Dagur - 11.10.1994, Blaðsíða 9
EN5KA KNATTSPYRNAN
Þriðjudagur 11. október 1994 - DAGUR - 9
SÆVAR HREIÐARSSON
Meistarar United
lagðir að velli
Lið Manchester United tapaði
um helgina þegar liðið heimsótti
Sheffíeld Wednesday á sama
tíma og Liverpool heldur sig-
urgöngu sinni áfram og Aston
Villa átti ekkert svar við beittum
sóknarleik þeirra. Chelsea held-
ur áfram að skemmta áhorfend-
um með sóknarleik og hið dýra
lið Tottenham náði aðeins jafn-
tefli gegn grönnum sínum í
QPR.
SHEFF.WED.-MAN.UTD. 1:0
Sheffíeld Wednesday hafði geng-
Urslit
Úrvalsdeild:
Chelsca-Leicester 4:0
Liverpool-Aston Villa 3:2
Man.City-N.Foresl 3:3
Norwich-Leeds 2:1
Sheff.Wcd.-Man.Utd. 1:0
Soulhamplon-Everton 2:0
Tottcnham-QPR 1:1
West Ham-C.Palace 1:0
Wimbledon-Arsenal 1:3
Newcastle-Blackburn 1:1
1. deild:
Barnsley-Southend 0:0
Bristol City-Millwall 1:0
Burnley-Bolton 2:2
Charlton-Reading 1:2
Dcrby-Watlord 1:1
Grimsby-ShefT.Utd. 0:0
Middlesbrough-Tranmerc 0:1
Notts County-Port Vale 2:2
Oldham-Portsmouth 3:2
WBA-Sunderland 1:3
Stoke-Luton 1:2
Staöan - Úrvalsdeild:
Ncwcastle 9 7 2 0 26: 9 23
N.Forcst 963 0 20:10 21
Blackburn 953 1 18: 618
Liverpool 852 1 19: 7 17
Man.Utd. 9 5 1 3 14: 7 16
Chelsea 8 503 17:1015
Southampton 94 3 214:13 15
Norwich 9 4 3 2 7: 7 15
Lecds 94 2312:10 14
Tottenham* 9414 15:17 13
Man.City 933314:13 12
Arsenal 9 3 2411:1011
West Ham 93 24 5:1011
Aston Villa 9 23410:13 9
Wimbledon 9234 7:12 9
Sheff.Wed. m>D 9234 11:17 9 oi/ii n.iÁ n
Ipswich 82 l 5 9:15 7
C.Palace 9 l 4 4 6:13 6
Covcntry 8 l 3 4 8:18 6
Evcrton 9036 7:20 3
*Scx su'g vcrOa dr timabilsias. cgin af Tottcnham i lok
1. deild
Wolves H 72220: 923
Middlesbr. 1172216: 7 23
Rcading 11 63216: 621
Tranmerc II 62 317:14 20
Swindon 11 623 15:11 20
Charlton 1144 3 20:1916
Stoke 1151516:1916
Oldham 1150618:1815
Bolton 1143417:1415
Sheff.Utd. 1043313: 815
Derby 11 434 13:1215
Sunderland 11 36 212: 915
Bristol City 11 4 3410:10 15
Grimsby 1135318:14 14
Port Valc 11 42 5 13:1614
Southcnd 11 4 25 11:20 14
Portsmoulh 1134412:14 13
Luton 11 34412:15 13
Barnsley 113 44 9:1213
Watford 11 254 10:16 11
Millwall 11 24 5 13:16 10
Burnlcy 11245 9:1510
Notts County 11 1 46 13:20 7
WBA 10 1 45 9:17 7
ió hörmulega á heimavelli til
þessa i deildinni og átt í miklum
erfiðleikum með að skora. Það var
því ekki búist við að United ætti í
miklum vandræðum með aö sækja
öll stigin til Sheffield en annað
kom á daginn. I lió United vantaði
Eric Cantona, Andrei Kanchelskis
og Ryan Giggs og í staðinn kom
ungliðinn Keith Gillespie inn í
byrjunarliðið ásamt Brian McClair
og Roy Keane. I upphafi leiks leit
út fyrir að þetta hefði lítil áhrif á
liðið og United sótti mun meira.
