Dagur - 16.12.1994, Blaðsíða 1
Tónaflóð í Skjaldarvík
Sú hefð hefur skapast á undanfórnum árum að Kiwanisklúbbur-
inn Kaidbakur á Akureyri í samvinnu við nemendur Tónlistar-
skólans á Akureyri standi fyrir tóniistaruppákomu á dvalar-
hcimilum aldraðra og Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Síð-
degis í gær spiluðu nemendur Tónlistarskólans fjölbreytta tónlist
fyrir heimilisfólk á Vistheimilinu Skjaldarvík í Glæsibæjar;
hreppi þar scm Ijósmyndari Dags tók mcðfylgjandi mynd. I
kvöld kl. 19.30 taka nemendurnir lagið fyrir heimilisfólk á Dval-
arheimilinu Hlíð á Akureyri, á morgun kl. 13.30 fá sjúklingar og
starfsfólk FSA að njóta tónlistarflutnings þeirra og sömulciðis
verður spilað fyrir heimilisfólk á Seli. A sunnudaginn kl. 13.30
liggur leið nemenda Tónlistarskóians á Kristnesspítala þar scm
spilað verður fyrir sjúklinga og starfsfólk. óþh
Stofnfundur Ferðamálafélags Norðausturhornsins:
Stórt svsði sem
hefur mikið að bjóða
- segir Stefán Jónsson, Atvinnuþróunarfélaginu
Stofnfundur Ferðamálafélags
Nprðausturhornsins var
haldinn á Þórshöfn sl. miðviku-
dagskvöld. Á fundinum voru
kynnt drög að samþykktum fyr-
ir félagið. Skipuð var átta
manna bráðabirgðastjórn sem
falið var að útfæra samþykkt-
irnar fyrir febrúarlok og leggja
þær fyrir fyrsta félagsfund, en til
þess tíma er hægt að gerast
stofnaðili. Gunnlaugur Júlíus-
son, sveitarstjóri á Raufarhöfn,
var kjörinn formaður bráða-
birgðastjórnarinnar.
Fulltrúar sveitarfélaga á svæð-
inu frá Tjömesi að Hellisheiði
mættu á fundinn og skiptust á
skoðunum um möguleika svæóis-
ins og hvernig uppbygging félags-
ins mætti vera svo það yrði virkt.
Líflegar umræður urðu á fundin-
um og komust 18 manns á mæl-
endaskrá.
Stefán Jónsson, framkvæmda-
stjóri Atvinnuþróunarfélags Þing-
eyinga, mætti á fundinn og ræddi
tengsl hins nýstofnaða félags við
ferðamálafulltrúa, sem mun verða
ráðinn til Atvinnuþróunarfélagsins
í næstu viku. Um stöðu hans hafa
borist 17 umsóknir.
Stefán sagði að stofnun ferða-
málafélagsins væri þarft málefni.
Félagssvæóið væri stórt, með
óspilltri náttúru og hefði mikið að
bjóða. Alfaraleió ferðamanna
hefði ekki mikið legið um þetta
svæði fram aó þessu. IM
Sambandsstjórn Sjómannasambandsins:
Vill ekki í kjaraviðræður
- önnur samtök Ijúki samningagerðinni
Síðari umræða um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar nk. þriðjudag:
Framkvæmdir við Sund-
laug Akureyrar í bið
- víkja fyrir einsetningu grunnskólans norðan ár
Fjárhagsáætlun Bæjarsjóðs
Akureyrar kemur til síðari
umræðu í bæjarstjórn næstkom-
andi þriðjudag. Á fúndi í bæjar-
ráði í gær voru lagðar fram
breytingartillögur við frumvarp-
ið þar sem m.a. er stefnt að 15
milljóna króna sparnaði með
rekstrarhagræðingu og þær fela
einnig í sér að frekari fram-
kvæmdum við Sundlaug Akur-
eyrar verður frestað. í tillögum
frá fulltrúum minnihlutaflokk-
anna í bæjarstjórn er m.a. lagt
til að aflað verði nýrra tekna frá
Rafveitu Akureyrar og að Fram-
kvæmdasjóður selji af hlutbréf-
um sínum til að bæta stöðu sína.
Fyrrnefndum spamaði leggur
bæjarráð til að verði m.a. náó með
endurskoðun á launakostnaói hjá
einstökum deildum, endurskoðun
nefndakerfis, endurskoðun inn-
kaupa á rekstrarvörum, end-
urskoðun á rekstri skóladagheim-
ila og fleiru. Lögð er til hækkun
skatta af fasteignum, hækkun
framlags til leikskóla í
einkarekstri, hækkun á launalið
Tónlistarskólans og hækkun á við-
haldsfé Sundlaugar Akureyrar,
svo dæmi séu tekin.
Af gjaldfærðri fjárfestingu
renna mestir fjármunir til gatna-
og holræsagerðar, eða rúmar 70
milljónir og til íþrótta- og tóm-
stundamála 13,5 milljónir, þar af
óskipt 10 milljónir.
