Dagur - 15.09.1994, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 15. september 1994 - DAGUR -5
Vetrarstarf Kórs Akureyrarkirkju að heíjast:
Raddprófað inn í
kórínn í dag
Vetrarstarf Kórs Akureyrarkirkju
er nú að hefjast og verður starflð
að vanda fjölbreytt.
Hægt er að bæta við fólki í all-
ar raddir og verður raddprófun inn
í kórinn í dag, fimmtudag, kl. 18-
20 í Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju. Nánari upplýsingar gefur
Bjöm Steinar Sólbergsson, stjóm-
andi kórsins, í síma 25642
(heima) eða 27700 (Akureyrar-
kirkja). Stefnt er að því að sem
næst 50 manns verði í kómum í
vetur.
Efnisskrá vetrarins er ekki að
fullu mótuð en fram að áramótum
eru tvö verkefni ákveöin, annars
vegar þátttaka í fjáröflunartónleik-
um vegna orgelsjóós Akureyrar-
kirkju, en fyrir liggur að á næsta
ári verði ráðist í kostnaóarsamar
viógerðir á stóra orgeli Akureyrar-
kirkju. Þessir tónleikar eru ráð-
gerðir öðru hvoru megin við mán-
aðamótin nóvember-desember.
Á sl. ári efndi Kór Akureyrar-
kirkju í fyrsta skipti til sjálfstæðra
jólatónleika á aðventu og sá háttur
verður einnig hafóur á í ár. Þessir
tónleikar verða væntanlega sunnu-
daginn 18. desember.
Kirkjulistavika í Akureyrar-
kirkju, sem haldin er annað hvert
ár, verður haldin dagana 7. til 14.
maí 1995. Kórinn mun koma þar
fram á tónleikum, en ekki liggur
endanlega fyrir hvaða verkefni
verður fyrir valinu.
Kór Akureyrarkirkju tekur þátt
í reglulegu helgihaldi kirkjunnar.
Kórnum er skipt niður í smærri
hópa sem skiptast á að syngja í
sunnudagsmessum. Æft er í
klukkustund fyrir hverja guðs-
þjónustu, en reglulegar æfingar
kórsins eru á þriðjudagskvöldum
kl. 20.30- 22.30 og auk þeirra
verða raddæfingar. (Fréitaiiikynning)
Háskólinn á Akureyri:
„Undan oki
kyn-legra
hlutverka“
Næstkomandi laugardag, 17. sept-
ember, efna kennaradeild og end-
urmenntunardeild Háskólans á
Akureyri til ráóstefnu sem ber
yfirskriftina „Undan oki kyn-legra
hlutverka" - þjálfun samskipta og
sjálfstæðis hjá ungum sem öldn-
um.
Á ráðstcfnunni veróur m.a.
fjallað um kynhlutverk og full-
orðna. Einnig urn það hvernig má
með sérstakri þjálfun vinna upp þá
eiginleika sem börn eru svikin um
í krafti kynferðis. Þannig er ger-
legt aö stækka sjálfsímynd bæði
stúlkna og drengja og gefa þeim
möguleika á fjölbreyttari eigin-
leikum heldur en kynbundnu hlut-
verkin gera.
Fyrirlesarar á ráðstefnunni
verða þær dr. Nina Colwill og
Margrét Pála Olafsdóttir.
Dr. Nina Colwill er sálfræðing-
ur að mennt og helur um margra
ára skeið verið prófessor við Man-
itobaháskóla í Kanada og gegnt
þar ýrnsum trúnaðarstörfum. Hún
hefur skrifað bækur og fjöldann
allan af greinum um rannsóknir
sínar, sem hún hefur nú um skeið
haft að aðalstarfi. Hún hefur oft
heimsótt Island og haldiö fyrir-
lestra í Háskólanum á Akureyri.
Margrét Pála Olafsdóttir er
leikskólastjóri á leikskólanum
Hjalla í Hafnarfirði. Hún hefur
fimm ára reynslu af starfi kynja-
skiptra hópa 2-6 ára bama með
sérstakt stúlkna- og drengjaupp-
eldi. Hún er höfundur bókarinnar
„Æfingin skapar meistarann -
leikskóli fyrir stelpur og stráka"
og „Að klífa hjallann - ný leið í
leikskólastarfi", fylgirit með sam-
nefndu myndbandi.
Ráðstefnan hefst kl. 9 í hús-
næði skólans við Þingvallastræti
og stendur til kl. 16. Ráðstefnu-
gjald er kr. 1000 og fer skráning
fram í SÍma 30900. (Fréttalikynning)
Kór Akureyrarkirkju hcfur tekist á við mörg stórverkefni á undanförnum
árum og sem tyrr glímir kórinn við margt áhugavcrt í vetur.
Viðgerðir
á öllum tegundum
af töskum.
Fljót og góð þjónusta.
TÖSKU-
VIÐGERÐIN
VINNUSTOFA SlBS
Ármúla 34, bakhús
Sími814303
HRÍSALUNDUR
Þar sem gæði og lágt verð fara saman
ÚR KJÖTBORÐI ÚR ÁVAXTABORÐI ÚR BRAUÐBORÐI
jlllpl , r/ • r"-. ** ‘V *—i— ■>- tmjs!
Tilboð Kindahakk 398 kr. kg Nýreykt kindabjúgu 398 kr. kg Tilboð Vatnsmelónur 49 kr. kg Melónur gular 79 kr. kg Melónur grænar 49 kr. kg Tilboð Þriggja korna brauð 99 kr. stk. Braggi 269 kr. stk.
Hversdagsís 2 lítrar 359 kr.
OSTAKYNNING
föstudag kl. 14-19
Kastali, hvftur
Bóndabrie
Pepperoneostur
Hvítlauksostur
Beikonostur
kynningarafsláttur
Tilboð á vörum
til sláturgerðar
5 slátur frosin í kassa
kr. 2.545
Tilboð
Kartöflur
gullauga og rauðar
39 kr. kg
Afgreiðslutímar:
Mánud.-föstud. kl. 10-19.30 • Laugard. kl. 10-18
1F
A KVOLDIN FRA KL. 18.00
HLAÐIÐ BORÐ AF VILLIBRÁÐ:
VILLIBRAÐASEYÐI MEÐ OSTASTONGUM
' HREINDÝRASMÁSTEIK
GÆSALÆRI í LYNGSÓSU
HÖFRUNGAPIPARMEDALÍUR
VILLIBRÁÐAPATE
FTALLAGRASAPATE
INNBAKAÐUR LAX
DJÚPSTEIICTAR RÆKJUR