Dagur


Dagur - 22.09.1994, Qupperneq 2

Dagur - 22.09.1994, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 23. ágúst 1994 FRÉTTIR Akureyri: Einn, tveir, þrír, hliðar saman hliðar - danskennsla í grunnskólum bæjarins Að yfirstíga óttann við að snertast Nú eru öll níu ára börn á Akur- eyri að læra að dansa í grunn- skólanum sínum. f fyrra fór Reykjavíkurborg á stað með skyldutima í dansi fyrir níu ára böm í skólum borgarinnar og í vetur er sami háttu hafður á þar. Nú er danskennsla fyrir þennan aldurshóp einnig hafin í grunn- skólum á Akureyri. Það er sveitar- félagiö sem stendur á bak við danskennsluna og Dansskóli Heiðars Astvaldssonar sér um framkvæmdina. Oll níu ár börn sækja átta dans- tíma og þeir eru skyldufag í skól- anum. Að þeim loknum er haldin sýning fyrir foreldra. Nú er verið aö kenna fyrstu tímana í grunn- skólum bæjarins en kennslunni Iýkur í lok október. Heiðar Ast- valdsson danskennari sagði að á vegum Dansskólans yrði á þessu tímabili boðið upp á danskennslu fyrir öll börn og fullorðna í grunn- skólum bæjarins og Húsi aldraðra. „Ég hef trú á því að framtíðin verói sú að allir krakkar í grunn- skólum fái danskennslu til dæmis einn tíma á viku í hálfan vetur,“ sagði Heióar. „Fyrst í stað eru allir strákarnir of- boðslega á móti því að fara í dans- tíma, þaó er alveg gegnum gangandi og ástæðan er númer eitt, tvö og þrjú sú staóreynd að þeir þurfa að koma nálægt stelp- um í danstímum. Þess vegna hef ég í öllum tímum marseringu, eóa þess háttar dans, til að tengja sam- an líf og fjör og snertingu en þaó er einmitt óttinn vió að snertast sem þeim finnst svo erfitt að yfir- stíga,“ sagói Heiðar. Hann sagði að þrátt fyrir aó dansinn ætti í vök að verjast, sem sjá mætti á Akureyri á því að nú ætti að leggja niður dansleiki á Hótel KEA og að Sjallinn hefði verið minnkaður þá væri dansinn á uppleið á öðrum sviðum. Fólk er farió að átta sig miklu meira á þýðingu dansins. Að dansinn sé eitthvaó annaö er fyllirí og djamm um helgar, að dansinn sé íþrótt bæði andleg og líkamleg, íþrótt fyrir alla. Almenningsíþrótt rétt eins og sund, skíði og þess háttar,“ sagði Heiðar. Danstímarnir bæta sam- skiptin innan bekkjarins Bekkjarkennari barnanna kemur með þeim í danstímana. Kennari hópsins sem var að dansa í Barna- skóla Akureyrar þegar starfsmenn Dags bar þar aó garði er Herdís Zophaníasdóttir, hvernig líst henni á þetta framtak. „Mér líst mjög vcl á þetta að öllu leyti. I fyrsta lagi er mjög já- kvætt aó læra aó dansa og í öðru lagi bætir þetta öll félagsleg sam- skipti innan bekkjarins. Krakkarn- ir vcrða óþvingaðri gagnvart hvort öðru, í danstímunum þurfa þau aó snertast, koma hvort við annað og þora að líta hvort framan í annað. I raun ætti danskcnnsla aó vera einn liður í námi allra barna í grunnskóla. Það er ekki spurning aó danskennsla gæti bætt sam- skiptin innan skólanna og komið í veg fyrir ýmis samskiptavanda- mál. Best væri aö byrja fyrr þann- ig að börnin vendust þessum nánu samskiptum scm dansinn skapar strax frá upphafi. Svo finnst þeim þetta líka ægi- Iega gaman, þeim er ekki cins leitt og þau láta,“ sagði Herdís. KLJ Á ég aö dansa viö hana? Heiðar Astvaldsson, sem að öllum líkindum cr flcstum mönnum reyndari þcgar danskcnnsla cr annars vcgar, segir strákana gcgnum gangandi lítt hrifna af danstímunum því þá þurfa þeir að koma nálægt