Dagur - 23.07.1994, Page 18
18 - DAGUR - Laugardagur 23. júlí 1994
POPP
MAúNÚS ÚEIR CUÐMUNDSSON
Góður endír
á gítarfestívalí
- Með KK og Guðmundí Péturssyní
ins og tón-
listarunn-
endur og
bæjarbúar al-
mennt hafa
væntanlega orð-
ið varir við, stóð
yfir gítarhátíð,
Gítarfestival 94,
hér á Akureyri í
síóustu viku.
Var þetta í
þriója sinn á jafn
mörgum árum
sem festivalió er
haldió og hefur
það verið í
tengslum við
Listasumarið
hér í bænum í
tvö síðari skiptin
(beint eða
óbeint). Var
uppistaða við-
buróa festivals-
ins, sem stóð
frá þriðjudegi til
sunnudags, í
ætt vió klassík
að venju, þar
sem heimsókn-
ar hins fræga
Oscars Chiglia
verður ekki hvað síst minnst,
en lokahnykkurinn var hins
vegar á blúsuóu nótunum, með
þeim Guðmundi Péturssyni og
Kristjáni Kristjánssyni, KK hin-
um „seinni“. Komu þeir fram í
fjöllistasalnum Deiglunni á
sunnudeginum með tvo kassa-
gítara og rödd Kristjáns að
vopni. Er skemmst frá því að
segja að um fínt „jam“ var að
ræða hjá þeim félögum og nutu
þeir sín býsna vel, KK við
sönginn og taktspilið, sem fáir
eru honum fremri í og Guð-
mundur í einleiknum, sem var
á köflum skemmtilega djassaó-
ur og framúrskarandi. Efnis-
skráin var blanda af lögum KK
sjálfs t.d. I got a woman af
fyrstu plötunni og Bein leið af
samnefndri plötu og frægum
blúsum eins og Baby what you
want me to do eftir Jimmy
Reed og Honey hush eftir Lo-
well Fulson. Eðalblanda, sem
svo var krydduð með ekki
ómerkari „slögurum" en Johnny
B. good úr rokksmiðju Chuck
meistara Berry og I got you frá
sálarkónginum James Brown.
Er alltaf gaman að heyra slíka
„klassík" og
skemmir þá
ekki fyrir að fá
hana í svona
öðruvísi bún-
ingi, einfaldari
og hrárri. Á
þessum fínu
tónleikum, er
stóðu í vel yfir
klukkustund,
var þó þess
saknaó að
enginn var
munnharpan
hjá Kristjáni
né „slidehólk-
urinn" hjá
Guðmundi í
spilamennsk-
unni, sem
hefóu gert
dagskrána
enn skemmti-
legri og fjöl-
breyttari. En
það verður
bara vonandi
bót á því
næst.
Meðfylgjandi
mynd tók um-
sjónarmaður
af þeim Guðmundi og KK í
„góðum gír“.
Þess má svo geta að lokum aó
þeir félagar fengu örlitla radd-
aðstoð frá bassaleikara KK
bandsins, Þorleifi Guðjónssyni
og féll það í góðan jarðveg hjá
tónleikagestum, sem fylltu
Deigluna.
GLEÐIGUMAR
egar hinir tápmiklu sveinar
í gleðisveitinni Greifunum
lögðu upp laupana fyrir
nokkrum árum, áttu menn ekki
beinlínis von á að önnur sam-
bærileg kæmi fram á sjónar-
sviðið í náinni framtíð. Því hafa
þó sumir óneitanlega viljað
halda fram upp á síðkastið í til-
viki einnar nýjustu poppsveitar
landsins, sem slegið hefur í
gegn, Vinum vors og blóma. Er
það ekki hvað síst vegna nýj-
asta lags hljómsveitarinnar,
Frjáls, að menn hafa verið að
líkja henni við Greifana og er
sú samlíking ekki svo galin.
Það er a.m.k. sameiginlegt
með því lagi og fjölmörgum
með Greifunum aó það hefur
náð mikilli hylli, sem sannar-
lega ekki er ástæða til aó
kvarta yfir, hvað svo sem öór-
um samanburði líður. Var
Frjáls fjórða lagið sem kom út
með Vinum vors og blóma og
hafa vinsældirnar verið aó
vaxa stig af stigi með hverju
lagi. Hin lögin voru Gott í
kroppinn, sem er að finna á
Lagasafninu 3, Tapað fundið á
íslensk tónlist og Maður með
mönnum, sem Skífan gaf út á
safnplötunni Heyrðu 2. Það var
því í rökréttu framhaldi að
fyrsta platan, Æði, var gefin út
með Vv&b fyrir skömmu. Er um
11 laga grip að ræða með
Frjáls, Maður með mönnum og
Gott í kroppinn innanborðs auk
átta nýrra og frumsaminna.
Vinir vors og blóma hafa
starfaó síðan 1992, þegar hún
var stofnuð upp úr annarri
sveit, Busunum, en í núverandi
vinir vors & blóma iCD
Vinir vors og blóma halda gleði-
sveitamerkinu vel á lofti.
mynd hefur hún verið síóan í
febrúar 1993. Skipa sveitina
þeir Þorsteinn G. Ólafsson
söngvari, Siggeir Pétursson
bassaleikari og Njáll Þóróars-
son hljómborðsleikari, sem ver-
ið hafa í henni frá upphafi og
Birgir Nielsen trommuleikari og
Gunnar Þ. Eggertsson gítar-
leikari, sem komu nokkru síðar
til sögunnar. Munu hinir þrír
fyrstnefndu vera upphaflega frá
Stykkishólmi, en hinir tveir frá
Húsavík og Reykjavík. Þegar
hlustað er á Æði kemur Greifa-
samanburðurinn aftur upp, en
lög á borð við titiliagið og Fjar-
lægðin minna frekar á Sálina
hans Jóns míns/Pláhnetuna,
sem ekki er svo sem verra.