Hvað varðar eignfærða fjárfest-
ingu, að upphæð samtals rúmar
190 milljónir króna renna mestir
fjármunir til fræðslumála, 83
milljónir króna, og til Leikskólans
við Kiðagil, 50 milljónir.
Sigríður Stefánsdóttir, Alþýðu-
bandalagi, og Sigurður J. Sigurðs-
son, Sjálfstæðisflokki, leggja bæói
fram tillögur við síðari umræðu
um fjárhagsáætlun. I tillögum Sig-
ríðar er lagt til að afla 16,5 millj-
óna króna tekna í bæjarsjóð með
2% afgjaldi af eigin fé Rafveitu
Akureyrar á næsta ári og að hækk-
un veröi m.a. á framlagi til
Menntasmióju kvenna, embættis
jafnréttis og fræðslufulltrúa og
gjald- og eignfærðra fjárfestinga
vegna fræðslu-, félags- og ntenn-
ingarmála. Þá leggur Sigríður til
hækkun á framlagi í Fram-
kvæmdasjóð upp á 10 milljónir
króna og að fé verói lagt til ritunar
Sögu Akureyrar.
í tillögu Siguröar J. Sigurðs-
sonar, Sjálfstæðisflokki er einnig
lagt til að Rafveitu Akureyrar
verði gert að greióa árlegt fjár-
framlag sem arð af starfsemi sinni
og renni það í Framkvæmdasjóð.
Lagt er til að framlagið verði 20
milljónir á næsta ári. Þá leggur
Sigurður til sölu á hlutabréfum
Framkvæmdasjóðs fyrir allt að
100 milljónir króna til að greiða
vaxtakostnað sjóðsins og lækka
skuldir hans. JOH
Guðmundur Örn Ingólfsson,
sjávarlíffræðingur og fram-
kvæmdastjóri Máka hf. á Sauð-
árkóki, er nýkominn frá Frakk-
landi eftir tveggja mánaða dvöl
þar. Hjá Máka hf. fer fram til-
raunaeldi með fisktegundina
barra, sem er hlýsjávarfískur.
í haust var hlutafé í Máka hf.
aukið verulega, en aukningin gekk
ekki sem skyldi, m.a. stóðu ekki
allir við gefin loforð um aukið
hlutafé eða nýtt. Félagið er nú
orðið almcnningshlutafélag, rneð
12 til 13 milljóna króna hlutafé,
en stærsti einstaki hluthafi er
Sauðárkróksbær. Von er á 100
þúsund barrahrognum frá Frakk-
landi eftir áramótin en fyrir eru í
stöóinni 2.300 fískar. Fyrstu fisk-
arnir koma á markaðinn á Jóns-
messunni 1995, ekki mikið magn,
því fiskarnir eru enn hluti af rann-
sóknarverkefni vegna hlýsjávar-
eldis hérlendis. Hrognin sem
Iályktun sambandsstjórnar-
fúndar Sjómannasambands
íslands segir að þar sem kjara-
samningur sá sem undirritaður
var milli SSÍ og LÍÚ þann 22.
september sl. var felldur af LÍÚ
á þeirri forsendu að nokkur að-
ildarfélög SSÍ hafí fellt hann,
standa sjómenn enn sem fyrr
samningslausir þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir til að ljúka mál-
inu.
Einstök aðildarfélög SSÍ felldu
samninginn vegna óánægju með
nokkur atriði hans en mest áhrif
koma eftir áramótin veróa orðin
söluvara eftir 20 mánuði, eða
haustið 1996, en þá verður sá físk-
ur um hálft kg. Þar sem ræktun
barra er enn á tilraunastigi er stöð-
in enn í sóttkví. Starfsmenn hjá
Máka hf. eru þrír í dag, en þeim
mun fjölga þegar eldið eykst, en
Eldi á hlýsjávarfiskinum barra fer
fram fyrir innan þcssar luktu dyr.
Mynd: GG
hafði þó áróður annarra samtaka
sjómanna gegn samningnum. I
ljósi þess telur sambandsstjórn
Sjómannasambandsins rétt að þau
samtök sýni nú í verki getu sína til
að ljúka samningagerðinni án
þátttöku Sjómannasambands ís-
lands. Sambandsstjórn SSI leggur
því til að SSI fari ekki í vióræður
um nýjan kjarasamning að svo
stöddu, en boðað verði til fundar
með formönnum aðildarféiaga í
janúarmánuói nk. Hvatt er til þess
að sjómannafélög afli sér verk-
fallsheimildar. GG
ekki er þörf á rýmra húsnæði
vegna starfseminnar í nánustu
framtíð. GG
Fyrirsjáanleg aukning í hlýsjávareldi á Sauðárkróki:
Um 100 þúsund barrahrogn
frá Frakklandi til landsins