Dagur - 29.01.1994, Síða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 29. janúar 1994
FRÉTTIR
Samningur í höfn um skiptahlut undirmanna á tvílembingsveiðum:
Indirritaður í dag af Sjómannafélagi
Ejjaflarðar og Samheija hf.
Siglu^örður:
Snjómðningstæki
hafa ekki undan
Siglfirðingar kættust í gær yfir
fenginni fjallasýn, en slíkuni
munaði hefur ekki verið að
heilsa í nokkurn tíma. Hætt er
við að kófið taki brátt völdin á
ný-
Talsverðum snjó hel’ur kyngt
niður á Siglufirði og hafa bæjar-
starfsmenn ekki haft undan viö að
moka götur, þannig að einhver
ófærö er í bænum.
„Þaó hefur nú sést meiri snjór
hérna og ég cfast ekki um að clstu
ntcnn myndu staófesta þaö. Hins
vegar er koniinn óvcnju ntikill
snjór á ekki lcngri tíma og bærinn
bcr þess nterki, enda cru þeir á
cftir í snjómokstrinum," sagði
Kolbeinn Engilbertsson, lögrcglu-
þjónn.
Umferð og mannlíl' hefur verið
með miklum ágætum í fannferg-
inu og atvinnulílló er að kornast í
samt lag eftir aó vinnsla hófst hjá
Þormóði ramma. SS
FELAGSMALARAÐUNEYTIÐ
Starfsmenntastyrkir
félagsmálaráðuneytisins
Félagsmálaráðuneytió auglýsir hér með eftir umsókn-
um um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu,
sbr. lög nr. 19/1992.
Styrkir eru veittir til aðila, sem standa fyrir starfsmennt-
un í atvinnulífinu. Miðaó er við aó styrkir séu veittir
vegna viðfangsefna á árinu 1994.
Umsóknir berist félagsmálaráóuneytinu á sérstökum
eyðublöðum sem þar fást og skal þeim skilað þangaó
eigi síðar en 28. febrúar 1994.
Félagsmálaráðuneytið, 27. janúar 1994.
Iþróttaskóli
Iþró
bar
tarnanna
hefst laugardaginn
29. janúar nk.
í íþróttahúsi
Glerárskóla.
Skólinn er fyrir börn
á aldrinum 3ja til 6 ára.
Nlánari upplýsingar í Hamri
ísíma 12080.
Aðalinngangur FSA fluttur
í dag, laugardag, verður aðalinn-
gangur Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri, þar sem til staðar er inn-
ritun sjúklinga, símvarsla og upp-
lýsingar, lluttur í svokallaðan inn-
gang B, þ.e.a.s. vestari inngang aó
norðan. Forsvarsmenn Fjórðungs-
sjúkrahússins vilja vekja athygli á
því að bráðamóttaka slysadcildar
verður áfram á sama stað.
Þegar Ijósmyndari Dags skoð-
aði aðstæður á Fjórðungssjúkra-
húsinu í gærmorgun voru iónaðar-
menn aö leggja síðustu hönd á
nýja aðalinnganginn. Hér eru þau
við nýju aóstöðuna Helga Helga-
dóttir, Hannes Reynisson og
Bryndís Björnsdóttir.
óþh/Mynd: Robyn
Samingur verður undirritaður í
dag milli Samherja hf. og Sjó-
mannafélags Eyjafjarðar um
nýtt skiptahlutfall undirmanna
á frystiskipinu Margréti EA-
710, sem er á tvílembingsveiðum
með Jóhanni Gíslasyni AR-42,
sem Samherji hf. hefur á leigu
yfirstandandi fiskveiðiár frá Ar-
nesi hf. í Þorlákshöfn.
Fyrir áramót var gert upp við
undirmenn samkvæmt uppkasti að
samkomulagi sem hljóðaði upp á
aó skiptaverðmætið sé 69,5% en
skiptahlutfall 31,8%. Konráð Al-
freðsson, formaður Sjómannafé-
lags Eyjafjarðar, segir að undir-
mennirnir beri heldur meira úr
býtum samkvæmt þessum nýja
samningi. Atkvæðagreiðsla fer
síðan fram meðal undirmanna um
borð í Margréti EA og mun trún-
aóarmaður Sjómannafélagsins um
borð sjá um framkvæmd hennar.
Niðurstöður hennar ættu því að
liggja fyrir strax um helgina.
Skipstjóra- og stýrimannafélag
Norölendinga staófesti sl. mánu-
dag samning um að skiptahlutfall
yfirmanna yröi óbreytt frá því sem
var fyrir áramót, þ.e. 31,8%, og
gildir það samkomulag til 4. júní
nk. GG
Ólafsíjörður:
Meiri snjór afþakkaður
ÓlafsQarðarkaupstaður er mikil
snjóakista og þar er nú allt á
kafi í snjó þótt fannfergið sé
ekki umtalsvert fyrir utan bæ-
inn. í suðurhluta bæjarins ná
skaflarnir nánast upp að þökum
húsa og það kunna börnin vel
að meta.
