Dagur - 21.01.1994, Síða 16

Dagur - 21.01.1994, Síða 16
Akureyri, föstudagur 21. janúar 1994 Þorrahlaðborð Bautans helgina 21.-23. janúar Föstudagskvöld, laugardag og sunnudag I hádeginu og kvöldin. Yfir 20 tegundir af rammíslenskum mat. Börn innan 6 ára fá frían hamborgara og ís á eftir. Kr. 1.100,-í hádegi og kr. 1.290,- á kvöldin. Akureyrskur Greifi opnaður á Torremolinos? - í athugun að taka veitingastað á leigu til eins árs með forkaupsrétti Eigendur veitingastaðarins Greifans á Akureyri auk eins starfsmanns Greifans kanna nú möguleikann á því að taka veit- ingastað á Torremolinos á Spáni á leigu til eins árs. Andri Gylfa- son, einn eigenda Greifans, fer ásamt öðrum til Torremolinos á sunnudaginn til að kanna að- stæður. Andri Gylfason sagði að Greif- inn sem slíkur stæði ekki að þess- um þreifingum erlendis. Hins veg- ar væru þrír eigcndur veitinga- Skrifstofa ferðamála opnuð á Akureyri 8. apríl: Helga Haraldsdóttir ráðinn forstöðumaður Helga Haraldsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður skrifstofu ferðamála sem opnuð verður á Akureyri þann 8. apríl næst- komandi. Eins og komið hefur fram munu með þessari skrif- stofu flytjast til Akureyrar þau verkefni Ferðamálaráðs sem snúa að ferðaþjónustu innan- lands. í næstu viku verður ljóst hvar starfsemin verður staðsett í bænum. Magnús Oddsson, ferðamála- stjóri, Birgir Þorgilsson, formaöur Ferðamálaráðs og Helga voru á Akureyri í gær til að kanna mögu- legt húsnæði fyrir starfsemina. Helga sagðist í samtali við blaðið telja þá þjónustu sem fram fari við innlenda ferðaþjónustuað- ila vel í sveit setta á Akureyri. Hér sé enda um að ræóa grein sem sé landsbyggóaratvinnugrein að miklu leyti. „Það sem flyst í raun til Akureyrar verða ákveðin mál. Skrifstofan mun hafa samstarf við samtök og hagsmunaaðila í ferða- þjónustu á Islandi, hún mun ann- ast söfnun og dreifingu á tölfræði- legum upplýsingum og sinna ráð- gjöf við skipulagningu innlendrar ferðaþjónustu. Ráðgjöfin mun einnig snúa aó uppbyggingu og rekstri upplýsingamiðstöðva. Þá mun skrifstofan líka sjá um inn- lenda bæklingaútgáfu Ferðamála- ráðs og annast söfnun og dreifmgu upplýsinga um íslenska feróa- málaaðila," sagði Helga. Sama dag og skrifstofan verður opnuð mun Ferðamálaráð funda á Akureyri. I Feróamálaráði sitja 23 fulltrúar, 18 frá hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu og 5 ráðherraskip- aðir. Helga sagðist vænta þess að með tilkomu skrifstofunnar verói tíðari fundir Ferðamálaráðs fyrir norðan og úti á landi. VEÐRIÐ Búast má við 2-8 stiga frosti um Noróurland í dag og einhverjum éljagangi sem eykst því nær sem dregur helgi. I dag verða suóaust- lægar áttir ríkjandi en síðan tekur norðanáttin öll völd, fremur hæg vestan til en strekkingsvindur austan til. Búast má vió fljúgandi hálku á þjóóvegum norðanlands. Auk Helgu munu væntanlega fljótlega verða ráónir tveir starfs- menn að skrifstofunni. Helga hef- ur undanfarin ár starfað á Upplýs- ingamiðstöð ferðamála í Reykja- vík. JOH staðarins auk eins starfsmanns hans aö skoða þessa hluti. En af hverju vilja Greifamenn opna veitingastað á Torremolinos? „Ætli það sé ekki bara ævin- týraþráin,“ svaraði Andri, „maóur verður einhvern tímann að hafa gaman af lífinu.“ Andri sagði að hugmyndin væri að taka umræddan veitinga- stað á Torremolinos á leigu til eins árs með forkaupsrétti og væri horft til þess að leigusamningur gilti frá og með vordögum. „Eins og er er staðurinn fyrst og fremst rekinn sem bar, en við höfum hugsað okkur að fara líka út í mat- sölu, bæði pizzu og íslenskan mat. Við erum búnir að fá í hendur gögn varóandi þennan rekstur og ætlum út núna til þess að kynna okkur málið betur. Við einblínum þó ekki bara á þetta dæmi, við munum líta í kringum okkur í leióinni,“ sagði Andri. óþh í dag er fyrsti dagur þorra og bóndadagur. A myndinni er Magnús Sigurólason, starfsmaður Kjötiðnaðarstöðvar KEA, með girnilegan þorrabakka. Mynd: Robyn. Vinnumálaskrifstofa félagsmálaráðuneytisins: Aldrei meira atvinnuleysi í desember - flestir án atvinnu á Austurlandi og