Dagur - 24.09.1994, Blaðsíða 20

Dagur - 24.09.1994, Blaðsíða 20
Kartöfluuppskera meö besta móti: Bestu árin hjá kartöflubændum þegar hæfilega illa gengur - heyfengur í góðu meðallagi Eg hef á tilfinningunni að heyfengur sé nálægt meðal- lagi, sums staðar er hann tæp- lega það en annars staðar í góðu meðallagi. Þarna er ég að tala Hvað skyldi hann hafa ípokahorninu? Mynd: Robyn um magnið en ég held að óhætt sé að fullyrða að gæðin séu með því betra,“ sagði Ólafur Vagns- son, ráðunautur hjá Búnaðar- sambandi EyjaQarðar, aðspurð- ur um heyfeng í sumar hjá bændum á svæðinu. „Víðast um svæðið var mjög hagstæð heyskapartíð eftir að Olafsfjörður: Stækkun kirkju og bygging safnaðarheimilis í deiglunni Fallið hefur verið frá hug- myndum um byggingu nýrr- ar kirkju í Ólafsfirði á lóðinni gegnt kirkjugarðinum en í þess stað er fyrirhugað að stækka nú- verandi kirkju og byggja við hana safnaðarhús. í tengslum við þessar framkvæmdir þarf að ganga frá Ióðarmálum kirkjunn- ar og huga að framtíðarskipu- lagi bflastæða. Bæjarráð Ólafs- fjarðar hefur óskað eftir því að samhliða hönnun safnaðarhúss og stækkun kirkjunnar verði gerð tillaga að breytingu á aðal- skipulagi þannig að þörfum kirkjunnar verði mætt. Sóknarpresturinn, sr. Svavar A. Jónsson, segir að ekki hafi ríkt eining um það að staðsetja nýja kirkju á áðumefndri lóð og því hafi verið farið að huga að stækk- un núverandi kirkju. Efasemdir voru einnig uppi um það hvort það væri mögulegt, því bæði þyrfti aö lengja og breikka kirkj- una verulega, en unnar voru til- lögur að lengingu. Það gerir málið enn erfiðara að kirkjan er friðuð, en vióbrögð Húsfriðunarnefndar ríkisins voru jákvæð og í fram- haldi af því ákvað sóknarnefnd að vinna áfram að framgangi máls- ins. Safnaðaheimilið verður byggt út úr kirkjunni þannig að við stór- ar athafnir í kirkjunni verður hægt að opna þangað inn og sjá þá þeir sem þar sitja inn aö altari kirkj- unnar. Kirkjan tekur í dag um 100 manns í sæti, en eftir breytingarn- ar munu um 400 manns komast þar fyrir þegar einnig er setið í safnaðarheimilinu. Til þess aó þessar hugmyndir nái fram að ganga þarl' að fjar- lægja eitt hús og mun bærinn kaupa þaö og síðan fjarlægja. „Kostnaðaráætlun vegna þess- ara framkvæmda hljóðar upp á 70 milljónir króna, en þessar breyt- ingar, ef af veróur, verða unnar í mörgum áföngum, þó þannig að það bitni ekki á eðlilegu starfi kirkjunnar. Það er ekki síður mik- ilvægt aó setja fjármuni kirkjunn- ar í starf en í steinsteypu," sagði sr. Svavar A. Jónsson. GG Slökkvilið Akureyrar: Útkall vegna heybruna Ifyrrakvöld var Slökkvilið Ak- i Lureyrar kallað að bænum Skriðulandi í Arnarneshreppi. Þar hafði verió kveikt í ónýtu heyi en þegar vindátt breyttist ótt- uðust menn að eldurinn kæmist í nýrra hey skammt frá. Slökkvilió var á staðnum nær alla nóttina en kom al'tur til Akureyrar undir morgun. HA Húnavatnsssýslur: Bílvelta og árekstur s Igærmorgun lenti bfll út af sjúkrahús en meisl hans voru ekki veginum á Skagastrandarvegi fullkönnuð þegar síðast fréttist. á móts við býlið Höskuldsstaði. Bílinn er talinn ónýtur. Einnig Bíllinn valt og ökumaður, sem varð árekstur á Víóidalsárbrú en var einn í honum, var fluttur á þar urðu ekki meiðsl á fólki. HA hlýnaði í júlímánuði. Þá gátu menn hirt hey eftir mjög skamman þurrktíma á velli, sem hefur