Dagur - 14.12.1994, Blaðsíða 19

Dagur - 14.12.1994, Blaðsíða 19
MINN 1 NG Miðvikudagur 14. desember 1994 - DAGUR - 19 Katrín Falsdóttir Fædd 24. september 1954 - Dáin 3. desember 1994 Mig langar að minnast meó nokkrum oróum Katrínar Falsdótt- ur er andaóist 3. des. síðastliðinn. Okkar kynni hófust á Hjúkrunar- heimilinu Skjóli þar sem viö störf- uðum á sömu deild. Katrín var mjög sérstæður persónuleiki og áttu listamannshæFdeikar hennar ekki hvað síst þátt í því. Hún hafði mikila sköpunarþörf og hannaði svo margt sem okkur hinurn haföi ekki komið til hugar að reyna. Ég minnist þess hve góð hún var við þá sem minna máttu sín. Næstum var það einstakt hversu vel Katrín gekk frá vistfólki fyrir svefninn á kvöldin og hve vistarverur sem hún sá um báru merki um mikla snyrtimennsku og reglusemi í hví- vetna. Ég man hve hún hafði gam- an af aó koma og gleójast í góðra vina hópi og hve hún lék þá á als oddi. En hún var ekki heldur allra og það vissum við sem hana þekktum. Þann 24. september síö- astliðinn varó Katrín fertug og var hún þá komin heim af sjúkrahús- inu í nokkra daga. Það var mikil ánægjustund hjá henni og okkur átta fyrrum vinnufélögum hennar. Við þcssi gamli hópur, komurn allar saman hjá Sólborgu og áttum við þar yndislega stund í gleði augnabliksins. Þó við vissum allar hvert stefndi og ekki síst hún. Þctta var stund sem ég veit að engin okkar hefði viljað nrissa af og verður okkur ógleymanleg. Þann 3. október fór svo Katrín aft- ur á kvennadeild Landspítalans og var þar til yfir lauk. Katrín mín. Ég vil fyrir hönd okkar Asdísar, Sólborgar, Stein- unnar og Heiðu biðja góóan Guð urn að varðveita þig um alla eilífð og þakka þér fyrir góða og ánægjulega samfylgd. Kristín Stefánsdóttir. Félag eldri borgara á Siglufirði: Aldraöir og öryrkjar lýsa kröfum sínum Á félagsfundi í Félagi eldri borg- ara á Siglufirði, þann 20. nóvem- ber sl., las formaður bréf frá Landssambandi aldraðra, þar sem kynnt er á hvern hátt staðið er aö því að vekja athygli á kjaramálum aldraðra. I upphafi bréfsins segir svo: „Félög eldri borgara eru hagsmunafélög fólks sem komið er á eftirlaunaaldur eða farið að huga að þeim breytingum, sem fylgja því aldursskeiði. Þó er nú gert ráð fyrir því aó hagsmuna- gæslan sé nokkuð með öðru sniði en hjá hefðbundnum verkalýðs- eða starfsmannafélögum. Verkefni eru fjölbreyttari og breytileg eftir aðstæðum á hverjum stað. Segja má að ekkert málefni sé félögun- urn óviðkomandi ef það snertir hagsmuni aldraðra. Á síðustu misserunt hafa þó stjórnvöld séð til þess með aógerðum sínum að kjarabaráttan, einkum hjá lands- sambandinu, hefur veriö togstreita um laun líkt og hjá verkalýðsfé- lögunum. Samstarf Oryrkjabandalags Is- lands og Landssambands aldraóra hófst með stofnun Samstarfs- nefndar í nóvember 1993 og gerö hefur verið grein fyrir í fréttabréfi áður. Það samstarf er ótvírætt merkur áfangi í samstarfi þessara samtaka og á væntanlega eftir að skila báðum þessurn landssam- böndurn góóum árangri í réttinda- og kjarabaráttu þessara fjölmennu samtaka. Um næstu áramót eru allir kjarasamningar lausir og nýir samningar því í undirbúningi. Stjórn Landssantbands aldraóra vildi fylgjast með undirbúningi samninganna frá byrjun og óskaði eftir fundi í Samstarfsnefndinni, sem einnig er skipuð fulltrúum frá stærstu landssamböndum laun- þega í landinu. Sá fundur var haldinn 6. sept- ember og var þar ákveðið að Landssamband aldraðra og Ör- yrkjabandalagið tækju saman þau atriði í kjaramálum lífeyrisþega sem helst bæri að leggja áherslu á í tengslum viö kjarasamninga launþega.“ Kjarasamningar framundan Áhersluatriði aldraðra og öryrkja með tilliti til væntanlegra kjara- samninga í upphafi nýs árs eru þessi helst: 1. Að skattleysismörk verði hækkuð verulega frá næstu ára- mótum. Tekjutapi ríkissjóðs verði mætt nreð nýju skattþrepi á há- tekjur og nteð fjármagnstekju- skatti. 2. Eingrcióslur skv. samning- um aðila vinnumarkaðarins skili sér að fullu til lífeyrisþega. Or- lofsgreiðslur og desembergreiðsl- ur verði greiddar út sem prósenta af grunnlífeyri, en láglaunabótum og viðskiptakjarabótum verði var- ið til hækkunar á grunnlífeyri, sem greiddur er mánaðarlega. Ekki verði rofin tengsl launaþró- unar almennt og bótafjárhæða til lífeyrisþega. 