Dagur - 22.09.1994, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 22. september 1994 - DAGUR - 5
Opið hús að Kristnesspítala nk. laugardag:
Sundlaugin næsta stóra skerfið
- á Kristnesi verður endurhæfingarmiðstöð Norðurlands í framtíðinni
Fyrir um tveimur árum voru uppi háværar raddir um lokun
Kristnesspítala í Eyjafjaróarsveit. Sem betur fer varó ekki af
þeim hugmyndum en starfsemin var sameinuó Fjóróungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri og mynda þessar tvær sjúkrastofnanir
nú eina heild. A Kristnesspítala er rekin öldrunarlækningadeild
og einnig endurhæfmgardeild og stefnt er á að staóurinn verói
endurhæfingarmiðstöó Noróurlands. Þar er bygging sundlaugar
næsta stóra skrefió. Almenningi gefst á laugardaginn tækifæri
til aö kynna sér það starf sem fram fer í Kristnesi og framtíóar-
hugmyndir um hlutverk staðarins en starfsemi þar er mög vax-
andi.
„Þaó er búið að gera nýtingar-
áætlun fyrir alla bygginguna hér,
að fullnýta það húsnæði sem stað-
ið hefur autt um árabil. Þetta er
gert í tengslum við þá starfsemi
sem fyrir er á Fjórðungssjúkrahús-
inu og verður þannig hluti af einni
heildarmynd," sagöi Stefán Ingva-
son, yilrlæknir endurhæfingar-
deildarinnar á Kristnesi, aðspurð-
ur hvað það væri sem gestum yrði
kynnt á laugardaginn. I framtíð-
inni er gert ráó fyrir 30 sjúkling-
um á cndurhæfingardeild og 36 á
öldrunarlækningadreild með sam-
tals 90 stöðugildum.
Ekki er að efa að margir eru
forvitnir aó vita hverskonar starf-
semi fer fram í Kristnesi og hvaða
hugmyndir eru varöandi framtíð-
ina. „Það eru margir sem aldrei
hafa komið hér og aðrir komu fyr-
ir áratugum og eiga mjög misjafn-
ar minningar. Við erum cinnig aó
leggja lokahönd á brcytingar á
umhverfi hússins og aógengi þess.
Það er búið aó leggja göngustíg
um Kristnesskóg, malbika stíga á
lóðinni fyrir sunnan og ýmslegt
fleira. Þetta er því kjörið tilefni til
að kynna hvað hér er verið að gera
og að þetta er starfsemi á uppleið.
Vió viljum blása öllu lokunatali
burt í eitt skipti fyrir öll,“ sagði
Stefán.
Brýnt að fá sundlaug
Næsta stóra verkefni í Kristnesi er
bygging sundlaugar en það mál
hafa Lionsmenn tekið upp á sína
arma og Söfnunarátak Lionshreyf-
ingarinnar veróur kynnt gestum á
laugardaginn. „Þetta er búð að
vera nokkuð lengi í deiglunni.
Þannig er mál með vexti aó þegar
hér var byggð tengiálma, austan
við aðalbygginguna og aðalbygg-
ingin tengd við aðrar sem voru
austur við veg, þá fengum viö
borðstofur og setustofur fyrir báð-
ar legudeildirnar en á neðstu hæð-
inni var gert ráð fyrir sundlaug.
Það húsnæði hefur því verið til í
all mörg ár en staðið óinnréttaó.
Lionshreyfingin sýndi snemma
áhuga á þessu og menn hafa verið
aó ræða þessi mál sín á milli,
hvernig þetta ætti að verða og var
m.a. rætt um sölu á rauóu fjöðr-
inni í því sambandi. Það varð ekki
ofaná heldur eru það klúbbarnir í
Þingeyjarsýslu og við Eyjafjörð
sem hafa haft að þessu frumkvæði
og eru að hefja átak, sameiginlega
en þó hver með sínu sniði, til að
fjármagna sundlaugarbygginuna.
Með sér bjóða þeir ýmsum félaga-
samtökum cnda margir sem sýnt
hafa þessu áhuga.“
Stefán sagði erfitt að nefna
tímasetningu á því hvenær hugs-
An efa er fróðlegt að kynna sér þá starfsemi scm fram fcr á Kristnesi og framtíðarhugmyndir um staðinn. Þar verð-
ur miðstöð cndurhæfingar á Norðurlandi og einnig öldrunarlækingadeild. Samtals er gcrt ráð fyrir 66 sjúklingum
Og 90 Stöðugildum. Mynd: Robyn.
anlega væri hægt að taka sund-
laugina í notkun. „Það fer allt eftir
fjármagni. Byggingarkostnaður er
áætlaóur 25-30 miiljónir og við
munum byrja strax og fjármagn
fæst. Þá er hægt að ljúka hönnun-
arvinnu og einnig er komið tilboð
í sundlaugina sem væntanlega
verður þá gengið að. Við vonumst
auðvitaó til aó þetta gangi hratt og
vel fyrir sig og ef peningarnir
væru til staðar væri sjálfsagt hægt
að klára þetta á einu ári eða svo.“
Sundlaugin hjarta
starfseminnar
Að sögn Stefáns er sundlaugar-
byggingin afar brýnt mál og mikil
nauðsyn fyrir starfsemina í Krist-
nesi. „Þetta tengist auðvitað því
að við erum að byggja hér upp
endurhæfingarmiðstöð fyrir allt
Norðurland og hluta Austurlands.
