Dagur - 15.09.1994, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 15. september 1994
Ráðstefna Eyþings um ferðaþjónustuna:
Litlu gulu
hænuna vantar
Félagar í Líf og fjör!!
Nú fer fjörið að byrja
Aðalfundur klúbbsins veróur haldinn á Fiðlaranum 4. hæó,
laugardaginn 1. október og hefst kl. 21.00.
Dansleikur verður eftir fundinn.
Endurnýjun félagsskírteina fer fram á Fiðlaranum miðviku-
daginn 28. september og fimmtudaginn 29. september
kl. 17.00-19.00 og 1. október kl. 19.00-21.00.
Nýir félagar velkomnir.
mjög mikið í gistirými á sama
tíma og það hefur verið kannað að
nýting á gistirými á höfuðborgar-
svæðinu hefur farió minnkandi.
Við höfum fjárfest geysimikið í
samgöngutækjum, um 20 millj-
arða á síðustu fimm árum hjá
Flugleiðum. Um átta milljaróar
eru taldir liggja í hótelrými og
álíka há upphæð talin vera í sum-
arhúsum. Þetta mikla gistirými í
sumarhúsum er að sjálfsögðu ekki
allt virkt inni á feróamarkaðnum,
en það getur orðiö þaö. I framtíö-
inni er þarna um möguleika á
miklu framboöi að ræða sem gæti
haft áhrif á markaðinn. Eg er
þama aö tala um sumarhús í eigu
einstaklinga og félagasamtaka
sem eru ekki rekin sem ferðaþjón-
ustusumarhús. Bændur gætu orðió
í samkeppni við þennan markað
og eru það í raun nú þegar. Ef
verkalýósfélögin hefðu farið þá
leið að fjárfesta ekki í gistirými en
verða viðskiptaaðilar við bænd-
urna þá hefði þessi þróun oróið
meö öðrum hætti, og hagstæóari
gistiþjónustu bænda. Nú er þróun-
in að verða meiri á þann veg að
félagasamtök fjárfesta ekki eins
mikið í húsum og huga að því að
skipta við bændurna. Það styrkir
rekstargrundvöll gistiþjónustu
bænda,“ sagði Tómas Ingi.
Ferðaþjónustan orðin
ein af undirstöðu-
atvinnuvegunum
Tómas Ingi vék að vióhorfinu til
ferðaþjónustunnar í Evrópu þar
sem hann sagði eftirvæntingarnar
miklar.
„Það er nauðsynlegt að menn
geri sér grein fyrir að allsstaðar í
Evrópu, einkum og sér í lagi þar
sem atvinnuleysi er mikið, eru
menn mcð gífurlega miklar vænt-
ingar til ferðaþjónustunnar. Menn
líta svo á að innan þeirrar atvinnu-
greinar séu langmestir möguleikar
varóandi nýsköpun. Ekki síst
vegna þess aó ntenn vita aó það
mun aukast eftirspurn eftir ferða-
þjónustu og menn vita líka að
þessi atvinnugrein er vinnuafls-
frek. Þessi þróun varpar líka ljósi
á það að í öðrum atvinnugreinum
hafa menn orðið fyrir vonbrigðum
með möguleikana á atvinnusköp-
un. Þess vegna snúa allir sér að
ferðaþjónustu og afleiðingin af
því verður sú að samkeppnin í
ferðaþjónustu verður á komandi
árum mjög hörð. Við þurfum að
búa okkur undir það að við þurf-
um að hafa mikið fyrir okkar
markaði í ferðamálunum. Þess
vegna vil ég undirstrika það að
við þurfum að sinna þessari at-
vinnugrein með sömu aðferðum
og við sinnum okkar undirstöðuat-
vinnugreinum. Þetta er orðin ein
af undirstöðuatvinnugreinunum
okkar og við verðum að horfast í
augu við það og sinna henni sem
slíkri, m.a. meö því að láta hana
njóta athygli í sambandi við rann-
sóknir og þróunarstarf sem hún
hefur ekki fengið hingað til. Við
þurfum að beina meiri athygli að
þessari grein, verja meiri fjármun-
um til rannsókna- og þróunarstarfs
og upplýsingastarfsemi.“
Von um upplifun dregur að
Fjórir frummælendur fluttu fróð-
leg erindi á ráðstefnunni. A eftir
hverju erindi voru leyfðar fyrir-
spurnir og umræður og að lokum
fóru fram pallborðsumræður.
Margt athyglisvert kom fram yfir
daginn. Fyrsti frummælandinn,
Páll Þór Jónsson, hótelstjóri á
Húsavík, lagði mikla áherslu á
nauðsyn þess aö ráöa ferðamála-
fulltrúa í Þingeyjarsýslu.
Paul Richardsson frá Ferða-
þjónustu bænda sagói að nýting
hjá mörgum ferðaþjónustuaðilum
væri aðeins 30-45 dagar á ári.
