Dagur - 08.02.1994, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 8. febrúar 1994
MINNIN6
'Q* Jakobína Sigurðardóttir
Fædd 8. júlí 1918 - Dáin 29. janúar 1994
„Kvæði mín eru aö mestu tæki-
færis- og stemmningaljóð, svo
sem ort hafa alþýðuskáld á Islandi
um aldaraðir.“
Þannig kemst Jakobína sjálf að
orói um eigin kveðskap í formáls-
orðum að nýrri útgáfu Kvæða árið
1983. Eg ætla að þessi orð segi á
sinn hátt býsna mikið um skáldið
og rithöfundinn Jakobínu Sigurð-
ardóttur.
Skáldskapur hennar stendur
föstum fótum í íslenskri þjóó-
menningu. A yfirlætislausu og
tæru máli vitnar hann um heitar
kenndir og miklar tilfinningar til
landsins, til sögunnar, til fólksins
og alls sem Iífsandann dregur.
Frelsi, sjálfstæði og reisn þjóðar-
innar voru henni hjartfólgin yrkis-
efni um leið og hún deildi kjörum
með alþýðu manna jafnt í eigin
lífi sem í skáldskap.
Jakobína andaðist laugardaginn
29. janúar á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri eftir alllanga sjúk-
dómslegu. Hún var fædd í Hæla-
vík í Sléttuhreppi, N-Isafjarðar-
sýslu, 8. júlí 1918. Foreldrar
hennar voru Stefanía Halldóra
Guónadóttir húsmóðir, fædd í
Hælavík, og Sigurður Sigurðsson
bóndi og símstöðvarstjóri, fæddur
á Læk í Aóalvík.
Þær tilfmningar sem Jakobína
bar til æskustöðvanna á Horn-
ströndum koma víöa fram í verk-
um hennar. An efa hafa örlög
Þorrablót
Glæsibæjarhrepps
ver&ur haldið í Hlí&arbæ laugar-
daginn 12. febrúar kl. 20.30
stundvíslega.
MiSapantanir í síma 26090, Herborg og
23613, Jón, þriSjudaginn 8. febrúar og miSvikudaginn
9. febrúar milli kl. 20 og 22 bæSi kvöldin.
Hreppsbúar fyrr og nú velkomnir.
Nefndin.
Aðalfundur
Flugbjörgunarsveitarinnar
á Akureyri
verður haldinn mánudaginn 14. febrúar í húsnæði
sveitarinnar og hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aóalfundarstörf.
Stjórnin.
Samkeppni
um gerð
UTVflRP útvarpsefnis
UmfERDflRRflDS
Umferðarráð efnir til samkeppni um gerð
nýrra frumsaminna útvarpsinnskota og
„slagorða" um umferðarmál í tilefni af 25
ára afmæli ráðsins. Útvarpsinnskotin skulu
vera allt að 30 sekúndur að lengd.
Verðlaun
Fyrir fullunnin innskot Fyrir „slagorð"
1. verðlaun 100.000 kr. 1. verðlaun 40.000 kr.
2. verölaun 75.000 kr. 2. verðlaun 30.000 kr.
3. verðlaun 50.000 kr. 3. verðlaun 20.000 kr.
Fulltrúar útvarpsstöðva og dagskrárgerðar-
fólk Útvarps Umferðarráðs skipa dómnefnd.
Tillögur skal senda til Útvarps Umferðarráðs,
Borgartúni 33, 150 Reykjavík fyrir 1. mars
naestkomandi í lokuðu umslagi ásamt dul-
nefni höfundar. Nafn höfundar fylgi í lokuðu
umslagi merkt dulnefninu.
Umferðrráð áskilur sér rétt til vinnslu og
ótakmarkaðs flutnings á
Nánari upplýsingar eru
622000.
verðlaunuðu efni.
veittár í síma 91-
ú
UMFERÐAR
RÁÐ
byggðarinnar þar orkað sterkt á
hana og mótað viðhorf hennar á
lífsleiðinni.
