Dagur - 28.04.1994, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 28. apríl 1994
- Heldur þtí að voríð komí um helgína?
Spixrning vikttnnar — spurt á Akureyrí
Sigurbjörg Víðarsdóttir
og Elva Ýr:
„Alveg örugglega. Um það er
engin spurning."
Eydís Ámadóttír:
.Jú - það kemur áreiðanlega
um helgína."
Hjaltí Gestsson:
„Ég vona það - veturinn er
búinn að vera nógu langur."
Bjami Þórhallsson:
„Um helgina - jú það er engin
spumíng. Gestur Einar er líka
búinn að lofa því."
Guðmundur Lárusson:
„Það kemur örugglega á
sunnudaginn."
Sæluvikukonsert ’94
Hinir árlegu stór-kóratónleikar
Karlakórsins Heimis og Rökkur-
kórsins voru haldnir í Miðgarði í
Skagafirði laugardaginn 16. apríl.
Svo sem jafnan voru gestakórar
mættir til leiks, enda orðið eftir-
sótt af kóra hálfu að taka þátt í
þessari miklu kóraveislu og er
biðlisti til næstu ára. Að þessu
sinni voru gestirnir Karlakórinn
Þrestir frá Hafnarfirði og Skag-
firska söngsveitin.
Fyrstir á svið voru félagarnir í
Karlakórnum Þrestir. Stjórnandi
kórsins er Eiríkur Arni Sigtryggs-
son en undirleikari í forföllum
hins eiginlega undirleikara kórsins
var Sigurður Marteinsson.
Karlakórinn Þrestir haföi sjö
lög á efnisskrá sinni og flutti eitt
aukalag. Tvö söngatrióa kórsins
voru í raun syrpur annars vegar
laga eftir Friórik Bjarnason og
hins vegar laga eftir Sigvalda
Kaldalóns. Söngur kórsins var
ákveðinn og vel þróttmikill. Hins
vegar var yfir honum nokkur óró-
leiki, svo sem að aga skorti. Inn-
komur voru dálítið loðnar á stund-
um, samfella ekki svo góð, sem
skyldi og ekki alveg laust viö
óhreina hljóma. Af bráði þó í
söngatriðinu Úr Kaldalónskviðu,
sem samanstóð af þrem lögum
Sigvalda Kaldalóns. Þar komst
kórinn talsvert vel á skrið og söng
með allgóðum brag; einkum í síð-
asta lagi syrpunnar, sem var Á
Sprengisandi.
Næstur á svið var Rökkurkór-
inn. Söngstjóri hans er Sveinn
Arnason en undirleikari Thomas
Higgerson. Kórinn hafði sex lög á
söngskrá sinni og söng nokkur
aukalög.
Flutningur kórsins var almennt
góður og hefur í annan tíma tæp-
lega verið betri. Sérstaklega má til
nefna Brostu vina eftir Franz Le-
har við Ijóð eftir Egil Bjarnason,
þar sem reyndar kom fram smá-
galli í tenór, Mátt söngsins eftir
Björgvin Þ. Valdimarsson við ljóð
Þuríðar Kristjánsdóttur, þar sem
kórinn stóó sig vel og hélt falleg-
um og þéttum bakröddum við dú-
ettsöng tveggja kórfélaga, og Vor-
vísu eftir Jón Björnsson við ljóð
Valdimars Briems, sem kórinn
flutti án undirleiks og af verulegu
öryggi.
Hjalti Jóhannsson og Eiríkur
Jónsson sungu dúett með kórnum
í Iaginu Máttur söngsins og gerðu
fallega. Þó hefði Eiríkur mátt
beita sér nokkuð meira. Þuríður
Þorbergsdóttir söng einsöng í lag-
inu Lofið þér Drottinn eftir Moz-
art við ljóð herra Sigurbjörns Ein-
arssonar. Flutningur Þuríðar leið
fyrir lítinn raddstyrk hennar. I
þessu lagi var nokkur órói í bak-
röddum og söng kórsins. Loks
kom bassasöngvarinn Asgeir
Eiríksson fram með kórnum í lag-
inu A Hildarseli, sem er eftir Eirík
Jónsson við ljóð eftir Sigurð Han-
sen. Hér var sópran dálítið sár og
lokahljómar ekki alveg hreinir.
Asgeir hefur þétta rödd, sem
binda má vonir við að verði mjög
eftirtektarverð er tímar líóa, en
hann er enn í námi.
Karlakórinn Heimir var næstur
á efnisskrá. Söngstjóri hans er
Stefán Gíslason, en undirleikari
Thomas Higgerson. Sjö lög voru á
söngskrá kórsins, en einnig söng
hann nokkur aukalög.
Kórinn geröi víðast mjög vel.
Þróttur hans hefur aukist og agi í
túlkun er í góðu lagi; þannig eru
innkomur, áherslur og afslættir al-
mennt vel af hendi leystar. Sér-
lega vel komu þessi atriði fram í
lögunum Funiculi Funicula eftir
Densa, Á leið til Mandalay eftir
Oley Speaks viö ljóð Jakobs Jó-
hannssonar Smára og aukalaginu
Hraustir menn eftir Romberg, þar
sem kórinn fór sem næst á kost-
um. I öórum lögum kórsins komu
einnig víða fram fallega gerðir
hlutir og er nokkuð ljóst, aö kór-
inn er sem stendur í góðu formi.
