Dagur


Dagur - 11.10.1994, Qupperneq 16

Dagur - 11.10.1994, Qupperneq 16
mmm Akureyri, þriðjudagur 11. október 1994 , Eldfimt efni í Olafsfjarðargöngum - niðurstöðu varðandi aðgerðir vænst seinna í mánuðinum Hann stoppaði ekki lengi fyrsti snjórinn á Akureyri. Hins vegar er vetur konungur farinn að minna áll óþyrmilega á sig og seinna í vikunni er búist við norðlægum áttum og snjókomu. Mynd: Robyn. Mikil umskipti í rekstri Kísiliðjunnar hf í Mývatnssveit: Tæplega 40 mil|jónir í hagnað fyrstu 9 mánuði ársins - kostnaðarlækkun leiðir tii framleiðsluaukninar á þessu ári Um nokkurn tíma hefur Brunamálastofnun ríkisins haft Ólafsíjarðargöngin til sér- stakrar skoðunar. Ástæðan er sú að í göngunum er eldfímt efni og hafa menn spurt sig hvað gæti gerst ef t.d. mjög harður árekst- ur verður og kviknar í bfíum. Um er að ræða einangrunarefni sem notað er til frostvarnar og eru um 40% ganganna fóðrað með þessu umrædda efni. Ýmsir möguleikar hafa verið ræddir varðandi úrbætur en að sögn Guðmundar Gunnarssonar hjá Brunamálastofnun liggur niður- staða ekki fyrir. Fullt eins líklegt er þó að ekkert verði gert. „Þaö er búin að vera umræða milli okkar hjá Brunamálastofnun og Vegagerðar ríkisins um þetta efni en niðurstaóa er ekki komin. Þetta er byggt á sama grunni og göng eru geró í Noregi og er því mál sem verið er að skoða í báó- um löndunum. Vió erum að reyna að vera samstíga um hvað veróur gert, eða hvort ástæða er til að gera eitthvaðsagði Guómundur. Hann sagói ekki vera inni í um- ræðunni að skipta um efni. „Það er ekki ólíklegt að þessu verði leyft að vera eins og það er. Það sem kannski er erfíðast fyrir okk- ur, í samanburói við Noreg, er það að þar er umferð í göngum miklu meiri og þær ráðstafanir sem gera þarf fara mjög mikió eftir umferó- inni. I göngum með þetta lítilli umferð eru tiltölulega mjög litlar reglur í gildi.“ - Menn telja þá ekki stórkost- lega hættu af þessu? Nei, það mundi ég ekki segja. Ef maóur er þarna á ferðinni keyr- ir maður allavega í gegnum göng- in en fer ekki Múlann. - Er þaó þá helst ef árekstur yrði sem menn telja hættu vera Góð veiði togara Togarar Útgerðarfélags Akur- eyringa hf. hafa verið að afla ágætlega að undanförnu. Hrím- bakur EA-306 kom sl. laugardag með fúllfermi, 130 tonn, og var aflinn blandaður, þó aðallega ýsa. fyrir hendi? „I sjálfu sér er alltaf rnikil hætta á ferðinni í jarðgöngunr ef bílar brenna, alveg sama hvernig þau eru gerð. Reykurinn kemst ekkert nema út eftir göngunum. Eins ef mjög haróur árekstur verð- ur þá lokast göngin mjög lengi, eins og þegar hefur sýnt sig.