Dagur - 22.09.1994, Síða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 22. september 1994
Sinfóníuhljómsveit íslands
á Norðurlandi
Á morgun, fóstudag, leggur Sin-
fóníuhljómsveit íslands upp í
for til Norðurlands og verða
tónleikar haidnir á Biönduósi
23. september kl. 21 í íþrótta-
húsinu, á Sauðárkróki 24. sept-
ember kl. 14 í íþróttahúsinu, á
Akureyri 24. september kl. 21 í
íþróttahúsi KA og að lokum á
Húsavík 25. september kl. 14.
Hljómsveitarstjóri verður aðal-
hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar, Osmo Vánská, en
einleikari fiðluleikarinn Sigrún
Hljómsveitarstjórinn Osmo Vánska.
J
V
FJÖR Á POLLINUM
L/M HELQINA!
Billi og Qrímur
spila og syngja
Kaffí og kökur
frá fímmtudegi til sunnudags
Strandgötu 49 • Símí 12757
Afgreiðsiutími: Sunnud.-fimmtud. kl. 14-01
Föstud. og laugard. kl. 14-03
r
Eðvaldsdóttir.
Efniskrá tónleikanna er sú hin
sama og verður á fyrstu áskriftar-
tónlcikum hljómsveitarinnar í
Reykjavík í kvöld, að undanskildu
verki Oliver Kentish, „Mitt fólk“,
sem er gjöf bresku ríkisstjórnar-
innar til íslensku þjóðarinnar á 50
ára lýðveldisafmæli hennar, en
það tónverk krefst svo stórrar
hljómsveitar aö ekki var við kom-
ió að feróast með það. I stað þess
hefjast tónleikarnir á verki eftir
Þorkel Sigurbjörnsson, Díafónía.
Þorkell er meðal okkar virtustu
tónskálda og má geta þess aó hann
hlaut nýverið heiðurslaun Tónvak-
ans, sem eru tónlistarverðlaun
Ríkisútvarpsins.
Annaó verk á efnisskrá tónleik-
anna er fiðlukonsert eftir finnska
tónskáldið Jean Sibelius. Einleik-
arinn á fiðlu, Sigrún Eðvaldsdótt-
ir, er án efa einn af okkar þekkt-
ustu tónlistarmönnum og hefur
hún vakið athygli fyrir litríka túlk-
un og mikla tækni. Hún hefur tek-
ið þátt í virtustu fiðlukeppnum
heims, s.s. Sibeliusar-keppninni í
Finnlandi, þar sem hún vann til
verólauna og nú í sumar í
Tsjajkovskíj-keppninni í Moskvu,
þar sem hún komst í úrslit.
Lokaverk á tónleikunum er sin-
fónía nr. 5 eftir rússneska tón-
skáldið Pjotr Tsjajkovskíj, en
þessa sinfóníu samdi hann árið
1888. Þegar sinfónían var frum-
fiutt í Pétursborg það sama ár,
undir stjórn höfundar, hlaut hún
heldur óblíðar móttökur gagnrýn-
enda, sem sérstaklega þótti hljóm-
sveitarstjórn Tsjajkovskíjs ábóta-
vant, en hinn almenni áheyrandi
hreifst mjög af verkinu og svo
hefur verió alveg fram á þennan
dag.
Einlcikarinn Sigrún Eðvaldsdóttir.
Aðalfiundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins
í Norðurlandskjördæmi eystra:
Atvinnuleysið alvarlegasta
meinsemd þjóðfélagsins
Aðalfundur kjördæmisráós Al-
þýðubandalagsins í Norðurlands-
kjördæmi eystra telur stóraukió at-
vinnuleysi í tíð núverandi ríkis-
stjómar alvarlegustu meinsemd
þjóðfélagsins nú um stundir. Því
er brýnasta forgangsverkefni ís-
lenskra stjórnvalda að ráðast gegn
atvinnuleysinu með öllum tiltæk-
um ráðum og forsenda þess er
gjörbreytt stjórnarstefna. Ríkis-
stjórn Davíðs Oddssonar á, með
afskiptaleysi sínu og úreltri frjáls-
hyggjustefnu, stærstu sök á því
hvemig komið er í atvinnumálum.
Stjórnin er með öllu ófær um að
leiða þjóðina út úr vítahring sam-
dráttar og atvinnuleysis og því
fyrr sem hún fer frá völdum, því
betra.
Skapa þarf víðtæka samstööu í
þjóðfélaginu um stórátak tii efl-
ingar íslensku atvinnulífi, nýsköp-
un og aukinn útflutning. Meó auk-
inni verómætasköpun, og ekki síð-
ur auknum jöfnuði í launum og
iífskjörum, þarf að tryggja fulla
atvinnu í landinu og treysta á nýj-
an leik undirstööur almennrar vel-
ferðar.
Kjördæmisþingið ítrekar l'yrri
mótmæli sín við þcirri stórfelldu
tilfærslu skattbyrði frá fyrirtækj-
um yfir á launafólk, sem ríkis-
stjóm Davíðs Oddssonar hefur
staðið fyrir. Þvert ofan í gefin lof-
orð um skattalækkanir í aódrag-
anda alþingiskosninga hafa Sjálf-
stæðisflokkurinn og Alþýöufiokk-
urinn flutt skatta af fyrirtækjum
yfir á launafólk svo nemur a.m.k.
