Dagur - 21.10.1994, Page 14
SÆVAR HREIÐARSSON
14 - DAGUR - Föstudagur 21. október 1994
ÍÞRÓTTIR
Handknattleikur - bikarkeppni Umferðarráðs:
Stórleikur í Höllinni
- Þórsarar fá Víkinga í heimsókn
í kvöld leika Þórsarar í 32ja liða
úrslitum bikarkeppni HSÍ og mót-
herjar þeirra eru ekki af lakari
gerðinni. Víkingar koma í heim-
sókn í íþróttahöllina á Akureyri
með allar sínar stórskyttur og er
þetta sennilega stærsta verkefni
Þórsara í vetur. Völsungur leikur
einnig í kvöld, gegn UBK, og KA
fær ÍR-inga í heimsókn á morgun.
„Eg vona að fólk komi á leikinn
vegna þess að Víkingar eru í dag
með eitt af skemmtilegustu liðum
Islands. Þeir eru með leikmenn eins
og Sigga Sveins, Birgi og Bjarka
Sig. og svo má alls ekki gleyma að
þeir eru með tvo fyrrum leikmenn
okkar, Rúnar Sigtryggsson og Krist-
inn Hreinsson, sem spiluðu lengi
með Þór og ég vona að þeir fái báðir
að spila,“ sagði Jan Larsen, þjálfari
Þórs, um leikinn gegn Víkingum.
Þórsarar hafa unnið báóa leiki sína í
2. deildinni til þessa og eru meó
léttleikandi lið en hafa þó ekki verið
mjög sannfærandi. „I leikjunum til
þessa hefur pressan verið á okkur en
á morgun getum við tekið á þessu af
fullum krafti og séð til hversu langt
það nær. Auðvitað langar mann til
að fá sóknarleikinn til að fljóta betur
en mótherjamir leyfa okkur ekki að
spila eins og maður vill helst og þaó
þarf tvö jákvæð lið til að hafa leik-
inn skemmtilegan. Víkingar koma
ekki hingað til að hanga á boltanum,
þeir koma hingað til að skemmta.
Við munum heldur ekki hanga á
boltanum, við tökum fulla áhættu
og viljum helst búa til skemmtileg-
an leik,“ sagði Jan Larsen. Þórsarar
hafa oft komið á óvart í bikarkeppn-
inni og veitt stóru liðunum harða
keppni. Fyrir þremur árum náðu
þeir tvisvar framlengingu gegn FH,
sem þá vann bæði deild og bikar.
Arið þar á undan var einnig fram-
lengt í bikarleik hjá Þór gegn ÍBV,
sem síðan vann bikarinn.
Þess ber sérstaklega aö geta að
ársmiðahafar fá ekki frítt inn í kvöld
Ingólfur Samúclsson, línumaður
Þórs.
þar sem þetta er bikarkeppni og
samkvæmt reglum HSÍ verður að
skipta innkomu milli liða og gilda
því ekki sömu reglur og á deildar-
leikjum.
KA-ÍR
Á moi^un kl. 13.30 leika KA-menn
gegn IR-ingum í KA-heimilinu og
þar verður eflaust hart barist. Fyrir
rúmri viku mættust þessi lió í deild-
inni á sama stað og þá hafði KA
betur, 27:22. Þar var greinilegt að
KA-menn eru meó sterkara lið en
IR-ingar náðu þó að hanga í þeim
lengst af og Branislav Dimitrivic og
Róbert Rafnsson voru heimamönn-
um oft erfióir. Það gæti einnig
þyngt róður KA að þeir fá aðeins
einn dag í hvíld á milli Ieikja á með-
an ÍR fær tvo en þeir unnu HK á
miðvikudag.
Völsungur-UBK
Húsvíkingar eru ekki með lið í
deildakeppni í ár og ræóur þar fjár-
hagsstaða mestu. Þeir munu þó
mæta galvaskir til leiks í bikar-
keppninni í kvöld og hafa fullan hug
á að leggja Fylkismenn að velli og
vonast til að heimamenn fjölmenni
til aö standa við bakið á köppunum.
Leikurinn hefst kl. 20.30.
Aðalfundur Gilfélagsins á Akureyri:
„Heitir fimmtudagar
lunni“ í vetur
Gilfélagið hélt aðalfund þann 24.
september sl. í Deiglunni. Á fund-
inum voru fluttar skýrslur um starf-
semi félagsins^ og um Listasumar.
Guðmundur Ármann, sem verið
hefur formaður félagsins frá upp-
hafi, gaf ekki kost á sér til frekari
stjómarstarfa.
Nýr formaður var kjörinn, Guð-
mundur Oddur Magnússon. Aðrir í
stjóm em Ólöf Sigurðardóttir, vara-
formaður, Gísli Gunnlaugsson,
gjaldkeri, Ragnheiður Ólafsdóttir,
MINNINO
ritari, og Rósa Kristín Júlíusdóttir,
meðstjómandi. Varamenn em Vió-
ar Eggertsson og Jón Hlöðver Ás-
kelsson.