3. Tvísköttun á greiðslur úr líf- eyrissjóðum verði afnumin. Greiðslur í lífeyrissjóði verði viö- urkenndar sem sparnaðarform og fái skattalega meðferó vió út- greiðslur til lífeyrisþega sam- kvæmt því. Sett verði hið fyrsta heildarlöggjöf um starfsemi lífeyr- issjóða í landinu og staða þeirra og hlutverk í Iífeyris- og trygg- ingakerfi þjóðfélagsins skilgreint. Greiðslur einstaklinga inn á sér- eignareikninga leysi engan frá þcirri skyldu að greiða lögboðið framlag inn í lífeyrissjóð sem starfar innan laganna. 4. Að húsaleigubætur komi til framkvæmda í öllurn sveitarfélög- urn frá næstu áramótum, en tillög- um fjármálaráðherra um fjár- mögnun þeirra með sparnaði í tryggingakerfinu og lækkun lána í félagslega íbúðakerfinu er ein- dregió mótmælt. 5. Að Framkvæmdasjóður aldr- aóra og Framkvæmdasjóóur fatl- aóra sinni eingöngu sínum upp- hafiegu hlutverkum, en verði ekki notaðir til rekstrarvekefna. 6. Tekið verði af fullri alvöru á því siðleysi í þjóðfélaginu sem skattsvik cru. Kröfur á Heilbrigðisráðuneytið 1. Tryggingastofnun ríkisins greiöi áfram þau læknisvottorð sem fólki er nú ætlað að greiða sjálft enda er það stofnunin sjálf sem krefst þessara vottorða. 2. Endurgreiðslur tannlækna- kostnaðar verói færðar til fyrra horfs og ekki krafist fullrar tekju- tryggingar til hámarks endur- greiðslu, þar sem greióslur úr eig- in lífeyrissjóðum skerða oft tekju- trygginguna. 3. Hjálpartækjamál Trygginga- stofnunar ríkisins verði tekin til gagngerrar endurskoðunar með fullri aóild samtaka fatlaðra og aldraðra aó þcirri endurskoðun. Kröfur um aukin réttindi samtakanna 1. Öryrkjabandalag Islands og Landssamband aldraðra fái fulla aðild að Tryggingaráói, þar sem viöfangsefni ráðsins varða þessa tvo hópa. 2. Áð stofnuð verði samráðs- nefnd fulltrúa frá Landssambandi aldraðra og Öryrkjabandalagi Is- lands, ásamt með fjármálaráð- herra, félagsmálaráöherra og heil- brigðis- og tryggingamálaráð- herra. Nefndin hafi með höndum samskipti ráðuneytanna vió fyrr- greind samtök einkum þegar kjarasamningar eru til meóferðar. Halda skal fundi í nefndinni þegar tilefni er til og eigi sjaldnar en einu sinni á ári. 3. Að Landssamband aldraðra fái aðild að samstarfsnefnd unt málefni aldraðra. Einar M. Albertsson, Sigiufirði. Frævun með hunangs- ílugum í gróðurhúsum - kynningarfundur Garðyrkjuskólans Garðyrkjuskóli ríkisins, Reykjum, Ölfusi heldur kynningarfund föstudaginn 16. desember nk. kl. 13.30. Éfni fundarins er „Frævun með hunangsflugum í gróóurhús- um á Islandi.“ Þetta er samstarfsverkefni Landbúnaðarháskólans í Kaup- mannahöfn, Garðyrkjuskólans, garðyrkjubænda og innflutnings- fyrirtækja þeirra. Verkefnisstjóri var dr. Kristján Kristjánsson, adj- unkt vió Landbúnaðarháskólann í Kaupmannahöfn og einnig vann Guðrún Lárusdóttir, líffræðinemi, að verkefninu og vann hluta þess scm 5 cininga rannsóknarverkefni við Háskóla Islands. Á Islandi finnast 3 tegundir hunangsflugna og er ein tegund- anna einmitt sú tegund sem mest er notuð til frævunar á tómata- plöntum í Evrópu. Tegundin korn til landsins uppúr 1970 og hefur þegar náð að breiðast út urn nær allt land. Úr frénalilkynningu í hádeginu og öll kvöld til jóla bjóðum við hlaðborð á danska vísu Verð aðeins kr. 1.200.- Jólakaffihlaðborð alla sunnudaga. við Leiruveg Borðapantanir síma 21440. ????7??7?7???777??777777??7??7?7??7 7 ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? 7 ? Föstudags- og laugardagskvöld okkar stórglæsilega jólahlaðborð yfir 50 tegundir rétta 7 ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? 7 7 ? ? ? ? ? ? 7 7 ? ? ? ? ? ? ? 7 ? ? ? 7 ? 7 ? ? 7 ? ? ❖ Jólatilboð á snittum, smurðu brauði, brauðtertum og rjómatertum til verslana, fyrirtækja og stofnana. ❖ Karl Olgeirsson leikur jólalögin af fingrum fram ❖ ? 7 ? ? ? 7 7 ? 7 ? 7 ? 7 ? 7 ? 7 ? ? ? ? Nánari upplýsingar og pantanir í síma 22200. ? 7 ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? 7 7 ? 7 7 ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ?7??7?????????77??7?7?????????7??7?

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.