stelpunum og snerta þær. Mcnn telja hins vegar víst að danskcnnslan bæti samskipti krakkana. Mynd: Robyn. Uttekt á fjárhagsstöðu Akureyrarbæjar Þórarinn E. Sveinsson: Skuldirnar hafaaukist Á fundi bæjar- stjórnar Akur- eyrar sl. þriðju- dag fóru fram ít- arlegar umræð- ur um úttekt á fiárhagsstöðu og rekstri Akureyr- arbæjar árin 1990-1994. Þórarinn E. Sveinsson, Fram- sóknarflokki,^ kynnti skýrsluna, sem Arnar Árnason, endurskoð- andi, hefur tekið sanj^n. Jórarinn sagði að greinilega kæmi fram í skýrslunni að skuldir bæjarsjóós hafi aukist á liðnu kjörtímabili. Peningaleg staða á íbúa hafi versnað um 23 þúsund krónur frá 1990 og skuldir á hvern íbúa nemi nú 329 þúsundum króna. Þórarinn vitnaði til lokaorða Arnars í skýrslunni þar sem hann segir að fjárhagsstaóa bæjarfélagsins hafi fariö versnandi þó hún sé cnnþá traust, ef frá séu taldar miklar skuldir vegna hita- og vatnsveitu. Þórarinn staldraði við Fram- kvæmdasjóð Akureyrarbæjar og sagði að þar yröi aó taka til hcnd- inni. Við blasti að á næstu árum yrði að greiða 100-150 milljónir króna í afborganir lána auk vaxta og vcrðbóta. Til þess að mæta þesjú væru í raun aðcins tvær leiðjri. annað hvort aó selja eignir eóá fara í fjárhagslega endur- skipulagningu sjóðsins. Síóari kosturinn væri betri, en hann leysti hins vegar ekki vandann. Þá sagði Þórarinn að staða Líf- eyrissjóðs bæjarins væri umhugs- unarverð og það væri dcginum Ijósara að skuldbindingar hans væru meiri í framtíóinni cn hann að óbreyttu gæti ráðið við. Þórarinn sagði að ekki væri hægt að halda áfram á braut skuldaaukningar. Þaó gæti vissu- lega gengið næstu fjögur árin á meðan atvinnulífið væri að ná sér á nýjan lcik á strik, cn þaó væri aftur á móti óheppileg þróun. Þór- arinn taldi mikilvægast að auka tekjur bæjarsjóðs og til þess yrði bæjarbúum að fjölga meira en á undanförnum árum. óþh Siguröur J. Sigurðsson: Verðum að skapa ný störf Sigurður J. Sig- urðsson, Sjálf- stæðisflokki, og fyrrverandi for- maður bæjar- ráðs og forseti bæjarstjórnar, sagði að úttekt Arnars Árna- sonar væri ánægjulegur vitnisburður um störf meirihluta Sjálfstæðis- flokks og Alþýðubandalags. Vert væri að hafa í huga að þegar tekið væri tillit til fjárskuld- bindinga vegna leiguíbúða Akur- eyrarbæjar, sem næmu 217 millj- ónum króna, þá hafi í raun tekist aö lækka skuldir bæjarins á síð- asta kjörtímabili um 70- 80 millj- ónir króna. Sigurður sagði að nicnn mættu ekki gleyma því aó meginverkefni fráfarandi meirihluta á síðasta kjörtímabili hafi verið aö verja llciri hundruð störf í bænum. Gíf- urlcgum fjármunum hafi verið varið til endurreisnar fyrirtækja. Miðað við þessar staórcyndir, þá væri það athyglisvert að sem dæmi hafi tekist að stórauka fram- lög til íþróttamála og fræðslumála. Sigurður vakti athygli á því að tekjur bæjarins af hvcrjum íbúa hafi lækkað úr 100 þúsund krón- um nióur í 98 þúsund krónur. „Við þurfum auðvitað að skapa ný störf í bænum. Það cr meginverk- efnið og aö því veróur markvisst aó vinna,“ sagði Sigurður J. Sig- urðsson. óþh Sigríöur Stefánsdóttir: Traust fjár- málastaða „Þessi skýrsla er að mínu mati vitnisburður um trausta Qár- málastjórn frá- farandi meiri- hluta. Flest markmið hans hafa staðist,“ sagði Sigríður Stefánsdóttir, Alþýðubandalagi, á bæjarstjórnarfundinum sl. þriðjudag. Sigríður sagði athyglisvert að fráfarandl-v