Hann sagói að hótel eitt úti í haga
hefði ekki aðdráttarafl, rnenn
þyrftu að eiga von á einhverri
upplifun á svæóinu til að hafa
ástæðu til að koma, eöa að þar
væri haldin ráðstefna cða nám-
skeið.
Kolbrún Ulfsdóttir frá Rauðu-
skrióu í Aðaldal sagði frá upp-
byggingu þeirra hjóna á feröa-
þjónustu sinni, allt frá hugmynd
til framkvæmdar. Kolbrún sagði
að ferðaþjónusta gengi ekki án
áhuga þeirra sem að henni störf-
uðu. Kolbrún svaraði spurningu
Jóhannesar Geirs Sigurgeirssonar,
alþingismanns, um æskilega lengd
lánstíma við uppbyggingu ferða-
þjónustu og sagði að hann mætti
vera 20 ár í staó 5 og 10 ára eins
og nú.
„Eyþing er að slíta barnskónum
og festa sig í sessi. Þróun í upp-
byggingu samtakanna má t.d.
marka af sameiginlegri úttekt á
sorpmálum á svæðinu og sam-
vinnan á eftir að hafa mikla
þýðingu fyrir sveitarfélögin þeg-
ar yfirfara þarf útreikninga á
skólakostnaði er sveitarfélögun-
um verða markaðir tekjustofnar
til að taka við rekstri grunnskól-
ans. Mér fmnst samtökin vera
að vinna sér sess,“ sagði Einar
Njálsson, formaður Eyþings, eft-
ir aðalfund samtakanna, sem
haldinn var á Raufarhöfn 8.-9.
september sl.
Atvinnuvegur en ekki
aukageta
Feróaþjónusta á Norðurlandi
eystra - markaóssetning svæðisins
sem heildar, var yfirskrift ráö-
stefnu urn ferðamál, sem haldin
var síðari dag þingsins. „Almennt
fannst mér fundurinn mjög vel
heppnaður og þau erindi sem
þarna voru flutt mjög góð. Mér
fannst menn fjalla um þessi mál
miðað við þaó að ferðaþjónustan
væri atvinnuvegur sem væri jafn
mikilvægur og jafn rétthár eins og
hinir svokölluðu undirstöðuat-
vinnuvegir. Menn voru ekki að
fjalla um ferðaþjónustu sem neina
aukagetu heldur sem alvöruat-
vinnuveg sem vió þyrftum að sýna
jafnmikla alúó með þróunarstarfi
og rannsóknum. A fundinum kom
fram mikil samstaða þeirra sem
tjáðu sig af öllu svæðinu, um
nauðsyn og vilja til að vinna sam-
eiginlega aó þessum málum en aó
vera ekki að stíga skóinn hver af
öðrum.
Þeir ferðamenn sent koma
fljúgandi inn á svæðið koma til
Akureyrar eða Húsavíkur og er
síðan miðlað þaðan svo það er í
hæsta máta eölilegt aó menn af
öllu þessu svæði vinni saman. Þeir
styrkja hvem annan og það er
sameiginlegt hagsmunamál allra
að fá ferðafólk inn á svæðið. Sam-
starfið kemur ekki í veg fyrir að
menn af einstökum svæðum geti
lagt áherslu á einhver séreinkenni.
Mér fannst koma fram samstaða á
fundinum með að ráða ferðamála-
fulltrúa á vegum Atvinnuþróunar-
félags Þingeyinga. I því felst eng-
in aðskilnaðarstefna, þrátt fyrir
samstöðuna fannst mér menn inni
á því að hægt væri að setja niður
starfsmenn á fleiri en einum stað á
svæðinu en að þeir hefðu síðan
náiö samstarf um markaðssetn-
ingu,“ sagði Einar.
Mjög er horft til ferðaþjónustunnar sem vaxtarbrodds í atvinnusköpun á næstu árum. Nú heyrist æ ofltar talað um
ferðaþjónustuna scm alvöru atvinnugrein hcrlcndis þó fyrir fáum árum hafi hún verið talin frcmur tii hliðargrcina.
Mikil fjárfesting
Tómas Ingi Olrich, varaformaður
Ferðamálaráós, flutti ávarp. Hann
vitnaði í skýrslu Byggðastofnunar
um ferðamál í ávarpi sínu og
sagði í samtali við Dag: „Þar kem-
ur fram að það hefur verið fjárfest
Vetrarstarf
Barnakórs Akureyrarkirkju
er að hefjast.
Nýir söngfélagar velkomnir.
Allar nánari upplýsingar gefur Hólmfríóur Bene-
diktsdóttir í síma 41795.
fc
Stjórnin.
Halidór Jónsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri, Tómas Ingi Olrich, alþingismaður, Einar Njálsson, bæjarstjóri
á Húsavík, og Kristín Kristjánsdóttir frá Syðri-Brekkum á Langancsi fylgjast með.