Á fundinum lýstu menn áhyggj-
um af slysahættu í Grófargili og í
framhaldi af því var samþykkt
ályktun sem send var til skipulags-
nefndar og menningarmálanefndar
Akureyrarbæjar.
Nýja stjómin hefur þegar hafió
störf og mun í vetur brydda upp á
ýmsum nýjungum, svo sem „Heit-
Neal kaupir
Phil Ncal, stjóri Coventry, hefur
verið að leita sér aó nýjum vam-
armðnnum að undanfömu cftir
að liðið seldi Phil Babb til Li-
verpool. í vikunni var gengið frá
kaupum liðsins á skoska mið-
veiöinum Steve Pressley frá
Rangers. Coventry borgaði
600.000 pund fyrir kappann en
hann er leikmaður með skoska
U21 árs landslióinu og talinn
eiga bjarta framtíð.
Hrifnmg
Mðrg cnsk félög nrífast af
sænska landsliómanninum Kenn-
eth Andersson, sem leikur nú
með Caen í Frakklandi. Samn-
ingaviðræður við Sheffield Wed-
nesday sigldu í strand eftir að
franska liðið hækkaði verð hans
úr 1,5 milljónum punda í 2 millj-
ónir. Nú herma fregnir að Leeds.
hafi áhuga á aó fá hann í sínar
raðir en gæti þó lent í samkeppni
við Everton og Crystal Palace.
Dani í vörnina?
Everton-vömin hefur verið slök á
tímabilinu og vantar einhvem til
að binda hana saman. Mike Wal-
ker skrapp til Danmcrkur fyrir
skömmu og fylgdist mcð Marc
Riepcr, miöverði danska lands-
Iiósins og Bröndby, en talió er að
hann þurfi að borga 1 milljón
punda fyrir að fá hann til Eng-
lands.
Æsingur
Dennis Wise, leikmaður Chelsea,
hefur verió á forsíðum ensku
blaðanna undanfama daga fyrir
að missa stjóm á skapi sínu síðla
nætur og stórskemma leigubíi.
Eftir það missti hann fyrirlióa-
stöðuna hjá Chelsea en hann er
þó hæstánægður hjá félaginu og
mun sennilega skrifa undir sex
ára samning við Chelsea á næstu
dögum.
um fimmtudögum í Deiglunni" þar
sem ýmsar skemmtilegar uppákom-
Ur verða á döfinni. (Fréltalilkynning)
* 'ánsson
Fæddur 18. júlí 1902 - Dáinn 10. október 1994
Kveðjuorð frá Náttúrulœkninga-
félagi Akureyrar.
Guðmundur Kristjánsson, vél-
smióur, Grundargötu 12 á Siglu-
firði, sem fæddur var 18. júlí
1902, lést á sjúkrahúsi Siglufjarð-
ar 10. október sl. og því rétt orð-
inn 92 ára er hann kvaddi þetta
jarðsvið.
Kynni Náttúrulækningafélags
Akureyrar og Guðmundar stóðu
aðeins yfir í fá en einstök ár. Þau
hófust meó því að góður vinur
hans hér á Akureyri færði félaginu
þau boð að Guðmundur vildi
leggja fram eina og hálfa milljón
til ákveóins verkefnis í Kjama-
lundi.
Síðar bætti hann enn um betur
og færði Náttúrulækningafélagirui
erfðaskrá þar sem hann arfleiddi
það að nær öllum sínum eigum.
Við þessari einstöku vináttu og
rausn gat félagið aðeins brugöist
með þeim hætti aó útnefna hann
heióursfélaga sinn.
Guómundur var á Siglufirói
jafnan nefndur „Guðmundur
góði“, enda fóru góðverk hans
víða innanlands sem utan. Á Ind-
landi var hann í sambandi við
„Móður Theresu“, og studdi henn-
ar merka starf fyrir fátæk börn
með ómældum framlögum.
Náttúrulækningafélag Akureyr-
ar kveður nú þennan velgjörðar-
mann sinn með viróingu og miklu
þakklæti og bióur honum blessun-
ar á Guös vegum.
Blak:
Þjálfaralausir KA-menn
- leika gegn HK í kvöld
í kvöld keppa bæði karla- og
kvennalið KA í blaki gegn HK í
KA-heimiIinu. Karlarnir eru
enn þjálfaralausir en eins og
kunnugt er hvarf bandarfski
þjálfarinn og leikmaðurinn,
Mike Whitcomb, sporlaust fyrir
síðasta leik. Talið er að hann sé
nú kominn aftur á ströndina f
Kaliforníu.
KA-menn hafa átt í viðræðum
við Hauk Valtýsson og Bjama
Þórhallsson um að taka að sér
þjálfun liðsins en það mun þóækki
gerast strax. Þeir munu þó stjóma
liðinu til bráðabrigða í kvöld.
Bjami er þjálfari kvennaliðsins og
það gæti orðið erfitt aó sameina
störfín auk þess sem hann er einn
af lykilmönnum karlaliðsins inni á
vellinum. Hann segir KA menn
ekki vera búna að jafna sig á
uppátæki Kanans. „Nei, það erum
við ekki og þurfum t.d. að gera
ýmsar tilraunir meö mismunandi
uppstillingar í þessum leik,“ sagði
Jóhanna Erla Jóhannesdóttir spilar
stórt hlutvcrk i kvcnnaliði KA.
