Dagur - 30.10.1993, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 30. október 1993
FRAMHALDSSACA BJÖRN DÚASON TÓK SAMAN
Saga Natans og Skáld-Rósu
5. kafli:
Frá æskubrekum Natans
Þegar Ketill dó var Guómundur sonur
hans 9 vetra, Natan 8, Ketilríður 7,
Jón 6 og Guórún 4 - tvö hin yngstu
voru dáin, en um vorió eftir ól hún
sveinbarn, er Ketill hét eftir föður sín-
um. Öll voru börnin efnileg.
Um þær mundir sem Ketill dó var
Jón tekinn á annan bæ í gustuka-
skyni, en hann undi þar ekki, strauk,
villtist og vantaói ( þrjú dægur og
þegar hann fannst var hann utan vió
sig og varð aldrei samur síðan. Hann
dó 19 ára. Guórún systir hans var dá-
in áður. Hún dó úr innanveiki 15 ára
gömul. Guómundur var snemma efni-
legur til verka og búsýslu. Hafói móó-
ir hans styrk af honum meðan hún
bjó ekkja.
Natan var hneigður til bóklestrar
en eigi til starfa og kom þaó sér ekki
vel. Meðan faðir hans lifði hélt hann
honum til verka svo fljótt sem aldur
hans leyfói; líkaði hvorum illa vió
annan. Þaó hafói ill áhrif á skaplyndi
sveinsins og hugarfar.
Snemma bar á því aó Natan var
vel viti borinn, en það kom líka brátt
fram aó hann var ekki allur þar sem
hann var séður. Var margt sagt frá
æskubrekum hans og hér er ein saga
þar um, sem höfð er eftir honum
sjálfum.
Þaó var eitt sinn að þeir Guó-
mundur voru báóir að binda hest vió
hestastein. Sauóarleggur var í typpis-
staó á beislinu - sló Guómundur
honum í ógáti, en svo hart aó leggur-
inn brotnaói. Þá kom faóir þeirra þar
að og spurði hvor hefði gert þetta.
Guómundur varó hræddur og sagói
að Natan hefói gert það. Tjáði Natan
eigi af sér aó bera - tók faóir hans
hann og flengdi. Kvöldió eftir smöl-
uðu þeir bræóur báðir, þá fann Natan
rauóan „kóral" vió sjóinn, bruddi hann
í munni sér og néri rauóum hrákan-
um um andlitið. Þegar heim kom
sagði hann aó Guðmundur hefói bar-
ið sig í brjóstió svo blóð hefói gengió
upp úr sér. Nú fékk Guómundur meiri
flengingu en Natan áður.
En Natan þóttist líka verða aó
launa föður sínum óréttinn, sem hann
hafói gert honum. Sætti hann færis er
faðir hans hafói lagt sig til svefns í
rúmi sínu um dag og aórir voru ekki
inni - lá hann uppiloft meó opinn
munninn og svaf fast. Natan laumaó-
ist að honum, tók tóbakspung ofan af
hillu, hvolfdi úr honum í munn og
augu föður síns og snaraðist síóan
út. Ketill vaknaói með andköfum, sá
ekki og hafói engan frið fyrr en tóbak-
ið rann burt - en þá var Natan slopp-
inn. Vissi Ketill hver valdið mundi
hafa, en fékkst ekki um, því nú sá
hann að eigi var til góós að beita
hörku við strákinn. Þetta og fleira af
æskubrekum sínum hafói Natan
löngu sfóar sagt merkum manni og
var sem hann iðraóist frekju sinnar.
Sá maóur sagói þetta Ólsen umboðs-
manni eftir lát Natans.
Það mun hafa verió eftir lát Ketils
að Guórún fór í sel, en Natan og Ket-
ilríður skyldu geyma bæjar. Natan
vildi fara til móóur sinnar og fékk
systur sína til að fara með sér áleióis
til selsins. En er hún vildi snúa heim
aftur kvaóst hann vera veikur. Fór
hún þá til selsins og sagði frá því
hvar Natan lá. Sótti móðir hans hann
og hafói hann svo sitt fram. En þó
móðir Natans hefði marga skapraun
af brekum hans, hafói hún þó á hinn
bóginn ánægju af honum. Hann var
bráðgáfaður, fróður snemma, skáld-
mæltur og hnyttinn í svörum; af slíku
hafði hún yndi, því sjálf var hún mjög
vel gefin.
