Dagur - 29.12.1994, Síða 9

Dagur - 29.12.1994, Síða 9
Fimmtudagur 29. desember 1994 - DAGUR - 9 Þriðjudaginn 27. desember, þriðja dag jóla, frumsýndi Leikfélag Akureyrar jóla- leikrit sitt, Ovæntá heimsókn, eftir J. B., Priestley í þýðingu Guðrún- ar J. Bachmann. Leikstjóri sýning- arinn er Hallmar Sigurðsson, Lýs- ing unnin af Jóhanni Bjama Pálmasyni, tónlist eftir Lárus Halldór Grímsson og leikmynd og búningar verk Helgu I. Stefáns- dóttur. Ovænt heimsókn hefur svip- bragð sakamálaleikrits, spennu þess og framrás. Þegar Birling fjölskyldan er að fagna trúlofun dótturinnar, samruna fyrirtækja með meiri gróóa og hagræðingu fyrir augum og bja.rta framtíó í vændum, ber að garði mann, sem kollvarpar öllum kringumstæðum. Hann rannsakar bakgrunn hvers manns og tengir hann átakanleg- um dauðdaga ungrar stúlku. Hann er þó ekki venjulegur rannsóknar- maður. Hann lítur framar öðru í hjörtun; flettir vægðarlaust ofan af hroka og sjálfbirgingshætti, leggur sjálfmótað stærilæti hinna sjálf- umglöðu í rúst og sýnir hverri per- Leikendur í lok vei heppnaðrar frumsýningar á Óvæntri heimsókn si. þriðjudagskvöid. Myndir: Robyn. Óvænt heimsókn sónu innri gerð sína. í marg- slungnum þræði verksins vekur höfundur í huga áhorfenda áleitn- ar spumingar um samhengi hlut- anna, um afleiðingar gerðanna, um fræið, sem sáð er og sem af sprettur greinamörg jurt; illgresi, sem spillir og eyðileggur. Hann beinir líka spjótum sínum að sið- ferði samfélagsins, gerð þess og mætum, af því að þetta yfirvegaða verk Priestleys er ekki einungis þrunginn og spennandi sakamála- leikur, sem heldur áhorfendum föngnum, heldur ekki síóur pólit- ískt verk; reyndar samið fyrir um hálfri öld, en enn verk, sem á er- indi í umfjöllun sinni um mann- legt félag, sekt þess og sakleysi. Umbúnaður verksins; leikmynd og búningar Helgu I. Stefánsdótt- ur og lýsing Jóhanns Bjarna Pálmasonar, er sérlega vel unninn. A áhrifaríkan hátt en þó einfaldan hefur leikmyndarhönnuðinum tek- ist að byggja hefðarmikinn sal á svið Samkomuhússins og gera hann þannig úr garði, að hann býður upp á mikla möguleika túlkunar og hrifa. Þessir rnögu- leikar eru undirstrikaðir og nýttir af natni og hugkvæmni í vandaðri lýsingu Jóhanns Bjarna. Fram koma fagrar myndir, sem ná há- marki í hrífandi örskotsleiftri í leikslok rétt í þann mund, að leik- arar eru kallaðir fram til þess að taka á móti fagnaðarklappi áhorf- enda. Tónlist Lárusar Halldórs Grímssonar er veigamikill þáttur í yfirveguðum umbúnaöi uppsetn- ingarinnar. Hún lætur ekki mikið yfir sér, heldur er í bakgrunni, en, eins og vera ber með góða leik- hústónlist, verkar hún með því, sem fram fer á sviðinu, fylgir því, og byggir upp. Höfundurinn bregður fyrir sig áhrifaríkum at- riðum, svo sem hjartslætti, þegar spenna eykst, risi og hnigi eftir því, sem atburðarásin segir fyrir um, og regnhljóði, þegar hinir seku leitast viö að hvítþvo sig. Inn í þennan ramma ganga leikararnir. Þráinn Karlsson í hlut- verki fyrirtækisrekandans, Athurs Birlings, Sunna Borg sem kona hans, Sybil Birling, Rósa Guðný Þórsdóttir í hlutverki dótturinnar, Sheilu Birlings, Dofri Hermanns- son sem sonurinn Eric Birling, Sigurþór A. Heimisson sem unn- usti dótturinnar, Gerald Croft, Bergljót Arnalds í hlutverki þjón- ustustúlkunnar Ednu, og Arnar Jónsson, gestaleikarinn í upp- færslunni, í hlutverki rannsókar- mannsins Goofle. Það er ekki auðvelt að gera upp á milli í frammistöðu þessa góða liðs listamanna. Hver fyllir sitt hlutverk af piýði. Þráni Karlssyni bregst ekki bogalistin í sjálfbirg- ingsskap upphafsatriðanna, vió- leitni sinni til vamar eöa sjálfs- upphafningu lokaatriðanna. Sunna Borg er tiginleg í hroka sínum, sjálfréttlætingu og afneitun þess að eiga nokkra sök. Örlítið betur hefói mátt huga að umskiptum persónunnar, þegar upp fyrir henni rennur samhengi hlutanna. Rósa Guóný Þórsdóttir gerir vel í gleði upphafsatrióanna, túlkun sektar sinnar og gagnrýninni á yfirdrepsskap hinna eldri, er að lokum dregur. Dofri hefur ekki gert betur í nokkru hlutverki sínu hjá Leikfélagi Akureyrar en í heild tekið vel unninni túlkun sinni á hinum drykkfellda auðnu- leysingja og liðleskju, Eric Bir- ling. Sigurþór A. Heimisson hefur í langflestu heildstæð tök á hinum aðalborna, verðandi