Dagur - 26.02.1994, Side 18
18 - DAGUR - Laugardagur 26. febrúar 1994
POPP______________ MAÚNÚS CEIR CUPMUNDSSON
Svai*tiir senuþjófur
- „Ribbaldarappið44 lætur ekki að sér liæða
----------------------------------—------—---------------------------
Snoop doggy dogg, einn umdeildasti tónlistarmaður Ameríku um þessar
mundir. Morðákæra á hendur honum fer fyrir dóm i mars.
Þegar skálmöldinni í Los Ange-
les vegna Rodney Kings-
málsins, sem svo „ribbalda-
rapparinn" lce-T og hljómsveit-
in hans Body Count áttu einnig
ekki lítinn þátt í með laginu
vægast sagt umdeilda, Cop
killer, lauk 1992 (á yfirborðinu
allavega), spáóu margir því að
rapptónlistin myndi ekki mikið
lengur njóta almannahylli. Það
mátti líka til sanns vegar færa
að „harðneskjurappið" (hard-
corerap) væri komið á ystu nöf,
út í öfgar, því í stað þess að
vera tjáningarmáti til að deila á
ofbeldi og kúgun, eins og í
upphafi, var rappið orðið áróð-
urstæki til ofbeldis, til haturs og
hefnda. En þannig fór þó al-
deilis ekki og hefur þróunin
raunar orðið þveröfug. Rappinu
hefur nefnilega og þá sérstak-
lega því sem kennt er við haró-
neskjuna, vaxið enn frekar fisk-
ur um hrygg og sér ekki fyrir
endann á vinsældum þess
ennþá. Virðist ekki skipta máli
þó öfgarnar séu engu minni og
nýir kraftar sem fram koma séu
áfram vafasamir. Aimenningur
heldur áfram að kaupa
rappplötur í milljónatali og virð-
ist það bara vera þeim mun
vænlegra til vinsælda, því vafa-
samara orð menn hafa á sér.
Það sannast vel sem aldrei fyrr
á nýjustu stjörnunni í rappinu,
Snoop doggy dogg, en hann
hefur heldur betur slegið í
gegn.
„Vandrædagemsi“
Hafi þeir lce Cube og lce-T
þótt vafasamir, þá má segja
um Snoop doggy dogg að
hann þyki enn verri og vafa-
samari. Réttu nafni heitir hann
Snoop Calvin Broadus og er
frá Long Island í New York þar
sem hann ólst að mestu upp.
Eins og svo margra blökku-
manna annarra hefur ævi
hans, sem nú hefur spannað
rúm tuttugu ár, verió hörð og
óblíó með kunnuglegum afleið-
ingum. Snoop mun þó hafa
skriðið í gegnum gagnfræða-
skóla (High school) en var
samt þá þegar kominn út á
braut afbrotanna í glæpagengi.
Og þá ekki út í neitt smáræði,
hnupl eða þessháttar, heldur
kókaínsölu. Eyddi hann meira
og minna næstu þremur árum
eftir að skólagöngunni lauk í
fangelsi. Áfram hefur hann svo
tengst ýmsum gengjum eftir að
hann fluttist til Los Angeles og
sneri sér af alvöru að rappinu.
Sú staóreynd kann nú e.t.v.
vera að leiða til þess að hin
æfintýralega og skjóta vel-
gengni sem hann hefur notió
með fyrstu plötunni sinni,
Doggystyle, muni hverfa hon-
um jafnfljótt og hún kom.
