Dagur - 15.09.1994, Side 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 15. september 1994
FRÉTTIR
m
Ráðhústorgi 5, 2. hæð
Gengifi inn frá Skipagötu
Sími 11500
A söluskrá
Dalsgerði:
3ja herb. á neðri hæð um 87 Im. I mjög
góðu lagi.
Núpasíða:
3ja herb. raðhús á einni hæð um 89 fm. i
mjög góðu lagi. Laust fljótlega.
Furulundur:
3ja herb. raðhús á einni hæð um 77 fm.
Laust strax.
Bjarmastígur:
3ja herb. íbúð í þrlbýli um 74 fm. Laus
strax.
Oddeyrargata:
4ra heb. efri hæð í tvibýli - allt sér - um 82
(m. Skipti á 2-3ja herb. íbúð.
Brekkugata:
4ra herb. neðri hæð i tvlbýli um 90 fm. Laus
fljótlega.
Vantar:
Góða 2ja herb. ibúð á Eyrinni.
FASTEIGNA & II
skipasalaISKS
NORÐURLANDSII
Ráðhústorgi 5, 2. hæð
gongiö inn frá Skipagötu
Opið virka daga
frá kl. 9.30-11.30 og 13.15-17.
Sölustjóri:
Pétur Jósefsson
Lögmaöur:
Benedikt Ólafsson hdl. fl""
Stjórn Flugleiða:
Serstakt fyrirtæki um rekstur
innanlandsflugs stofnað
Stjórn Flugleiða samþykkti á
fundi sínum í vikunni að stofna
sérstakt fyrirtæki sem taka á við
rekstri innanlandsflugs á næsta
ári. Jafnframt var ákveðið að
heQa viðræður við starfsfólk og
stéttarfélög hið fyrsta um breyt-
ingar á starfseminni og nauð-
synlegar breytingar sem gera
þarf á kjarasamningum vegna
þeirra.
Tilgangurinn með stofnun nýja
fyrirtækisins er tvíþættur. I fyrsta
lagi að tryggja arðbæran rekstur
innanlandsflugsins, sem hefur ver-
ið rekið með verulegum halla í 5
ár. Því markmiði verður náð meó
breytingum á framkvæmd ýmissa
þátta starfseminnar. í öðru lagi er
tilgangurinn að búa innanlands-
flugið undir opna samkeppni í
samræmi við flugmálareglur EES
árið 1997.
Nýja fyrirtækið veróur að fullu
í eigu Flugleióa, þótt gert sé ráó
fyrir að unnt verði aó fá fleiri að-
iía inn í reksturinn, þegar afkoma
innanlandsflugsins batnar. I tillög-
um um fyrirkomulag rekstrarins er
gert ráð fyrir að starfsmannafjöldi
nýja fyrirtækisins veröi svipaður
og innanlandsflugsins í dag en að
skipulag og uppbygging breytist.
Akvörðun um kaup á flotkví tekin fljótlega
Undirbúningsframkvæmdir vegna fyrirhugaðra kaupa á flotkví til Akureyrar standa nú yfir. Að undanförnu hefur
verið unnið við að kanna jarðveg í flotkvíarstæðinu norðan við stóru skemmu Slippstöðvarinnar/Odda. Þar er gert
ráð fyrir að grafa úr kvíarstæðinu 85.000 rúmmetra. Viðræður standa yfir við nokkra aðila sem hafa flotkvíar til
sölu og er stefnt að því að taka ákvörðun um kaup á flotkví á allra næstu vikum. Mynd: kk
✓
g§m
iftl
15. til 18. september
Emmessis 1 Itr ................98/-
Lambasaltkjöt ................ 459,- pr. kg
Pver-lambakótilettur ...........539,- pr. kg
Nautasnitsel ...................798,- pr. kg
Hálsasneiðar ................. 249,- pr. kg
Finn Crisp hrökkbrauð........ 99,- pk.
