Dagur - 29.12.1994, Page 16
Akureyri, fimmtudagur 29. desember 1994
Harðsnúið lið
í þína þágu
Flutningur grunnskólans
frestast um a.m.k. eitt ár
- aö mati Einars Njálssonar, formanns Eyþings og bæjarstjóra á Húsavík
Sem kunnug er hefur staðið til
í nokkurn tíma að sveitarfé-
lögin taki að fullu yfir rekstur
grunnskólans frá ríkinu þann 1.
ágúst nk. Það sem bætist við er
einkum laun kennara og rekstur
fræðsluskrifstofu, sem er um
62% af rekstri grunnskólanna
miðað við árið 1993. Mörgum
þykir tíminn sem til stefnu er
skammur og efast um að um-
rædd dagsetnig fái staðist. Einn
af þeim er Einar Njálsson, bæj-
arstjóri á Húsavík og formaður
Eyþings - Sambands sveitarfé-
Iaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýsi-
um.
„Það eru mörg ef í þessu máli
ennþá og yfirtaka á þessum kostn-
aði sem eftir er, hangir auðvitað
saman vió tilfærslu tekjustofnanna
og að kjarasamningar vió kennara
verði frágengnir.“
- Er raunhæft að miða við upp-
haflejgu dagsetninguna?
„Eg hef enga trú á að það verði
búið að vinna þessa vinnu nægi-
lega snemma til þess aó það geti
átt sér stað. Ég tel að við séum að
tala um að fresta þessu a.m.k. í
eitt ár frá upphaflegu dagsetning-
unni.“
- Eru menn þá almennt farnir
að ganga út frá því í sinni vinnu?
„Ég skal ekki segja hvað
menntamálaráðherra er að hugsa í
því máli, en í hugum sveitarstjórn-
armanna almennt held ég að menn
séu alveg orðnir klárir á því, að
þessi yfirfærsla eigi sér ekki stað á
næsta ári. Sveitarstjórnarmenn
vilja hafa þessa tvo hluti sem ég
Stúlka fyrir bíl
Fjórtán ára stúlka varð
fyrir bfl á mótum Bugðu-
síðu og Teigasíðu á Akureyri
í gær.
Stúlkan var flutt á slysa-
deild Fjóróungssjúkrahússins á
Akurcyri en samkvæmt upp-
lýsingunt lögrcglunnar á Akur-
eyri voru meiðsl hennar ekki
talin alvarleg. óþh
nefndi áðan, tilfærsu tekjustofna
og samninga við kennara, alveg
klára áður en yfirfærslan á sér
staó,“ sagði Einar.
I skýrslu sem Eyþing lét vinna
kemur fram, að kostnaðarauki
sveitarfélaga í kjördæminu við
yfirtöku grunnskólans veröur sam-
tals a.m.k. 504 milljónir kr. Eru
sveitarfélögin afar misjafnlega í
stakk búin til að mæta þessum
kostnaðarauka og sé miðað viö að
auknum kostnaði vegna yfirfærslu
grunnskólans sé mætt með hækk-
uðu útsvari, þyrftu heildar útsvars-
tekjur sveitarfélagana í landshlut-
anuni að hækka um 31,5%. HA
Sjá nánar bls. 5.
LiðSmenn Hjálparsvcitar skáta sýna hér brot af því sem er á boðstólnum. Úrvalið á flugeldamörkuðunum er mikið
og þar ættu aliir að geta fundið citthvað við sitt hæfi. Mynd: Robyn.
Flugeldamir ódýrari en í fyrra
Flugeldasala er nú komin á
fulla ferð og hugsa eflaust
margir sér gott til glóðarinnar að
fagna nýju ári á viðeigandi hátt.
Á Akureyri eru stærstu flugelda-
markaðirnir, líkt og undanfarin
ár, á vegum Hjálparsveitar skáta
og íþróttafélagsins Þórs. Þar feng-
ust þær upplýsingar að talsverð
verðlækkun hefur orðið á flugeld-
unum frá því í fyrra, mismikil eft-
ir tegundum, en algengt er að vör-
ur séu 15-20% ódýrari.
Flugeldasalan er sem kunnugt er
ein aðal tekjulind björgunarsveit-
anna og Hjálparsveit skáta er með
fjóra sölustaði á Akureyri. Mesta
úrvalið er í bækistöðvum sveitar-
innar í Lundi við Skógarlund og á
Bílasölunni Stórholti, en einnig eru
söluskúrar við Hagkaup og verslun-
ina Hita, Draupnisgötu 2.
Fjölskyldupakkamir eru alltaf
vinsælir og af þeim er hægt að fá
fjórar stærðir. Sá ódýrasti kostar
1.300 kr. en sá dýrasti 6.400. Úrval-
ið af öðrum vömm er einnig geysi-
lega mikið. Rakettur og skotkökur
em til í öllum stærðum og kostó
stærstu rakettumar 3.600 og stærstu
kökumar 2.200. Þess má geta að í
kvöld verður glæsileg flugeldasýn-
ing á vegum Hjálparsveitarinnar
austan við Möl og sand.
íþróttafélagið Þór er meö sína
flugeldasölu í félagsheimilinu
Hamri. Helgi Pálsson, fram-
kvæmdastjóri félagsins, sagði að
fjölskyldupíikkamir væru mjög
vinsælir. Ódýrasti pakkinn er á
1.300 kr. og stærsti pakkinn kostar
5.500 kr. Síðan er að sjálfsögðu
mikið úrval af skotkökum, tertum
og rakettum, að ógleymdu smádót-
inu. Helgi sagói söluna komna vel
af stað, en þetta er í 6. sinn sem Þór
er með flugeldasölu og Helgi sagði
hana mikilvægan þátt í fjáröflun fé-
lagsins. „Ég hvet fólk til að versla
við aóila í heimabyggð og síðan vil
ég minna á glæsilega flugeldasýn-
ingu sem við verðum með á þrett-
ándanum á árlegri þrettándagleði
Þórs. Þess má geta að þeir sem
versla fyrir 3.000 kr. eða meira fá
mánaðarkort í líkamsræktina í
Hamri í kaupbæti. Ekki amalegt til
þess að ná af sér jólakílóunum.