Sundlaugin er að mörgu leyti
hjartað í sjúkraþjálfuninni getum
við sagt. Vatnsmeðferð er afskap-
Iega mikilvæg og nýtist mörgum
sjúklingahópum.“
- Stendur sundlaugarlcysió
starfseminni þá ekki fyrir þrifum?
„Jú, hún gerir það. Við höfum
mætt þessu með því að fara einu
sinni í viku út í Glerársundlaug,
mætt þar miklum góðvilja. En það
cr auðvitað mikið umstang að fara
meó alla upp í rútu og ekki raun-
hæft einu sinni í viku. Þjálfunar-
innar vegna væri hins vegar raun-
hæft fyrir marga sjúklinga að fara
daglega. En við höfum heitt vatn
hér á staðnum og hér er hefð fyrir
notkun þess.“
- Verður aðstaðan þá ekki orð-
in mjög góð með tilkomu sund-
laugarinnar?
„Þá verður komið hér mjög
fullkomin endurhæfingaraðstaða,
með þeim breytingum sem gerðar
verða á húsnæðinu að öðru leyti.
Við ætlum að verða Reykjalundur
Norðurlands, það er engin spum-
ing,“ sagði Stcfán Ingvason að
lokum. HA
Hörður Torfa á ferð
um Norðurland
Tónlistarskólinn á Akureyri:
Nýtt fyrírkomulag
í söngdeild
Hörður Torfason, trúbador, er
þessa dagana á yfirreið um landið
og mun hann spila á fimm stöðum
á Norðurlandi.
Hörður heldur tónlcika á eftir-
töldum stöðum á Norðurlandi
(þeir hefjast allir kl. 21):
Mánudaginn 26. sept. Þórsver á
Þórshöfn.
Þriðjudaginn 27 sept. Félags-
heimilið á Raufarhöfn.
Miðvikudaginn 28. sept. Kópa-
sker.
Fimmtudaginn 29. sept. Leik-
húsiö á Húsavík.
Föstudaginn 30. sept. Deiglan á
Akureyri.
Nú í haust hefur verið tekið upp
nýtt fyrirkomulag í söngdeild
Tónlistarskólans á Akureyri.
Stigakerfi námsvísis menntamála-
ráðuneytisins er eftir sem áður í
fullu gildi en söngnáminu er skipt
í 3 deildir, þ.e. undirbúningsdeild,
almenna deild og framhaldsdeild.
Undirbúningsdeild er ætluð
þeim sem litla eða enga reynslu
hafa í söng og tónlistariðkun en
búa yfir söngrödd. Eftir eins eóa
tveggja ára nám í þessari deild þar
sem kennt er í litlum hópum fær-
ast nemendur yfir í almenna deild.
Þar er markmiðið að þjálfa og
mennta söngvara á sem víðtækast-
an hátt, hvort sem viðkomandi
fæst við söng sem tómstundagam-
an eða stefnir í meiri fullkomnun.
Eftir u.þ.b. fimm ára nám er síðan
tekið lokapróf.
Framhaldsdeild er ætluð þeim
sem undurbúa sig undir fram-
haldsnám í háskóla.
Liður í söngnámi við Tónlistar-
skólann á Akureyri er að komast í
kynni við ópcrubókmenntir og er
reglubundin ópveruvinna starf-
rækt viö skólann undir stjórn
Gcrrrit Schuil, hljómsveitarstjóra
og píanóleikara. Undanfarið hefur
nokkuð borið á að konur hafi ver-
ió í meirihluta í söngnámi og hef-
ur það verið óperuhópvinnu nokk-
ur fjötur um fót.
Ekki er enn loku fyrir það skot-
ið að söngnemendur fái skóla-
pláss. Er sérstaklega vonast eftir
karlaröddum og víst cr aö nóg er
um glæsilega mótsöngvara. Veró-
ur þess þá skammt að bíða að
Jeremy Browman flytur fyrirlestur
í boði kennaradeildar Háskólans á
Akureyri, laugardaginn 24. sept-
ember nk. Fyrirlesturinn nefnist
„The Sacrifice of the Innocent" -
„Aó fórna saklausum"- og verður
lluttur á ensku. Fyrirlesturinn
vcrður í stofu 24 í húsi Háskólans
v/Þingvallastræti og hefst kl. 14.
Jeremy Bowman er kennari í
heimspcki við University College
Cork á írlandi og er nú staddur hér
á landi á vegum ERASMUS áætl-
unarinnar þar sem hann kennir
Tónlsitarskólinn taki fyrir einhver
stærri verk til uppfærslu, óratóríur
eða sviðsverk.
Kennarar við söngdeild Tón-
listarskólans á Akureyri eru auk
Gerrit Schuil: Guðrún A. Kristins-
dóttir, Hólmfríður Benediktsdótt-
ir, Michael Jón Clarke, Már
Magnússon og Richard Simm.
námskeið í heimspeki við Háskóla
Islands.
I fyrirlestrinum mun Bowman
skýra sérstaka tegund siðferðilegr-
ar nytjastefnu, svokallaðan „per-
ference utilitarianism“. Bowman
mun fjalla um hvernig þessi teg-
und nytjastefnunnar á vióunandi
svar við þeirri gagnrýni á hefð-
bundna nytjastefnu að lylgismenn
hennar hljóti að l'allast á að sak-
lausum sé fómað ef hægt er að
sýna fram á að slík fóm auki ham-
ingju eða hagsæld heildarinnar.
(Fréttatilkynning)
„Að fórna saklaus-
um“ í Háskólanum
á laugardag