Kinakal .....................69,-pr. kg
Gulrófur .................... 46,- pr. kg
Tómatar .....................159,- pr. kg
Sportskór................. 1.795,-
Eitt par sokkar fylgja með hverju seldu pari.
Herra- og kvenúlpur ..... 3.995,- kr.
Opið mánudaga til föstudaga kl* 12-18.30
Laugardaga kl. 10-16
Sunnudaga kL 13-17
Gert er ráð fyrir að flugfloti nýja
félagsins verði fyrst um sinn 3
Fokker 50 skrúfuþotur.
Félagiö hefur lagt í mikla vinnu
til að treysta rekstrargrundvöll
innanlandsflugsins. Fjölmörgum
tillögum sem bæta afkomuna hef-
ur verið hrint í framkvæmd og
öðrum verður hrint í framkvæmd í
kjölfar aóskilnaðar frá millilanda-
fluginu. Það er hins vegar mat
stjómar Flugleiða að markaóur
innanlandsflugs og sú vaxandi
samkeppni sem er framundan geri
kröfur um meiri sveigjanleika og
aðlögunarhæfni en innanlands-
flugið hafi sem deild í Flugleið-
um. KK
Arekstur
- á mótum
Austur- og Bugöusíöu
Harður árekstur varð á gatna-
mótum Bugðusíðu og Austur-
síðu síðdegis í gær og varð veru-
legt eignatjón. Aðra bifreiðina
varð að fjarlægja af slysstað með
kranabíl.
Engin slys urðu á fólki sem
telja má mestu mildi. Öðru hverju
verða árekstrar á horni Austursíðu
og Bugðusíóu og eins Austursíóu
og Hlíðarbrautar og er aðalbraut-
arréttur í báöum tilfellum þver-
brotinn á gatnamótum þar sem vel
sést til beggja átta. GG
Herþotur
í æfingarflugi
Tvær herþotur frá Keflavíkur-
flugvelli æfðu í gær aðflug að
Akureyrarflugvelli, en Akureyr-
arflugvöllur er varaflugvöllur
fyrir Keflavíkurflugvöll og því
jirtast hér öðru hverju fljúgandi
fiertól yfir Eyjafirði.
Hér er um að ræóa F-l5 her-
Dotur og voru þær tvær saman.
Vélarnar flugu í lágflugi yfir
arautinni, settust ekki en tóku sig
iftur á loft og hurfu upp í himin-
alámann sem hvolfdist yfir frið-
iælli Eyjafjarðarsveitinni síðdegis
i gær. GG
Austur-Húnavatnssýsla:
Hrossasmölun
og stóðrétt
Dagana 17.-18. þessa mánaðar
gefst fólki tækifæri til að taka
þátt í hrossasmölun í Laxárdal í
Austur-Húnavatnssýslu og stóð-
rétt í Skrapatungurétt með
heimamönnum.
Hótel Blönduós, Ferðaþjónust-
an Geitaskarói og Hestaleigan Kú-
skerpi bjóða þeim sem áhuga hafa
upp á nokkurskonar „réttarpakka"
sem inniheldur, gistingu, morgun-
verð, akstur til og frá réttarstað og
að sjálfsögóu hest í göngurnar.
Gert er ráð fyrir því að þátttak-
endur komi á föstudagskvöld og
fari á laugardagsmorgun í smölun
á Laxárdalinn. Um kvöldið verður
sameiginlegur kvöldverður á
Hótel Blönduósi og dansleikur á
eftir. A sunnudaginn hefjast svo
réttarstörf í Skrapatungurétt um
klukkan tíu. Þangað ríður kántrý-
kóngur norðursins, Hallbjörn
Hjartarson og syngur nokkur lög.
Allar nánari upplýsingar um
þetta ævintýri er að fá hjá Hótel-
inu á Blönduósi eða í Geitaskarði.
KLJ