Dagur - 29.10.1994, Blaðsíða 8

Dagur - 29.10.1994, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 29. október 1994 PÝRARÍKI ÍSLANDS SR. SIÚURÐUR ÆÚISSON Fuglar 59. þáttur Rita (Rissa tridactyla) Ritan er af ættbálki strandfugla (fjörunga), en tilheyrir þaðan ætt máva. Þeir eru mjög algengir um allan heim, og eru til af þeim um 45 tegundir. Ættin er m.a. þekkt fyrir sundfitj.ir og langa og mjóa vængi, og yfirleitt eru kynþroska fuglar auk þessa með hvítan búk. Hér á landi verpa einungis 7 teg- undir máva; auk ritu eru það Átt- unda tegundin, bjartmávurinn, sem er mjög algengur við Islands- strendur á vetrum, einkum norð- an- og vestanlands, en kemur ann- ars frá S- og SV-Grænlandi, hefur ekki ennþá reynt varp hér, að því er menn telja. En þótt ritan tilheyri mávaætt- inni, er hún yfirleitt ekki talin af mávakvíslinni, Larus (sem allar hinar íslensku mávategundirnar, þ.e.a.s. svartbakur, hvítmávur, silfurmávur og stormmávur til- heyra), heldur vegna ýmissa sér- kenna (hún er m.a. töluvert lág- fættari en aórar mávategundir, og hefur að auki ákaflega vanþrosk- aöa afturtá, þannig að í raun sjást bara 3 tær, í stað 4 hjá öðrum; sbr. latneska heitið trydactyla: sú meó þrjár tær) Iátin í sérstaka ættkvísl, Rissa. Ritan er 38-41 sm á lengd, um 400 g á þyngd, og með 95-120 sm vænghaf. Karlfuglar eru ívið stærri en kvenfuglar. Annars er það um rituna að segja, aö hún er í fullorðinsbún- ingi (varpbúningi) mjög lík storm- mávi. Bakið er grátt, sem og herð- ar og yfirvængir (lítið eitt dekkra en á áðurnefndum mávi), fimm ystu handfuglafjaðrir þó alsvartar í oddinn (þ.e.a.s. endar vængj- anna), en búkurinn að öðru leyti drifhvítur. Nefió er gult, en munn- vik rauðgul. Augu mjög dökk. Fætur svartleitir. Vetrarbúningur er eins í megin- atriðum; þaö eina sem breytist er að höfuðió gránar. Enginn litarmunur er á milli kynja. Ritan er fugl strandhafa og út- hafs um allt norðurhvel jarðar og er mestur sjófugl íslenskra máva. Um er að ræða tvær myndir henn- ar: R. t. tridactyla, sem er að finna Atlantshafsmegin, og R. t. pollica- ris, sem aftur er að finna á Kyrra- hafi og við. Fuglar hinnar síðar- nefndu undirtegundar eru að jafn- aði dekkri og stærri, með öllu þroskaðri afturtá og -kló. Ritan er ákaflega félagslynd og verpir gjama í stórum og þéttum byggðum, ýmist út af fyrir sig eða þá innan um eöa í nábýli við svart- fugla (einkum langvíu og stutt- nefju) og fýl. Aóalvarptíminn er seinni hluti maí og byrjun júní. Hreiðrið er oftast tiltölulega mikil og há dyngja, gerð úr rofalýjum og sinu, er fuglinn límir saman með driti sínu og munnsafa, yfirleitt á þverhníptar, litlar bjargsyllur með sjó fram, en þó einnig utan í lág- um eyjum; sjaldan ofan á þeim. Eggin eru 2-3 og að lit ekki ósvipuð svartbakseggjum, þ.e.a.s. gráleit eða brún í grunninn, en ísett dekkri blettum, misstórum. Utungun tekur um 4 vikur og