Sölustaðir hjá báðum þessum
aðilum eru opnir frá kl. 10-22 í dag
og á morgun og 9-16 á gamlársdag.
HA
Bráðabirgðatolur um mannfjölda 1. desember sl.:
Kyrrstaða á Norðurlandi eystra
- sláandi fækkun í Hofshreppi, Mývatnssveit og Árskógshreppi
Aárinu 1994 hefur fólki fækk-
að á Norðurlandi vestra um
1,4% en tala íbúa á Norðurlandi
© VEÐRIÐ
Samkvæmt spá Veðurstofu
íslands verður nokkuð
hvöss norðanátt í dag og
éljagangur um norðanvert
landiö. Ekki ósvipaðan
„matseðil" er boðió upp á á
morgun - frost verður á bil-
inu 2-6 stig. Horfur eru á
góðu áramótaveðri. Spáð er
hægri, breytilegri átt á gaml-
ársdag og nýársdag. Frost
veróur 0-3 stig.
eystra stendur nánast í stað,
Qölgunin er 0,1%. Þetta kemur
fram í bráðabirgðatölum Hag-
stofu íslands um mannfjölda á
landinu 1. desember sl.
Samkvæmt þessum bráða-
birgðatölum Hagstofunnar var
mannfjöldi á landinu 266.786, þar
af voru karlar 133.784 en konur
133.002. Fjölgun frá árinu 1993 er
0,7% og hefur þessi tala á lýðveld-
istímanum sjaldan verið lægri. Það
er aðeins á árunum 1969-1970,
1977 og 1985 sem íbúafjölgun var
jafnlítil eða minni.
Hagstofan segir að svo virðist
sem tala aðfluttra til landsins verði
um 850 lægri en tala brottfluttra, en
tala fæddra 2.700 hærri en tala dá-
inna. Líklegt er að sem næst 4.450
böm fæðist á árinu og um 1.750
manns deyi. Bamsfæðingar verða
nær örugglega færri á þessu ári en
því síðasta. Til landsins flytjast um
2.700 manns en frá því um 3.550
manns.
Norðurland vestra
Samkvæmt bráðabirgðatölum Hag-
stofunnar em íbúar á Norðurlandi
vestra nú 514 færri en árið 1985. Á
Skagaströnd og Sauðárkróki varð
óvemleg fjölgun en annars fækkaði
fólki, mest á Siglufirði um 2,6%.
Ibúar þar em nú 1.734 en þegar
þeir vom flestir, árið 1948, voru
þeir 3.103. Á Blönduósi og
Hvammstanga hefur fólki fækkað á
þessu ári um 2%. Annars staðar á
landssvæðinu hefur fólki fækkað
um 15% á liðnum áratug.
Norðurland eystra
Fólki hefur fjölgað lítillega á Norð-
urlandi eystra á árinu en fólksfækk-
un hefur haldið áfram í strjálbýlis-
sveitarfélögum. Á Þórshöfn fjölg-
aði um 5,6% og á Akureyri um
0,8%. Fólksfjöldi stóð í stað í Ól-
afsfirði og á Húsavík og í Eyja-
fjarðarsveit en á Dalvík fækkað um
1,6%. Mikil fólksfækkun heldur
áfram í Grýtubakkahreppi og
Skútustaðahreppi. I Árskógshreppi
hefur íbúum fækkað um 7% á ár-
inu. óþh
Sjá nánar á blaösíðu 2.
Sjómannafélag Eyjafjaröar:
Krefst bóta
vegnaof
langrar útiveru
Stokksness EA
Síðasti veiðitúr togarans
Stokksness EA-410, eign
Stokksness hf. í Reykjavtk,
sem er í eigu Matvælaiðjunn-
ar Strýtu hf. á Akureyri, Sölt-
unarfélags Dalvíkur hf. og
Samherja hf, á Akureyri, stóð
frá 19. nóvember sl. til 22.
desember sl. en samkvæmt
kjarasamningum átti skipið
að vera inni í síðasta lagi 20.
desember. Skipið var á
rækjuveiðum og er aflinn ís-
aður um borð.
Sjómannafélag Eyjafjarðar
lagi fram kröfu um bætur sem
byggist á því að í kjarasamn-
ingum segir að vegna brota á
samingi beri útgeróinni að
greióa sekt í félagssjóð við-
komandi sjómannafclags.
Krafa sjómannafélagsins hljóð-
ar upp á kr. 248.080, en ef út-
geröin neitar aó greióa kröfuna
mun krafan afhent lögmanni
félagsins til innheimtu. I kröf-
unni var Stokksnesi hf. gefinn
frcstur til dagsins í dag aó
greiða kröfuna.
Þorsteinn Már Baldvinsson,
framkvæmdastjóri Samherja
hf., og jafnframt Stokksness
hf„ segir að frcsturinn hafi ver-
ið framlcngdur fram yfir ára-
niót og þá verði sest niður og
rætt við forsvarsmenn Sjó-
mannafélags Eyjafjarðar. GG
INNANHUSS-
10 lítrar
frá
kr. 3.990,-
0KAUPLAND HF.
Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565
RAFTÆKI
í MIKLU ÚRVALI
Vöfflujárn frá 4.880,-
Kaffivél frá 2470,-
0
KAUPLAND HF.
Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565