Dagur - 26.02.1994, Blaðsíða 20

Dagur - 26.02.1994, Blaðsíða 20
Fiskiðjusamlag Húsavíkur: Mannfrekar vinnslu- aðferðir - unnið ijórða laugar- daginn í röð Fiskiðjusamlag Húsavíkur aug- lýsti nýiega eftir vönu fólki tii flskvinnslu. A þessum dögum atvinnuleysis má telja atvinnu- augiýsingar til tíðinda. Hail- grímur Valdimarsson, fram- leiðslustjóri, sagði að búið væri að ráða í fimm störf en illa hefði gengið að fá fólk með verkþekk- ingu og reynslu til fisk- vinnslustarfa þó listar með vinnuumsóknum væru langir. „Vió þurftum aö bæta vió fólki og þetta var tilraun hjá okkur meó aö athuga hvort einhversstaóar leyndist þaulvant fólk sem vildi koma til vinnu. Viö fengum að hluta til vant fólk og réóunt cinnig óvant fólk, cruni búnir aö ráöa í störfin," sagöi Hallgrímur. Mikiö hefur veriö aö gera hjá FH að undanförnu og í dag er fjórði laugardagurinn í röö sent unnió er. Virka daga er venjulega unnið frá kl. 6 á morgnana til kl. 17 á daginn. „Það hefur veriö ágætis afli á smábáta þegar gefið hefur og togarinn hefur aflaó vel. En í næsta og þarnæsta mánuöi fer að reyna á aó kvótastaóan er mjög slök hérna. Við reynum að haga vinnslunni þannig aö vinna fiskinn eins mikiö og mögulegt er og þá þurfum við kannski ekki svo mjög ntikið hrá- efni, ef það berst þokkalega jafnt aö. Vinnsluaöferðirnar eru rnann- frekar og önnur vinnslustefna dugar ekki þegar úr takmörkuðum kvóturn er aó spila,“ sagði Hall- grímur. Hann sagói að horfur væru á mikilli vinnu áfram í næstu viku, og eitthvað væri til af Rússa- fiski til aó grípa til ef drægi úr afla sem á land bærist. IM Akureyri: Brotist inn í íbúð og bíla Rannsóknarlögreglan á Akur- hann hefði játað Stund niilli stríða. Kcppendur á íslandsbankamótinu áttu frí á fhnmtudag- inn. Farið var í skoðunarfcrð um Akurcyri og dreypt á kaffi í skákhcimil- inu. Hcr slá kcppcndur Skákfclags Akureyrar á létta strengi, þcir Margeir I’ctursson, Olafur Kristjánsson og Gylfi Þórhallsson. Væntanlega verða þeir alvarlegri á svip um hclgina. Mynd: Robyn. eyri hefur fengist við nokkur innbrotsmál í vikunni. A mið- vikudagskvöld var farið inn í íbúð við Víðilund og stolið það- an um 8 þúsund krónum í pen- ingum en engar skemmdir unn- ar. Einn maður hefur verið yfir- heyröur vegna innbrotsins en í gærmorgun lá ekki fyrir hvort Sr. Hjálmar Jónsson á Sauðárkróki, fulltrúi í útvarpslaganefnd: Frelsið má ekki verða frelsi hinna fáu til þess að stjóma liinuin mörgu Séra Hjálmar Jónsson á Sauð- árkróki, sem á sæti í útvarps- laganefnd, er stuðningsmaður innheimtugjalda Ríkisútvarps- ins. Hann segir grundvaliarat- riði að allir þegnar landsins, óháð efnahagslegri stöðu og bú- setu, geti átt þess kost að njóta þjónustu ljósvakamiðla. Ef inn- heimtugjaldið yrði tekið af myndu áskriftargjöld fyrirsjá- anlega hækka verulega. „Tónninn sent sleginn er í þessu frumvarpi er að verjast er- lendri ásókn með öflugri innlendri dagskrárgerð. Fráleitt væri að veikja íslenska fjölmiðla. Val'a- laust má gera betur í rekstri Ríkis- útvarpsins og við væntum að svo Jákvæð afkoma Krossaness hf.: Verksmiðjumii hefur verið búið betra rekstarumhverfi - segir Hólmsteinn Hólmsteinsson, stjórnarformaður Hólmsteinn Hólmsteinsson, stjórnarformaður Krossaness hf., fagnar rekstrarafkomu fyr- irtækisins á síðasta ári en eins og fram kom í blaðinu í gær skilaði það 8,6 milljóna króna hagnaði. HELGARVEÐRIÐ Norðurland veróur í faðmi fimbulkulda næstu daga. Veðurstofan spáir stilltu veðri í dag og um 10 stiga frosti. Á sunnudag og mánudag verð- ur áfram hæg austan eða norðaustan átt, léttskýjað og allt að 15 stiga frost í inn- sveitum. Á þriðjudag verður éljagangur eða snjókoma um austanvert landið en annars litlar breytingar. Þessa dagana er aó komast í fulla notkun nýr þurrkari í verk- smiójunni sem fyrirtækió hefur átt um nokkurn tíma erlendis en ekki getaó selt. Þurrkarinn rnun auka afkastagetuna talsvert og með þá breytingu sem og bætta fjárhags- stöðu fyrirtækisins segist