Dagur - 22.09.1994, Page 1

Dagur - 22.09.1994, Page 1
" ' Akureyri, iimmtudagur 22. septcmber 1994 179, tölublað Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhririgar Afgreiddir samdægurs GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Félagsmálaráö Akureyrar: Farið fram á 15 milljóna króna aukafjárveitingu Danskcnnsla cr nú hafin hjá 9 ára börnum á Akurcyri. Þcssi fótmcnnt cr orðin skyldufag i grunnskólum bæjarins og Dansskóli Hciðars Astvaldssonar sér um námið. Ljósmyndari Dags leit við í Barnaskóla Akureyrar í gær þegar Ijör- ið stóð sem hæst cn nánari umijöllun er á bls. 2. Mynd: Robyn. Verömæti Smuguþorsks á árinu 3 milljaröar króna: Þrjátíu og fimm íslenskir togarar mokveiða í Smugunni Fjárþörf Félagsmálaráðs Ak- ureyrar til að geta veitt ein- staklingum og fjölskyldum nauðsynlega aðstoð virðist ætla að verða verulega meiri á þessu ári en ráð var fyrir gert, sem reyndar kom ekki mjög á óvart. Við endurskoðun fjárhagsáætl- unar hefur félagsmálaráð farið fram á 15 milljónir aukalega og hefur þegar fengið 5 milljónir. I rauninni var aldrei búist við að upphafleg fjárveiting dygði nema hálft árið. Sigfríður Þorsteinsdóttir, for- seti bæjarstjórnar og formaður fé- lagsmálaráðs, sagöist ekki vita til þess aö þörfin fyrir aóstoó hefði neitt farið minnkandi en næsti fundur ráðsins er nk. föstudag. „Auðvitað væri óskandi aö þetta yrði minna en ég hef ekki enn séð neinar tölur sem staðfesta það. Mér skilst að í síðasta mánuði hafl Verðsamkomu- lag við Þor- móö ramma framlengt - minna af ufsa eir smábátar á Siglufírði sem yerið hafa á handfærum í sumar hafa flestir skipt yfir á Iínu, en 26 bátar leggja upp afl- anum hjá Þormóði ramma hf. á Siglufirði og er það lunginn úr siglfirska trilluflotanum. Það magn sem lagt hefur verið upp hjá Þormóði ramma hf. er svip- að og var sl. sumar. I vor var gert samkomulag milli trillukarla og forsvarsmanna Þormóðs ramma hf. um að verð til þeirra yrði óbreytt fram til 20. september. Það samkomulag hefur verið framlengt ótímabundið en bátarnir fá hins vegar lægra verð fyrir óaðgerðan fisk. Aílamagn bátanna hefur verið mjög breytilegt að undanförnu, blandaður afli, og hefur aflinn að- allega verið þorskur en minna af ufsa sem er töluvert breytt mynst- ur frá síðustu sumrum. Síðustu daga hafa bátarnir verið á fá væna ýsu allt upp í landsteinum og einnig steinbít, en þá lengra frá landinu. Ysuaflinn hefur verið allt upp í 300 kg á bát og 500 kg af steinbít. Aflinn er allt frá nokkuð hundruð kílóum upp í 20 tonn, en algengast að hann hafi verið frá 10 til 12 tonn. Þeir bátar sem hafa aflað mest hafa verið að koma að landi meö um 1.200 kg, sem tclj- ast verður þokkalegt. Vegna skyndilokunar hefur stórt línusvæði út af Siglullrði verið lokað í viku, en átti að opn- ast í gær, en þá gaf ekki á sjó vegna veóurs. GG verið minna atvinnuleysi en í sama mánuði í fyrra en það getur vel hafa verið tilfallandi, en mað- ur vonar auðvitað að þetta fari skánandi,“ sagði Sigfríður. Hún sagði að þörf fyrir aðstoð væri mest hjá þeim sem hafa misst vinnuna eða eru að verða atvinnu- lausir. Sér fyndist líka að þaö væri frekar fjölskyldufólk en einstæðir foreldrar sem væru aðstoðar þurfi. Erfiðasti mánuðurinn væri desem- ber. Hann væri á við tvo venju- lega. HA rjátíu og fímm íslenskir tog- arar eru að veiðum í Smug- unni og hefur verið mokveiði á svæðinu sl. fimm daga eftir mjög tregt fískerí allnokkra daga þar á undan. Aflinn hefur verið um 20 tonn í holi af stór- um físki. „Það eru engir togarar að veiða á Svalbarðasvæðinu en þeir hafa stundum farið 3 til 4 mílur vestur fyrir línuna í toginu svo þeir eru ekki að fara innfyrir heldur er þetta spurning um að teygja svo- lítið á línunni,“ sagði Jóhann A. Jónsson, útgerðarmaður á Þórs- höfn. Togararnir eru á tveimur svæð- um, bæói nyrst og syðst, og fylgist norska strandgæslan náið með ís- lenska flotanum og stjakar skipun- um til baka ef þeim finnst þau vera komin of langt. Þeim tilmæl- Ekki eru allar laxeldisstöðvar reknar með tapi, þó fréttir af taprekstri í þessari atvinnugrein hafí verið