Dagur - 29.11.1994, Blaðsíða 11

Dagur - 29.11.1994, Blaðsíða 11
Þriójudagur 29. nóvember 1994 - DAGUR - 11 Aðventutónleikar Kirkjukór Glerárkírkju Kirkjukór Glerárkirkju efndi til aðventutónleika í kirkju sinni fyrsta sunnudag í aðventu, 27. nóvember. Kórinn er skipaður um fimmtiu söngvurum og er stjórn- andi hans Jóhann Baldvinsson, organisti og kantor kirkjunnar. Svo sem við átti var söngskrá kórsins samansett að mestu af lög- um, sem tengjast hátíðinni, sem beðið er, jólunum. Kórinn flutti öll lögin, tuttugu og eitt að tölu, án undirleiks og gerði það af veru- legu öryggi. Hljómur var jafnan góður og greinilegt, að í kórnum er gott söngfólk. Þannig var sópr- an jafnan hreinn og tær og hið sama gilti um altrödd, sem fyllti vel í hljóminn. Tenórinn virðist einnig vel skipaður, en fyrir kem- ur í honum, að rödd fari fram úr samfellunni, sem spillir nokkuð áferð. Bassar eru vel breiðir og styrkir og gefa jafnan góóan und- irtón, sem er þó á stundum ívið of sterkur. Samhljómur kvennaradda er al- mennt í góðu Iagi, svo sem í sóló- hlutum þeirra og einnig í samsöng kórsins. I nokkur skipti virtist tón- hæð vera heldur of rnikil fyrir sópran, svo sem í laginu Jesús, þú ert vort jólaljós eftir C. E. F. Weyse, sem sungið er við sálm eftir Valdimar Briem. Þetta lag sungu kvennaraddir einar og gerðu í heild vel. I karlaröddunt gætti lítils háttar óróa á stundum, svo sem þær væru ekki alveg sam- taka og rynnu auk þess smávegis á tónum. Þetta kom fyrir í nokkrum lögum á söngskránni og hvað mest í laginu Nóttin var sú ágœt TONLIST HAUKUR AGUSTSSON SKRIFAR ein eftir Sigvalda Kaldalóns við sálm Einars Sigurðssonar. Þetta lag sungu karlaraddir einar. Margt var vel gert á aóventu- tónleikum Kirkjukórs Glerár- kirkju. Þannig var lagió Hugleið- ing á jólaföstu eftir Birgi Helga- son við texta Tryggva Þorsteins'- sonar vel flutt og innilega. Þar naut kórinn sín skemmtilega í vel unnu risi. Þá var lagið Hátíð fer að höndum ein, sem er íslenskt þjóðlag og textinn að hluta til eftir Jóhannes úr Kötlum, vel mótað og flutt af tilfinningu. I laginu Hin fyrstu jól eftir Ingibjörgu Þorbergs við Ijóð Kristjáns frá Djúpalæk og fallegri útsetningu Michaels Jóns Líf og fjör Laugardaginn 3. desember verður meiriháttar fjör í Fiðl- aranum á 4. hæð Alþýðuhússins á Akureyri frá kl. 22-03. 'lT? Tríó Birgis Mar. spilar gömlu og nýju dansana. Um kl 22.30 kemur Jóhann Már Jóhannsson og syngur nokkur lög við undirleik Sólveigar Einarsdóttur. Fjölmennum og tökum með okkur góða skapið. Stjórnin. Lp_ jú Clarkes, nutu kvennaraddir sín í vel lluttu sólói; sérstaklega, þegar lagið var flutt sem aukalag í tón- leikalok. Skemmtilegur var „berg- málssöngur“ kórsins í Vér höldum jól, sem er gamalt jólalag en text- inn eftir Pál Helgason. I flutningi þessa lags skipti kórinn sér og var annar hlutinn utan kirkjuskipsins en hinn á kórpalli. Ahrifin voru verulega laðandi. Enn má nefna pólska þjóðlagió María syngur við Jesúbarniö, sem sungið var við texta eftir Helga Hálfdánarson, og kórinn flutti ljúflega og jafnt, og loks lokalagið á tónleikaskránni, Fögur er foldin, sem er þjóðlag frá Schlesíu en sálmurinn eftir Matthías Jochumsson. Raddsetn- ingin, sem kórinn flutti, er eftir Thomas Beck og er fjölbreytt og skemmtileg og gerði flutningur kórsins henni góð skil. Kirkjukór Glerárkirkju er hressilegur og aðlaðandi kór. Hann sýndi vel umtalsveröa getu sína í flutningi tuttugu og eins lags söngskrár sinnar og ekki síð- ur, að vel hefur verið unnið á æf- ingum undir stjórn kantorsins og organistans Jóhanns Balvinssonar. Það reynir hvað mest á kór að syngja án undirleiks og þó að vissulega væru smávægilegir gall- ar í flutningi nokkurra laga og ljóst aó dálítió meira heföi mátt dvelja við sum þeirra á æfingum, var hér í heild vel aó verki staðið og árangurinn þeim til sóma, sem að komu. Forrádamenn fyrírtækja og almenningur! Vinsamlega athugið að samkvæmt mengun- arvarnareglugerð er skylt að skiia úrgangi sem inniheldur spilliefni til móttökustöðva. Dæmi um spilliefni sem falla til hjá fyrirtækjum og almenningi: ❖ Málningar,- fúavarnar,- lakk- og límafgangar. Leysiefni og þynnir, t.d. terpentína (white spirit) og aceton. ❖ Úrgangsolía, olíusíur, bensín, díeselolía og olíusori. $ Rafhlöður og rafgeymar. =5= Kvikasilfurshitamælar og kvikasilfursperur. Framköllunarvökvar og festiböð (fixer). ❖ Sterk hreinsiefni og blettaeyöar. Ætandi efni, þ.e. sýrur, lútar (t.d. vítissódi) og oxandi efni. ❖ Skordýra,- meindýra- og plöntueitur (útrýmingarefni). ❖ Klórflúorkolefni (freon) af kælikerfum. ❖ Frystikistur og kæliskápar. $ Lyfjaafgangar. Nánari upplýsingar veita spilliefnamóttaka Endur- vinnslunnar h.f. Réttarhvammi 3, Akureyri, sími 12838 og Heilbrigöiseftirlit Eyjafjarðar, Gránufélags- götu 6, Akureyri, sími 24431. Athugið að Endurvinnslan h.f. er opin á laugardögum í desember frá kl. 13-16, lokað milli jóla og nýárs. EHDURVimiáN Hf Réttarhvammi 3, sími 12838. á^kJk^k.dkJk.dk.dkjlk.dkJk^k.Jk.dkJk.Jk.ikJkJk.dk.4k.ik.<lk.dk Jk.dk.dk félagsmanna afslœttinum lýkur 3. desember Vöruhús Byggingavörudeild (valdír vöruflokkar) Raflagnadeild Hrísalundur kjallarinn : giida einni 0 4 ytan Akureyrar kjör á sömu vörum r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k r k ^r^r^r^r^r^r^r^r^r^r^ir^r^r^r^r^r^r^r^r^r^r^r^r^r^r^r^r

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.