Dagur - 29.12.1994, Blaðsíða 6

Dagur - 29.12.1994, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 29. desember 1994 ffí fréttum var þetta helst" - stiklað á stóru um poppviðburði ársins 1994 Nú í árslok er ekki úr vegi, svona til gamans, að drepa á nokkra af þeim viðburðum sem áttu sér stað í popp- og rokkheiminum árið 1994. Eins og gefur að skilja, er af svo miklu að taka að ekki er hægt að nefna nema örfá atriði og kannski gleymist eitthvað líka, sem að ósekju ætti að vera í stað annars. En það verður þá bara að hafa það, þó vonandi valdi það engum leiðindum. Notar umsjónarmaður hér síðan tækifærið og óskar lesendum gleðilegs nýárs. JANUAR - Björk Guðmundsdóttir hclt upp- teknum hætti frá liðnu ári, að sópa að sér viðurkenningum. Lesendur hins virta popprits Melody maker völdu Björku tóniistarkonu ársins 1993 og kusu jafnframt myndbandið við lagið hennar Human behaviour, það besta á árinu. Þetta reyndiist vera fyrirboði frekari afreka hjá söngkonunni „okkar“. Átti Björk síð- an samkvæmt lista MM, best seldu „óháðu“ plötuna 1993, Debut. - Ensku þungarokkaramir vin- sælu í Iron maiden, staðfestu loks það sem lengi hafði legið í loftinu, aó Blaze Bayley, áður söngvari í Wolfsbane, yrði eftirmaður Bruce Dickinsons í hljómsveitinni. - Gítarleikari Faith no m more, bandarísku sveitarinnar sérstöku, Jim Martin, var að undangengnum vangaveltum, rekinn úr hljómsveit- inni. - Harry Nilson söngvari og höf- undur vinsælla laga á borð við Ev- erybody’s talking og Without you, andaðist um miðjan mánuðinn, tæp- lega 53 ára að aldri. - Eftirlifandi Bítlamir þrír, Ge- orge, Paul og Ringo, neituðu sögu- sögnum um að þeir ætli að koma fram aftur sem Bítlamir. Hins vegar komu þeir saman í hljóðveri til að vinna efni fyrir heimildarmyndina The long and winding road. - Markverðar plötur sem litu dagsins ljós í mánuöinum voru m.a. Jar of flies með Alice in chains, Hips and makers með Kristin Hersh, An- tenna með ZZ top, Under the pink með Tori amos, Whiskey for the holy ghost með söngvara Screaming trees, Mark Lanegan, og dansplötumar, D:ream on volume one með D:ream og Dubnobass- withmyheadman með Underworld. - Hér heima á Fróni gerðist það m.a. í ársbyrjun að Sigga Beinteins kom fram með nýja hljómsveit, sem síðar fékk nafnið Nl+. Verslunar- skólanemar fmmsýndu Jesus Christ Superstar og birt var yfirlit yfir best seldu íslensku plötumar frá liðnu ári. Þar tróndu Kiddi Konn og Bubbi á toppnum í 1. og 2. sæti. FEBRÚAR - Sá poppviðburður sem íslending- um finnst örugglega vera merkileg- astur frá árinu 1994, átti sér stað að kvöldi hins 14. Björk stal þá senunni við afhendingu bresku poppverð- launanna og hlaut bæði þau verðlaun sem hún var tilnefnd til, sem besta alþjóðlega söngkonan og skærasta alþjóðlega nýstimið. - Alvaran, ný hljómsveit með Grétar Örvarsson í fararbroddi, kom fram í dagsljósið undir nafninu A*l- varan. Bæði Alvaran og Nl+, hljóm- sveit Sigríðar Beinteinsdóttur, áttu svo lög á safnplötum sumarsins, en lögðust síðan af með haustinu. - Árið virtist ætla að fara vel af stað hjá Seattlerokkrisunum í Nir- vana. Miðar seldust upp á örskömm- um tíma á fyrirhugaóa tónleikaröó hljómsveitarinnar í Bretlandi og ákveðið var í byrjun mánaðarins, að hún verói í fararbroddi í Lollap- alooza tónleikaferóinni miklu um Bandaríkin um sumarið. Annað verra átti hins vegar eftir að koma á dag- inn. - Meðal góðra platna sem út komu í mánuðinum voru Troubleg- um með Therapy?, Tiger bay með Saint Etienne, Brave með Marillion, Kerbdog með samnefndri nýrri sveit frá Leeds, Gct a lilife með löndum Therapy?, Stiff little fingers og Gauragangur, plata með tónlistinni úr samnefndu leikriti eftir Ólaf Hauk Símonarson, samin og flutt af Ný dönsk. - Doningtonrokkhátíðin fræga kom úr eins árs fríi og var ákveðið