Dagur - 08.02.1994, Side 10
10 - DAGUR - Þriójudagur 8. febrúar 1994
EN5KA KNATT5PYRNAN
ÞORLEIFUR ANANÍASSON
Markasúpa á laugardegi í Englandi
- Man. Utd. og Blackburn halda sínu striki - Roy Evans byrjar vel hjá Liverpool
Ekki hafði verið gert ráð fyrir
leikjum í Úrvalsdeildinni um
þessa helgi, þar sem fyrirhugað
var að iandsliðið nýtti helgina til
undirbúnings fyrir H.M. í
Bandaríkjunum í sumar. En
eins og menn vita tókst Eng-
Iendingum ekki að tryggja sér
þátttökurétt í keppninni og þar
með var helgin laus að nýju.
Hún kom þó að góðum notum
og á laugardag voru leiknir átta
leikir í Úrvalsdeildinni, ýmist
frestaðir leikir eða leikir sem
ljóst var að yrði að fresta síðar.
Ekki verður þó annað sagt en
þessir eftirleguleikir hafi verið
fjörugir og óvenjumikið var
skorað af mörkum. En lítum þá
nánar á leikina sem fram fóru á
laugardaginn.
■ Meistarar Man. Utd. halda sínu
striki og sigruöu lið Q.P.R. á úti-
velli meó þrem mörkum gegn
tveim í jöfnum og spennandi leik
sem gat farið á hvorn veginn sem
var. En hver er sinnar gæfu smið-
ur og leikmenn Manchesterliðsins
eru ekkert á því að gefa höggstað
á sér, vitandi af Blackburnliðinu á
mikilli siglingu í kjölfari sínu. Það
var Andrei Kanchelskis sem náði
forystu fyrir Man. Utd. í leiknum
og leikmenn liðsins voru ávallt á
undan að skora. Eric Cantona og
Ryan Giggs skoruóu einnig fyrir
liðið sem varð raunar að taka á
öllu sínu til þess aó tryggja sér
sigurinn. Þeir Clive Wilson og
Les Ferdinand skoruöu mörk
Lundúnaliðsins sem leikur mjög
vel um þessar mundir, en það
dugði þó ekki gegn hinu firna-
sterka meistaraliði að þessu sinni.
■ A sama tíina lék Blackbum á
heimavelli sínum gegn hinu haró-
skeylta Wimbledon gengi og vann
auðveldan þriggja marka sigur.
Alan Shearer sem er óstöðvandi
uppvið ntark andstæðinganna urn
þessar mundir kom liðinu á bragð-
Úrslit í vikunni
FA-bikarinn 4. umferð
Bolton - Arscnal 2:2
Úrvalsdeild
Coventry - Ipswich 1:0
1. deild
Crystal Palace - Petcrborough 3:2
Grimsby - WBA 2:2
Um helgina
Úrvalsdeild
Blackburn - Wintbledon 3:0
Everton - Chelsea 4:2
Manchester City - Ipswich 2:1
Norwich - Liverpool 2:2
Oldham • Southanipton 2:1
QPR - Manchester Utd 2:3
Swindon - Coventry 3:1
Tottenham - Sheffield Wed 1:3
Aston Villa - Lceds Utd 1:0
1. deild
Birmingham - Peterborough 0:0
Bolton - Watford 3:1
Bristol City - Tranmere 2:0
Charlton - Grimsby 0:1
Crystal Paiace - Dcrby 1:1
Luton - Oxford 3:0
Portsmouth - Notts County 0:0
Southend - Barnsley 0:3
Stoke City - Wolves 1:1
WBA - Sunderland 2:1
Middlesbrough - MiIIwalI 4:2
Nottingham For - Leicester 4:0
ið með fyrsta markinu strax í upp-
hafi leiks. Hinir snjöllu útherjar
Blackburn bættu síðan við sitt
hvoru markinu, fyrst Jason Wil-
cox og síðan Stuart Ripley og ör-
uggur sigur liðsins í höfn. Black-
burn heldur því enn í vonina um
að ná toppsætinu ef svo ólíklega
vildi til að liði Man. Utd. yrði
fótaskortur á lokasprettinum, en
önnur lið hafa að öllum líkindum
misst alla möguleika á efsta sæt-
inu.