Þá er Natan var á 11. árinu tók
Jónas prófastur á Höskuldsstöóum
upp á því að hann boðaói börn til
spurninga á hverjum sunnudegi árið
um kring. Varó þaó eigi vinsælt, því
menn þóttust eigi mega gefa börnum
frftfma til upplestrar um sláttinn. Einn
sunnudag var Natan spuróur með
öórum börnum. Varó þá einhverju
barni orðfall við spurningu nokkra.
Víkur prófastur sér þá aó Natani og
segir: „Getur þú þá ekki sagt mér
það, Natan minn?"
„Ekki um sláttinn," svaraói Natan.
Prófastur þagði við því og hélt
hann ekki áfram spurningum fyrr en
slætti var lokið.
Þaó var síðan 24. sunnudag eftir
þrenningarhátíó, aó prófastur spurói
Natan hvort hann myndi nokkuó úr
ræðu sinni. Natan kunni langan kafla
úr henni. Þá spurði prófastur hann
hvað hann gæti sagt sér úr guóspjall-
inu. Natan svaraói með þessari vísu:
„Gramur barma gljáfægðu
gleði-farm öld sendi:
Sólin bjarma sjálægju
sólum hvarma renndi
(Vísuna má skýra þannig: Kon-
ungur (barma gljáfægju = hjartna-feg-
urð) réttlætisins sendi fólkinu farm
(byrói nóga) meó gleói. Stúlkan
(renndi augum) lifnaði.)
Prófastur dáðist aó svarinu. Hann
var hagorður sjálfur. Þá þótti mest í
varió aó kveóa dýrt og þungskilió.
Horfói prófastur alvarlega á Natan og
sagði: „Skáld veróuróu Natan - og
vel ertu viti gæddur. En af stóru
pundi áttu skuld aó svara." Gaf hann
honum þá latneska „grammatik" og
sagði um leið: „Gleymdu ekki kverinu
þínu, eftir því áttu að lifa!"
Natan fór heim með bók sína og
hætti ekki fyrr en hann komst nióur í
henni. Las hann oft er allir aórir voru
vió vinnu, þvf þar stóó hugur hans til.
Var honum hallmælt fyrir aó stunda
eigi bú móður sinnar. En slíkt gjöröi
ekki annaó en særa hann og spilla
hugarþeli hans til annarra.
(Framhald)
UM VÍDAN VÖLL
Nöldrarinn
Þessi brennivínsþemavika sem var á
Stöð 2 í síðustu viku var nú svona
la-la fyrir okkur nöldurseggi. Við
viljum auðvitaó fá að drekka okkar
bremiivín í friði og duglega ef því er
að skipta. Jæja, myndimar voru bara
góðar og Jack Lemmon fór á kost-
um í „Dagar víns og rósa“. Þá var
líka ansi gaman að kíkja inn á þess-
ar meðferðarstofnanir sem hafa til
þessa verið lokaðar og leyndar-
dómsfullar. Sjálfsagt hefur það
komið einltverjum á óvart að sjá
þama „venjulegt" fólk, en sjúkdóm-
uriim alkóhólismi fer víst ekki í
mamigreinarálit. Hins vegar var um-
ræðuþátturinn á eftir, þetta fimmtu-
dagskvöld, afskaplega einlitur og
lognnrollulegur. Þama vantaði fleiri
sjónamiiö, einlivem nöldursegg eins
og karlinn í nýbúaþætti Ingó og
Völu, en sá hefði þó mátt vera betur
máli farinn og skeleggari. Umræðu-
þættir um heit mál eiga ekki að vera
hallelújasanrkomur. I umræddum
þætti vom allir á SAA-línunni. Eg
saknaði þess að sjá ekki einhvem
gamlan og kjaftforan ref hrista upp í
liðinu með því að segja að þetta
væri tómur aumingjaskapur. Eiimig
hefði veriö gaman að heyra í Sví-
þjóðamieimtuðum sálfræðingi sem
vill keima alkóhólistum aö drekka
eins og meirn. Og fyrst þeir vom
með Guömund Ama þama þá heföi
mátt sauma duglega að honum. Það
var á heilbrigðisráðheira að heyra
að sjúkdómuriim alkóhólismi væri
frábrugðiim öömm sjúkdómum að
því leyti að memi réðu því eiginlega
sjálfir hvort þeir skilgreindu sig sem
sjúklinga. Ætli jretta þýði ekki að
alkóhólistum mun snarfækka eftir
að gjaldtaka verður tekin upp og þá
verður ekki hægt aö segja amiað en
heilbrigðisráðherra hafi tekist vel
upp. Færri skilgreina sig sem alka
og færri fara því í meðferð og ríkið
sparar stórfé. Gott mál. Hinir halda
áfram að drekka sér til óbóta þangað
til þeir sofna svefmnum langa og þá
þarf heilbrigðisráðhena ekki að hafa
frekari áhyggjur af þeim.