„Já, það er komið alveg nóg af
snjó í bili. Heima hjá mér vantar
ekki nema um 20 sentimetra aö
hengjan af þakinu nái niður í
skaflinn," sagði Jón Konráösson,
lögregluþjónn, í samtali viö Dag í
gær.
Snjóruóningstæki hafa verið á
þönum síðústu daga og sagði Jón
að búió væri aó hreinsa götur og
gangstéttir í bænum. I gær var
bjart og stillt veður í Ólafsfirði og
kærkomið hlé á skafrenningnum.
Umferó hefur gengið ágætlega
í kaupstaðnum fyrir utan smá-
vægilegan árekstur á fimmtudag-
inn, en þá var skafrenningur og lé-
legtskyggni. SS
Samningur verður undirritaður í dag um nýtt skiptahlutfali undirmanna á
Margréti EA. Mynd: Robyn
,£2
Jff
■; I
puiiktar
■ Með bréfi 21. janúar sl. frá
A. Finnssyni hf. er lcitað eftir
því við bæjarráó aó álögð fast-
eignagjöld 1993 af ióö og
vörugeymslu vió Krossanes-
braut verði lækkuð til sam-
ræmis við álögð fasteignagjöld
fyrra árs. Bæjarráó samþykkti
sl. fimmtudag að það gæti ekki
oróið við erindinu.
■ Bæjarráð samþykkti að
leggja til aó heimiia aó ráða
starfsmann í 50% starf tíma-
bundið til 6 mánaða til að
stjóma verkefninu „Mennta-
smiðja kvenna á Akureyri".
Miðað er við aó fyrsta nám-
skeið Menntasmiðjunnar verði
á fyrri hluta þessa árs. Ákvörð-
un uni fleiri námskcið verói
tekin þegar gleggri upplýsingar
liggja fyrir um fjárveitingar til
verkefnisins.
■ Lagt var fram bréf frá Guð-
nýju Önnu Annasdóttur f.h.
Lcikskóla Guónýjar Önnu hf. í
bréfinu er dregin til baka urn-
sókn leikskólans um stofnstyrk
eóa stofnlán. Jafnfranit er
kvartaó yfir afgreióslu málsins
hjá félagsmálaráði og starfs-
mönnum þar. Félagsmálastjóri
gerói bæjarráói grein fyrir
meðferó þessa máls hjá l'élags-
málaráði. Vegna þessa erindis
Guðnýjar Önnu lét bæjarráó
bóka að málsmeðferð starfs-
manna bæjarins hefði að öllu
leyti verið cðlileg.
■ Meó bréfi 17. janúar sl. frá
Oddfellosv-reglunni á Akureyri
er Akureyrarbæ boóin til kaups
húseignin aó Brekkugötu 14og
óskaó eftir viðræóum við full-
trúa bæjarins varóandi það
mál. Bæjarráó fól formanni
bæjarráós og bæjanáðsmanni
Jakobi Bjömssyni að ræða við
fulltrúa Oddfellow-reglunnar.
■ Lagt var fram bréf frá Jóni
Hlöðver Áskelssyni, fyrrum
skólastjóra Tónlistarskólans á
Akureyri. í bréfinu ræóir Jón
störf sín að tónlistarmálum á
Akureyri og væntir þcss aó
mcga áfram vinna aó þeim á
vegum bæjarins. Bæjarráð lét
bóka af þessu tilefni aó þaó
óskaði eftir að formaður skóla-
nefndar Tónlistarskólans og
skólafulltrúi taki saman grcin-
argcrð og komi til vióræóu við
bæjarráð á næsta fundi þess.
■ FSA hefur sótt um til bæjar-
félagsins fjárveitingu til við-
haldsframkvæmda. Ríkissjóóur
veitti á sl. ári 14 milljóna króna
aukafjárveitingu annars vegar
til endurbóta á barnadeild FSA
og hins vegar til viðhaldsverk-
efna á Kristnesi. Óskaó er eftir
aó Akureyrarbær greiði 15%
framlag á móti fjárveitingu rík-
issjóðs að upphæó kr. 2.471
milljónir. Bæjarráð lét bóka aó
það bendi á aó í nýlega sam-
þykktri fjárhagsáætlun bæjar-
sjóðs 1994 sé ekki fjárveiting
til þess að mæta þessum kostn-
aði og því sé erindinu vísaó til
cndurskoðunar áætlunarinnar
síöar á árinu.