Þeir Vv&b félagar bæta hins
vegar litlu við það sem hinar
sveitirnar hafa nú þegar gert,
þannig að hún rís ekki hátt.
Gleðina vantar samt ekki og
mun það sjálfsagt fleyta þeim
áfram og lengra í vinsældunum
ef að líkum lætur.
Hörðtir t hnotskttrn
Hörður Torfason hefur tví-
mælalaust verið einn merk-
asti farandssöngvari
(trúbador) landsins gegnum tíð-
ina og telst líklega einnig vera
Platan Þel geymir mörg af vin-
sælustu lögum Harðar Torfa.
með þeim fyrstu sem tók upp
þá iðju svo eitthvað kvað af.
Hann hefur nú um nær þriggja
áratuga skeiö borið boðskap
sinn I Ijóðum og lögum á borð
fyrir landsmenn, sem margir
hafa bundist honum tryggðar-
böndum. En eins og sjálfsagt
margir vita hefur feríll Haröar
ekki alltaf verið dans á rósum.
Hraktist hann m.a. úr landi um
miðjan áttunda áratuginn til
Danmerkur, þar sem hann svo
bjó um árabil, eftir að hafa opin-
berað samkynhneigö sína í
frægu viðtali við tímaritið Samú-
el. Hann fiuttist hins vegar aftur
heim fyrir nokkrum árum og
hefur síðan verið duglegur við
að senda frá sér plötur. Leiklist-
arstarfsemi hefur líka verið ríkur
þáttur hjá Herði, bæði áður og
eftir að, hann snéri alkominn
heim til íslands. Hefur hann t.d.
unnið töluvert með áhugaleikfé-
lögum út um land við uppsetn-
ingar. Fyrir skömmu kom út frá
Herði í samvinnu við Japis,
safnplata sem hann nefnir Þel
og inniheldur hún 17 lög.
Spannar hún tuttugu og tveggja
ára tlmabil í ferli Harðar frá ein-
um af hans fyrstu upptökum
(Þú ert sjálfur Guðjón, Ég leit-
aði blárra blóma) 1970, til 1992
(Ljóð, Dúfan. Er síöarnefnda
lagið af plötunni til styrktar Sop-
hiu Hansen, Börnin) Verður
ekki annað sagt en að Þel sé
verðug samsetning, sem sýni
um margt merkan listamann í
hnotskurn.
Bon Jovi senda frá sér safnplötu
f haust og nýja plötu f byrjun
"æs“pti tt ktar--
Stórrokkararnir í BonJovi eru
nú komnir á fullt skrið með
vinnu á nýrri hljóð-
versplötu. Hafa nú þegar 17 til
18 lög verið forunnin með
plötuna í huga auk þess sem
söngvarinn Jon Bon Jovi og fé-
lagar eru enn að semja. Á sem
sagt að vera meira en nóg af
lögum til að moða úr þegar
lokaupptökurnar hefjast. Nokk-
ur bið veróur þó á því vegna
þess að áður á að koma út
safnplata með helstu smellum
Bon Jovi. Er gert ráð fyrir að sú
plata komi út í október og að á
henni auk eldri laga verði tvö
ný. Nýju hljóðversplötunnar,
sem verður sú sjötta í röðinni,
veróur þvl ekki að vænta fyrr
en á nýju ári, í febrúar eða
mars.
("“ins og kom fram hér I
|“Poppi fyrir nokkru, var
I—söngvaranum raddmikla
Michael Bolton stefnt fyrir rétt
vegna meints stulds á lagi Isley
bræðra, Love is a wonderfui
thing. Féll dómur í málinu nú
fyrir stuttu og það Bolton í
óhag. Var hann dæmdur til að
greiða Isley bræðrum 2/3 af
ágóóa lagsins og einnig að
greiða þeim 28% af söluhagn-
aði piötunnar Time, love and
tenderness, sem inniheldur lag-
ió. Herma fregnir að Bolton hafi
ekki verið alls kostar sáttur við
úrskurðinn og hyggist áfrýja
honum. Isley bræður munu að
sögn ekki óttast þá áfrýjun og
vonast þeir jafnvel eftir að fá
allan ágóðann af laginu dæmd-
an tii sín og helming af sölunni
á plötunni. Verður því væntan-
lega meira af þessu síðar.
Rokkjöfurinn Neil Young
lætur ekki deigann síga
frekar en fyrri daginn og er
nú á leiðinni með enn eina
plötuna. Ber hún heitið Sleep
with angels og er hljómsveitin
Crazy horse honum enn og aft-
ur innan handar við gerð henn-
ar. Var sú ágæta hljómsveit í
fríi á síðustu plötu Youngs,
Harvest moon, en er nú sem
sagt með aftur. Mun hún
innihalda tólf iög og er útgáfu-
dagur 16. ágúst næstkomandi.
Platan mun að sögn þeirra sem
fengið hafa að heyra, vera
nokkuð þunglyndisleg, en samt
líka með hinni alkunnu angur-
værð Youngs í bland. Hvað
síóan einstök lög varðar þá er
uppi grunur um að titillag
plötunnar fjalli um hið fallna
rokkgoð Kurt Cobain. Mun
Young hafa haft einhver kynni
af honum, en þó ekki eins og af
félögum hans frá Seattle í
Pearl jam, sem spiluöu með
honum á tónleikum í fyrra.
I