sjá bæói foreldri um ásetuna. Ungarn- ir eru hreiðurkærir. I fyrstu, þ.e.a.s. sem dúnungar, eru þeir silkigráir eða hvítir á búkinn (dekkstir aó ofanverðu) en nef og fætur bera svartan lit. En með dögunum taka þeir aö líkjast meir foreldrum sínum. Þeir verða svo fleygir 5-6 vikna gamlir. Ritan er yfirleitt þögul, nema á varpstöðvunum. Röddin er þá fin- gert en hávært, mjóróma stef. I fyrsta vetrarbúningi hefur rit- an einkennilegt vængmynstur, með svörtum vinkli, og enn greinilegra þriggja lita mynstur, svart, hvítt og grátt. Að auki er hún með svart belti á hnakka og annað eins á stéli. Nef er líka svart. Utan varptíma er hún algjör- lega óháð landi og fer þá bæði langt og víða, enda mikill og góð- ur flugfugl, og létt á sér. M.a. hafa endurheimst merktir, íslenskir fuglar við Nýfundnaland og N- Afríku. Mynstur þessa flakks er samt lítt þekkt. Helstu varpstöðv- arnar (a.m.k. fugla af Vesturlandi) eru þó taldar vera á Grænlandi sunnan til, bæói á vestur- og aust- urströndinni. Aðalfæðan er nær eingöngu fiskmeti, sem yfirleitt er tínt að Rita á hrciðri sínu. (A/an Richards; Seabirds of the Northern Hcmisphere. 1990.) yfirborði sjávar á flugi. Stundum þá sótt undir sjávarlokið. Ritan er ein þeirra fuglateg- unda, sem nýttar voru hér á landi áöur fyrr. Bera örnefni þessu m.a. glöggt vitni, eins og t.d. Rytukór í Elliðaeyjabjargi á Breiðafirði, Rytugjá í Látrabjargi og Ryssu- skúti í Drangey (en önnur nöfn fuglsins eru t.d. rylla, ryssa, ryt- fugl, rytsa og skegla). Eggin voru ekki mikið hirt, nema þá í Gríms- ey, heldur sóttust menn frekar eft- ir unganum, er sumir kölluðu ryll- upysju, og var tekinn rétt áður en hann varð fleygur. Margir sjófuglastofnar við ís- land eru eða hafa verið í örri aukningu síðustu áratugi eða jafn- vel aldir. í sumum þessara tilfella er vafalaust um að ræóa fjölgun, eftir að slaknaði á veiðum. Ritan er hér engin undantekning; greini- leg fjölgun helur orðiö á N-Atl- antshafi, þótt reyndar ekki sé vitað í því tilfelli hvað valdi. Nákvæmar stærðartölur íslenska ritustofnsins liggja ekki fyrir, en fjöldi varp- para mun liggja einhvers staðar á bilinu 100.000-1.000.000. Elsta rita, sem ég veit um, náði 21 árs aldri. Með þessum 59. fuglaþætti sr. Siguró- ar Ægissonar verður nú gert hlé á um- fjöllunum um íslenska fugla, en fugla- þættir verða aftur í Degi frá og með næsta vori. Fyrsti fuglaþáttur Sigurðar birtist í Degi 4. júlí 1992 og enn á hann eftir að fjalla um 13 tegundir ís- lenskra fugla (þ.e.a.s. sílamáv, silfur- máv, hvítmáv, súlu, himbrima, storm- svölu, sjósvölu, húsönd, duggönd, skúfönd, urtönd, skeiðönd og hrafns- önd) auk lokaþáttar um flækingsfugla og nýja landnema, sem þá yrði þáttur nr. 73. Þegar upp er staðið verður búið að fjalla í Degi um allar þær tegundir fugla, sem kallast íslenskir varpfuglar. Sr. Sigurður Ægisson verður eigi að síður annað slagið á