Dagur - 18.05.1994, Síða 4

Dagur - 18.05.1994, Síða 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 18. maí 1994 — LEIÐARI---------------------- Embætti umboðsmanns barna ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1400 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON AÐRIR BLAÐAMENN: HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285), GEIRA. GUÐSTEINSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: ROBYN REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Undir lok vorþings Alþingis var samþykkt að koma á fót embætti umboðsmanns barna. Þetta er athyglisvert mál sem í öllu málaflóðinu á síð- ustu starfsdögum þingsins fékk ekki þá eftirtekt sem því ber. Þetta mál hefur lengi verið til umræðu í sölum Alþingis án þess að hafa náð fram að ganga. Svo virðist sem ekki hafi verið nægilega mikill skiln- ingur á málefninu meðal þingmanna fyrr en nú. Tilgangur með lögum um embætti umboðs- manns barna er í stórum dráttum sá að á hendi eins embættismanns sé að vinna að því að fullt tillit sé tekið til réttinda, hagsmuna og þarfa barna, í hinum opinbera geira jafnt sem hjá einkaaðilum. Umboðsmanni barna er ætlað það hlutverk að vera einskonar málsvari eða tals- maður barna í þjóðfélaginu auk þess sem hann mun hafa frumkvæði að gagnrýnni og stefnu- markandi umræðu um stöðu barna í samfélag- inu. Síðast en ekki síst er umboðsmanni barna ætlað að hafa áhrif á stjórnvöld og aðra þannig að hagsmunir barna verði ávallt hafðir að leiðar- ljósi í störfum og öllum afskiptum af þessum fjölmenna hópi þjóðfélagsþegna. Eins og áður segir hefur stofnun embættis umboðsmanns barna haft langa meðgöngu. Það eru heil sextán ár síðan málið var fyrst nefnt í þingskjölum og fjórum sinnum hefur það verið lagt fram í formi lagafrumvarps á Alþingi. Emb- ætti umboðsmanns barna hefur verið komið á fót á þrem Norðurlandanna og það var sannar- lega orðið tímabært að stofna til þess hér á landi. Því má ekki gleyma að þjóðfélaginu er stjórn- að af hinum fullorðnu og þótt réttindi barna séu tryggð í íslenskum lögum, þá er það nú samt svo að verulega skortir oft á að tekið sé að fullu tillit til barna. Sannarlega er það fagnaðarefni að loks hafi náðst breið samstaða um það á hinu háa Al- þingi að stofna til embættis umboðsmanns barna. Það fer vel á því á ári fjölskyldunnar. Hvar eru atvinnutækifærin? Nú styttist í sveitarstjórnarkosningarn- ar og fulltúar flokkanna hafa sjaldan verió eins pennaglaóir og nú. Menn geta haft mismunandi skoóanir á efni og innihaldi þess sem birtist á síóum blaðanna en færa ber þaó mönnum til tekna að þeir láta í Ijós skoóun sína. Oðruvísi er ekki hægt fyrir hinn al- menna kjósanda að átta sig á þekk- ingu eóa getu væntanlegs frambjóó- anda til aó gegna skyldu sinni sem bæjarfulltrúa. Eins og vænta mátti eru atvinnumál efst á baugi hjá öllum flokkum og eins og við mátti búast eru engar patentlausnir á ferð og ekki hægt að ætlast til þess. Eg sakna samt að sjá ekki nefndar einhverjar djarfar hugmyndir sem væru skoóunar virði. Kannski eru þær ekki framkvæman- legar en þaó kostar ekkert að kasta á loft einhverjum hugmyndum. Öflugt útflutningsfyrirtæki Hvaö meó t.d. þá hugmynd að stærstu útgerðaraóilar á Akureyri ásamt aóil- um á Eyjafjaróarsvæóinu og jafnvel víóar á Norðurlandi söfnuóu liói og stofnuðu sölusamtök með þaó í huga aó selja afuröir sínar? I tengslum við þaó yrðu hér á Akureyri reistar kæli- geymslur og frystiklefar. Hráefni, á ýmsum vinnslustigum, yrði flutt til bæjarins til framhaldsflutnings á er- lenda markaöi. Flutningar