagsins, þ.e. um
26 milljónir króna. Til eignabreyt-
inga fóru 15,3 milljónir króna, þ.e.
gjald- og eignfæróra fjárfestinga.
Til gjaldfærðra fjárfestinga teljast
liðir eins og gatnagerðarfram-
kvæmdir og kvótakaup en til eign-
færóra fjárfestinga teljast fyrst og
fremst fjármunir sem renna í
íþróttahússbygginguna.
Frá Grenivík.
Hvað varðar framkvæmdafjár-
muni á þessu ári er meginverkefn-
ið bygging íþróttahússins en við
bætast kaup á hluta í Sænesinu sl.
vor.
Guðný telur að þjónustulega
standi sveitarfélagið vel að vígi
þegar íþróttahúsið verói tilbúið.
Brýnasta verkefnið því næst sé að
huga að öldrunarmálum en ekkert
sambýli fyrir aldraða er til á
staðnum. Þar að auki sé brýnt að
fá lagfæringar á hafnargarðinum
en sú framkvæmd er á áætlun hjá
Hafnamálastofnun.
Heildarskuldir Grýtubakka-
hrepps eru 32,5 milljónir króna,
þar af 28 milljónir í langtíma-
skuldum.
Guðný segir að helstu tölur úr
reikningum sveitarsjóðs hafi verið
sendar inn á öll heimili í sveitarfé-
laginu ásamt skýringum en sú
vinnuregla hefur verið viðhöfð
síðustu þrjú árin. JÓH
vió sjálfa byggingu brúarinnar - í
næstu viku.
Guðmundur hefur áður sagt að
fyrri tilboð yróu lögó til grund-
vallar samningi. Guómundur segir
að höfð hafi verið í heiðri sú rcgla
nýrra laga um framkvæmd útboða
að gcra skuli öllum bjóðcndum
skriilega og ítarlega grein fyrir
ástæðum þess að öllum tilboðum
hafi vcrið hafnað - þ.e. vegna þess
að þau voru langt yfir kostnaðar-
áætlun. Þessi regla heyrði áður til
eðlilegs vióskiptasiðferðis sam-
kvæmt sk. ÍST-30- staðli. GT
Framleiðsla
á hrossa-
kjöti eykst
Framleiðsla á kjöti í landinu
jókst um 9,4% í júnímánuði.
Munar þar mest um framleiðslu
á hrossakjöti eða 38,9% á þess-
um tíma. Framleiðsla á svína-
kjöti jókst um 14,1% og fram-
leiðsla á nautakjöti um 9,5%.
Aukin sala á hrossakjöti skýrist
fyrst og fremst af því að í júní- og
júlí- mánuðum leitast margir slát-
urleyfishafar við að ljúka sölu en
sumarslátrun hófst síðari hluta
júlímánaðar. Því er framlciðsla og
sala þcss jafnan meiri þessa mán-
uði en á öórum ártstímum. Fram-
leiðsla hrossakjöts hcfur þó aukist
um 10,6% á síðustu 12 mánuðum
og sala aukist um 5%. Sala á
hrossakjöti jókst uni alls 58% í
júnímánuói.
Heildarniðurstöður varðandi
framleiðslu og sölu á kjöti í júní
eru að svína- og hrossakjöt hefur
aukió lilut sinn um 5% á mcðan
sala nauta- og kindakjöts hefur
dregist saman um tæp 3%. Þá hef-
ur framleiðsla á mjólk dregist
saman um tæp 3% í júní sem cr í
samræmi við niðurskurð á fram-
leiðslurétti samkvæmt búvöru-
samningi. ÞI
VEÐRIÐ
Spáspekingur á Veðurstofu
íslands spáir sunnan strekk-
ingi á Norðurlandi í dag. Þá
á að þykkna upp og búast
má við lítilsháttar rigningu
síðla dags. Hiti á Norður-
landi veróur 14-19 stig. Á
morgun er gert ráð fyrir
norðan kalda og skúrum.
Hiti verður 6-15 stig, kaldast
á Noróurlandi. Á sunnudag
snýst í austan kalda. Þurrt
veróur og hiti kemst í 15
stig í innsveitum. Aftur kóln-
ar og rignir á mánudag.