“ Guðmundur bjóst við aö niður- staða varðandi það hvað verður gert muni liggja fyrir í lok þessa mánaðar. „Þessi umræóa verður að fara að komast á lokapunkt því hún hefur staðið svo lengi. Síðan getur auðvitað verið að menn deili um niðurstööuna,“ sagði Guð- mundur að lokum. HA Mikil umskipti hafa orðið til hins betra í rekstri Kísiliðj- unnar hf í Mývatnssveit það sem af er árinu. Fyrstu 9 mánuði árs- ins var hagnaður fyrirtækisins tæplega 40 milljónir kr. „Við höfúm því snúið dæminu við um 70 milljónir á níu mánuðum,“ sagði framkvæmdastjóri fyrir- tækisins, Friðrik Sigurðsson, sem eins og fram kom í Degi sl. laugardag, tekur við nýju starfí í Kína um næstu áramót. Tap varð af reglulegri starfsemi Kísiliójunnar hf árin 1992 og 1993 og þó staóa fyrirtækisins sé sterk, gengur það ekki til lengdar ef reksturinn stendur ekki undir sér. Því var ljóst að eitthvað yrði aó gera. „Það var mörkuó sú stefna aó lækka kostnað um 15% og skipulögð vinna að því mark- miði hófst í upphafi ársins. Starfs- mönnum var fækkað um fjórðung og ýmsar úrbætur geróar á rekstrinum í samráði við ráðgjafa- fyrirtæki,“ sagði Friðrik. Og aðgerðirnar hafa skilað ár- angri. „Staðan er sú aö fram- leiðslukostnaður á hvert framleitt tonn af kísilgúr hefur lækkað um 20%. Enn er ósamið við Lands- virkjun og RARIK urn end- urskoðun á gufu- og raforkusamn- ingum en viðræður við þcssa aðila eru að hefjast. Allir aðrir við- skiptavinir og þjónustuaðilar fyrir- tækisins hafa komið til móts við okkur og veruleg kostnaðarlækk- un hefur náðst. Það hefur leitt til þess að hagur félagsins er mun betri en á síðasta ári. Ástandið er vel viðunandi sem stendur, en auðvitað má ekki sofna á verðin- um því þá rýkur framleiðslukostn- aður upp.“ Friðrik sagói sérlega ánægju- legt að sjá aó þær aðgerðir sem gripió var til, sem svo sannarlega voru ekki sársaukalausar, hafa skilað árangri. Hefur leitt til framleiðsluaukningar I upphafi ársins var gert ráó fyrir að selja 20 þús. tonn af kísilgúr en að sögn Frióriks stefnir í um 24 þús. tonna sölu. „Magnaukningin er einungis til komin vegna kostn- aðarlækkunarinnar. Celite Corpor- ation, hinn erlendi eignaraöili Kís- iliðjunnar, er stærsti framleiðandi og söluaðili kísilgúrs í heiminum með um 50% markaðshlutdeild, þannig að þeir taka efni þaðan sem framleiðni er best hverju sinni. Hækkandi kostnaður hjá Kísiliðjunni varð til þess að við urðum fyrir um 20% samdrætti í sölu á árunum 1992-1993, miðað við fyrri ár. Jafnvel þó við förum í 24 þús. tonn á þessu ári er það bara svipðað og meðaltal áranna 1986-1991. Framleiðslugetan er ríflega 30 þús. tonn þannig að bet- ur má ef duga skal.“ Það sem af er árinu hefur Kísil- iðjan verið stopp í 70 daga en ekki er útlit fyrir að meira verði stopp- að að undanskildum örfáum dög- um til að sinna bráðaviðhaldi, eins og Friðrik oróaði það. Undanfarin tvö ár hefur framleiðslan t.d. verið stöðvuð yfir jólin en svo verður ekki nú. Kína spennandi markaður Sá árangur sem náðst hefur í Kís- iliðjunni hefur ekki farið framhjá stjórnendum Celite Corporation, enda segir Friðrik vel vera fylgst með öllum fyrirtæjum samsteyp- unnar. Fullvíst má telja að sá ár- angur sem þar hefur náðst undir stjórn Friðriks varð til þess að honunr var boðið starfíð í Kína. Kína er eini staðurinn í heimin- um þar sem kísilgúrmarkaður er í vexti og að sögn Frióriks afar áhugavert að fara inn á þennan markað þar