Norðurlandi eystra Ríflega 8.000 manns voru án at- vinnu hér á landi í desember- mánuði síðastliðnum, sam- kvæmt skýrslu Vinnumálaskrif- stofu félagsmálaráðuneytisins, og hefur atvinnuleysi aldrei mælst jafn mikið í desember. Þessi fjöldi jafngildir 6,3% af áætluðum mannafla á vinnu- markaði, 5,3% hjá körlum en 7,7% hjá konum. Þetta eru um 2.020 fleiri en í nóvember og 1.960 fleiri en í desember 1992. „Atvinnuleysi eykst hlutfalls- lega langmest á Austurlandi og öllu Noróurlandi. Mikil fjölgun at- vinnulausra í lok desember eykur líkur á að atvinnuleysi gæti orðið talsvert meira í janúar en í desem- ber enda gætir áhrifa sjómanna- verkfallsins verulega þá auk þess sem árstíóasveiflur í atvinnuleysi ná jafnan hámarki í janúar,“ segir í skýrslunni. A Norðurlandi eystra voru aó meðaltali 1.160 manns á atvinnu- Skattayfirvöld beina kastljósi að útgáfu launamiða í ár: Vanræksla á útgáfu launa- miða varðar sektum - fyrirtæki vanrækja í sumum tilfellum uppgjöf á verktakagreiðslum 1 eftirlitsaðgerðum skattayflr- valda að undanförnu hefur komið í Ijós að nokkur misbrest- ur virðist vera á því að lögboð- inni skyldu um útgáfu launa- miða vegna greiddra launa, hlunninda og verktakagreiðslna sé sinnt. Vanræksla á útgáfu launamiða getur varðar sektum en skattayfirvöld munu hafa sérstakt eftirlit með útgáfu launamiða í ár. Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkisskattstjóra vanrækja fyrirtæki í sumum tilfellum upp- gjöf á greiðslum til verktaka sem hjá þeim starfa í lengri eða skemmri tíma. Einnig er nokkuð um að ekki sé gerð grein fyrir fríóindum og hlunnindum ýmis- konar s.s. bifreiðahlunnindum, húsnæðishlunnindum, fæðishlunn- indum og öðrum hlunnindum á launamiða. I lok síðasta árs var gerð könn- un á vegum eftirlitsskrifstofu rík- isskattstjóra á bókhaldi 15 húsfé- laga með tilliti til launamiðagerð- ar vegna ársins 1992. Við þá at- hugun kom í ljós að þaó hcyrði nánast til undantekninga að greiðslur og hlunnindi til stjórnar- rnanna, gjaldkera eða húsvarða væru gefnar upp til skatts á launa- miða. Samkvæmt bráðabirgöanið- urstöðu þessarar athugunar hafa þessi húsfélög vanrækt að gefa upp greiðslur að fjárhæð rúmlega 20 milljónir vegna ársins 1992. JÓH leysisskrá í desembcr, eða 9,7% af mannafla. Atvinnuleysið jókst um 68% frá mánuðinum á undan þeg- ar 693 voru á skrá. Hjá körlum var atvinnuleysið 8,2% sem var það mesta á landinu og hlutfallslegt at- vinnuleysi kvcnna var 11,7% og var ástandið aóeins verra á Aust- urlandi. Ef við lítum á cinstök sveitarfé- lög á Norðurlandi eystra má sjá að víða fjölgaði mjög á atvinnuleys- isskrá, en þó eru örfá dæmi urn hið gagnstæða. Svigatölurnar tákna fjölda atvinnulausra í nóv- ember: Ólafsfjörður 140 (38), Dalvík 39 (13), Akureyri 658 (453), Húsavík 200 (103), Hrísey 3 (3), Árskógshreppur 8 (9), Öxar- fjarðarhreppur 3 (2), Raufarhöfn 12 (16), Þórshöfn 11 (3), Grýtu- bakkahreppur 22 (6) og Eyjafjaró- arsveit 26 (20). Á Noröurlandi vcstra jókst at- vinnuleysið gífurlega frá nóvem- bermánuði, eöa úr 239 manns (4,6%) í 464 (8,9%). Aukningin nemur 94%. Hjá körlum var at- vinnuleysið 7,2% og 11,6% hjá konurn. Ástandið versnaði alls staðar á svæðinu. Lítum þá á einstök sveitarfélög á Norðurlandi vestra og skoóum þróunina frá nóvember til desenr- ber: Sauðárkrókur 104 (65), Siglu- fjörður 99 (39), Drangsnes 10 (2), Hólmavík 26 (7), Hvammstangi 20 (10), Blönduós 56 (34), Skaga- strönd 51 (17), Hofshreppur 22 (10), Lýtingsstaðahreppur 14 (10), Seyluhreppur 12 (9) og Akra- hreppur 3 (3). I skýrslunni scgir að margt bcndi til þcss að atvinnuleysi haldi áfram að aukast, cinkum á Norð- urlandi eystra og Austurlandi. Þó megi búast við að ástandið skáni eitthvað undir lok janúar þegar sjávarútvegurinn nær sér aftur á strik og átaksverkefni sveitarfé- laga hefjast aö nýju. SS tEboð PFAFF SAUMAVÉL 6085 HEIMILISVÉL 20 SPOR VERÐ KR. 39.805 □ KAUPLAND Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23565 Við tökum vel á móti ykkur alla daga til kl. 22.00 Byggðavegi 98

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.