Dagur - 19.05.1994, Side 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 19. maí 1994
Spurníng víkunnar - spurt í frímínútum í Síðuskóla á Akureyrí
- Hvað ætlarðu að gera í sumar?
Hörötir Fannar Sigþórsson
11 ára:
Ég ætla aö æfa fótbolta og fara
í ferðalög. í næsta mánuði fer
ég á ættarmót í Hrísey. Svo
hugsa ég að ég vinni eitthvað í
skólagörðunum
Hjördís Elma Jóhannsdóttír
12 ára:
Ég veit það ekki alveg. Ég geri
ráð ÍYrir að passa systur mína
sem er tveggja ára og svo býst
ég við að taka þátt í skátastarf-
inu. Kannski fer ég svo í
íþróttaskóla.
Kristín Benediktsdóttir 12 ára:
Ég verð kannski aö passa. Svo
fer ég meö pabba og mömmu
til Flórída í ágúst.
Hjördís Ýr Ólafsdóttir 11 ára:
Ég verð aö passa. Svo fer ég
með mömmu og pabba til
Reykjavíkur.
Anna G. Ámadóttir 11 ára:
Ætli ég veröi ekki að passa. Ég
fer kannski í sumarbúðir og
vinn í skólagöröunum. Svo
getur verið að ég fari til Reykja-
víkur og Hveragerðis einhvem
tímann í sumar.
LESENDAHORNIÐ
Enn ein andvökuhelgin
Frá íslandsmcistaraniótinu í parakcppni á Akurcyri í síðustu viku.
Bikarkeppni Bridgesambandsins:
Dregið í fyrstu umferð
Akureyri 16. maí ’ 94
I nýlióinni viku, eins og oft áöur,
sáum viö, íbúar húss eins vió
Strandgötu, l'ram á órólega helgi
meö llandrandi fólk fram undir
morgun, hafandi hátt og fremjandi
sóðalega gjörninga. Og það gekk
eftir.
Aö vísu byrjaði föstudags-
kvöldið 13. maí fremur rólega og
lofaði góðu. En smátt og smátt
jókst mönnum raddstyrkur, eins
og drukkinna er siður og um þaó
Icyti sent við vorum að taka á
okkur náðir, eitt af öðru, var
greinilcgt að fjörið var rétt að
byrja. Hálfa nóttina mátti hcyra,
að þó við værunt búin að fá nóg,
var fráleitt að svo væri með þá
scnt héldu til utan við húsið okkar.
Ekki var hávaóinn ntinni frá húsi
nr. 49 við götuna. Þaðan barst tón-
list af miklum styrk, reyndar
ágætis tónlist, en til óþæginda fyr-
ir okkur sent lágum byltandi okk-
ur í rúmununt.
Stundum hægóist unt og þá
náðu suntir að sofa svolitla stund,
en þá færðist fjör í leikinn og
píkuskrækir og baul sáu til þess
aftur og aftur, að við hrukkum upp
ntcð andfælum. Einhvern tíma
nætur lögðu Rúnar Júlíusson og
Tryggvi Hubner frá sér hljóónem-
ana og lljótlega el'tir það fóru
mcnn að tínast burt og næturlíf
götunnar fjaraði smátt og smátt út.
Að morgni, þegar við fórunt á
fætur illa sofin og fúl, blasti við
okkur sóóaskapurinn eftir gleð-
skap næturinnar.
Laugardagskvöldið lofaði ekki
góðu í byrjun og óróleikaspá okk-
ar rættist. Hávaóinn var mikill og
angraði vcrulega alla sem heima
voru. Söngur, hróp og öskur voru
óþolandi og trufluðu svcfn þeirra
yngstu og sáu svo um að aðrir
fengju ekki sofið.
Allt í cinu lék allt á reiðiskjálfi,
eins og eitthvað þungt lélli til
jarðar. Þegar við athuguóum Itvað
gengi á, kont í Ijós að einhvcrjar
hctjur höfðu velt einum af þungu
gulu kantsteinunum viö enda
gömlu Strandgötunnar, (þeir eru
býsna þungir), en til hvers þær
gerðu það er okkur ekki alveg
ljóst. Það er fljótlegra að taka
sveig franthjá honunt til að kom-
ast leiðar sinnar.
Einhvern tíma kvölds hcyróum
við aó menn voru að bjástra hjá
bílununt utan vió húsió. Þcgar lit-
ið var út, sást hvar tveir menn
stóðu og voru að pissa á einn bíl-
inn. Þegar þeir voru spurðir hvern
Ijandann þetta ætti að þýða, sögu
þeir spyrjandanum að steinhalda
kjafti. Nú halda vafalaust cin-
hverjir að þarna hafi unglingar
vcrið á ferð, en þessir hlandtittir
voru um eða yfir fertugt.