síðum helgarblaðs Dags í vetur. Birtur verður eftir hann afar fróölegur greinaflokkur um ís- lenskar hvalategundir og verður fyrsti þátturinn 19. nóvcmber nk. Ritstj. MATARKRÓKUR „Físk á minn disk“ Það er Ólína Steindórsdóttir útivinnandi húsmóðir sem býr í Bjarmastígnum á Akureyri sem leyftr lesendum Dags að kíkja í uppskriftabókina sína að þessu sinni. Ólína starfar í eldhúsi veitinga- staðarins Lindarinnar við Leiruveg og þar er í nógu að snúast enda var Lindin stœkkuð verulega síðastliðið vor. Að- spurð sagði Ólína að vinsœlasti rétturinn á sínum vinnustað vœri Lindarhamborgari enda vœri hann mjög gómsœtur. Olína œtlar hinsvegar að láta okkur í té tvœr fiskuppskriftir og uppskrift afpastarétti og epla- köku. Hún segist hafa mikið uppáhald á fiski, hann sé að sínu mati besti matur og hann er vinsœll á hennar heimili. Ólína œtlar að skora á vinkonu sína Róslín Tómasdóttir sem býr í þorpinu á Akureyri að leggja til uppskriftir í nœsta matar- krók. „Róslín er bœði snilldar saumakona og kokkur, hún á ör- ugglega gómsœtar uppskriftir í pokahorninu, “ sagði Olína. KU Fiskisúpa 50 g mjörl.lolía I stór laukur 1 rifsaxaður hvítlaukur 2-3 kartöflur í teningum 1 stór gulrót, söxuð 1 dós tómatpurre, lítil 1 lárviðarlauf / tsk. basil 2 tsk. sege 2/ bolli fiskisoð afteningi 2/ bolli mysa 2-3 sellerý-stönglar 1 paprika 800 gfiskur, lúða, lax, rœkjur, ýsa 1 dl rjómi Grænmetið kraumað í olíunni, fisksoó, mysa, tómatpurre, og krydd soðið í 10 mín. Fisknum og rjómanum bætt í. Súpan er borin fram með góöu brauði. Djúpsteiktur fiskur 600 g ýsa, eða annar fiskur Deig: 1 pilsner 2 egg 1 msk. olía 1 tsk. sítrónupipar 1 tsk. aromat 4-5 dl hveiti Pilsner, olía, egg og krydd sett í skál. Hveiti bætt í uns deigió er hæfilega þykkt. Fiskurinn hjúp- aóur í deiginu og djúpsteiktur í 3- 4 mín. Borió fram með salati, hrísgrjón- um og súrsætri sósu. Súrsœt sósa 2-3 msk. olía 1 paprika, í bitum 2-3 ananshringir í bitum 1 bolli ananassafi / bolli púðursykur / bolli edik 2 tsk. tómatsósa salt, pipar Paprika og ananas brúnað í ol- íunni, öllu hinu bætt í og suðan látin koma upp. Jafnað með 1-2 msk maísenamjöl. Gott að sneiða agúrku og bæta henni í að lokum. Pasta 200 g pasta, soðið í 8 mín. sósa: 200 g rjómaostur /1 rjómi 1 stk. laukur, lítill I stk. paprika I tsk. aromat 1 msk. smjör Laukurinn og paprikan látin mýkjast í smjörinu. Síðan er rjómanum bæjt út í, þá ostinum og kryddinu. Út í sósuna má setja sveppi, ananas, kjúklingabita eða annað sem til er. Ljúffengt með hvítlauksbrauði. Eplakaka 4 dl sykur 4 stk. egg 1 tsk. lyftiduft 2 dl rjómi 5 dl hveiti 100 g smjör, brœtt Egg og sykur þeytt vel. Hveitinu bætt í, þá smjöri og svo rjóma. Sett í form. Eplabátum velt upp úr kanelsykri og raóað yfir deig- ið, eitt til tvö lög. Bakað við 175°Cí 40-50 mín. Góð kaka með rjóma eða ís.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.