meirihluti hafi farið fram á að fá þessa úttekt. Algeng- ast væri hins vegar að nýir vald- hafar óski eftir slíkri skýrslu vió upphaf kjörtímabils. Sigríður sagði að skýrslan sýndi svart á hvítu að staða fjár- mála hjá Akureyrarbæ væri traust og athyglisvert væri að bera sam- an þessa skýrslu og nýja skýrslu um fjármál Hafnarfjarðarbæjar, sem mjög hafi verið vitnaö til í fjölmiðlum að undanförnu. Þessi tvö bæjarfélög væru svipuð að stærð og tekjur þeirra svipaðar. Sigríður sagði að samkvæmt rciknikúnstum fráfarandi bæjar- stjóra í Hafnarfirði og núverandi félagsmálaráðhcrra, Guðmundar Árna Stefánssonar, væri nettó- skuldastaða bæjarsjóðs Hafnar- fjarðar sem næst 1300 milljónum króna, cn sambærileg tala hjá Ak- urcyrarbæ um síóustu áramót væri 684 mijljónir króna. Á þessum samanburði mætti glögglega sjá að fjármálaleg staða Akureyrar- bæjar og Hafnarfjarðarbæjar væri gjörólík. óþh !W Ólafsfjöröur: Bæjarmála- punktar ■ Bæjarráði hefur borist erindi frá Ara Eóvaldssyni, þar sem hann mótmælir uppsögn á nýt- ingarrétti á heitri lind, sem honum var vcittur með sarnn- ingi í júní 1977. Bæjarráð sam- þykkti að boða Ara á fund bæj- arráðs. ■ Á fundi feróamálaráós ný- lega var rætt um aó boða alla hagsmunaaðila í Olafsfirði scm hafa með ferðamál að gera til fundar í október. Þar geta menn fjallað um það sem betur má fara og komið á framfæri nýjum hugmyndum. ■ Húsnæðisnefnd hcfur borist crindi frá Húsnæöisstofnun, þar sem minnt er á eindaga vegna umsókna til Húsnæðis- stofnunar fyrir árið 1995. Nefndin samþykkti að viðhafa könnun á jrörf fyrir félagslegar íbúðir. ■ Stjóm veitustofnana ræddi tilraunaboranir og möguleika á vatnsöflun í framhaldi af þeim á fundi sínum nýlega. Fram kom að tvær holur í Hólkoti gáfu 14 og þótti ekki ástæða til aó bora fieiri aó sinni. ■ Á fundinum kom einnig fram að í Laugarengi voru bor- aðar þrjár holur og gefa þær 40 til 50 og cr ntjög líklegt að þar sé meira og hcitara vatn aó finna. Rætt var um hvemig mætti nýta þetta vatn sém best og voru nienn sammála um að æskilegt væri að bora eina holu cnn í Laugarengi. Fram kom að búið væri aó tengja nýju lögnina í bæinn. Þá voru nefndarmenn sammála um að æskilegt væri að bora eftir köldu vatni í hesthúsahverfi. Bæjarráó hcfur samþykkt þess- ar boranir til viðbótar. ■ Almannavarnanefnd mælir með því aö björgunarklippur, sem nýtast t.d. við bílslys, verði keyptar sem fyrst. Hugs- anlega í samvinnu vió Dalvík. ■ Félagsmálaráð ræddi aðstoð við skólafólk á fundi sínum ný- lega. Var félagsmálastjóra falið að skoða hvemig staðið er að m.a. niðurgrciðslu á leikskóla- gjöldum eða dagvistargjöldum barna framhaldsskólanema. ■ Tómstundanefnd hafði bor- ist erindi frá bæjarráði um út- tekt á framkvæmdum í íþrótta- ntálum næstu þrjú árin. Nefnd- in samþykkti aó fela félags- málastjóra aö kalla cftir upp- lýsingum frá Ú.Í.Ó. urn óskir íþróttafélaganna unt fram- kvæmdir. ■ Tómstundanefnd hefur óskað eftir því að fundinn verði staður fyrir skölagarða og svæðið unnið í haust svo hægt verði aö byrja starfsemi vorió 1995. ■ Á fundi mcnningarmála- nctndar nýlega, kom fram að 5 umsóknir bárust í 50% starf á bókasafninu. Nefndin ákvað að mæla með Grétu Ólafsdóttur í starfið, m.a. á þeim forsendum að bókasafnsfræóingur rnælir mcó hcnni í áframhaldandi starf.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.