■ Það voru skoruð sex mörk í leik
Everton gegn Chelsea eins og í
fyrri leik liðanna fyrr í vetur, en
nú snerust tölumar við því það var
Everton sem sigraói í leiknum 4-
2. Þaó virðist greinilegur munur á
liði Everton síðan hinn nýi frarn-
kvæmdstjóri, Mike Walker, tók
við stjóminni og leikmenn liðsins
virðast vera að öðlast sjálfstraust-
ió á nýjan leik. John Ebbrell skor-
aði tvö fyrstu mörk Everton, en
Mark Stein skoraði bæói rnörkin
fyrir Chelsea og jafnaði raunar
með fyrra marki sínu. Miðherjinn
sterki Paul Rideout skoraði einnig
tvö mörk fyrir Everton í leiknum.
■ Við fengum að sjá leik Man.
City gegn Ipswich í sjónvarpinu
og var sá leikur betur leikinn og
skemmtilegri en búast mátti vió
fyrirfram. Þetta var fyrsti leikur
City eftir aó Francis Lee tók við
formennsku félagsins og leikmenn
eflaust ákveðnir í að standa sig
frammi fyrir hinurn nýja eiganda
sínurn. Þaó byrjaói þó ekki gæfu-
lega því eftir um 15 mín. leik náði
Ian Marshall forystunni fyrir Ips-
wich er hann komst inní hræðilega
sendingu Garry Flitcroft sem ætl-
uó var markverðinum Tony Co-
ton. Leikmenn City náóu þó að
jafna leikinn fyrir hlé cr David
Rocastle Iagði á glæsilegan hátt
upp auðvelt mark fyrir Carl Grif-
fiths, en Rocastle lék mjög vel og
ótrúlegt að hann skyldi ekki fá
Bryan Gunn, markvörður Norwich, var rckinn útaf í leiknum gegn Liver-
pool fyrir að slá boltann utan teigs frá Stevc McMannaman sem var kominn
einn í gegn.
John Ebbel skoraði tvö af mörkum
Everton í lciknum gegn Chclsca.
tækifæri til að sanna sig meó Le-
eds Utd. þann tíma sem hann var
þar. Það var síðan Flitcroft sem
tryggöi City sigurinn í leiknum
með marki í síðari hálfleiknum og
bætti þannig fullkomleg fyrir fyrri
mistök sín. Michel Vonk skallaði
boltann fyrir fætur hans eftir auka-
spyrnu Keith Curle og Flitcroft,
eldsnöggur í teignum sendi bolt-
ann í mark af stuttu færi.
■ Roy Evans hinn nýi fram-
kvæmdastjóri Liverpool stjórnaði
liói sínu í fyrsta sinn á útivclli
gegn Norwich og ekki verður ann-
að sagt en 2-2 jafntefli í leiknum
lofi heldur góðu um framhaldið.
Hinn mikli markaskorari Chris
Sutton náði þó tvívegis forystunni
fyrir Norwich, en eins og oft áður
í vetur hélst lióinu illa á forskot-
inu á heimavelli. Sjálfsntark Ian
Culverhouse Ieikmanns Norwich
jafnaði í 1 -1, cn síðara jöfnunar-
mark Livcrpool gerói síðan John
Barnes er um 15 ntín. voru til
leiksloka. Markvörður Norwich
Bryan Gunn var rekinn af lcikvclli
fyrir aö taka boltann utan teigs og
bjarga þannig marki, en Liverpool
liðið lék vcl í lciknum og margir
telja að Evans muni gera góða
hluti meó liðið og hefði að ósekju
mátt taka vió lióinu nokkrum ár-
unt fyrr.
