Dagur - 18.05.1994, Side 6

Dagur - 18.05.1994, Side 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 18. maí 1994 OJ (0 Plöntusalan <0 3 er hafin. Opið frá kl. 8-17.30 virka daga. Laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-16. C Skógrækt =0 ríkisins Q. Vöglum Fnjóskadal og Laugabrekku Skagafirði. Skólabærinn Akureyri Garðeigendur Garðrósir - útiblómaker í miklu úrvali Garðkönnur, margar stærðir Garðáburður (graskorn, kálkorn, trjákorn) Mosaeyðir Blómabúðin LaufáS, Hafnarstræti - Sunnuhlíð Opió alla daga til kl. 18.00. Verið velkomin. Hvað hefur það að segja að hafa mikla menntunarmöguleika í bæ eins og Akureyri? Er það ekki kostur að sem flestir geti sótt nám í sinni heimabyggð í stað þess aó fara um lengri eóa skemmri veg til að sækja sér menntun? Það er einnig ótrúlegt hvað ein menntastofnun hefur mikil margfeld- isáhrif út í atvinnulífió. Það að fá skóla í bæjarfélag skapar ekki bara tækifæri til menntunar heldur þarfn- ast hver slík stofnun margra vinnandi handa í skólunum bæöi við kennslu, skrifstofustörf, húsvörslu, ræstingar og fleira. Skólar þurfa einnig margs konar þjónustu frá allskonar fyrir- tækjum. Því eigum við að fagna þeirri miklu uppbyggingu sem hefur átt sér stað í skólamálum á Akureyri á undanfömum árum. Það þýðir þó ekki að nú sé nóg komió og hægt að leggja árar í bát. Það sem á að gera á komandi kjörtímabili er aö einsetja grunnskólana og hefur nú þegar ver- ið tekin ákvöröun um að Lundarskóli og Oddeyrarskóli skuli verða ein- setnir á vetri komandi. Einsetning í skóla þýðir að öll böm koma á sama tíma í skólann. Þetta hefur í för með sér að foreldrar losna við endalausar ferðir fram og til baka meó böm sín. Einnig má benda á að einsetning kallar á fleiri störf innan skólanna og þar með aukin atvinnutækifæri í bænum. Onnur nýlunda í skólamál- um sem sjálfstæðismenn ætla að koma á er að allir grunn- og leikskól - ar fari undir sömu stjóm, þ.e. skóla- nefnd. Sú þróun sem við viljum sjá í framhaldsskólunum er aó aukið námsframboð verði í verklegu námi og þá sérstaklega námi sem tengist Borghildur Biöndal. „Það að fá skóla í bæjarfélag skapar ekki bara tæki- færi til menntun- ar heldur þarfn- ast hver slík stofnun margra vinnandi handa í skólunum bæði við kennslu, skrifstofustörf, húsvörslu, ræst- ingar og fíeira.“ atvinnulífi héraósins á sem bestan hátt. Það sem helst er á döfinni er nám tengt þeim matvælaiðnaði sem er á svæðinu. Undirbúningsvinna þar aó lútandi er þegar hafin við Verk- menntaskólann og verður áfram haldið á næsta kjörtímabili. Þær greinar scm aðallega er horft til eru í fullvinnslu sjávarafurða og kjötvinnslu. Einnig er mjög brýnt að bygging- um framhaldsskólanna verði lokið hið fyrsta. Þá á einnig að kanna þörf- ina fyrir heimavistarhúsnæði fyrir nemendur sem stunda nám á Akur- eyri og vinna aó málinu í ljósi þeirrar niðurstöðu sem fæst. Hvað varðar Háskólann þá er hann rekinn af rík- inu en hins vegar munu bæjaryfir- völd greiða fyrir uppbyggingu hans eins og mögulegt er. I bænum höfum við tvo listaskóla sem eru Tónlistarskólinn og Mynd- listarskólinn. Báðir þessir skólar eru í vexti og augljóst að í málefnum beggja verður unnið á kjörtímabil- inu. Skoða þarf sérstaklega húsnæó- ismál Tónlistarskólans í heild. Hvaó Myndlistarskólann varðar er nauó- synlegt að styðja vel við hina nýju deild, grafíska hönnun, sem tengist atvinnulífinu beint. Það að efla þá starfsemi sem í skólunum er kallar á margar hendur til verka, ekki bara