sem uppbyggingin er svona mikil. Vinnuafl er afar ódýrt í Kína, þar sem 20 starfsmenn kosta það sama og einn á Islandi. I verksmiðju meó minni frani- leiðslugetu en Kísiliðjan eru t.d. 800 starfsmenn á móti um 50 í Kísiliðjunni. Celite cr meó tvær verksmiðjur í rekstri á því svæði sem Friðrik verður og þá þriðju í byggingu og sagðist hann búast við að hægt væri að hagræða veru- lega í rekstri þeirra. Framkvæmda- stjórinn var að vonum ánægur með þann árangur sem náðst hefur í Kísiliðjunni og fer nú frá góðu búi eins og sagt er. HA Frystikistur rM ! i 1 J 0«** Verð frá kr. 28.83C Qkaupland hf. Kaupangi v/Mýrarveg, sfml 23565 Harðbakur EA-303 kemur til löndunar nk. miðviku- eöa fimmtudag og hafa aflabrögð ver- ið ágæt. Enginn afli hefur að und- anförnu verið keyptur af ÚA af aðkomuskipum enda togarar fé- lagsins séð fískvinnslu félagsins fullkomlega fyrir hráefni. GG Veður fer kólandi framan af degi í dag en aftur hlýnar seinnipartinn. Þegar líður á vikuna snýst vindur í norðrið og þá gæti snjóað á Norður- landi. A vestanverðu Norð- urlandi verður norðan gola eða kaldi í dag en gengur í sunnan og suóaustan stinn- ingskalda í kvöld. Austar gætu orðið dálítil él í morg- unsárið en léttir til þegar líð- ur á daginn. VEÐRIÐ Uppboð á minkaskinnum í Kaupmannahöfn: Hækkun á högnaskinnum - gjaldeyristekjur af loðdýraskinnum þrefaldast milli ára Siðasta uppboð loðdýraskinna fyrir sölutímabilið 1993/1994 fór fram í Kaupmannahöfn í síð- ustu viku. Helstu niðurstöður af uppboðinu urðu þær að stór högnaskinn og undirtegundir hækkuðu í verði en venjuleg læðuskinn lækkuðu. Því virðist sem kaupendur hafí valið skinn- in með tilliti til stærðar en ekki gæða, eða keypt þau eftir flatar- máli, eins og Arvid Kro hjá Sambandi íslenskra loðdýra- bænda orðaði það. Meðalverð á venjulegum minkaskinnunt var 1.689 ísl. kr. og 1.476 ef ailir flokkar eru teknir með. Meðalverð venjulegra ís- lenskra minkaskinna var 1.666 kr og 1.398 kr. ef allir flokkar eru teknir með, en Islendingar áttu hlutfallslega fleiri skinn í lægri verðflokkum, þ.c. skinn sem ckki flokkast sent venjuleg. Mikil aukning, eða þreföldun, hefur orðið í verðmæti útfluttra loðdýraskinna á milli sölutíma- bilsins 1992/1993 og 1993/1994. Á nýliðnu tímabili nam verðmæti seldra refa- og minkaskinna 400,3 milljóna ísl. kr. á móti 130 millj. tímabilið á undan. Þessa miklu aukningu má rekja til verðhækk- unar á skinnum, mciri framleiðslu og cinnig var eitthvað um aö menn geymdu skinn milli tíma- bila. Mest varð hækkunin á refa- skinnum sem fóru úr um 3.000 kr. í 6.000-7.000 kr. Að sögn Arvids búast menn við áframhaldandi hækkun á næsta söluári. Þá er gert ráð fyrir aö meðalverð á minkaskinnum verði í kringum 2.000 ísl. kr og að fyrir stærstu rcfaskinnin fáist allt að 10 þúsund ísl. kr fyrir stykkið. Fyrsta uppboð á * sölutímabilinu 1994/1995 verður hjá FFS í Finn- landi 1. dcsember nk. og hjá DPA í Danmörku 15.-16. dcsember. HA

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.