Spaug
Hótel Island hafði fyrrum eitt
vínveitingaleyfi. Reglugjöró hafði
nýlega komið út, er bannaði að
selja vín nema með heitum mat.
Þetta tilkynnti þjónnimi manni
einum, sem hann var að afgreiða.
„Jæja, má ég þá biðja um pott-
flösku af áfengi og eitt grátitt-
Iingsegg,“ sagði maðurinn.
Kennari nokkur var aö prófa pilt í
náttúrufræði og spurði hann hver
væri mismunur á útliti og líkams-
byggingu manns og apa. Pilturimi
þagöi viö.
Þá tók kennarinn fram mynd af
górilluapa og sagði: „Hérna sjáið
þér nú mynd af apa og horfið þér
nú á mig. Sjáið þér engan mismun
á okkur?“
„Engan verulegan,“ svaraði
pilturinn.
Alfræði
Garnaslagurinn: Atök á íslandi í
desember 1930 í deilu Verka-
kvennafélagsins Framsóknar og
Sambands íslenskra samvinnufé-
laga vegna kauplækkunar í garna-
hreinsunarstöð SIS í Reykjavík.
Kom til harðra ryskinga milli lög-
reglu og verkfallsmanna, sem nutu
aðstoðar félaga í Dagsbrún og
ASI. Deilumú lauk þremur vikur
síðar með því að SIS viðurkenndi
kauptaxta verkakvemia. (Islenska
alfræðiorðabókin, Örn og Örlygur
1990)
DACSKRÁ FJÖLMIÐLA
SJÓNVARPIÐ
LAUGARDAGUR
30. OKTÓBER
09.00 Morgunsjónvarp
barnanna
11.00 Ljósbrot
Úrval úr Dagsljósaþáttum vik-
unnar.
11.65 Stell er hver f sinni trú
12.50 Á tali hjá Hemma Gunn
14.10 Syrpan
14.40 Einn-x*tveir
14.66 Enska knattspyrnan
Bein útsending frá leik Swind-
on Town og Aston Villa á Co-
unty Ground í Swindon. Lýs-
ing: Arnar Bjömsson.
16.60 Iþróttaþátturinn
Umsjón: Samúel Örn Erlings-
son.
17.60 Táluimálsfréttir
18.00 Draumasteinninn
18.26 Sinfón ok salterium
18.40 Eldhúsið
18.55 Fréttaskeyti
19.00 Vœntingar og von*
brigði
20.00 Fréttir
20.30 Veður
20.36 Lottó
20.45 Ævintýri Indiana Jones
21.36 Ólsenliðið enn á ferð
(Olsenbanden demda) Dönsk
gamanmynd um hina sein-
heppnu glaepaklíku. Leikstjóri:
Erik Balling.
23.16 Fyrir drottninguna og
föðurlandið
00.55 Útvarpsfréttir í dag-
skrárlok
SJÓNVARPIÐ
SUNNUDAGUR
31 OKTÓBER
09.00 Morgunsjónvarp
barnanna
10.45 Hlé
13.00 Fréttakrónikan
13.30 Síðdegisumreeðan
16.00 Chaplin-syrpa
17.20 í askana látið
Þáttur um matarvenjur íslend-
inga að fornu og nýju. Umsjón:
Sigmar B. Hauksson. Áður á
dagskrá 4. mars 1990.
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Stundin okkar
18.30 SPK
18.56 Fréttaslceyti
19.00 Auðlegð og ástrfður
19.30 Blint f sjóinn
20.00 Fréttir og fþróttir
20.35 Veður
20.40 Fólkið f Forsælu
21.05 Gestir og gjðrningar
Skemmtiþáttur í beinni útsend-
ingu frá krá eða veitingahúsi
þar sem gestir staðarins fá að
láta ljós sitt skína. Dagskrár-
gerð: Björn Emilsson.