I laginu Dísir vorsins kom fram
með kórnum tríóið Pétur Péturs-
son, Sigfús Pétursson og Björn
Sveinsson. Raddir þremenning-
anna féllu skemmtilega saman og
skiluðu þeir sínum hlut vel. Kór-
inn var lítils háttar órór í byrjun,
en jafnaði sig er á Ieið. Pétur Pét-
ursson söng einsöng meó kórnum
í laginu Funiculi Funicula og
gerði talsvert vel. Túikun hans
hafði á sér allekta ítalskan blæ, en
flutningur hefói mátt vera heldur
þróttmeiri. Hjalti Jóhannsson og
Jón Gíslason sungu með kórnum í
laginu Munastund eftir Kristján
Stefánsson, sem einnig hefur ort
ljóðið. Hjalti og Jón gerðu þekki-
lega, en Kristján hefði mátt beita
sér heldur meira. Loks söng Einar
Halldórsson einsöng í lögunum Á
leið til Mandalay og Hraustir
menn. Einar gerói vel. Rödd hans
hefur fágast verulega og er mun
stilltari en hún var. Hins vegar
hefur aó hluta horfið hinn frum-
stæói þróttur, sem gaf flutningi
hans heillandi sérstöðu og er það
nokkur skaði.
Lokakór hinnar miklu kóra-
veislu í Miögarði í Skagafirói var
Skagfirska söngsveitin. Stjórnandi
hennar er Björgvin Þ. Valdimars-
son, en undirleikari Sigurður Mar-
teinsson.
Söngsveitin hafði sex lög á
söngskrá sinni og hóf hana með
verkinu Odi et amo úr Catulli
Carmina eftir Carl Orff við ljóð
eftir Katulus. Verkió er flutt án
undirleiks og gerir verulegar kröf-
ur til nákvæmni í túlkun. Söng-
sveitin gerði verulega fallega og
stóð sig með sóma. Allur flutning-
ur sveitarinnar var með sama
brag. Hann einkenndist af vand-
virkni og metnaði og bar vott nat-
innar æfingar og góðs aga.
Guðmundur Sigurðsson og
Oskar Pétursson sungu dúett í lag-
inu Kveðja heimanad eftir söng-
stjóra kórsins við ljóð eftir Jón frá
Ljárskógum. Raddir tvímenning-
anna féllu skemmtilega saman og
fórst þeim flutningur vel úr hendi.
Hópur austflrskra áhugamanna
um aukin samskipti milli Norð-
ur- og Austurlands efndi til sýn-
ingar í Blómahúsinu á Akureyri
um sl. helgi. A sýningunni
kynntu listamenn myndir og
Ijóð, handverksfólk handverk af
ýmsu tagi og austfirsk fyrirtæki
starfsemi sína. Hugmyndin að
baki sýningunni var að vekja at-
hygli á þeim auknu möguleikum
sem bættar samgöngur milli
Norður- og Austurlands skapa
til að tengja saman menningar-
og viðskiptalíf landshlutanna.
Meðal þess sem bar fyrir augu
var leðurfatnaður unninn úr hrein-
dýraskinnum, reyktur silungur og
sumarhúsaframleiðsla auk þess
sem Olöf Birna Blöndal hélt mál-
verkasýningu en hún nam við
Stephens College í Columbia og
Myndlistaskólann í Reykjavík.
Með sýningunni var sýnt í
Óskar Pétursson söng einsöng í
laginu Mansöngur eftir Romberg.
Óskari tókst vel í heild séó, en
öðru hvoru var sem hljómur hyrfi
úr tóninum og hann yrði flatur og
líflítill.
TÓNLIST
HAUKUR ÁúÚSTSSON
SKRIFAR
Kórstjórinn, Björgvin Þ. Hall-
dórsson, lumaði á rúsínu í pylsu-
endanum og henni ekki af minni
gerðinni. Hann tilkynnti, aó sópr-
ansöngkonan Sigrún Hjálmtýs-
dóttir væri mætt á staðinn til þess
að syngja nokkur lög með söng-
sveitinni. Söngur Sigrúnar vakti
mikla hrifningu, en hún flutti
meðal annars aríu úr Leðurhlök-
verki aó það er ekkert tiltökumál
að fara milli þessara landshluta og
kynna listir, vöru og þjónustu en
vegurinn um Möðrudalsöræfi var
sagður ófær öllum bílum þegar
Frá sýningunni í Blómahúsinu.
unni og dúett með Óskari Péturs-
syni í laginu Vorsól eftir Björgvin
Þ. Valdimarsson og fór sannarlega
á kostum.
Stór-kóratónleikunum lauk á
því, að Skagfirska söngsveitin og
Rökkurkórinn sameinuðust undir
stjórn Björgvins Þ. Valdimarsson-
ar í hérðassöng Skagfirðinga Skín
við sólu Skagafjörður eftir Sigurð
Helgason við ljóð Matthíasar Joc-
humssonar, og Karlakórarnir
Heimir og Þrestir sungu saman
undir stjórn Stefáns R. Gíslasonar
lagió Úr útsœ rísa Islands fjöll
el'tir Pál Isólfsson við ljóö Davíðs
Stefánssonar.
Öll framkvæmd hinnar miklu
kóraveislu var kórurn, söngstjór-
um, undirleikurum og undirbún-
ingsaöilum til sóma. Ekki bar á
leiða hjá nokkrum manni þrátt fyr-
ir rétt tæplega þriggja klukku-
stunda setu án hlés. Það var ekki
heldur unnt að láta sér leiðast og
er það reyndar aldrei á þessum
miklu samkomum skagfirsku kór-
anna tveggja í Mekku kóraflutn-
ings á Islandi, Miögarði í Skaga-
firði.
hópurinn kom norður. Það er
næsta víst að betri samgöngur og
aukið samstarf milli Norður- og
Austurlands getur styrkt búsetu í
landshlutunum. GG
Mynd: GG
Blómahúsið á Akureyri:
Kynning Austfirðínga