Hólm- steinn bjartsýnn á framhaldið ef góð loðnuveiði helst áfram. „Jú, við teljum að búið sé aö snúa þessu töluvert við og mögu- leikarnir eru meiri meö aukinni af- kastagetu verksmiðjunnar. Verk- smiðjunni helur líka verið búið betra rekstrarumhverfi með skuld- breytingum og auknu hlutafé en það vegur þungt að loðnan er á uppleið. Ef við fáum 3-4 góð loönuár þá eru góðar líkur á að fyrirtækið vinni sig út úr þessum skuldum þannig að fyrirtækið geti staóió á eigin fótum,“ sagði Hólmsteinn. JOH verði. En í meginatriðum erurn vió sátt við starfsemi þess. Meira fé þarf aö skila sér til dagskrár- gerðar og minnka annan kostnað,“ sagði Hjálmar. Gert er ráð fyrir því í tillögu nefndarinnar að næstu tvö árin verði afnotagjald RUV óbreytt. Hjálmar segir að með ákvöróun um að hætta að innheimta afnota- gjaldió væri mikil hætta á því að þcir sem minnst hafi á milli hand- anna hefðu ekki lengur aðgang að útvarpi og sjónvarpi. „Tvö þúsund krónur á mánuði lyrir tvær hljóð- varpsrásir og cina sjónvarpsrás er lágt gjald,“ sagði Hjálmar. Mciri- hluti þjóðarinnar vill hafa Ríkisút- varpið „Eg met mest við sameig- inlegt álit nefndarinnar að' eiga áfram sameiginlegt fyrirtæki, Rík- isútvarpið, sem að mínum dómi mikill meirihluti þjóðarinnar vill haía og telur vera sinn vettvang. Fólk vill að fréttamiðlun sé óhlut- dræg og Ríkisútvarpið sé vett- vangur þjóðmálaumræðu, höfði til fólks á öllum aldri.“ I fyrrakvöld var stofnað til fé- lagaskapar í Reykjavík til þess að fá hnekkt skylduáskrift að RUV. Hjálmar sagðist telja að þcssi fé- lagsskapur sæi ekki yfir allt svið- ið. „Þetta snýst ekki síst um rétt- indi allra til þess aó gcta notið þjónustu ljósvakamiólanna. Það er réttindi allra þjóðfélagsþegna til aó geta tjáó sig, en þaó er að sjálf- sögðu afar mikilvægt að Ríkisút- varpið verði aldrei meó réttu sak- aö um hlutdrægni. Það sem myndi hiklaust gerast hér er að afnám skylduáskriftar ntyndi leiða til verulegrar hækkunar á áskriftar- gjöldum og þar með myndi ckki nema hluti landsmanna hafa efni á að hala aðgang að ljósvakamiðl- unum. Markaðssjónarmiðin myndu ekki verða hliðholl þeim sem búa í dreifðum byggðum landsins og eru ekki ómerkari hluti af þjóðinni en hvcr annar.“ „Auðvitað er afnotagjaldió til- tekinn skattur, en það er innheimt í nafni þess að allir sitji við sama borö. Ég vil ekki auka ójöfnuð. Frelsið má ckki vcrða lrelsi hinna lau til þess að stjórna hinum mörgu. Samkeppni í fjölmiðlun þarf að stefna að því að víkka en ekki þrengja sjóndeildarhringinn. Otvíræöir kostir samkeppni hala komið í Ijós á fjölmiðlamarkaðn- um þannig að lögin frá 1985 hafa orðið til bóta. Mcstu varðar aó mínum dómi að mikill meirihluti útvarpslaga- nefndar var sammála um niður- stöðuna. Það skiptir miklu máli. Með þessu frumvarpi er skoraö á einkamiðlana að efla innlenda dagskrárgeró, þeir fá t.d. forgang að dagskrárgerðarsjóði. Þcirra framsókn á markaðnum hefur hins vegar verið að lengja dagskrána og kaupa crlcnt efni, misjafnt að gæóum. Frumvarpsdrögin stefna að því að auka tjölbrcytnina í dag- skrárgcró og styrkja innlenda að- ila til þess að vinna dagskrána,“ sagði Hjálmar Jónsson. óþh Aðlaranótt fimmtudags var far- ið inn í marga bíla á svæóinu í kringum Oddeyrargötu og greip lögreglan tvo unglinga glóðvolga. Þeir höfðu ekki haft mikið upp úr krafsinu cn lögreglan rakti slóð þcirra að um 70 bílum sem þeir höfóu átt við á þessu svæöi. SS Við tökum vel á móti ykkur alla daga til kl. 22.00 Byggðavegi 98 ■BBBBBBBEBBBBBBEBBEEBBRBREBRBBBBa - —- g . B Trio Eldavél, bökunarofn og uppþvottavél kr. 99.845 SKAUPLAND Kaupangi v/Mýrarveg. simi 23565 Sjávarréttakvöld Hið geysivinsæla sjávarréttakvöld okkar verður haldið laugardaginn 5. mars. Stórkostlegt úrval sjaldgæfra sjávarrétta, heitra og kaldra á hlaðboröi. Veislan hefst kl. 19.30 með hanastéli og Ijúfri tónlist. Dansað verður til kl. 03.00. Pantanir í síma 61488. SÆLUHÚSIÐ DALVÍK

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.