Dagur - 18.05.1994, Síða 10

Dagur - 18.05.1994, Síða 10
10 - DAGUR - Miðvikdagur 18. maí 1994 - útivistarsvæði Akureyringa Núorðið þekkja allir Akureyr- ingar, auk þúsunda annara landsmanna og erlendra ferða- manna, Kjarnaskóg og líta á hann sem sjálfsagðan hlut í bæjarmynd Akureyrar. Skógur- inn er þó ekki eldri en svo að þeir sem komnir eru á miðjan aldur muna Kjarnaland sem tún, beitarlönd, mela og mýrar án trjágróðurs af nokkru tagi. Ræktun skógarins hófst ekki að marki fyrr en 1952 en nú, aðeins röskum 40 árum síðar, er eins og hann hafi alltaf ver- ið þarna. Ekki er hægt annað en dást að harðfylgi og framsýni þeirra sem af óbilandi þrautseigju stóðu fyrir ræktun fjölmargra skóga í héraðinu fyrr á öldinni án þess að hafa til hliðsjónar vaxna skóga til að draga lær- dóm af. Við sem höldum starfi þeirra áfram höfum ávallt fyrir augunum, eins og opna bók, árangurinn af starfi frumherj- anna og miðum allt okkar ræktunarstarf við þá reynslu sem fengist hefur af starfi þeirra. Bjartsýni þeirra og trú á möguleika til ræktunar fjölbreyttra skóga i Eyjafirði er okkur öllum hvatning til dáða. Skógræktarfélagið, sem upp- haflega plantaði til skógarins, annast allar framkvæmdir á útivistarsvæðinu í samráði við Akureyrarbæ sem kostar fram- kvæmdir og rekstur þess. Allra síðustu ár hefur meg- ináhersla verið lögð á ræktun nýs skógar í framhaldi að Kjarnaskógi til norðurs. Friðuð lönd svæðisins eru nú um 800 ha. og ná frá Kjarna að Glerá. Langt komið er að gróðursetja i þessi lönd. Einnig hefur verið unnið að uppbyggingu leiksvæða, lagn- ingu göngustíga, aukinni þjón- ustu við gönguskíðafólk o.m.fl. Samkvæmt talningum koma um 120.000 gestir í Kjarnaskóg á ári hverju. Aðalsteinn Sigfússon er verkstjóri á útivistarsvæðinu í Kjama. Steinagerðisvöllur Myndimar sýna hluta mannvirkja á fjölskyldu- vellinum í Steinagerði í Kjarnaskógi. Þar er yfirbyggð grillaðstaða fyrir almenning og ýmis leiktæki í smíðum. Völlurinn var tekinn í notkun á síðasta sumri. Líkneskið er hluti af sólúri sem reist var á Landsmóti skáta í Kjarna í fyrra. Umgengnisreglur á útivistarsvæðinu í Kjama Umgengnisreglurnar í Kjarnaskógi eru bæði fáar og ein- faldar. Þær hafa hinsvegar e.t.v. ekki verið kynntar sem skyldi og eru því gefnar upp hér. ♦ Kveikið ekki eld. ♦ Bannað að tjalda. ♦ Vélknúin ökutæki aðeins leyfð á akvegum. ♦ Útreiðar aðeins leyfðar á akvegum. ♦ Hundar skuli ekki ganga lausir. ♦ Meðferð skotvopna er bönnuð. Nokkur brögð hafa verið að því að regla númer þrjú hafi verið brotin, einkum með akstri vélsleða. Slíkt háttarlag getur, og hefur valdið miklum spjöllum á ungplöntum sem gægjast upp úr snjónum. Námskeið í skógrækt Laugardaginn 4. júní verður haldið í gróðr- arstöðinni í Kjarna námskeið í skógrækt í smáum stíl. Það er Skógræktarfélagið sem stendur fyrir nám- skeiðinu, annað árið í röð. Farið verður yfir helstu þætti skógrækt- arinnar, m.a. skipulag, tegundaval, verklag o.fl. Efni fyrirlestra er sniðið að skógrækt á litlum svæðum, eink- um sumarhúsalóðum. Auk fyrirlestra verður sýnd gróðursetning ýmisskonar plantna. Námskeiðið hefst kl. 10.oo og stendur fram eftir degi. Þátttöku- gjald er 300 kr. Þáttaka tilkynnist í síma 24047 í síðasta lagi fimmtu- daginn 2. júní. HEIMILISLÍNA B ÚNAÐARBANKANS „Frá og með deginum í dagþurfum við ekki að borga dráttarvexti“ RAÐGJOF 0G A&TLANAGERÐ Utgjöldum ársins er dreift á jafnar mánaáargreiðslur — reikningarnir greiddir á réttum tíma Áunninn lánsréttur með reglubundnum sparnaái gefur möguleika á hagstaeáari lánum. Félagar fá handhæga skipulagsbók og möppu fyrir fjármál heimilisins. Auk þess eru fjármálanámskeiðin á sérstöku verði fyrir félaga. , BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS HEIMILISLINAN - Heildarlausn áfjármálum einstaklinga. mmm wmm iJMIHIIHHTO fMHHUil BUMARHA KBAIVKIJMIV STYRKIR SKÓGRÆKT í EYJAFIRÐI

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.