Keith Gillespie, enn einn unglingur-
inn í liði United.
Kevin Pressman varði vel frá
Mark Hughes snemma leiks og
Gillespie skoraði af stuttu færi en
markið var dæmt af vegna rang-
stöðu. Wednesday náði þó ein-
staka sókn og þegar ein mínúta
var til leikhlés skoraði liðið eina
mark leiksins. Vörn United var
sofandi á verðinum og David
Hirst slapp einn inn fyrir og skor-
aði af öryggi. I síðari hálfleik var
Wednesday heppið að sleppa við
að fá á sig vítaspyrnu þegar fyrir-
gjöf frá Gillespie fór upp í hönd-
ina á John Sheridan en dómarinn
lét það afskiptalaust. Wednesday
komst meira inn í leikinn í lokin
en náði ekki að bæta við mörkum.
LIVERPOOL-ASTON VILLA 3:2
Leikurinn á Anfield var stór-
skemmtilegur og bæói lið Iéku fal-
lega knattspymu. Liverpool byrj-
aði betur og á 20 mínútu kom
fyrsta markið. Vamarmenn Villa
sendu aftur á Mark Bosnich í
markinu sem stöðvaði boltann
með höndum áður en framherjar
Liverpool náðu til knattarins.
Obein aukaspyrna var dæmd í
miðjum teignum og kraftakarlinn
Neil Ruddock skoraði með hörku-
skoti. Sex mínútum síöar var
heimaliðið búið aó bæta við öðru
marki og þar var undrabamió
Robbie Fowler á ferðinni meó
glæsilegu skoti. Hann fékk bolt-
ann utarlega í teignum og fast skot
hans hafnaði efst í markhorninu.
Guy Whittingham minnkaði mun-
inn á 37. mínútu þegar stórt op
myndaðist í vörn Liverpool og
hann átti ekki í erfiðleikum með
að klára dæmið. Fowler sá um að
innsigla sigur Liverpool á 57.
mínútu með lúmsku skoti neðst í
hornið sem Bosnich hefði átt að
verja. Það var síðan Steve Staun-
ton, fyrrum leikmaður Liverpool,
sem náði að klóra í bakkann á síð-
ustu sekúndum leiksins eftir að
misskilningur kom upp í vörn Li-
verpool. Neil Ruddock, John Sca-
les og David James hikuðu allir
við að fara í boltann og Staunton
renndi honum í netið. Mörkin
hefðu hæglega getaó verið fleiri í
lciknum og Fowler var óheppinn
að ná ekki þrennunni þegar að
skot hans sleikti stöngina utan-
verða og hinum megin átti Dcan
Saunders tvö góó færi til aó skora.
MAN.CITY-N.FOREST 3:3
Forest gat komist í efsta sætið
með sigri þar sem Newcastle lék
ekki lýrr en á sunnudag. Liðið
byrjaði vel og markavélin Stan
Collymore skoraði fyrsta markið á
22. mínútu. Boltinn stefndi að
vísu framhjá en fór í lappirnar á
Andy Dibble, markverði City, og í
netið. Stuttu fyrir hlé jafnaói Niall
Quinn af stuttu færi fyrir City en
hann var varnarmönnum Forest
oft erfiður. Collymore kom Forest
aftur yfír á 53. mínútu en strax í
næstu sókn var Quinn búinn að
jafna aftur fyrir City, eftir horn-
spyrnu. Steve Lomas skoraði með
föstu skoti um ntiðjan hálfleikinn
eftir að Quinn lagði boltann fyrir
hann og City hélt að sigurinn væri
í höfn. Ian Woan var þó á öðru
málli og tryggði Forest annað stig-
ið þegar hann vippaði glæsilega í
netió á síóustu mínútu leiksins.