5-6 þúsund milljónum króna.
Áhrifin eru að koma l'ram þessa
mánuðina í svo til skattfrjálsum
stórgróöa ýmissa fyrirtækja, á
sama tíma og skattpíning almenn-
ings er rneiri en nokkru sinni.
Atlögur ríkisstjórnarinnar
að velferðakerfínu
Kjördæmisþingið ítrekar einnig
mótmæli sín við þeim atlögum
sem ríkisstjóm Sjálfstæðis- og Al-
þýðuflokks hefur gert aó velferða-
kerfinu. Ýmiss konar gjaldtaka og
niðurskurður í heilbrigðis- og
menntamálum bitnar harðast á
þeim sem síst skyldi og slíkar
breytingar eru enn alvarlegri cnn
ella á tímum fallandi kaupmáttar
og aukins atvinnuleysis.
Kjördæmisþingið átelur þá
ákvöróun forsætisráðherra, Davíðs
Oddssonar, að hætta við haust-
kosningar, þar sem honum er full-
Ijóst, eins og öllum öórum, að rík-
isstjórnin er löngu orðin óstarf-
hæf. Það er afar dýrt fyrir þjóðina
að sitja uppi með verra en gagns-
lausa ríkisstjórn einn vetur til og
þar með frestun á öllum aðgerðum
í efnahags- og atvinnumálum, scm
brýnt er að ráðast í.
Kjördæmisþingið hvctur alla
félaga og stuðningsmenn Alþýðu-
bandalagsins í kjördæminu til að
hefja þegar undirbúning fyrir
væntanlegar alþingiskosningar.
Alþýðbandalagið hefur jafnt og
þétt verið að styrkja stöðu sína hér
í kjördæminu og það er því raun-
hæft markmió að setja sér að fá
hér kjörna tvo þingmenn í næstu
kosningum. Til þess þurfa sem
allra flestir að leggja sitt af mörk-
um. GG
Athugasemd vegna fréttar
Vegna fréttar í Degi miðvikudag-
inn 21. september 1994 um hús-
næðismál félags- og fræðslusviðs
Akureyrarbæjar vill bæjarstjóri að
eftirfarandi komi fram:
Eins og fram hefur komið hef-
ur Lífeyrissjóður Norðurlands slit-
ið samningaviðræðum við Akur-
eyrarbæ um leigu á Glerárgötu 26.
Akureyrarbær lítur svo á að þeim
viðræðum hafi verið slitið þar sem
Lífeyrissjóðurinn er ekki tilbúinn
til þess aó semja um málið á þeim
forsendum sem lagt var upp mcð í
málinu. Þrátt fyrir þetta tekur
sjóðurinn fram í bréfi sínu að
hann sé enn tilbúinn til þess að
leita leiða til þess að nýta fast-
eignina.
I þessu ljósi hcfur Akureyrar-
bær nú óskað eftir vióræðum vió
Lífeyrissjóðinn á þeim forsendum
sem ætla má að samstaða geti
náðst um meó aðilum.
Um frétt Dags aó öðru leyti
skal tekið fram að þar cr að stór-
um hluta til verið að vitna í samtöl
sem blaðamaður átti við viðkom-
andi aðila fyrir nokkrum vikum
síðan og gefa þar af lciðandi ekki
rétta mynd af stöðu málsins í dag.
Harmað er að látið sé líta svo út
sem viótöl þessi séu nýleg eða
eins og ætla má af fréttinni að þau
hefðu verið tekin daginn áður en
fréttin er birt.
Akureyri 21. scptember 1994
Jakob Björnsson,
bæjarstjóri.
Athugasemd
blaðamanns
Bæjarstjóri, Jakob Björnsson, seg-
ir í ofanritaðri athugasemd að
vitnað sé í viðtöl sem séu margra
vikna gömul. Það cr rétt að undir-
ritaður talaði við framkvæmda-
stjóra Lífeyrissjóðs Norðurlands
fyrir þremur vikum síðan og síðan
aftur á þriðjudag og þá staófcsti
hann þaö sem áður hafði farið
okkar á milli og bætti raunar
nokkru vió. Það er mergurinn
málsins, enda fréttin fyrst og
fremst byggð á samtali við hann.
Hvort orð hagsýslustjóra og bæj-
arstjóra voru sögð í gær eða fyrir
viku síðan breytir að mínu mati
engu um þá staðreynd málsins að
viðræður Akureyrarbæjar og Líf-
eyrissjóðs Norðurlands sigldu í
strand um síðustu mánaðamót.
Geir A. Guðsteinsson,
blaðamaður.
Leiðrétting
Ranglega var sagt í frétt Dags í
gær að Náttúrufræðistofnun Is-
lands muni flytja starfsemi sína til
Akureyrar eigi síðar en 1. febrúar.
Hins vegar er stefnt aö því, eins
og kemur fram í fréttinni, að emb-
ætti veiðistjóra (ekki vciðimála-
stjóra) flytjist til Akureyrar eigi
síðar en 1. febrúar á næsta ári.
Þess má síðan að lokum geta að á
Akureyri er setur Náttúrurfræði-
stofnunar Islands.