Jakobína giftist lífsförunaut
sínum Þorgrími Starra Björgvins-
syni frá Garði í Mývatnssveit 22.
júní 1955, en þau hófu búskap í
Garði nokkrum árum fyrr og þar
stóð heimili þeirra í yfir 40 ár.
Börn þeirra Jakobínu og Starra eru
fjögur: Stefanía rithöfundur, f. 11.
apríl 1950, Sigrún Huld hjúkrun-
arfræðingur, f. 4. júní 1952, Sig-
ríður Kristín sagnfræðingur, f. 20.
septembcr 1956 og Kári bóndi í
Garði, f. 17 júní 1959.
Stúlkan af Hornströndum og
bóndasonurinn að norðan felldu
hugi saman og bundust sterkum
böndum sem aldrei biluóu enda
bæði tilfinningaríkar manneskjur.
Heimilið í Garði varð næsta
einstakt í sinni röð. Þar varó að-
setur mikilla hugsjóna og sterkra
tilfmninga í bland vió harða lífs-
baráttu og brauðstrit. Hjónin í
Garði urðu landsþekkt fyrir ein-
arða andstöðu við erlenda hersetu
og í fararbroddi fyrir baráttu her-
stöðvarandstæóinga um áratuga-
skeið. Heitur kveóskapur Jakob-
ínu átti greiða leið að hjörtum
þjóóarinnar.
„Hvað tefur þig bróöir?
A tindunum sólskinið logar.
Af tárum er risin sú glóð“.
Og húsfreyjan í Garói gerði
meira en koma upp fjórum börn-
um samhliða verkum bóndakon-
unnar. Hún sendi á liðlega þremur
áratugum frá sér einar níu bækur,
skáldsögur, smásagnasöfn og
kvæðabók. Jakobína varð lands-
fræg fyrir ritstörf sín og hlaut fyrir
þau fjölmargar viðurkenningar.
Þar á meðal naut hún heiðurslauna
Alþingis síðustu árin.
Viö kveðjum nú með trega og
söknuði manneskjuna Jakobínu og
þó, þó lifir hún áfram í verkum
sínum sem hún gaf okkur beint frá
hjartanu.
Góði vinur Starri. Við Bergný
sendum þér og fjölskyldunni okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Við minnumst heimsókna í Garð
og gleðistunda sem ekki verða frá
okkur teknar. Þökk sé Jakobínu
Siguróardóttur fyrir það sem hún
gaf okkur og blessuð sé minning
hcnnar.
Steingrímur J. Sigfússon.
Fímmtán skipaðir í
íslenska málnefnd
Menntamálaráðherra hefur
skipað Islenska málnefnd til
fjögurra ára frá 1. janúar 1994
að telja.
I nefndinni eiga sæti:
Kristján Arnason, prófessor,
tilnefndur af heimspekideild Há-
skóla Islands, formaður; Gunn-
laugur Ingólfsson, orðabókarrit-
stjóri, tilnefndur af Oróabók Há-
skólans, varaformaóur; Jónas
Kristjánsson, forstöðumaður, til-
nefndur af háskólaráði; Þórhallur
Vilmundarson, prófessor, til-
nefndur af Örnefnanefnd; Ey-
steinn Þorvaldsson, prófessor, til-
nefndur af Kennaraháskóla Is-
lands; Ari Páll Kristinsson, mál-
farsráðunautur, tilnefndur af Rík-
isútvarpinu; Arni Ibsen, leiklistar-
ráóunautur, tilnefndur af Þjóóleik-
húsinu; Guðrún Rögnvaldsdóttir,
verkfræðingur, tilnefnd af Staðla-
ráði Islands; Símon Jón Jóhanns-
son, kennari, tilnefndur af Sam-
tökum móðurmálskennara; Þórar-
inn Eldjám, rithöfundur, tilnefnd-
ur af Rithöfundasambandi Islands;
Gísli J. Astþórsson, blaðamaður,
tilnefndur af Blaðamannafélagi Is-
Pexrör
með súrefniskápu
til vatnslagna,
í geislahitun,
og miðstöðvarlagna.
mm
DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI
SÍMI (96)22360
lands; Margrét Pálsdóttir, mál-
fræðingur, tilnefnd af Hagþenki;
Heimir Pálsson, cand.mag.; Ragn-
heiður Briem, kennslufræðingur,
og Sigrún Helgadóttir, reiknifræð-
ingur.