Aðild að morði
Þann 25. ágúst á síóasta ári
var Snoop doggy dogg nefni-
lega viðriðinn skotárás, sem
leiddi til dauða 22 ára blökku-
manns, meólims í glæpaklíku
er oftar en einu sinni hafði hót-
að Snoop sjálfum lífláti. Var
Snoop á ökuferð með lífverði
sínum og öórum manni til er at-
burðurinn átti sér staö og á líf-
vöróurinn, að sögn, hafa skotið
manninn beint eða óbeint að
tilmælum Snoop eftir aó þeir
höfðu elt hann uppi á bifreið-
inni. Við yfirheyrslur hafa þeir
tveir hins vegar borió að um
sjálfsvörn hafi verið að ræða,
hinn hafi gripió til byssu til að
skjóta á þá, en þeir orðió fyrri
til. í ákærunni á hendur Snoop
er aftur á móti haldið fram að
maðurinn hafi verið óvopnaður
og að hann hafi verið skotinn í
bakió. Það átti aó rétta í málinu
20. janúar síóastliðinn, en
vegna jarðskjálftanna í Los
Angeles var því frestaó þar til
skikkanlegt ástand kæmist aft-
ur á í borginni. Gengur Snoop
því enn laus, gegn einnar millj-
ónar dollara tryggingu, en á yfir
höfði sér allt að 25 ára fangels-
isvist ef hann veróur fundinn
sekur. Ekki beint vænlegt það.
Braut blað í sölu
En hvað sem málinu líóur og
hverjar lyktir þess verða, er
Ijóst sem fyrr segir að frami
Snoop doggy doggs hefur ver-
ið dæmalaus og hreinlega með
ólíkindum. Með Snoopstyle
hefur honum t.d. tekist það að
verða fyrsti nýlióinn til að fara
beint með plötu í efsta sæti
sölulistans í Bandaríkjunum,
sem er nokkuð sem enginn átti
von á. Rann bókstaflega
„Snoopæði" á plötukaupend-
ur,er platan kom út í desember
og keyptu þeir gripinn samtals í
um 800.000 eintökum fyrstu
vikuna. Þá mun platan hafa
selst í um tveimur milljónum
eintaka í forsölu til verslana og
hefur svo nú samkvæmt síð-
ustu fregnum selst í á fimmtu
milljón allt í allt í Bandaríkjun-
um. Má segja að allt vesenið
hafi þar á kaldhæðnislegan
hátt eitthvað ýtt undir, en ekki
er þó hægt aó fullyrða svo glatt
um það. Gagnrýnendur hafa
iíka hælt plötunni og telja
margir hana þá bestu í rappinu
í mörg ár. Er það hinn þekkti
Dr. Dre sem sér um upptökuna
á plötunni, en á plötu meö hon-
um kom Snoop fyrst fram árió
1990. Snoop lék svo stórt hlut-
verk á plötu Dre, The Chronic,
sem náði milljónasölu. Á það
eflaust sinn þátt í velgengni
Snoops sjálfs nú. Rappið á
Doggystyle þykir nokkuð meló-
dískara en gengur og gerist hjá
„ribbaldaröppurunum", meira í
sálar- og fönkstíl, en textarnir
eru hins vegar (því miður verð-
ur að segjast) í sama árásar-
gjarna stílnum, með allt mor-
andi í klám- og blótsyróum.
En vafasamur boóskapur
stendur Snoop semsagt ekki
fyrir þrifum frekar en öðrum
röppurum, eins og fyrr greinir.
Það eru hins vegar þau örlög
hans aö vera svartur einstak-
lingur er kann ekki fótum sín-
um forráð, sem nú ef að líkum
lætur standa honum fyrir frek-
ari þrifum.
Rokksveitin fræga Boston
hefur sannarlega átt
nokkuð óvenjulegan feril.
Hún sló rækilega í gegn með
fyrstu samnefndu plötunni
sinni árið 1976 (sem inni-
heldur smellinn sígilda More
than a feeling) og fylgdi
henni svo eftir með Don’t
look back tveimur árum síð-
ar. En siðan liðu heil átta ár
þar til næsta plata Tom
Scholz gítarleikara og félaga
kom út, Third stage 1986.
Nú átta árum eftir útkomu
þeirrar plötu er loks von á
þeirri fjórðu, nánar tiltekið í
apríl. Er nafn gripsins enn á
huldu, en smáskífa með lag-
inu Need your love kemur út
í mars...
Pönkið virðist nú í kjölfar
almennra vinsælda
kraftmikillar rokktónlistar,
eiga sér endurnýjun lífdaga
og það svo eftir er tekið.