sjóleiðina í kæligámum beint á markaði eða til vióskiptavina. Kannaðir yrðu mögu- ieikar á því að flytja í flugi afurðir í neytendaumbúðum beint á pönnuna hjá viðskiptavininum. Ég sé fyrir mér fjölda starfa sem yrðu til í fyrirtæki sem þessu auk afvegaleiddra starfa. I dag eru útgerðaraðilar á Norðurlandi flestir í SH og athyglisvert er að stærstu einstöku aóilamir koma héöan og úr nágrannabyggðum. Nú eða aldrei eigum vió að taka sölummálin í okkar hendur. íþróttaháskóli Öll erum við stolt af Háskólanum okkar og hvernig væri að hugleiða hvort hægt sé aó setja á laggimar deild á háskólastigi í íþróttafræóum? í dag er öll æðri menntun í íþróttum sótt í erlenda háskóla og að mínu mati er þaó alveg skoðunar virði hvort grundvöllur sé fyrir deild innan Há- skólans á Akureyri. Það er engin stað- ur á landinu sem getur boðið upp á jafn fjölbreytt íþróttalíf og Akureyri. Við höfum alla aðstöóu sem þarf, jafnt fyrir sumar- sem vetraríþróttir og „Ég sakna samt að sjá ekki nefndar ein- hverjar djarfar hug- myndir sem væru skoðunar virði. Kannski eru þær ekki framkvæmanlegar en það kostar ekkert að kasta á loft einhverj um hugmyndum.“ nýting mannvirkja yrði betri, sérstak- Iega yfir daufasta tímann sem er milli 8 á morgnana til 17 síðdegis. Framtíð skipasmíðaiðnaðarins Skipasmíðaiónaóurinn á Akureyri var löngum stolt okkar en sú iðngrein man sinn fífil fegri. Ekki hafa komió Bcncdikt Guðmundsson. fram hugmyndir frá flokkunum um hvemig ætti að standa að uppbygg- ingu skipasmíðaiðnaðarins hér í fram- tíðinni og er óskaó eftir hugmyndum þeirra í því máli. Hvernig væra t.d að mynda fyrirtækjanet þ.e. aðilar í ýms- um iðngreinum tækju sig saman um að standa aó uppbyggingu Slippstöðv- arinnar. Rafvirkjar, vélvirkjar, járn- iðnaðarmenn og allir þeir sem koma nærri viðgeróum eða nýsmíði, mynd- uðu samstarfshóp sem hver og einn starfaði sjálfstætt en í samvinnu um skipasmíðaverkefni. Hvernig geta bæjaryfirvöld komið inn í það mál? Með bjartsýnina að leiðarljósi Akureyringar mega ekki leggjast í eintómt volæði þótt tímabundnir erf- ióleikar herji að okkur í atvinnumál- um. Frumkvæði hæfra manna til aó brydda upp á nýjungum og velvilji banka, lánastofnana og bæjarfélagsins getur gert gæfumuninn til þess að rífa okkur úr þeim öldudal sem við höfum verið í að undanfömu. Hugsunarháttur þarf að breytast og menn þurfa aó vera óhræddir að fjárfesta í góóum hugmyndum þótt tryggingar séu af skornum skammti. Enda tryggir stein- steypa ekki gott gengi vöru eóa þjón- ustu. Hún er í mörgum tilfellum fölsk trygging eins og dæmin sýna vítt og breitt um landió, þar sem bankar og lánastofnanir sitja uppi meó óseljan- legt húsnæði. Benedikt Guðmundsson. Höfundur er áhugamaður um bætt mannlíf á Akur- eyri. Akureyri I kosningabaráttu, þegar Dagur yfir- fyllist af lofgreinum frambjóðenda allra llokka, er freistandi að hefja sig upp úr meðalmennskunni og málefn- um líðandi stundar og reyna að horfa svolítið lengra fram í tímann. Það er líka nauósynlegt fyrir þig, kjósandi góður, að reyna aó skilja hismið frá kjamanum, átta þig á heild- arlínum og stefnu flokkanna í hverjum málaflokki. Þú skalt spyrja þig hvort þú viljir hafa allt eins og þaó er í dag eða hvort þú viljir breytingar. Ef þú kýst það síðamefnda og vilt nýja forystu í bæj- armálin, krossar þú auóvitað viö B á kjördag. Til að auðvelda þér ákvöróunina ætla ég að nefna nokkur af þeim atrió- um, sem ég vonast til að geta unnið að á næsta kjörtímabili. Atvinnuástandið Atvinnuástandið veróur aó batna á kjörtímabilinu. Markmiðið er aó at- vinnuleysi