vió kcnnslu held- ur einnig byggingarvinnu, þjónustu við nemendur meðan skólarnir eru aó stört'um, viðhald, húsvörslu og margt fleira. Því ber aó fagna allri uppbyggingu í skólakerfinu. Borghildur Blöndal. Höfundur skipur sjöunda sætið á lista Sjálf- stæóisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningamar á Akureyri 28. maí nk. Kæri ungí kjósandi - tíl frambjóðenda D-listans Kæri ungi kjósandi! Þannig hefst bréf ykkar frambjóðenda D-Iistans, undir- ritað af Sigurði J., sem dreift er til okkar „ungra kjósenda þessa dagana. Og í þessu bréfi opinberið þið álit ykkar á okkur „ungum kjósendum“ og það er ekki mikið aó mínu mati. Þið gerið því skóna aó samstundis og við heyrum minnst á stjórnmál í útvarpi þá skiptum við um stöð, og að okkur finnist sjálfsagt litið í fréttatímana varið, nema rétt svona til aó fylgjast með íþróttum eða „öðrum áhugamál- um okkar“. Og því næst leggið þið fyrir okkur próf og spyrjið hvort vió þekkjum eftirfarandi: Björku, Siguró J„ Megas, Björn Jósef, Madonnu, Valgerði H. og Valdimar Gríms. Kæru frambjóóendur D-listans! Þið eruð að ávarpa fólk 18 ára og eldri en ekki lítil börn. Ef að ungt lölk í dag setur frekar „snældu í tækió“ en að hlusta á stjórnmálaumræóur í útvarpi, segir það sennilega meira um ykkur FRAMBOÐSLISTAR vlð sveitarstjórnarkosningar í Eyjafjarðarsveit 28. maí 1994 E N u Listi eflingar og framfara Listi nýrra tíma Listi umbótasinna 1. Birgir Þórðarson 1.Ólafur Jensson 1. Áki Áskelsson 2. Ólafur G. Vagnsson 2. Hrefna Laufey Ingólfsdóttir 2. Elísabet Skarphéðinsdóttir 3. Ármann Skjaldarson 3. Hreiðar Hreiðarsson 3. Stefán Yngvason 4. Eiríkur Hreiðarsson 4. Guðmundur Jón Guðmundsson 4. Hulda M. Jónsdóttir 5. Jón Jónsson 5. Sigrún Ragna Úlfsdóttir 5. Egill Þórólfsson 6. Pétur Helgason 6. Atli Guðlaugsson 6. Ólöf Elfa Leifsdóttir 7. Bryndís Símonardóttir 7. Sigurgeir Pálsson 7. Kristján H. Theodórsson 8. Ragnheiður Gunnbjörnsdóttir 8. Björk Sigurðardóttir 8. Elísabet Guðmundsdóttir 9. Hólmgeir Karlsson 9. Bjarki Árnason 9. Njáll Kristjánsson 10. Helgi Örlygsson 10. Aðalheiður Haróardóttir 10. Benedikt Hjaltason 11. Arnbjörg Jóhannsdóttir 11. Jóhann Reynir Eysteinsson 11. Helga Sigríður Árnadóttir 12. Sigrún Vilhjálmsdóttir 12. Sigurlín Hólm Birgisdóttir 12. Ólafur H. Theodórsson 13. Þorvaldur Hallsson 13. Jón Eiríksson 13. Anna Sigríóur Pétursdóttir 14. Sigurgeir Hreinsson 14. Aðalsteina Magnúsdóttir 14. Matthildur Hauksdóttir Yfirkjörstjórn Eyjafjarðarsveitar, 8. maí 1994 Hörður Adólfsson, Auður Eiríksdóttir, Emelía Baldursdóttir. Gauti Einarsson. stjórnmálamennina en okkur unga fólkið. Og mér sýnist þið greinilega ekki fylgjast nægilega vel meó ungu fólki í dag. Madonna er álíka mikió í tísku meðal ungs fólks cins og Sigurð- ur J„ Björn Jósef og Valgeróur H. Ef þið nálguóust okkur líka á annan hátt en sem einhver óþroska ungmenni kæmust þið aó því, að vió fylgjumst síst minna með þeim málefnum er varða umhverfi okkar en eldra fólkió. Okkarerjú framtíðin. Vinsamlegast ekki líta á okkur „unga kjósendur" sem einhver sérfyr- irbæri sem beri að meóhöndla á sér- stakan hátt. Það væri satt aó segja hálf hallærislegt að bera í hús sérhannaða bæklinga til bæði „miðaldra kjós- enda“ og „cllihrumra kjósenda“. Ekki líta á atkvæði ungs fólks sem auð- fengnari en önnur. Því eftir allt þá vega atkvæði okkai jafn þungt og annarra. Ennþá í það minnsta. Gauti Einarsson. Höfundur er kjósandi á Akureyri.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.