Felst það ekki hvaó síst ( því
að gamlar sveitir pönksins
og nýbylgjunnar koma nú
hver af annarri fram á sjón-
arsvióið á ný og þá bæði í
upprunalegum myndum eða
breyttar. Ein þessara sveita
sem nú er komin aftur í sinni
upprunalegu mynd er Killing
Joke, en von er á nýju lagi
frá henni I mars. Á svo plata
að koma I kjölfarið I apríl.
Jaz Coleman og fólagar I Killing
Joke aftur saman.
Annars hafa þær sögur verið
á kreiki að Geordie gítarleik-
ari Killing Joke, kæmi sterk-
lega til greina sem eftirmað-
ur Jim Martin I Faith No
More, fönkrokksveitinni far-
sælu. Var Martín einmitt lát-
inn hætta I henni um síðustu
áramót. En vegna þessa
nýja samstarfs Killing Joke
virðast nú ekki vera miklar
líkur á því. Þaó sem svo er
býsna merkilegt við nýja lag-
ið hjá Killing Joke, (ónefnt)
er að það var tekið upp inni I
píramíta I Egyptalandi...
Breska hljómsveitin Blur,
sem er eins bresk og
frekast getur orðið, sækir
áhrif meðal annars I Bítlana
og fleiri þeirra tíma hljóm-
sveitir, vinnur nú hörðum
höndum að nýrri plötu sem
koma á út I maí. Þó ætla þeir
félagar I Blur líka að gefa sér
tíma til aó halda tónleika
meðfram vinnunni, I nýjasta
tónleikahúsi Lundúnaborgar,
Shephards Bush Empire I
mars. Sem poppáhuga-
mönnum er kunnugt gerði
Blur góóa lukku á síóasta ári
með plötunni Modern life is
rubbish og þótti hún með
betri smíðum ársins...
Neil Young snýr enn og aftur
með Crazy Horse á nýrri plötu.
Hann Neil Young lætur
ekki deigan síga frekar
en fyrri daginn og er nú
kominn á fullt span enn eitt
árió. Hann mun þessa dag-
ana vera aó klára nýja plötu
með hljómsveitinni sinni
Crazy Horse auk þess aó
skipuleggja tónleikaferð
m.a. til Bretlands I sumar.
Þá hefur hann endurútgefió
lagió sitt vinsæla Rockin’ in
the free world. Þess má svo
geta einnig að lan McNabb
fyrrum söngvari lcicle
Works hefur líka verið að
taka upp efni með Crazy
Horse...
Þaó hafa svosem ekki
margar sögur borist af
hremmingum tónlistar-
manna vegna jaróskjálftans
mikla I Los Angeles I janú-
ar, sem er gott út af fyrir sig,
en þeir sluppu nú samt ekki
við skakkaföll frekar en aðr-
ir. Til aó mynda hefur þaó
nú fregnast aó félagarnir I
Texastríóinu fræga ZZ Top
hafi orðið fyrir miklu tjóni
þegar svið sem þeir höfðu
látió smíða fyrir myndband
og átti að fara aó taka bráð-
lega eyðilagðist. Kostaói
smíðin um hálfa milljón doll-
ara, eóa 35-40 milljónir ísl.
kr. Tjónið er því tilfinnanlegt
og ekki víst að fáist bætt...
Nú um stundir er þaó
mjög I tísku eins og
kunnugt er, aó heiðra hin
ýmsu stórmenni popp- og
rokksögunnar, lifandi eóa
látin, með margvíslegum
hætti. Nú fyrr í þessari viku
fór t.d. fram í New York helj-
armikil tónleikaveisla til
heióurs gamla rokkbrýninu
Pete Townshend, for-
sprakka The Who. Koma
þar við sögu m.a. Eddie
Vedder söngvari Pearl Jam,
4 Non Blondes og gömlu
írsku þjóðlagagarparnir í
The Chieftains. Þaó sem þó
e.t.v. vakti mesta athygli vió
þessa tónleika til heiðurs
Townshend var aó á bak
vió allt saman stóð fyrrum
söngvari Who, Roger Daltr-
ey, sem yfirgaf hljómsveit-
ina fyrir langa löngu I ekki
allt of miklum vinskap. Þau
sár virðist hins vegar öll
gróin af þessu aó dæma.