■ Swindonliðið hcfur verið í mik-
illi uppsveiflu að undanförnu og
nú er ekki sjálfgefió að liðið falli
niður eins og virtist öruggt fyrir
nokkrum vikum. Að vísu cr liðið
enn í neðsta sæti, en hefur þó náð
í skottió á nokkrum liðum sem
einnig berjast við falldrauginn.
Swindon vann góðan sigur á
heimavelli gegn Coventry þar sem
Norðmaðurinn Jan Age Fjortoft
skoraði öll þrjú mörk liðsins þar
af tvö úr vítaspyrnum. Eina mark
Coventry í leiknum skoraði Julian
Darby.
■ Ekkert gengur hjá Tottcnham-
lióinu þessa dagana og með sama
áframhaldi gæti liðið lent í fall-
baráttu í vor. Sheff. Wed. kom í
heimsókn á laugardag og vann
auðveldan 3-1 sigur á slöku liði
Tottenham. Það var Simon Colc-
rnan sem náói forystunni fyrir
Sheff. Wed. áður en Mark Bright
bætti tveim mörkum viö fyrir lið-
ið. Eina mark heimamanna skor-
aði Ronny Rosenthal, en hann var
keyptur frá Liverpool fyrir
skömmu síóan. Þess cr þó vcrt að
geta aó mikil meiósl hrjá Totten-
hamliðið um þessar mundir og
skýra aó hluta frammistöóuna.
■ Þá vann Oldham dýrmætan 2-1
sigur á heimavelli í botnbaráttu-
leik gegn Southampton. Gcstirnir
Villa sigur gegn Leeds Utd.
Leikur sunnudagsins í Úrvals-
deildinni ensku var viðureign
Aston Villa á heiniavelli gegn
Leeds Utd. Þessi lið eru að berj-
ast um eitt af efstu sætum deild-
arinnar með þátttökurétt í Evr-
ópukeppninni í huga, en leikur
liðanna var ekkert til að hrópa
húrra fyrir og einkendist af
mikilli baráttu og lítilli knatt-
spyrnu.
Ekkert mark var skorað í l'yrri
hálfleiknum, en það þótti þjálfur-
um beggja liða mcrkilegt miðaó
við vamarleik liðanna og höföu
þeir orð á þessu í leikhléinu.
Heimamenn voru þó heppnir að
sleppa inn í hálfleik án þcss aó
hafa fengið á sig rnark. Þrívegis
skall hurð nærri hælum viö mark
Villa, en í öll skiptin voru það
varnarmenn liðsins sem voru
nærri að skora sjálfsmörk.
Fyrst skallaði Shaun Tealc í slá
eftir fyrirgjöf Gary Kelly sem var
ætluð Brian Deane sem Tcale
vissi af fyrir aftan sig. Þá var Paul
McGrath heppin að senda ckki
boltann í cigið mark eftir fyrirgjöf
David White og loks kiksaði
markvörðurinn Mark Bosnich
herlllega er hann ætlaði aó sparka
frá, en sem betur fer fyrir hann var
Deane of seinn að átta sig og
varnarmenn björguðu málunum.
Dalian Atkinson var hættulegastur
í framlínu Villa í fyrri hálfleik, cn
marktækifæri liðsins voru fá og
hættulítil.
Heldur voru heimamenn hress-
ari í síðari hálficiknum og sóttu
meira. Dean Saunders skallaði
naumlcga framhjá af stuttu færi og
Mark Becney í marki Lceds Utd.
varði glæsilega þrumuskot frá
Atkinson. Eina mark leiksins og
sigurmark Aston Villa kom síðan
er 20 mín. voru til leiksloka. Neil
Cox sem komið hafði inná sem
varamaður skömmu áður átti þá
góða sendingu innfyrir vörn Leeds
Utd. sem Andy Townsend nýtti
sér vel og skoraói með góðu skoti
úr þröngu færi.