að hún yrði í byrjun júní. Aðalhljóm- sveit var þegar ákveðin Aerosmith. Raunin varð sú að hátíðin tókst mjög vel. MARS - Kurt Cobain leiðtogi Nirvana reyndi að taka líf sitt á hóteli í Róm að morgni fjórða dags mánaóarins. Lífi hans var naumlega bjargað og ekki er vitað betur en allt hafi verið gert til að hjálpa honum á réttan kjöl í framhaldinu. En... - Mötley crue, ein af stærstu sveitunum í bandaríska rokkinu, sendi frá sér nýja samnefnda plötu, sem miklu var búist við af. Hún fór líka vel af stað í sölunni, en það reyndist skammgóður vermir. Datt salan fljótlega niður og tónleikaferð til aó fylgja henni eftir fór líka í vaskinn. Þetta leiddi síðan til þess að útgáfufyrirtækið Elektra lét sveitina „flakka" nú í árslok. - Bubbi Morthens boðaði að næsta plata, sem koma ætti út síóar á árinu verði rapp- og reggaeplata. - Fyrstu merki um að íslensk vor- útgáfa væri í nánd voru nokkrar safnútgáfur, m.a. Reif í tólið og Heyrðu aftur. - Sögusagnir um endurkomu Zeppelin komust enn á ný á kreik. í þetta sinn reyndist sá fótur fyrir þeim að þeir Plant og Page hófu samstarf að nýju. Utkoman varð sú að platan No quarter kom frá þeim undir lok ársins. Fékk hún ágætis viðtökur. - I lok mánaðarins sigruðu ný- bylgjustrákamir í Maus í Músíktil- raunum Tónabæjar. - Plötur mánaðarins voru margar hverjar ekki af verri endanum og sumar með þeim bestu sem út komu á árinu s.s. Superunknown með So- undgarden, Brutal youth með Elvis Costello and the attractions, Vaux- hall and I með Morrissey, Mellow God með Beck, Give out but don’t give up með Primal scream, Com- forter meó One little indiansveitinni Compulsion The downward spiral með Ninc inch nails, Far beyond dri- ven með Pantera og August and ev- erything after með óþekktri sveit, Counting crows. Hún varö það hins vegar ekki lengi og platan telst vera mcð þeim athyglisverðari frá nýlið- um á árinu. APRÍL - Kurt Cobain steig skrefið til fulls og svipti sig lífi meó því aó skjóta sig í höfuðið með haglabyssu. I kjöl- farið fór rokkheimurinn á hvolf og er vart ennþá nú í árslok búinn að jafna sig. Meðal annars fékk dauði Coba- ins svo mjög á söngvara Pearl jam, Eddie Vedder, að hann lýsti því yfir á tónleikum skömmu eftir voða- verknaðinn, aö þetta gæti orðið hans síðasta á sviði. Kappinn jafnaði sig þó fljótlega og hélt áfram af fullum krafti. -1 Bretlandi töldu menn að í upp- siglingu væri nýtt pönktímabil, sér- staklega með tilliti til sveitarinnar SMASH. Eitthvað varð þó minna úr því á árinu, en í Bandaríkjunum varö hins vegar aldeilis pönksprenging með sveitum á borð við Green day og Offspring, sem seldu plötur sínar flestum að óvörum í milljónum ein- taka á árinu. - 25 árum eftir að Woodstock tónlistarhátíðin skók heimsbyggðina, þótti mönnum kominn tími til aö endurtaka leikinn. Raunar voru fleiri en einn aóili um hituna, en svo fór að sú sem með réttu kallast Wood- stock 2 og haldin var í fyrra hluta ágúst, heppnaðist mjög vel. - Ein plata öðrum fremur vakti athygli í útgáfu mánaðarins, the di- vision bell með rokkjörlunum í Pink Floyd. Fóru Dave Gilmour og félag- ar mikla sigurför um heiminn með plötuna. Aðrar sem nefna má eru m.a. Let love in með Nick Cave, Parklife með Blur, Crash boom bang með Roxette, Our town, safnplötu og jafnframt svanasöng hinnar skosku Deacon blue, How to make frien með Terrorvision, A night in San Fransisco með Van Morrison og Blues með Jimi Hendrix. MAÍ - Rokkfyrirbærið Þrettán, öðru nafni Hallur Ingólfsson og fylginautar, sendu frá sér verkið Salt, föstudag- inn 13. maí. - Óþekktir kanadískir kráarraul- arar kváðu sér hljóðs, en sögðu þó ekki meira en Mmm, mmm, mmm, mmm til að byrja með. Það dugði hins vegar meira en nóg til að afla þeim gríðarlegra vinsælda og gera þá að nýliðum ársins meó aðra plötuna