TOTTENHAM-QPR 1:1
Ensku blöðin telja að þess sé ekki
langt að bíða að Ossie Ardiles
verði rekinn frá Tottenham. Eftir
tap fyrir Watford í síðustu viku
varð liðió að sigra á heimavelli
gegn QPR til að bjarga andlitinu
en það tókst ekki. Tveimur leik-
mönnum, Kevin Scott hjá Totten-
ham og Les Ferdinand hjá QPR,
var vikið útaf undir lok fyrri hálf-
leiks fyrir slagsmál. Colin Calder-
wood hafði brotið á Ferdinand en
hann taldi Scott hafa verið aó verki
og gerði árás. Við þetta brutust út
handalögmál og var báðum vikið
af leikvelli. A síðustu mínútu fyrri
hálfleiks náðu gestimir forustu
þegar að Andy Impey skallaði inn
fyrirgjöf frá Trevor Sinclair. Tott-
enham sótti nær látlaust allan síð-
ari hálfleik og Júrgen Klinsmann
var tvisvar nálægt því að skora.
Nicky Barmby átti einnig skalla að
marki sem Tony Roberts varði
meistaralega en Barmby kom bolt-
anum þó framhjá honum á 79.
mínútu og jafnaði fyrir Tottenham.
Unglingurinn Danny Hill átti þá
sendingu inn í teiginn sem Klins-
mann skallaði niður fyrir Barmby
og hann potaði í netið.
WEST HAM-C.PALACE 1:0
Það var ekki búist viö mörgum
mörkum í þessum nágrannaslag í
London. Saman höfðu liðin aðeins
náö að koma boltanum tíu sinnum
í netið fyrir leikinn og það ellefta
skildi liðin að á laugardag. Það
skoraði Don Hutchinson fyrir West
Ham á 72. mínútu og var það hans
þriðja mark síðan hann var keyptur
frá Liverpool fyrir skömmu. Tim
Breacker sendi fyrir frá hægri þar
sem Hutchinson kom á fleygiferð
og skallaði í netið eftir að hafa
kastað sér á eftir boltanum.
WIMBLEDON-ARSENAL 1:3
Wimbledon féll á eigin bragói
þegar að Arsenal skoraði fyrsta
mark leiksins á 11. mínútu. Löng
spyrna frá David Seaman fór yfír
alla varnarmenn Wimbledon og
Ian Wright skoraði að öryggi. Al-
an Smith bætti öðru marki við á
57. mínútu þegar hann potaði yfir
línuna af stuttu færi eftir að Hans
Segers náði ekki að halda skoti frá
Wright. Kevin Campbell skoraði
þriðja mark liósins á 65. mínútu
þegar hann lagði boltann fyrir sig
Leikmcnn Newcastle höfðu ástæðu til að fagna á sunnudag. Frá
vinstri: Marc Ilottiger, Darren Peacock, Stcve Howey, Robcrt Lce,
Scott Sellers og Ruel Fox.
NEWCASTLE-BLACKBURN 1:1
Stórmeistarajafntefli
Á sunnudag mættust New-
castle og Blackburn í leik þar
sem tvö af sterkustu liðum
tímabilsins áttust við og var
búist við skemmtilegri bar-
áttu. Leikurinn stóð þó ekki
undir vonum ef undan eru
skildar dramatískar lokamín-
útur.
í fyrri hálfleik var lítiö um
færi en markahrókurinn Alan
Shearer komst þó næst því að
skora fyrir Blackburn þegar
hann átti skalla framhjá og hin-
um megin átti Robert Lee lang-
skot sem fór rétt framhjá mark-
inu,
Síðari hálfíeikurinn var öllu
skemmtilcgri og mcira um færi.
Pavcl Smicek hafði í nógu að
snúast fyrri hluta hálfleiksins og
varði glæsilega frá bæði Alan
Shearer og Chris Sutton. Hann
var þó valdurinn að fyrsta
marki leiksins þegar hann felldi
Jason Wilcox innan vítateigs á
57. mín. og vítaspyma var
dæmd. Alan Shearer skoraði af
miklu öryggi úr spymunni.
Newcastle sótti ákaft í lokin og
Blackburn dró sig tilbaka. Chris
Sutton var settur í stöðu mið-
varðar en það dugði skammt og
eftir nokkrar homspymur í röð
tókst Newcastle að jafna þegar
cin mínúta var til leiksloka.
Vamarmaðurinn Stcve Howcy
náði ágætu skoti á markið sem
Wilcox bjargaði á línu en bolt-
inn fór í bak markvarðarins,
Tim Flowers og í netið.
