Dagur - 28.06.1994, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 28. júní 1994 - DAGUR - 7
l
FJOLNIR
VI0SKIPTAHUC8ÚNA0UR
Trópídeildin í knattspyrnu:
Sl. föstudagskvöld héldu Þórs-
arar til Kópavogs og léku við
Breiðablik í Trópídeildinni í
knattspyrnu. Liðin skoruðu sitt
hvort markið í miklum baráttu-
leik og máttu Þórsarar leika ein-
um manni færri bróðurpartinn
af síðari hálfleik. Þeir áttu þó
engu minna í leiknum eftir það
en náðu ekki að nýta færi sín.
Þórsarar voru heppnir að lenda
ckki undir strax á fyrstu mínútu
því Blikar áttu skot í markslána.
Heimamenn voru heldur sprækari
í byrjun og sóknarlotur þeirra báru
árangur á 13. mín. þegar Jón Stcf-
ánsson skoraói af stuttu færi eftir
fyrirgjöf Arnars Grétarssonar.
Þórsarar hresstust vió markið og á
19. mín. náóu þeir aö jafna metin.
Markið kom eftir glæsilega send-
ingu Guðmundar Bcnediktssonar
á Bjarna Sveinbjörnsson sem
afgreiddi boltann snyrtilega í net-
ið.
Síðari hálfleikur hófst með
sömu baráttunni og þeim fyrri
lauk og fyrr en varði dró til tíð-
inda. A 12. mín. kom sending inn
fyrir vörn Þórs en Olafur Péturs-
son markvörður varð á undan
Arnari Grétarssyni í boltann. Arn-
ar hélt hins vegar áfram og braut
illa á Olafi. Birgir Þór Karlsson,
leikmaður Þórs, sló í framhaldi af
þessu til Arnars og fékk að líta
rauða spjaldið fyrir, en hann hafði
áður fengið gult spjald.
Þaó sem eftir lifði leiks léku
Þórsarar því einum færri. Þó var
ekki að sjá á leik liðanna að svo
væri því þeir voru síst lakari aðil-
Bjarni Sveinbjörnsson, sem hér berst við Skagamanninn Olaf Adolfsson, skoraði fyrir Þói gegn UBK og er nú annar
markahæsti maður deildarinar með 5 mörk en Mihajlo Bibercic hjá í A hefur skorað 6. Mynd: Robyn.
inn og hefðu með smá meiri
heppni getaó gert út um leikinn.
Fleiri mörk voru þó ekki skoruð
og 1:1 jafnteli því lokatölur.
Sigurður Lárusson, þjálfari
Þórs, sagði vissulega hafa verió
erfitt að spila manni færri svo
stóran hluta af leiknum. „Maður
þorir ekki að taka neina áhættu
þegar svona mikið er eftir. Við
sköpuöum okkur samt færi eftir
þetta og vorum ekki lakari aðilinn.
Við vorum að mínu mati búnir að
ná tökum á leiknum þegar þetta
gerðist. Annars var þetta baráttu-
leikur og þeir gáfu okkur aldrei
frið til þess að spila fótbolta. En
vió áttum að klára þetta dæmi."
Næsti leikur Þórs í deildinni cr
heimaleikur við KR 7. júlí.
Lið UBK: Guómundur Hreidarsson, Úlfar Ótt-
arsson. Einar Páll Tómasson. Hákon Sverris-
son. Jón S ánsson, Arnar Grétarsson. Gústaf
Ómarsson. lunnlaugur Einarsson, Kristófer
Sigurgeirs i. Rastislav Lasorik og Grétar
Steindórss ■.
LM) Þórs: ()lafur Pétursson, Þórir Áskelsson.
Júlíus Tr\ggvason, Birgir Þór Karlsson. Or-
marr Örlygsson, Dragan Vitorovic, Lárus Orri
Sigurósson. Páll Gíslason, Öm V. Amarson,
Guómundur Benediktsson og Bjami Svein-
björnsson.
Dómari: Ólafur Ragnarsson.
Línuverðir: Gudmundur Stefán Maríasson og
Emil Bjömsson.
Knattspyrna, 3. deild:
Jón Þórir
til Dalvíkur
Dalvíkingum er að bætast góður
liðsstyrkur í fótboltanum því Jón
Þórir Jónsson, leikmaður UBK,
hefur gengið frá félagaskiptum
til Dalvíkur og verður löglegur í
næsta leik. Mun hann án efa
ffíska mjög upp á leik liðsins.
Jón Þórir, sem reyndar er kunn-
ari sem handknattleiksmaður meó
Selfyssingum, á að baki ríflega 40
leiki í 1. deild með UBK og sl.
sumar var hann næst markahæsti
maður liðsins með 6 mörk. Hann
hefur hins vcgar ekki náó að festa
sig í sessi í sumar.