sína, God shuffled his feet. Sveitin er Crash test dummies. - Rokkrisamir í Whitesnake snéru aftur með nýjan gítarleikara, Warren De Martini, í stað Steve Vai. Safnplata með vinsælustu lögum þeirra var síðan gefin út um sumarið, sem fékk þokkalegar viðtökur. Ný plata mun vera væntanleg frá „Is- landsvinunum" á nýju ári. - Plötur sem vöktu athygli eru m.a. samnefnd með Dos pilas, Aro- und the next dream, með BBM, Jack Bruce og Ginger Baker úr Cream sálugu og Gary Moore, Strange ple- asure með Texasblúsrokkaranum Jimmy Vaughan, I say, I say, I say með Erasure og Last of the indepen- dents með Chrissie Hynde og Preten- ders. JÚNÍ - Pláhnetan gaf út sína aðra plötu á fyrsta degi mánaðarins. Hún vakti einna mesta athygli fyrir útlitið, með meðlimi sveitarinnar vafða inn í plast. Plast er einmitt heiti verksins og markaði upphafið af miklu út- gáfuflóði í lýðveldisafmælismánuð- inum. íslandslög 2 og íslandsklukkur eru dæmi um plötur sem koma út með beinni skírskotun til tímamót- anna, en einnig sáu dagsins ljós í mánuðinum tvær af vinsælli plötum ársins. Æöi með Vinum vors og blóma og Milljón á mann með Páli Óskari og Milljónamæringunum. - Ham, ein fræknasta rokksveit landsins, söng sitt síðasta þann 4. á tónleikum í Tunglinu. - Listahátíð var haldin í Reykja- vík og á hana komu bresku sveitimar Underworld og Saint etienne og héldu ágætistónleika. Einn af há- punktunum á hátíðinni voru tví- mælalaust tónleikar Bjarkar á bar- áttudegi kvenna, þann 19. Þar gerði hún sér m.a. lítið fyrir og söng allt á íslensku við mikla hrifningu. - í Noregi var leitt til lykta eitt af skugglegri málum sem tengst hafa rokkinu á seinni árum, þegar djöfla- rokkarinn Oysten Arseth var dæmd- ur í 21 árs fangelsi fyrir að hafa myrt annan slíkan og keppinaut í kvenna- málum, Varg Vikerness árið 1993. - Plötur sem settu svip voru m.a. Thc last temptation með Alice Coo- per, Real things með dansdúóinu 2 unlimeted, Purple með Stone temple pilots A date with the smitereens, Pomme Fritz með sveitinni The orb og samnefnd plata meö Edie Reader. - Kristen Pfaff bassaleikari í Hole, sveit Courtney Love, ekkju Kurts Cobain, svipti sig lífi röskum tveimur mánuðum eftir dauða Coba- ins. Var hún ein nánasta vinkona Lo- ve. JÚLÍ - Guns n’ roses komust enn eina ferðina í lréttimar og að venju var það ekki komið til af góðu. Virtist hreinlega upplausn ríkja í sveitinni, sem m.a. birtist í því að Axl Rose söngvari rak hinn tiltölulega nýtil- komna gítarleikara Gilby Clarke, 10 bestu íslensku plötur ársins 1994 1. Æ ...........................................Unun 2. Salt .........................................Xlll 3. Klæóskeri keisarans ...........................Kol 4. Kynjasögur .....................Kolrassa krókríðandi 5. Fuzz ..................................Jet black Joe 6. Allar kenningar heimsins ......................Maus 7. Spilaöu lagið ............................Mannakom 8. Dos pilas ................................Dos pilas 9. 3 heimar ...........................Bubbi Morthens: 10. BJF......................Bjöm Jörundur Friðbjörnsson Efnilegastar: Maus, Unun. 10 bestu erlendu plötur ársins 1994: 1. Superunknown ........................Soundgarden 2. Troublegum .............................Thcrapy? 3. Slippin’ in ..........................Buddy Guy 4. Monster .....................................REM 5. Vitalogy ............................. Pearljam 6. From the cradle.......................Eric Clapton 7. Neil Young & Crazy horse ........Slecps with angels 8. Strang pleasurc ..................Jimmie Vaughan 9. Dulcinea .....................Toad the wet sprocket 10. Hips and makers .....................Kritin Hersh Ömurlegasti viðburður ársins. Sjálfsvíg Kurts Cobain.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.