Bjami. HK er með sterkt lið og er
aðeins búið að tapa tveimur hrin-
um það sem af er mótinu og er
með fullt hús stiga eftir þrjár um-
ferðir. Það er því ljóst að KA-
menn veróa að taka á öllu sem
þeir eiga til þess að Ieggja gestina
að velli í kvöld.
Kvennalió KA kom skemmti-
lega á óvart þegar það lagói IS um
síðustu helgi og stelpumar eru
staóráónar í að halda sig-
urgöngunni áfram. KA stendur
betur að vígi en HK í deildinni en
það gæti þó breyst fljótt ef gest-
imir fara meö sigur í kvöld.
Leikur karlaliðanna hefst kl.
19.30 en stelpumar taka við strax
að þeim leik loknum eða um kl.
21.00.
HANDKNATTLEIKUR:
Bikarkeppni HSI: Föstudagur: Völsungur-UBK kl. 20.30
Þór-Víkingur kl. 20.30
Laugardagur: KA-IR kl. 13.30
KÖRFUKNATTLI Úrvalsdeildin: LIKUR:
Sunnudagur: I»ór-ÍR kl. 20.00
ÍA-Tindastóil kl. 20.00
1. deild kvenna: Laugardagur: ÍR-Tindastóil kl. 17.00
2. deild karla: Föstudagur: USAII-Þór B kl 20.00
Laugardagur: Daivík-Leiftur kl. 16.00
BLAK: Föstudagur: 1. deild karla: KA-HK kl. 19.30
1. deiid kvenna: KA-HK kl. 21.00
Kjördæmisráð sjálfstæðisfélaganna í
Norðurlandskjördæmi eystra:
Stjórnmálaályktun
Aðalfundur kjördæmisráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Norðurlands-
kjördæmi eystra, haldinn á
Húsavík 16. október 1994, fagnar
þeim mikilvæga árangri sem
náðst hefur í efnahagsmálum
þjóðarinnar á yfirstandandi kjör-
tímabili. Stóraukið aðhald í rík-
isrekstri og bætt fjármálastjórn
hefur dregið úr rekstrarhalla rík-
issjóðs og komið á jákvæðum
viðskiptajöfnuði við útlönd.
Stöóugieiki í verólagsmálum og
lækkun vaxta hefur skapað ný
vaxtarskilyrði fyrir atvinnulífið í
landinu, sem er mikilvægur þáttur í
að draga úr atvinnuleysi og tryggja
ungu fólki atvinnu. Þýðingarmikið
er að haldið verði áfram á sömu
braut og erlendar skuldir lækkaóar
sem kostur er. Ekki er ásættanlegt
að skattbyröi almennings aukist frá
því sem nú er.
Stefna ber að því að jafna at-
kvæðisrétt í kjördæmum landsins
og er skoraó á Alþingi að sam-
þykkja stjómarskrárbreytingu þar
að lútandi fyrir komandi Alþingis-
kosningar. Ekki verður við það un-
að að Norðurlandskjördæmi eystra
beri skarðan hlut í þingmannatölu.
Stefna ber að fullvinnslu afurða
okkar í sjávarútvegi og landbúnyði.
Gæðastjómun og ýtmstu hag-
kvæmni verði fylgt við framleiðsl-
una þannig aó íslensk matvæli geti
í framtíóinni náó enn meiri út-
breiöslu á erlendum mörkuðum.
Koma þarf á markvissri beitar-
stjórnun og stórauka uppgræðslu
og frióunaraógerðir þannig að
svæði sem em í hættu vegna jarð-
vegseyóingar eða eru örfoka nú,
geti orðið grundvöllur að matvæla-
framleiðslu í framtíðinni.
Draga ber úr mióstýringu ríkis-
valdsins og halda áfram á þeirri
braut aó færa vald frá ríki heim í
hérað. Yfirtaka sveitarfélaga á mál-
efnum grunnskóla er stór áfangi á
þeirri braut. Mikilvægt er aó yfir-
stjórn náttúrurverndarmála flytjist
heim í héraó.
Aðalfundur kjördæmisráðsins
álítur að lagning heilsársvegar
milli Norður- og Austurlands sé
forgangsverkefni í vegamálum.
Jafnframt hvetur aöalfundurinn til
þess að haldið verói áfram varan-
legri vegageró meðfram ströndinni
milli landshlutanna. Bættar sam-
göngur eru forsenda fyrir aukinni
samvinnu byggða á sviði atvinnu-
mála og opinberrar þjónustu og
hafa mikla þýðingu fyrir uppbygg-
ingu ferðaþjónustu.
Brýnt er aö Sjálfstæðisflokkur-
inn fái þaó brautargengi í komandi
Alþingiskosningum aó hann geti
áfram unnió að bættri stjóm efna-
hagsmála og treyst þannig undir-
stöóur atvinnulífs og annarra þátta
þjóðlífsins.