21.45 Ljúft er að láta sig
dreyma
(Lipstick on Your Collar) Bresk-
ur verðlaunamyndaflokkur eftir
Dennis Potter höfund Söng-
elska spæjarans og Skildinga af
himnum sem Sjónvarpið hefur
sýnt. Þetta em djarfir gaman-
þættir með rómantísku ívafi
sem gerast á Bretlandi á sjötta
áratugnum og er tónlist þess
tímabils fléttuð inn í atburða-
rásina.
22.45 Stúlkan f hanskadeild-
inni
(Damen i handskdisken) Ný,
sænsk sjónvarpsmynd um vin-
gjarnlega afgreiðslustúlku í
hanskadeild í stórverslun.
STÖÐ2
LAUGARDAGUR
30. OKTÓBER
09:00 Með Afa
Afi er svo sannarlega í góðu
skapi í dag og það er margt
skemmtilegt á döfinni hjá hon-
um. Handrit: Örn Árnason. Um-
sjón: Agnes Johansen. Dag-
skrárgerð: María Maríusdóttir.
10:30 Skot og mark
Talsett teiknimynd um hressa
stráka sem æfa fótbolta.
10:50 Hvfti úlfur
Falleg og litrík teiknimynd um
ævintýri Hvíta úlfs sem er
blanda af sleðahundi og úlfi.
11:15 Ferðir Gúllfvers
í þessum ævintýralega teikni-
myndaflokki fylgjumst við með
Gúllíver og vinum hans í Puta-
landi.
11:35 Smælingjarnir
(The Borrowers) Lokaþáttur
um smælingjana sem vegna
smæðar sinnar komast oft í
hann krappan og lenda í mörg-
um broslegum og skemmtileg-
um ævintýrum.
12:00 Dýravinurinn Jack
Hanna
(Zoo Life With Jack Hanna)
Sérstakur myndaflokkur þar
sem við fylgjumst með dýravin-
inum Jack Hanna heimsækja
villt dýr í dýragörðum.
12:55 Fasteignaþjónusta
Stöðvar2
Algengustu spurningum um
fasteignaviðskipti velt upp og
þeim svarað á einfaldan máta.
Einnig verða sýnd sýnishorn af
því helsta sem er í boði á fast-
eignamarkaðinum í dag.
13:25 Hans Hátign
(King Ralph) Það er illa komið
fyrir breska konungdæminu.
Það hefur orðið hræðilegt slys
þar sem hver einasti erfingi
krúnunnar lætur lífið. Nema
einn. Hann er afkomandi laun-
sonar konungs og býr í Banda-
ríkjunum. Eins og það sé ekki
nógu slæmt að hann búi í
Bandaríkjunum, hann er líka al-
veg dæmigerður Kani og kann,
samkvæmt breskum stöðlum,
ekki nokkra mannasiði. Hann
heitir Ralph og var skemmti-
kraftur af verra taginu en er nú
orðin konungur Bretlands!
Góða skemmtun. Aðalhlutverk:
John Goodman, Peter O’Toole
og John Hurt. Leikstjóri: David
S. Ward. 1991. Lokasýning.
16:00 3-BtÓ
Doppa í Hollywood Gummi,
vinur hennar Doppu, er veikur
og það er ógurlega dýrt að fara
til læknis. Doppa er ákveðin í
að hjálpa honum og fer til
Hollywood. Þar ætlar hún að
gerast kvikmyndastjarna sem
vinnur sér inn mikið af pening-
um svo Gummi geti farið til
læknis.
16:10 Kalli kanfna fimmtíu
ára
(Happy Birthday Bugs) Kalli
kanína, eða Bugs Bunny, varð
fimmtugur í fyrra og er þessi
khikkustundarlangi þáttur
gerður í tilefni þess. Á meðal
gesta í afmælinu hans em Milt-
on Berle, Pierce Brosnan, Phil
Donahue, Valerie Harper, Hulk
Hogan, Chuck Norris, Porky
Pig, Geraldo Rivera, Road
Runner, Jane Seymour, William
Shatner, Jon Voight og Doctor
Ruth Westheimer.
17:00 Hótel Marlin Bay
(Marlin Bay) Við tökum upp
þráðinn þar sem frá var horfið í
þessari nýsjálensku sápuóperu
um hóteleigendurna og Charl-
otte Kincaid sem fengin var til
að reka spilavítið á hótelinu.
Þættirnir em sautján talsins og
verða vikulega á dagskrá.