mikið aó segja upp á gæðin. Það hefur vaxið jafnt og þétt að menn verki hey í rúllubagga en kostir þeirra eru þeir að hcyið þarf ekki nenra mjög stuttan þurrktíma á velli svo menn geta verið með lágmarks- vcrkunartap. Sprettan var mjög hæg framan af, þaó var kalt í júní og eftir að fór að hlýna voru menn því að slá frekar lítið sprottin tún með næringarríku grasi. Ég álít því að efnamagn í grösunum sé með besta móti og fóðrunargildi heyjanna ætti því að vera mjög gott,“ sagði Ólafur og taldi gott hljóð í bændum. Hann sagði aó kartöfluupp- skera væri með besta móti en samstöðuleysi bænda í sölumálum skyggði á og leiddi til þess að verðið færi stöðugt niður á vió, undirboð væru í gangi og það stefndi í að verð færi niður fyrir framleiðslukostnað þannig að bændur fengju lítið í eigin vasa. „Það er ansi kaldhæðnislegt aó kartöflubændur tala gjarnan um þaó að bestu árin hjá þeim séu þegar hæfilega illa gengur. Þegar magnið er innan þess sem hægt er að selja innanlands er frekar hægt að halda uppi verði. Hinsvegar ættu þeir að 'geta verið meó lægra verö fyrir neytendur þegar vel gengur og stuóla þannig aó auk- inni sölu, en það gengur ekki til lengdar að verð fari svo nióur úr öllu valdi aó menn hafi ekki laun fyrir vinnu sína eins og því miður hefur orðið í þessum miklu upp- skeruárum undanfarið,“ sagði Ólafur. IM Frystikistur Verð frá kr. 28.830 0 KAUPLAND HF. Kaupangi v/Mýrarveg, slmi 23565 Menntaskólinn á Akureyri settur á morgun: Fleiri nýnemar Menntaskólinn á Akureyri verður settur í Akureyrar- kirkju á morgun, sunnudag, kl. 14.00. Skráðir nemendur við skólann í vetur eru 584, aðeins færri en á síðasta vetri. Nýnem- ar eru 175 og eru þeir 25 fleiri en í fyrra. Valdimar Gunnarsson er settur skólameistari við MA en Tryggvi Gíslason er í árs leyfi. Veðurstofan spáir kólnandi veðri um helgina og norð- lægum áttum. Hæg norð- austlæg átt og skúrir verða í dag á Norðurlandi. Á morg- un, sunnudag, verður vest- læg eða breytileg átt á land- inu, skúrir um allt land og hiti um_ 7-10 stig norðan- lands. Á mánudaginn snýst vindátt aftur í norðrið, nokk- uð hvasst veróur austan til með skúrum norðanlands. Þá kólnar heldur aftur. Margrét K. Jónsdóttir er aðstoð- arskólameistari. Jón Már Héðinsson er áfanga- stjóri MA og að hans sögn má rekja ástæðu þess að fleiri nýnem- ar eru teknir inn nú til þess að menn sjá fram á rýmra húspláss innan skamms. Nýbygging Menntaskólans er í fullum gangi og vonir standa til að öll bygging- in verði til haustið 1996, ári fyrr en áætlað var. Hlutfall kynjanna í skólanum er hið sama og undanfarin ár en stelpurnar eru 60% nemenda á móti 40% stráka. í vor verða væntanlega um 140 stúdentar út- skrifaðir. Jón Már sagói óvenju snemma hafa verið búið að ganga frá öllum kennararáðningum, allt hafi verið klappað og klárt um mitt sumar. Sem fyrr segir hefst setningin kl. 14.00 í Akureyrarkirkju. Þar mun m.a. Lýður Ólafsson leika á gítar og að lokinni setningu verður opið hús í borðsal heimavistar. HA WHJÓLBARÐAÞJÓNUSTA • RÉTTARHVAMM11 • S. 96-12600 Opii laugardaga kl. 10-15 RAFGEYMAR ★ Mælum gamla rafgeyma ★ Seljum nýja rafgeyma ★ ísetning á staðnum HJÓLBARÐAR Erum með mikið úrval nýrra og sólaðra hjólbarða undir allar gerðir ökutækja Fullbúið hjólbarðaverkstæði með

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.