verði með öllu útrýmt hér á svæóinu. Þetta er erfitt verk og bæjar- félagið hefur engar einfaldar lausnir í vörslu sinni til að vinna bug á vandan- um á einni nóttu. Samstillt átak fjöl- margra aðila þarf að koma til - en fyrst og fremst þarf markvissa stefnu- mótun og síóan þrotlausa vinnu eftir henni. Þaó þarf aó snúa vöm í sókn í skipaiðnaðinum og skapa þessari mik- ilvægu atvinnugrein traustan grunn. Höfuðstöóvar skipaiðnaðarins eftir þessa endurreisn veröa að vera hér á Akureyri. I kjölfar þessa gæti jafn- framt skapast fjöldi nýrra starfa í málmiónaði. Ýmislegt fleira mætti nefna, sem þarf til að útrýma atvinnuleysinu. Umskipti sem þessi í atvinnulífi geta aldrei náðst nema meó víðtækri sam- vinnu margra aðila. Þrotlaus barátta atvinnumálanefndar og starfsmanna hennar er því eilífóarverkefni. Þá þarf Iðnþróunarfélagið einnig ráórúm til að hugsa til framtíðar og huga að þróunar- og áhættuverkefn- um. Þaó þarf aó geta dregið áhættu- fjármagn inn á Eyjafjarðarsvæðið og þannig stuðlað að uppbyggingu traustra „smáfyrirtækja". Þaó er einnig mjög áhugavert aó leita eftir samvinnu við stór fjölþjóðleg fyrir- tæki, t.d. matvælafyrirtæki. Ef slík samvinna tekst, opnast okkur nýjar víddir í útflutningi matvæla. Ýmsar tilraunir í orkufrekum iðnaði eru ekki síður spennandi og má í því sambandi t.d. nefna vetnisframleiöslu. I þessa áttina á Iðnþróunarfélagið aó horfa. Reynslusveitarfélagið Nauósynlegt er að vinna aö því aó framtíðarinnar „Þú skalt spyrja þig hvort þú viljir hafa allt eins og það er í dag eða hvort þú viljir breytingar. Ef þú kýst það síðarnefnda og vilt nýja forystu í bæjar- málin, krossar þú auðvitað við B á kjördag.“ Akureyri verði útnefnt sem reynslu- sveitarfélag. Sérstaklega er þá von til þess aó vió fáum meira sjálfræði í ýmsum málaflokkum og náum þannig að draga til okkar störf frá ríkinu, t.d. á sviði skólamála, heilsugæslu og um- önnunar aldraóra. Þjónustan þarf aö veróa bæói fjölbreyttari og skilvirkari fyrir íbúana en nú er, enda á tilflutn- ingur þessara mála að gera það aó verkum að fleiri störf skapist í þessum geirahérá Akureyri. Þórarinn E. Sveinsson. Aukin samvinna Úr því að ekki var vilji fyrir samein- ingu sveitarfélaga vió Eyjafjörð um- fram það sem oróið er, tel ég mikil- vægt að efla ýmis samstarfsverkefni í gegnum Héraðsnefnd Eyjafjarðar og Eyþing. Vissulega er hætta á að ákvaróanatakan verði nokkuð sein- virk, en sterkari samvinna sveitarfé- laga í gegnum Héraðsnefnd og Eyþing er undanfari sameiningar og samruna í stærri og hagkvæmari sveitarfélög. - Fyrri hluti Sem dæmi um samstarfsform má nefna nýstofnað Byggðasamlag um sorp og sorphirðu. Þessi samvinna cr nýhafin og mun vonandi láta gott af sér leióa í framtíðinni. Ennfremur má nefna málefni framhaldsskólanna - og því skyldi ekki vera hægt aó ná meiri samvinnu um hafnamál í gegnum Héraósncfnd? Skarpari línur Mikilvægast er aö skerpa ábyrgðarlín- urnar í stjórnkerfi bæjarins, þannig að hver og ein ncfnd og hver og einn starfsmaður þekki sitt ábyrgóarsvið og þann ramma, sem þeim/honum er ætl- að að starfa í. Miðstýring í gegnum bæjarráð þarf að minnka og fjárhagsáætlanir þarf að vinna í ríkari mæli sem „0-punkts“ áætlanir. I því felst að skoða þarf eðli þjónustunnar sem bærinn veitir í stað þess að láta duga að framreikna kostn- aðinn við þjónustuna frá árinu á und- an. Þórarinn E. Sveinsson. Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 3. sæli B- lista Framsóknarflokks í bæjarstjómarkosning- unum á Akureyri.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.