18:00 Popp og kók
Vandaður tónlistarþáttur,
blandaður eins og best verður
á kosið. Umsjón: Lárus Hall-
dórsson. Stjórn upptöku: Rafn
Rafnsson. Framleiðandi: Saga
film hf. Stöð 2 og Coca Cola
1993.
19.10 19.19
20:00 Fyndnar fjölskyldu-
myndir
(Americas Funniest Home Vid-
eos) Það er háðfuglinn Bob
Saget sem er kynnir þessa vin-
sæla gamanþáttar.
20:35 Imbakassinn
21:05 Dame Edna
(The Dame Edna Experience)
Nú fær þessi húsmóðir og risa-
stjarna, sem er blíðlynd og
bráð í sömu andránni, til sín í
sófann söngkonuna Dusty
Springfield, leikarann Dolph
Lundgren og breska forsætis
ráðherrann fyrrverandi, Ed-
ward Heath. Sá fyrirvari er
reyndar settur að þetta fólk
þarf að hegða sér vel, til að fá
að setjast í sófann hjá Dame
Ednu.
22:00 Eintóm vandræði
(Nothing But Trouble) Stór-
stjömurnar Chevy Chase, Dan
Aykroyd, John Candy og Demi
Moore fara með þig í ógleym-
anlega vandræða- og ævintýra-
ferð. Par frá New York er á ferð
til Atlantic City þegar þau em
handtekin fyrir of hraðan akst-
ur. Þau eru í alvarlegum vand-
ræðum þegar þau uppgötva
skyndilega að þau eru fangar í
mjög svo sérkennilegum bæ
þar sem menn eru dæmdir til
dauða fyrir minni sakir en um-
ferðarlagabrot. Aðalhlutverk:
Chevy Chase, Dan Aykroyd,
John Candy og Demi Moore.
Leikstjóri: Dan Aykroyd. 1991.
Bönnuð börnum.
23:36 Banvæn blekking
(Final Analysis) Dr. Isaac Barr
er einn virtasti geðlæknir San
Francisco borgar. Hann er
I sannur fagmaður á sínu sviði
og ekkert kemur hcnum úr
jafnvægi. En daginn sem hann
hittir hina gullfallegu Heather
Evans breytist líf hans svo um
munar. Hún er systir eins af
sjúklingum hans og þar að auki
eiginkona umsvifamikils glæpa-
foringja. Skyndilega er Dr. Barr
flæktur í ástríðufullt samband,
svik og morð. Aðalhlutverk: Ri-
chard Gere, Kim Basinger og
Uma Thurman. Leikstjóri: Phil
Joanou. 1992. Stranglega bönn-
uð börnum.
01:36 Forboðni dansinn
(The Forbidden Dance) Lamb-
ada er hinn forboðni dans sem
gerði allt vitlaust hér um árið.
Nisa er ung prinsessa frá Bras-
ilíu sem berst gegn eyðingu
regnskóganna í heimalandi
sínu. óvinirnir em stjórnendur
stórs fjölþjóðafyrirtækis sem
skeyta lítt um afleiðingar fram-
kvæmda sinna. Hún fer til Los
Angeles til að vekja athygli á
málstað sínum og gerir það á
þann eina máta sem hún þekk-
ir - með hinum þokkafulla og
æsandi Lambada dansi. í
myndinni er að finna stórkost-
legar danssenur þar sem fær-
ustu dansarar leika listir sínar.
Aðalhlutverk: Laura Herring,
Jeff James, Sid Haig og Richard
Lynch. Leikstjóri: Greydon
Clark 1990.
03:10 Eitraður ásetningur
(Sweet Poison) Erótísk spennu-
mynd um hjón sem berjast
hvort við annað upp á líf og
dauða. Hjónaband Henrys og
Charlenu Odell byggir á heldur
vafasömum gmnni Hann gift-
ist henni vegna kynþokkafulls
útlitsins, hún játaðist honum
vegna peninganna sem hann á
í vændum. Henry og Charlenu
er rænt af ungum og
miskunnarlausum manni þegar
þau em á leið til jarðarfarar
vellríks föður Henrys. Charlena
heillast af mannræningjanum
og er fljót að sjá leið til að
halda auðæfunum og eignast
spennandi elskhuga: Það eina,
sem hún þarf að gera, er að fá
ræningjann í lið með sér og
drepa eiginmanninn - en Henry
leynir á sér og berst til síðasta
blóðdropa. Aðalhlutverk: Ste-
ven Bauer, Edward Herrmann
og Patrica Healy. Leikstjóri:
Brian Grant. 1991. Stranglega
bönnuð börnum.