Islensk málnefnd starfar sam-
kvæmt lögum nr. 2/1990. Hún er
málræktar- og málverndarstofnun
og rekur Islenska málstöó í sam-
vinnu við Háskóla Islands.
Rauði krossinn:
Vinalman
tveggja ára
Vinalína Rauða kross Islands er
tveggja ára um þessar mundir,
en Vinalínan er símaþjónusta
fyrir 18 ára og eldri þar sem
fyllstu nafnleyndar er gætt.
Þjónustan er opin á hverju
kvöldi kl. 20-23 og þangað getur
fólk hringt ef það á við vanda-
mál að stríða eða er einmana.
Grænt númer fyrir landsbyggð-
ina er 996464.
Það var 16. janúar 1992 sem
sjálfboðaliðar hófu að sitja síma-
vaktir og fljótlega kom í Ijós að
þörf var fyrir þessa þjónustu. Sím-
töl ársins 1992 voru 743 en á síð-
asta ári notfærðu 983 sér þjónustu
Vinalínunnar, cða þriðjungi fleiri
en árið áður.
Sjállboðalióar Vinalínunnar
eru 45 talsins, af báðum kynjum
og á ýmsum aldri. Auk þess aö
sitja símavaktir sækja sjálfboða-
liöar fræðslufundi um ýmis mál-
efni og handleiðslu hjá sálfræð-
ingi. Sjálfboðaliðar þurfa aö fara í
einstaklingsviðtal og sækja síma-
námskeið áður en þcir hefja störf.
Ný námskeið verða fyrstu helgina
í mars. SS
fRUSSISK TYGGEIYST
IGIVER 90 DANSKf J0B
“k vl!. . 1» »«»■•
Vsrs , ■.
Larkí*! Swt »i S9W.
r?t‘7'£'mZ. 2
"JL, ,1 átm *t » fl
Sl™a*»>l‘ »«*n». »»• »’ ** m
ER T0ILETPAPIR
EN DAGUGVARE?
Smátt & stórt
í Danmörku
Áratugum saman hefur Smátt
& stórt verið fastur þáttur í
Degi og eitt vinsælasta lesefnið í
blaðinu. Okkur þótti skemmti-
legt að frétta af því að frændur
okkar Danir eiga líka sitt Smátt
& stórt en þar heitir þátturinn
reyndar Stort & smát.
Nýverið rak á fjörur blaðsins
úrklippu úr Amts Avisen í Ran-
ders. Þar er að finna dálkinn Stort
& smát og efni hans er ýmis sam-
tíningur. Til dæmis kemur fram að
jórturgúmmíárátta Rússa skapar
90 störf í Dandy verksmiðjunni í
Vejle. Það eru tegundirnar „Sti-
morol“ og „Dirol“ sem hafa slegið
í gegn í Rússlandi og er danska
tyggigúmmíið nú kornið í þriðja
sæti á listann yfir þekktustu mark-
aðsvörur frá Vesturlöndum. Ef til
vill ættu Islendingar að huga að
sælgætismarkaðnum í Rússlandi.
En nú má spyrja hvort einhver
tengsl séu á milli þessara dálka í
Degi og Amts Avisen og velta því
fyrir sér hvort sú staðreynd að
Randers er vinabær Akureyrar
hefur þarna eitthvaó að segja. Við
á Dcgi teljum fullvíst að Danirnir
hafi fengið nafnió Smátt & stórt
lánað frá okkur og snúið því viö
en auðvitað er einfaldasta skýring-
in fólgin í skyldleika tungumál-
anna. . SS