Ian Wright kom Arsenal á bragðið.
meó höndinni áður en hann snéri á
varnarmenn og skoraði með góðu
skoti. Undir lokin náði harðjaxl-
inn Vinnie Jones að minnka mun-
inn fyrir Wimbledon með góðu
skoti eftir góðan undirbúning frá
Dean Holdsworth.
NORWICH-LEEDS 2:1
Sigur Norwich var tæpur en þó
fyllilega sanngjarn. Þeir sóttu mun
meira og eftir tvo sigurleiki í röð
færast þeir nú hratt upp töfluna.
Ekkert markvert gerðist í fyrri
hálfleik en í upphafí þess síðari
fékk Leeds vítaspyrnu eftir að
Rob Newman datt á boltann í
teignum. Gary McAllister tók
spyrnuna en Bryan Gunn varði
glæsilega. Mark Robins kom aftur
inrt í lið Norwich eftir meiósli og
hann skoraði fyrsta markið á 61.
mínútu af stuttu færi. Gegn gangi
leiksins náði Rod Wallace að
jafna á 89. mínútu með fallegum
skalla eftir fyrirgjöf frá Gary Spe-
cd. Gestirnir töldu sig vera búnir
að ná öðru stiginu en Neil Adams
var á öðru máli og innan við mín-
útu síðar hafði hann skoraó sigur-
markið fyrir Norwich. Það gerði
hann einnig með skalla, eftir fyrir-
gjöf frá Robins.
CHELSEA-LEICESTER 4:0
Yfirburðir Chelsea voru miklir og
greinilegt að liðið hans Glcnn
Hoddle er í hópi bestu liða í ár.
Eftir aðeins 19 sekúndur haföi
John Spcncer skoraó fyrsta mark-
ið, með skalla eftir sendingu frá
Gavin Peacock. Annað skallamark
á 4. mínútu kom Chelsea í 2:0 og
að þcssu sinni var þaó Peacock
sjálfur sem skoraði. Spencer haföi
fengió nokkur færi til að bæta viö
mörkum áóur en hann skoraði
þriðja markið á 49. mínútu. Enn
fékk hann sendingu frá Peacock
áður en hann kom boltanum í net-
ið. Hann haltraði útaf meiddur
stuttu síðar og Neil Shipperly kom
inná í hans stað. Ekki var hann
síðri fyrir framan markið og sá um
að innsigla sigurinn á 76. mínútu
af stuttu færi eftir sendingu frá
David Rocastle. Leicester var
heillum horfið í leiknum en geta
þó verið ánægðir með að enginn
leikmaður liösins var rekinn af
leikvelli í leiknum en þeir ná sjald-
an að klára leik með fullskipað lió.
SOUTHAMPTON-EVERTON 2:0
Eins og sjónvarpsáhorfendur sáu
var sigur heimamanna sanngjam
og hefði allt eins getað orðið
stærri. Daninn Ronnie Ekelund
skoraði fyrra markið eftir glæsilegt
spil við Matthew Le Tissier og
Neil Maddison og Le Tissier voru
nálægt því að bæta við mörkum
fyrir hlé. Le Tissier skoraði síðara
markió á 73. mínútu með hámá-
kvæmu skoti. Neville Southall
bjargaði því sem bjargað varð í
marki Everton. Eina verulega hætt-
an við mark Southampton skapað-
ist þegar að David Burrows átti
skot eftir aukaspymu rétt framhjá.
l.DEILD:
Bæði toppliðin, Wolves og Midd-
lesbrough, töpuðu sínum leikjum
og Reading nálgast þau nú óð-
fluga. Úlfarnir sóttu Swindon
heim og töðuóu 3:2. Paul Bodin,
Keith Scott og Joey Beauchemp
skoruðu fyrir Swindon en David
Kelly sá um að gera bæði mörk
gestanna. Middlesbrough fékk
Tranmere í heimsókn og það var
að sjálfsögðu John Aldridge sem
skoraði eina mark leiksins. Þetta
er fyrsta heimatap Boro á tímabil-
inu og þeir höfðu yfírburði í leikn-
um en náðu ekki að nýta sér þá.