Dagur - 02.12.1994, Qupperneq 3
•, r%r> *•
r-t I I
Föstudagur 2. desember 1994 - DAGUR - 3
FRETTIR
Þrýst á að hrefnuveiði verði leyfð á ný:
„Hótanir Greenpeacemanna
ekkert annað en orðagjálfur“
- segir Gunnlaugur Konráðsson á Árskógsströnd
Gunnlaugur Konráðsson á Ár-
skógsströnd, sem stundaði m.a.
hrefnuveiðar fyrir Norðurlandi
allt þar til þær voru bannaðar,
segir að enginn virðist gera sér
grein fyrir því hversu gífurlegt
fiskmagn hrefnunar éti og því
síður það magn af seiðum sem
þær innbyrði. Gunnlaugur segir
Fyrirtækiö Indís stofnað
á Akureyri:
Indverskur
matur úr eld-
húsi Surekhu
Á Akueyri hefur verið stofnað
fyrirtæki sem framleiðir ind-
verskan mat. Eigandi fyrirtækis-
ins, sem ber nafnið Indís, er
Surekha Datye og er ætlunin að
þjónusta einstaklinga jafnt sem
smærri fyrirtæki.
Á Islandi hafa sprottið upp á
síðustu árum veitingahús af ýms-
um þjóðemum þar sem hægt er að
velja á milli fjölbreyttrar mat-
reiðslu. Með tilkomu fyrirtækisins
Indís gefst Akureyringum og ná-
grönnum tækifæri á að njóta ind-
verks lostætis en fyrirtækið mun
framleiða indverska rétti.
Surekha Datye, eigandi Indís,
hefur búið á Akureyri í fjórtán ár.
Hún er indversk að uppruna, kem-
ur frá Nýju Dehli á Indlandi. Hún
hefur haldið námskeið í indverskri
matargerð í nokkur ár við mjög
góða aósókn. Síðastliðió vor sótti
hún námskeið í stofnun og rekstri
smáfyrirtækja hjá Iðnþróunarfé-
lagi Eyjafjarðar með þaó í huga að
vinna að uppbyggingu eigin fyrir-
tækis, sem nú hefur litið dagsins
ljós.
Markmiðió með framleiðslu
Indís er að mæta fjölbreyttum
kröfum neytenda meó því að
bjóða upp á grænmctis- og bauna-
rétti, auk fisk- og kjötrétta.
Ur elhúsi Surekhu er áformað
að bjóða minni fyrirtækjum þjón-
ustu með hádegisverðartilboðum
fyrir starfsfólk. Hægt verður að
velja á milli þriggja rétta í senn og
verða þeir sendir heim. Jafnframt
þessu er ætlunin aö bjóða upp á
veisluþjónustu fyrir minni veislur.
Þá gefst fólki sem vill prófa eitt-
hvað nýtt tækifæri til þess að kitla
bragðlaukana með framandi rétt-
um. Námskeiðahald Surekhu fyrir
minni hópa veröur áfram í boði.
Fyrirtækinu Indís hefur verið
búin aóstaða í Suðurbyggð 16.
JÓH
Þórir Einars-
son skipaður ríkis-
sáttasemjari
Félagsmálaráðherra hefur skip-
að Þóri Einarsson, prófessor, í
embætti ríkissáttasemjara, að
höfðu samráði við Alþýðusam-
band íslands, Vinnuveitenda-
sarnband íslands og Vinnumála-
samband samvinnufélaganna.
Skipunin gildir til næstu fjög-
urra ára, frá 1. janúar nk. en þá
lætur Guðlaugur Þorvaldsson af
embætti vegna aldurs. Alls sóttu
10 manns um stöóu ríkssáttasemj-
ara. KK
að fjöldi hrefna hafi aukist gíf-
urlega á undanförnum árum og
segir að þær lágmarkstölur sem
Hafrannsóknastofnun hafi gefíð
út eftir hvalatalningu nýverið
séu svo lágar að ekki nokkur
sála leggi trúnað á þær.
Hafrannsóknastofnun hafi gef-
ið út aó 28 þúsund hrefnur væru
við landið en nær sé að tala um
a.m.k. 100 þúsund hrefnur. Gunn-
laugur segir að því sé þrýstingur á
stjórnvöld um að hrefnuveiðar
verði leyfðar á ný mjög mikill.
Afurðirnar yrðu fyrst í stað seldar
á innnanlandsmarkaði en þetta
yrði skref í þá átt að hvalveiðar
hefjist aftur hér vió land.
„Alþjóóa hvalvcióiráðið fékk
þessar tölur í millitíðinni og þar
var talan skorin niöur um nokkra
tugi prósenta en allar umræður og
yfirlýsingar kringum hvalinn eru
svo ruglingslegar og villandi að
ekki er hægt að henda reiður á
einu eða neinu. Hjá Alþjóða hval-
. veiðiráðinu er mikið lið sem hugs-
ar ekki um annað en að friða hval-
inn. Norðmenn hafa veitt hrefnu
sl. tvö ár og fengið að gera það
óáreittir enda eru efndir Green-
peacemanna ekkert annað en
orðagjálfur. Islendingar sam-
þykktu hvalveiðibann 1985 en
hófu vísindaveiðar árið 1986 í
berhöggi við almenningsálitið í
heiminum og fengu alla gegn sér.
Norðmenn studdu okkur ekki einu
sinni. Nú eigum við að hefja veið-
ar áður en hvalirnir hafa étið allan
þorskinn frá okkur,“ segir Gunn-
laugur Konráðsson á Árskógs-
strönd. GG
HLJOMSVEITILLUGA
auglýsir:
Fáðu hljómsveit sem fjör er í!
Spilum danstónlist viö allra hæfi.
Tökum einnig aö okkur að sjá um dinnertónlist og stjórnum
fjöldasöng á samkomum sé þess óskaö.
Allar upplýsingar gefa Þórarinn í heimasíma 41304, vinnusím-
um 985- 33803 og 40456, eða Sigurður í heimasíma 41072 og
vinnusíma 40436.
O Ð R U V I S I
ODDEYRINNI
Loksinsi!
OPNUM A MORGUN
Aðventan
boðar komu jólanna...
...og líka komu
Blómasmiðj unnar.
Ný g\2£'
,veg öðruví,.,-
og g]a^aNÍ
c\
vV
owfflíSSS00
l^MHÓUrKRW0*'
FRÁ K.R-
BLOMA
SMIÐJAN
STRANDGOTU 37 - SIMI 1 3040