04:50 BBC World Service -
kynningarútsending
STÖÐ2
SUNNUDAGUR
31. OKTÓBER
09:20 í vinaskógi
Hugljúf teiknimynd um litlu
dýrin í skóginum.
09:46 Vesalingarnir
Skemmtilegur teiknimynda-
flokkur um litlu, fátæku Kó-
settu sem berst ásamt vinum
sínum fyrir frelsi og réttlæti.
10:10 Sesam opnist þú
Vinsæll, talsettur leikbrúðu-
myndaflokkur.
10:40 Skrifað í skýin
Ævintýralegur teiknimynda-
flokkur með íslensku tali.
11:00 Listaspegill
11:35 Unglingsárin
12:00 Evrópski vinsældalist-
inn
12:65 ÍÞRÓTTIR Á SUNNU-
DEGI
13:25 ítalski boltinn
Bein útsending frá leik í ítölsku
fyrstu deildinni í boði Vátrygg-
ingafélags íslands.
15:50 Framlag til framfara
Endurtekinn þáttur frá síðast-
liðnu sunnudagskvöldi.
16:30 Imbakassinn
Endurtekinn fyndrænn spé-
þáttur.
17:00 Húsið á sléttunni
(Little House on the Prairie) Sí-
gildur myndaflokkur sem gerð-
ur er eftir dagbókum Laum In-
galls Wilder.
17:50 Aðeins ein jörð
Endurtekinn þáttur frá síðast-
liðnu fimmtudagskvöldi.
18:00 60 mínútur
Fréttaskýringaþáttur sem hlot-
ið hefur góðar viðtökur hér-
lendis sem erlendis.
18:50 Mörk dagsins
Nú verða sýndir valdir kaflar úr
leikjum ítölsku fyrstu deildar-
innar og valið mark dagsins.
19:19 19:19
20:00 Lífið um borð
20:36 Lagakrókar
21:30 Allt ( besta lagi
(Stanno Tutti Bene) Yrkisefni
þessarar myndar er ferð gam-
als manns um Ítalíu. Matteo
Scuro, sem leikinn er af Marc-
ello Mastroianni, er opinber
starfsmaður, kominn á eftir-
laun. Markmið hans er að láta
gamlan draum rætast, gerast
ferðamaður og heimsækja
börnin sín um gervalla ítab'u.
Við fylgjumst síðan með þeim
gamla á ferð hans en hans bíða
margar óvæntar uppákomur.
Aðalhlutverk: Marcello Ma-
stroianni.
23:00 í sviðsljósinu
(Entertainment this Week)
Fjölbreyttur þáttur um allt það
helsta sem er að gerast í kvik-
mynda- og skemmtanaiðnaðin-
um.
23:50 Úr öskunni í eldinn
(Men at Work) Öskukarlarnir í
smábæ í Kaliforníu láta daginn
líða með því að láta sig dreyma
um að opna sjóbrettaleigu.
Þegar þeir dag nokkurn finna
lík eins bæjarfulltrúans í rusl-
inu fá þeir um nóg að hugsa.
Inn í málið blandast losun eit-
urefna í hafið og valdabarátta í
eiturefnaverksmiðjunni í bæn-
um. Aðalhlutverk: Charlie She-
en, Emilio Estevez, Darrell Lar-
son og John Getz. Leikstjóri:
Emilio Estevez. 1990. Lokasýn-
ing.
01:25 BBC World Service •
kynningarútsending
RÁS 1
LAUGARDAGUR
30. OKTÓBER
HELGARÚTVARPDE)
6.45 Veðurfregnir.
6.66 Bæn.
7.00 Fréttir.
Söngvaþing. Jóhann Konráðs-
son, Karlakórinn Vísir, Kristján
Kristjánsson, Sigurlaug Rósin-
kranz, Kristinn Hallsson, Karla-
kór Reykjavíkur og Guðrún Á.
Símonar syngja.
7.30 Veðurfregnir.
Söngvaþing heldur áfram.
8.00 Fréttir.
8.07 Músík að morgni dags
Umsjón: Svanhildur Jakobs-
dóttir.
9.00 Fréttir.
9.03 Úr einu í annað
Umsjón: Önundur Björnsson