Dagur - 18.05.1994, Blaðsíða 1
77. árg.
Akureyri, miðvikudagur 18. maí 1994
Akureyri:
92. töiubiað
Skandia
Æk. Lifandi samkeppni
W - lœgri iðgjöld
Geislagötu 12 • Sími 12222
Hafnarstjorn samþykkti i gær
að kaupa flotkví til Akureyrar
Hafnarstjórn Akureyrar sam-
þykkti í gær að keypt verði
flotkví til Akureyrar og er við
það miðað að málinu verði hrað-
að svo sem kostur er.
A fundi hafnarstjórnar í gær
var lagt fram bréf frá samöngu-
ráðuneytinu þar sem fram kemur
aó framkvæmdir vió aó korna upp
Leikskólamálið
til bæjarráðs
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti samhljóða í gær að
tillögu Sigríðar Stefánsdóttur
(G) að vísa fundargerðum fé-
lagsmálaráðs til næsta bæjar-
ráðsfundar, en þar er fjallað um
málefni Leikskóla Guðnýjar
Önnu hf.
Eins og fram hefur komió var
lcikskólahúsió innsiglað fyrir
hclgina og cr nú leitaó leiða til
þess að leysa úr vanda þeirra for-
cldra sem áttu börn á leikskólan-
um.
A bæjarstjórnarfundinum í gær
gagnrýndi Þórarinn E. Svcinsson
(B) þá hugmynd að koma börnun-
um, sem hafa vcrið á Leikskóla
Guðnýjar Önnu hf., fyrir á lcik-
skólum Akurcyrarbæjar. Með því
væri verió aó koma illa aftan að
foreldrum sem væru á löngum
biðlistum eftir því að koma börn-
um sínum á leikskóla. óþh
flotkví á Akureyri ásamt tilheyr-
andi mannvirkjum sé styrkhæf
framkvæmd. I framhaldi af því
samþykkti hafnarstjórn eftirfar-
andi bókun:
1. Að kaupa flotkví til Akur-
eyrar, sent tekið geti skip með allt
aó 8.0 metra djúpristu og að
minnsta kosti 3.500 þungatonn.
2. Aó óska eftir því að Hafna-
málastofnun vinni útboðsgögn í
samráði við Akurcyrarbæ vegna
kaupa á flotkví af þeirri stærð sem
fram kemur í tölulið eitt.
3. Að óska eftir því að Hafna-
málastofnun kanni aöstöóu fyrir
flotkví og vinni útboðsgögn í sam-
ráöi við Akureyrarhöfn.
4. Að nefnd sú sent unnió hefur
að undirbúningi llotkvíarmálsins
taki upp viöræóur við samgöngu-
ráöuneytið um hlutfall ríkisins í
framkvæmdunum og fyrirkomu-
lag þeirra greiöslna.
5. Að endurbætur á sleða og
undirstöðum dráttarbrautarinnar
veröi framkvæmdar strax í frarn-
haldi af framkvæmdum við flot-
kví, þannig að sleóinn beri til
framtíðar 1.000 þungatonn. óþh
Vor við smábátahöfnina.
Mynd: Bcnni
Eggjataka hafin
A>' rleg eggjataka í Skoru-
víkurbjargi og Læknes-
staðabjargi við Langanes
hófst í gær og eru þrír menn
við eggjatökuna. Hægt er að
aka aiveg fram á bjargbrún
og heldur bifreið við vaðinn,
annar situr á bjargbrúninni
en sá þriðji sígur í bjargið og
safnar cggjunum.
Eggin fara víða, t.d. í Fisk-
búðina á Akureyri, til Vopna-
fjarðar og raunar víða því alltaf
er töluverð eftirsókn eftir eggj-
unum. Arleg eftirtekja í Skoru-
víkur- og Læknesstaóabjargi
hefur verið undanfarin ár frá 8
til 10.000 cgg.
Ekki er farið í síga cl'tir
eggjum í Grímsey, en egg eru
farin að sjást í bjarginu og er
búist við aó eggjataka geti haf-
ist um næstu helgi. GG
Húsnæðismál félagsmálasviðs í biðstöðu
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti í gær með 7 atkvæð-
um gegn 3 að fresta ákvörðun
um framtíðarhúsnæði félags-
málasviðs Akureyrarbæjar.
Fyrir f'undinum lágu tvær til-
lögur í ntálinu. Jón Björnsson, fé-
lagsmálastjóri, lagði til að leitað
yrði samninga um .afnot al' hús-
næði í eigu lífeyrissjóðanna vió
Glerárgötu cn Jón Kr. Sólnes,
bæjarfulltrúi, lagói til að húsnæði
í Krónunni yröi fyrir valinu.
Siguröur J. Sigurðsson, forseti
bæjarstjórnar, lagði fram eftirfar-
andi tillögu, sem var samþykkt
með sjö atkvæðum gegn þremur.
„Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkir að fresta ákvörðun um hús-
næói félagsmálasviós og fela
byggingadeild að gera nákvæntari
úttekt á húsnæðisþörf og nýtingar-
möguleikum bcggja húsanna. Til-
lögugerð verði lokið fyrir 10. júní
nk. Þá fclur bæjarstjórn bæjar-
stjóra aó taka upp formlegar við-
ræður viö forstöðumenn fræöslu-
og
skrifstofu, svæðisskrifstofu
húsnæðisskrifstofu um leigusamn-
ing í nýju húsnæói.“ óþh
Grásleppuvertíöin á
Noröurlandi endaslepp:
Búið að salta í
um 300 tunnur
a Þorshofn
Grásleppuvertídin fyrir
Norðurlandi byrjaði
mjög vel er hún hófst í mars-
mánuði og voru trillukarlar
almcnnt mjög bjartsýnir á
framhaldið. Eftir brælu sem
gerði skömmu eftir páska í
byrjun aprílmánaðar dró hins
vegar úr veiðinni og í maí-
mánuði hcfur afli sumra bát-
anna verið sáratregur og hafa
sumir þegar tekið upp netin.