„Við ætlum að freista þess aó
bæta stöðuna því það er nú eða
aldrci aó gera citthvað í ntálun-
um,“ sagði Bjöm Friðþjófsson hjá
Dalvík.
Fótbolti, KA:
6. flokkur rakti boita
Hið árlega SHELL mót í Vest-
mannaeyjum sem er knatt-
spymumót fyrir 6. aldursflokk,
hefst á morgun. Frá KA fer að
sjálfsögðu vösk sveit og strák-
amir unnu að söfnum áheita í
síðustu viku til að afla farar-
eyris.
Þeir skiptust á um að rekja
bolta vegalengd sem svarar til
leiðarinnar milli Akureyrar og
Dalvíkur eóa um 45 km. Að sögn
þjálfarans, Áma Stefánssonar,
gekk söfnun áheita vel og ekki
vafðist fyrir þeim að rekja boltann
umrædda vegalengd. Aó lokum
vildi 6. flokkur KA koma á fram-
færi þakklæti til þcirra fjölmörgu
scm studdu við bakið á þeim í
þessari söfnun.
Jafntefli Þórsara og Blika
Einn besti handknattleiksmaður landsins tii Akureyrar:
Patrekur í KA
Ásinundur Arnarson og félagar hans í Völsungi lcika í Mjólkurbikarnum í
kvöld. Hér er hann th. í leik mcð Þór sl. sumar.
Mjólkurbikarinn, 32 liða úrslit:
Byrjar í kvöld
Á sunnudaginn gekk hand-
knattleiksdeild KA frá samningi
við Patrek Jóhannesson um að
hann ieiki með félaginu næsta
vetur. Patreki er ætlað að fylla
skarð Alfreðs Gíslasonar sem
hyggst einbeita sér að þjálfun
liðsins þó ekki sé loku fyrir það
skotið að hann spili eitthvað
með. Þorvaldur Þorvaldsson,
formaður handknattleiksdeildar
KA, kvaðst afar ánægður með
komu Patreks til KA og í fyrsta
skipti í mörg ár væri útlit fyrir
afar Iitlar mannabreytingar
milli tímabila.
Patrekur, sem leikió hcfur með
Stjörnunni í Garðabæ undanfarin
ár, er í hópi bestu handknattleiks-
manna landsins og á fast sæti í
landsliðinu. Hann sagði hafa verið
kominn tíma á að breyta til og
eins og flestum væri eflaust kunn-
ugt hefði það staðið til áöur.
„Þetta er mjög spennandi. Það var
ofan á núna aö korna noróur og
síðan er mitt að standa mig og
sýna öllum að þessi ákvörðun hafi
verió rétt. Mér líst vel á liðið. Mér
skilst að Valdi [Valdimar Gríms-
son] og Simmi [Sigmar Þröstur
Oskarsson] verði áfram og ég tala
nú ekki um ef Alfreð spilar með.
Eg er bara bjartsýnn á veturinn og
það cr kominn tími á að KA vinni
titil.“
Þorvaldur Þorvaldsson, for-
maður handknattleiksdeildar KA,
var ekki síður ánægður. „I fyrsta
skipti í mörg ár er útlit fyrir litlar
mannabreytingar milli tímabila.
Erlingur Kristjánsson hefur gefið
svar um að vera með og þeir einu
sem fara eru Oskar Oskarsson og
Ármann Sigurvinsson. Síðan bæt-
ist Patrekur við og þá vonandi er-
um viö mcð mannskap til að gera
góða hluti. Við ætlum samt að
vera sparir á allar yfirlýsingar."
í kvöld hefjast 32 liða úrslit
Mjólkurbikarkeppni karla í
knattspyrnu með þremur leik-
um. Annað kvöld verða 7 leikir
en umferðinni lýkur á fimmtu-
dagskvöldið.
Tvö lið af Norðurlandi veróa í
cldlínunni í kvöld. Þá taka Völs-
ungar á móti Grindvíkingum á
Húsavíkurvclli og Leiftursmenn
leika í Borgarnesi vió Skallagrím.
Annað kvöld mætast síðan KS og
ÍBV á Siglufirði, Hvöt og KA á
Blönduósi og Tindastóll tekur á
móti Þrótti Reykjavík á Sauðár-
króki. Fyrstu deildar lið Þórs
verður í eldlínunni á fimmtudags-
kvöldið en þeir þurfa að halda til
Sandgerðis og leika vió 3. deildar
lið Reynis. Allir umræddir leikir
hetjast kl. 20.00.
Aö lokinni undirskrift fclagaskipta á sunnudaginn. Frá vinstri: Alfreð Gísia-
son þjálfari, Patrckur Jóhanncsson og Þorvaldur Þorvaldsson, formaður
handknattlciksdcildar KA. Mynd: Halldór.