tengdasyni, Gerald Croft, og nær verulegum styrk í lokaatriðum verksins. Bergljót Arnalds er prúðleg og ekta í hinu smáa hlutverki þjón- LEIKLIST HAUKUR Á6ÚSTSSON SKRIFAR ustustúlkunnar, sem kemur og fer hljóólát sem skuggi. Arnar Jóns- son er óhagganlegur og sterkur í hlutverki rannsóknarmannsins, sem rekur þræði fortíóarinnar og fellir þá saman í samfellda ásök- un, sem brýtur hvem af öðrum allt til leiksloka. Hlutur leikstjórans, Hallmars Sigurðssonar, í þessari uppfærslu er góður. Hann hefur stillt hraða sýningarinnar á rétt tempó. Hann teflir kyrrlátum atriðum mót öðr- um, sem búa yfir meiri hraða. Hann hefur skipað sviðshreyfing- um á áhrifaríkan hátt, sett upp stöður, sem efla verkið og skerpa skilin i ádeilu þess, og náó í heild að skapa ferli, sem þjónar tilgangi jafnt spennunnar sem uppgjörsins. Því miður fellur verkið þó lítillega Frumsýningargestir fagna leikurum og öðrum aðstandcndum Ovæntrar hcimsóknar. Kjarnafæði hf.: Ný deild sinnir veislu- og veitingaþjónustu - rekin undir nafninu Hldhús meistarans Innan fyrirtækisins Kjarnafæð- is hf. á Akureyri hefur verið stofnuð deild sem hóf starfsemi 1. desember sl. og verður rekin undir heitinu Eldhús meistar- ans, veislu- og veitingaþjónusta. Um er að ræða veisluþjónustu sem Valmundur Árnason, mat- reiðslumeistari, veitir forstöðu. Valmundur var áður mat- reiðslumaður í mötuneyti Slipp- stöðvarinnar-Odda hf. en Eld- hús meistarans hefur tekið við rekstri þess. Meginhluti starf- seminnar mun þó snúast um að annast veislur fyrir almenning og fyrirtæki, jafnt í hcimahús- um sem í veislusölum bæði á Akureyri og utan bæjarins. Valmundur sagði í samtali við blaðið aó Kjarnafæði hafi um nokkurt skeið annast sölu á matar- bökkum í hádeginu til fyrirtækja en ætli sér með þessari deild að fara „með fullri áhöfn" í veislu- þjónustu. „Það má segja að starfscmi okkar sé tvíþætt. Annars vegar er það veisluþjónustan, þar sem við ætlum okkur að sinna jafnt stærri sem minni veislum, bæði á Akur- eyri og um allt Norðurland. Þessi þjónusta verður fjölþætt því við komum til með að taka að okkur veislur í heimahúsum og hjá fyrir- tækjum en bjóða einnig upp á sali undir veislur fyrir þá sem á þurfa að halda. Hinn þáttur starfseminn- ar verður hádegisverðarþjónustan en auk mötuneytanna í hádeginu sendum viö um 80-100 matar- skammta í fyrirtæki út í bæ og ætlurn okkur í framhaldinu að efla þá þjónustu,“ segir Valmundur. Hjá Eldhúsi meistarans starfa nú þrír matreiðslumenn og verður starfsemin fyrst um sinn í eldhúsi Slippstöðvarinnar-Odda en hugað verður að öðru húsnæði í bænum þegar frá líður. Auk þessa nýtir Eldhús meistarans aðstöóu Kjarnafæðis, bæði á Akureyri og einnig nýja aðstöðu fyrirtækisins á Svalbarðseyri. Valmundur segir að í veislu- þjónustunni séu nokkrar sveiflur eftir árstíma. Nú fyrir jólin var rnikil eftirspurn eftir jólahlaóborð- um og í hönd fer annatími vegna þorrablóta, árshátíða og síðar ferminga, þegar nær dregur vor- inu. Valmundur segir nú þegar byrjað að panta vegna slíkra veislna. JÓH í lokaatriðunum eftir að rannsókn- armaðurinn er horfinn af vett- vangi. Þar veróa átökin annars eólis og fá annan svip sem ekki hefur tekist að móta nægilega vel til þess að alveg full samfella ná- ist. Það er skemmtilegt aó mega njóta listar Arnars Jónssonar í þessu verki. Hann gekk sín fyrstu skref á sviði í uppfærslu Leikfé- lags Akureyrar á Hans og Grétu í Samkomuhúsinu fyrir fjörtíu árum og leggur sannarlega sitt til þess að gera þessa aðra uppfærslu Leikfélags Akureyrar á Óvæntri heimsókn að því áhrifamikla verki sem hún er. Hún er á meðal þess besta, sem undirritaður hefur séð á sviði Samkomuhússins á Akureyri til þessa, og mun geymast í minni sem viðmiðun til framtíðar. Leikfélag Dalvíkur sýnir söngleikinn Land míns föður eftir Kjartan Ragnarsson Tónlist eftir Atla Heimi Sveinsson Leikstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir Tónlistarstjóri: Gerrit Schuil 17. sýning fimmtud. 29. des. kl. 21 18. sýning föstud. 30. des. kl. 21 Sýningar eru í Ungó og hefjust kl. 21 Miðasala kl. 17-19 sýningardaga í Lambhaga, sími 61900, og í Ungó eftir kl. 19 fram ab sýningu Tekið við pöntunum í símsvara í sama númeri allan sólarhringinn

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.