Oskur og djöfulgangur ein-
kenndu þessa helgi eins og svo
margar aðrar og sóðaskapurinn
var ekki minni en áður. Glerbrot,
sígarettustubbar og pappaglös
Iágu dreifð um götu og gangstétt.
Taumar á veggjunt, sem byrjuðu
50-60 cm. frá jörð, lágu niður
veggina og enduóu í stækum poll-
unt eða blettum. Og enn cinu sinni
stóðu bílar hlandblautir að
ntorgni.
Það er harla óskemmtilegt að
búa við þetta ástand og sérstak-
lega cr það slæmt fyrir þá scnt
þurfa að mæta til vinnu snemma
ntorguns eftir slíka nótt sem hér er
lýst. En þetta hafa samt bæjaryfir-
völd kallað yfir okkur. Sveiattan
bæjarstjórn!!!
Að loknu afmælismóti Bridgcfé-
lags Akureyrar í Iþróttahöllinni
unt helgina, var dregió í fyrstu
umferð í bikarkeppni Bridgesant-
bands íslands. Til lciks er skráðar
54 sveitir en athygli vekur að að-
cins fjórar þeirra cru frá Norður-
landi, tvær frá Húsavík, ein frá
Akureyri og ein frá Siglufirði.
Sveit BSH á Húsavík mætir
sveit Neon úr Reykjavík og verður
spilað á Húsavík. Sveit Magnúsar
Magnússonar frá Akureyri á úti-
leik gegn sveit Tímans úr Rcykja-
vík. Sveit Sparisjóðs Siglufjarðar
fékk heimaleik gegn svcit Hall-
dórs Sverrissonar úr Rcykjavík og
svcit Þórólfs Jónassonar á Húsa-
vík, fékk heintaleik gegn sveit
Gcorgs Sverrissonar úr Reykjavík.
Fýrstu untfcrð skal vcra lokið
sunnudaginn 26. júní nk. KK
300558-4969
Vorkliður ’94 í Akureyrarkirkju á hvítasunnudagskvöld:
Fjölbreytt efnisskrá
Blöskrar framkoman
viðOrmarr
Hafdís Þórarinsdóttir hringdi:
„Mér blöskraði alveg hrópin og
köllin í áhangendum KA þegar
Þór og KA léku fyrri leikinn í Ak-
ureyrarmótinu fyrir skömntu. Sér-
staklega framkoma þeirra vió Or-
ntarr Orlygsson. Þaó var rétt eins
og hann mætti aldrei gera nein
mistök, þá glöddust KA-hjörtun
innilega. Er manninum ekki frjálst
að skipta unt búning og fá tæki-
færi til að Icika í 1. deild, jafnvel
þó það sem með Þór? Þctta er nú
ekki í fyrsta skipti sem Ormarr
skiptir um félag, eða cru söniu
ntcnn búnir aö gleyma því að
hann lék með Frant hér unt árió?“
Ánægja með Hagkaup
Júlía Ómarsdóttir hafði sam-
band og vildi lýsa yfír ánægju
með viðskipti sín við Hagkaup á
Akureyri. Hún hafði keypt barna-
náttföt og þvegið þau samkvæmt
ráðleggingum á flíkinni. Við
þvottinn, litaðist annar fatnaður og
skemmdist því. Júlía fór í fata-
deildina í Hagkaup, þar sem vel
var tekið á móti henni og þar fékk
hún tjón sitt bætt að lullu og fyrir
þaó vill hún þakka.
Vorkliður ’94 er tónlistarhátíð, sem
er orðinn árviss viöburður í tónlist-
arlífi á Akureyri, ntun hljóma í Ak-
urcyrarkirkju á hvítasunnudags-
kvöld, 22. maí nk., kl. 20.30. Tón-
listarstjóri er Roar Kvam.
Aðalstef Vorkliðs ’94 er voriö
og rómantíkin sem flutt vcrður í
fjölbreyttri efnisskrá; s.s. ópcru-,
Ijóða-, einsöngs-, einlciks-, kór-,
og hljómsveitarlónlist auk upp-
lcsturs Ijóða.
Flytjendur eru um 80 talsins,
þ.e. Karlakór Akureyrar-Geysir,
Passíukórinn, Blásarasvcit æsk-
unnar, einsöngvararnir Þuríður
Baldursdóttir alt, Michael Jón
Clarke bariton, Steinþór Þráinsson
bariton, Richard J. Simrn píanó og
Þráinn Karlsson leikari.
Sópransöngkonan Agústa
Agústsdóttir vcrður gestasöngvari
Vorkliðs á þessu vori. GG
Frá Vorklið ’94 en m.a. má sjá f.h. söngvarana Micahel J. Carke, Jón Þorsteinsson, Þuríði Baldursdóttur og Ingi-
björgu Marteinsdóttur. Við hlið hennar er stjórnandinn, Roar Kvam.