miklu algengari síð- ustu misseri og ár. Rifós hf. í Kelduhverfi, sem stofnað var eftir gjaldþrot ísnó hf., var rekið á síðasta ári með 22 milljóna króna hagnaði. Ástæða þessarar góðu útkomu er m.a. aukin framleiðsla en stefnt er að 400 tonna framleiðslu á þessu ári og minni yfirbygging á fyrirtækinu. um er ávallt sinnt. í fyrradag höfðu Norðmenn afskipti af sjö togurum og voru sumir þeirra komnir nokkrar mílur inn fyrir. Afli Baldvins Þorsteinssonar EA, sem kom úr Smugunni sl. sunnudag, reyndist um 400 tonn af frystum flökum, og aflaverð- mæti um 90 milljónir króna, sem er mesta aflaverðmæti sem skipið hefur komið með aö landi. Þaó kann að breytast ef umtalsvert verðfall veróur á mörkuóum er- lendis, en þar hefur vcrð farió lækkandi vegna mikils framboðs, ekki síst af Smuguþorski. Baldvin Þorsteinsson EA fer nú á grálúðu- eða karfaveiðar á heimaslóð. Til samanburðar vió aflann úr Smugunni má geta þess að þorsk- kvóti Baldvins Þorsteinssonar EA er 812 tonn, en heildarkvóti í þorskígildistonnum 2.186 tonn. Miðað við 40% nýtingu er um í stöðinni eru um 170 þúsund fiskar undir einu kg; 170 þúsund fískar sem eru 50 grömm og 80 til 90 þúsund fiskar sem slátrað verð- ur á þessu ári. Olafur Jónsson, framkvæmdastjóri Rifóss hf., sagði nýlega í samtali við DAG aö stöðin styrkti innlendan iðnað og vildi með því skila þjóðinni aftur einhverju af þeim peningum sem runnið hafa til fiskeldis á Islandi. Það væri nánast glæpur aö afskrifa alla þá peninga. GG liðlega 900 tonn að ræða upp úr sjó. Hásetahlutur í túrnum er um 975 þúsund krónur eftir liðlega sex vikna veiðiferð, en ef um 5 daga stans í landi fyrir og eftir túr- inn er tekið með er hér um tveggja Sem kunnugt er hefur sú stefna verið mörkuð að leggja af starfsemi á vistheimil- inu Sólborg á Akureyri og íbúar flytjist á sambýli. Endanleg tímasetning þess ræðst að sögn Bjarna Kristjánssonar, fram- kvæmdastjóra Svæðisstjórnar um málefni fatlaðra á Norður- landi eystra, nokkuð af því hve- nær kaupandi fæst af húsunum en þeir flutningar sem fyrirhug- aðir voru á þessu ári hafa gengið skv. áætlun. Sl. vor var starfsfólki á Sólborg sagt upp, þar sem fyrirhugað var að stofna sambýli á Húsavík og Blönduósi og þær áætlanir gengu cftir. Við þaó fækkar stöóugildum á Sólborg um 16. Þegar er búið að ráóa starfsfólk á sambýlió á Húsa- vík og þar hefst starfsemi í lok mánaðarins og á Blönduósi í lok október. Á næsta ári er fyrirhugað að allir íbúar á Sólborg flytji út. „Það hafa verið ýmsar hugmyndir uppi með nýtingu á fasteigninni og við höfum vonað aó mesta alvaran væri hjá Háskólanum á Akureyri. Niðurstaða hefur þó ekki fengist mér vitanlega en vonandi fer þetta að skýrast því framvindan ræðst svolítið af því. Þarna er starfsemi sem í sjálfu sér cr ckki ástæóa að flytja nema nýr nýtandi að fast- mánaða laun að ræða. LIU telur að þorskaflinn í Bar- entshafí sé um 30 þúsund tonn það sem af er þessu ári og útflutn- ingsverðmæti þess afla gæti verið um þrír milljarðar króna. GG eigninni finnist." Þeir flutningar sem fyrirhugað- ir voru á þessu ári hafa því gengið samkvæmt áætlun en aó sögn Bjarna er óljósara með næsta áfanga af fyrrgreindum ástæóum. HA Slys um borð í Baldri: Skipstjórinn fótbrotnaði að slys varð um borð í togar- anum Baldri EA-108 frá Dalvík, þar sem hann var á veið- um í Flæmska hattinum um 200 mflur undan strönd Nýfundna- lands, að skipstjórinn og eigandi skipsins, Snorri Snorrason, hlaut opið fótbrot er hleri sem hann var að sjóða í skall á honum. Veður var sæmilegt á veiði- slóðinni, 4 til 5 vindstig. Þegar var haft samband við lækni í landi en vegna veðurs þar komst þyrla með lækni ekki strax af stað. Skipstjór- inn komst svo undir læknishendur í St. John sjö tímum seinna. Sonur hans, Snorri Snorrason yngri, tók við skipinu. Togarinn landaði í sl. viku afla fyrir 20 milljjónir króna og haföi nýlega hafíð aftur veiðar. Alli hef- ur verið mjög tregur. GG Rifós hf. í Kelduhverfi: Rekið með 20 millj. kr. hagnaði í fyrra Breytingarnar á Sólborg: Samkvæmt áætlun

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.