Sigur Villa í leiknum var sann-
gjarn þótt ekki væri mikill munur
á liðunum, cn heimamenn voru þó
hcldur bcittari. Lið Leeds Utd.
verður hins vegar aö fara að taka
sér tak og komast á sigurbraut á
nýjan leik scm allra fyrst ætli liðið
sér ekki aö hrapa nióur stigatöll-
una. Þ.L.A.
byrjuðu betur og Matthew Le
Tissier náöi forystunni fyrir Sout-
hampton, en Scan McCarthy jafn-
aói fyrir Oldham. Það var síðan
Paul Bernard sem tryggði Oldham
sigurinn með síðara marki liðsins.
1. deild
Talsvert var um óvænt úrslit í 1.
deildinni þar sem efstu liðunum
gekk yfirleitt hcldur illa. Þannig
varð Crystal Palace aó láta sér
jafnteflið á heimavelli duga gegn
Derby sem raunar náði forystu í
leiknum. Þaó leit heldur illa út
fyrir Þorvald Orlygsson og Stoke
City er Wolves náði forystu gegn
þeim í fyrri hálfieik, cn í þeim síö-
ari náði Vince Overson að jafna
fyrir Stoke og tryggja liðinu stig. í
viðtali við knattspyrnublað á Eng-
Iandi fyrir skömmu sagði Brian
Clough fyrrum framkvæmdastjóri
Nottingham For. og sá maðurinn
sem keypti Þorvald frá K.A. til
Englands á sínurn tíma aó Toddi
væri nú að sanna sig sem knatt-
spyrnumaður. Clough kvaðst
fagna velgengni hans hjá Stokc
City og viðurkenndi fúslega að
hafa vanmetið Þorvald og sagði aó
hann væri nú að sanna hvcrsu
snjall knattspyrnumaður hann
væri, cn því miður hel’ói hann ekki
séð hvað virkilega bjó í honum
hjá Forest. Þ.L.A.
Staðan
Úrvalsdeild:
Man. Utd 28 20 7 1 57:25 67
Blackburn 26 16 6 4 39:20 54
Arsenal 27 12 10 5 31:14 46
Newcastle 2613 6 7 45:2345
Liverpool 27 12 8 7 47:3244
Sheff. Wed 28 11 9 7 52:37 43
Leeds 27 11 10 6 39:28 43
Aston Villa 26 11 8 7 31:27 41
Norwich 26 1010 642:3340
QPR 2711 61042:3639
West Ham 27 9 8 1025:3535
Coventry 27 8 10 9 28:32 34
Wimbledon 26 8 9 9 27:36 33
Ipswich 27 7 11 9 23:3032
Everton 28 9 4 15 32:40 31
Tottenham 28 7 912 36:37 30
Chelsea 26 6 8 12 25:34 26
Manch. City 26 S 9 1223:33 24
Southampton 27 7 3 17 27:3924
Oldham 27 5 8 1422:46 23
Sheff. Utd 27 4 101322:42 22
Swindon 28 4 101432:63 19
1. deild:
Crystal Pal 27 15 5 7 47:31 53
Charlton 28 14 6 8 34:26 48
Nott. Forest 2613 7 645:2946
Leicester 28 13 7 846:3746
Millwall 2713 7 7 41:3246
Tranmere 28 13 6 9 38:33 45
Derby 28 12 4 1144:42 43
Wolves 271012 542:2842
Stoke 27 12 6 9 37:39 42
Bristol City 29 11 8 10 35:34 41
Southend 2912 41344:4240
Bolton 28 10 9 9 37:32 39
Portsmouth 28 911 831:34 38
Middlesbro 27 9 10 8 38:30 37
Sunderland 28 11 4 13 30:36 37
N. County 28 11 41338:47 37
Luton 2710 512 35:3435
Grimsby 28 7 13 8 34:32 34
Watford 29 8 7 14 43:57 31
W'BA 28 7 8 1341:46 29
Birmingham 28 7 8 13 28:41 29
Barnsley 25 6 7 1433:43 28
Oxford 28 6 71531:5225
Peterboro 26 5 9 12 24:33 24