Fjöldi saltaðra hrognatunna
er eitthvað nteiri en í fyrra og
voru margir búnir aó ná heild-
armagninu 1993 um ntánaóa-
mótin apríl/maí en síðan hefur
allt færst á heldur verri veg. A
Siglufirði hafa um 20 bátar
stundað grásleppuveiðar í vor
og að sögn hafnarvarðar viröist
botninn vcra dottinn úr veiðun-
unt og margir hyggist eflaust
draga upp netin á næstunni.
Oli Þorsteinsson á Þórshöfn
segir aó vertíðin hafi gengið
mjög illa á Norðausturlandi en
í upphafi hafí fiskast mjög vel
og margir því leyft sér að vera
hjartsýnir. Eftir tvær brælur í
aprílmánuði hafi veiðin hins
vegar snarminnkað og besta
veiðin að undanfömu hafi ver-
ið urn 500 kg á dag en algeng-
ara sé að veióin sé aðeins 200
til 300 kg. Óli Þorsteinsson á
um 140 net í sjó og hyggst
halda grásleppuveiðunum eitt-
hvað áfram en hann bjóst viö
að flestir færu að taka upp net-
in innan tíðar. 10 til 11 bátar
hafa stundaö grásleppuveióar
f'rá Þórshöfn á þessu vori og er
búið að salta í um 300 tunnur
scm cr svipaður afirakstur og
vorið 1993. GG
Skoöanakönnun Gallup fyrir RUV um fylgi flokkanna á Akureyri:
Alþýðubandalag og Fram-
sóknarflokkur bæta við sig
Alþýðubandalagið og Fram-
sóknarflokkur á Akureyri
bæta við sig umtalsverðu fylgi
miðað við bæjarstjórnarkosning-
arnar fyrir fjórum árum, sam-
kvæmt niðurstöðum skoðana-
könnunar Gallup sem stofnunin
vann fyrir Riíkisútvarpið og
greint var frá í síðdegisútsend-
ingu Útvarps Norðurlands í
gær. Sjálfstæðisflokkur og Al-
Akureyri:
Hundur beit póstburðarkonu
Hundur beit póstburðarkonu
í Glerárhverfi á Akureyri í
gærmorgun. Konan hlaut lítils-
háttar meiðsl á fæti og fékk
sprautu gegn stífkrampa á slysa-
deild. Atburðurinn hefur verið
kærður til lögreglu.
Aó sögn lögreglunnar á Akur-
eyri var póstburðarkonan, sem er á
átjánda ári, að bera út póst í Gler-
árhverfi í gærmorgun þegar lítill
hundur af greifingjakyni glefsaði í
fót hennar nteð þeim afleiðingum
að hún hlaut nokkrar skrámur.
Hundurinn var tjóðraður á lóð við-
komandi húss cn gat hlaupió
nokkuö um og komist að útidyrum
hússins án þess aó vera leystur úr
tjóðurbandinu. Leyfi er fyrir hundi
þessum og er hann ekki þekktur að
því að áreita fólk. ÞI
þýðuflokkur tapa fylgi miðað
við síðustu kosningar.
Breyting á fylgi flokkanna í
þcssa átt kom einnig fram í skoð-
anakönnun sent lélagsfræöideild
MA gerói fyrir Dag og birt var í
blaóinu 4. maí sl.
Þegar skoðuð eru heildarsvör
kemur í ljós að Alþýðuflokkur fær
5,4%, Framsóknarfíokkur 20,6%,
Sjálfstæðisflokkur 17,5% og Al-
þýðubandalag 15,4%. 12,3% að-
spurðra sögðust ekki ætla að kjósa
eða skila auðu og 8,3% þátttak-
enda neituðu að svara. Þá kom í
ljós að 20,4% eru óákveðin.
Fylgi flokkanna er eftirfarandi
miðað við þá sem tóku afstöðu í
könnuninni (í sviga niðurstöðutöl-
ur könnunar sem birt var í Degi 4.
maí sl.): Alþýóuflokkur 9,2%
(7,7%), Alþýðubandalag 26,1%
(21,1%), Framsóknarflokkur
35,0% (40,2%) og Sjálfstæðis-
flokkur 29,7% (31,1%). Mióaó
við þessa könnun Gallup fengi Al-
þýðuflokkur einn bæjarfulltrúa
(óbreytt staóa), Alþýðubandalag
þrjár bæjarfulltrúa (bætir við sig
manni), Framsóknarflokkur fjóra
bæjarfulltrúa (óbreytt staða) og
Sjálfstæðisflokkur þrjá bæjarfull-
trúa (tapar nianni).
I síðustu bæjarstjórnarkosning-
um urðu úrslit þau að Alþýðu-
flokkur fékk 12,2% atkvæða, Al-
þýðubandalag 14,2%, Framsókn-
arflokkur 27,9%, Sjálfstæðis-
flokkur 32,1%, Þjóðarflokkur
5,1% og Kvennalisti 5,0%. Hvorki
Þjóðarflokkur né Kvennalisti
bjóða fram að þessu sinni.
600 manns voru í úrtaki könn-
unar Gallup, sem var valió úr þjóó-
skrá. Hringt var dagana 14.-16.
maí og svöruóu 480 af 600 manns
eða 80%. Fram kemur í niðurstöð-
um könnunarinnar að tólfti maður
inn er af D-lista Sjálfstæðisflokks,
en hann þarf nokkuð mikið til þess
að ryðja þriðja manni G-lista Al-
þýðubandalags út. óþh