Dagur


Dagur - 03.01.1995, Qupperneq 1

Dagur - 03.01.1995, Qupperneq 1
78. árg. Akureyri, þriðjudagur 3. janúar 1995 í. töiublað PEYSUR SKYRTUR HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 Atvinnuleysi á Akureyri í ársbyrjun: Talsvert minna en á sama tíma í fvrra Um áramótin, eða í lok des- ember, voru 590 manns skráðir atvinnulausir hjá Vinnu- miðluninni á Akureyri. Atvinnu- lausum hefur Qölgað um 108 frá síðustu mánaðamótum. Þessi Friðsöm áramót á Norðurlandi Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar á Blönduósi, Sauðárkróki, Siglufirði, Ólafs- firði og Dalvík voru áramótin óhappalaus og friðsöm. Lögregl- an á Akureyri lét einnig vel af áramótahelginni, sem var að þeirra sögn rétt eins og hver önnur helgi hvað löggæsluna varðaði. Þó skemmtu bæjarbúar og gestir þeirra sér heldur lengur fram á morgun en almennt er um helgar. Fimm manns fengu að gista í fangageymslum lögreglunnar á Akureyri vegna óspekta og ölvun- ar og tveir ökumenn voru teknir grunaðir um ölvun við akstur, ein rúða var brotin í miðbænum. Eng- inn þurfti aó leita til slysadeildar Fjórðungssjúkrahúsins á Akureyri vegna óhappa af völdum ilugelda eða blysa á nýársnótt. Mikill fjöldi Akureyringa sótti brennu Ferðaklúbbsins 4x4 og Hjálparsveitar skáta við Réttar- hvamm á gamlárskvöld. Umsjón- armenn brennunnar vildu koma á framfæri þakklæti til karlakórsfé- laga sem tóku lagið við brennuna og til fyrirtækja sem styrktu flug- eldasýninguna sem þar var. KLJ Slökkvilið Akureyrar: Brunaútköllum fjölgaöi Aárinu 1994 voru 73 útköll hjá Slökkviliði Akureyrar en þau voru 67 árið áður. Af þessum 73 útköllum voru 11 utanbæjar en árið 1993 voru 5 útköll utanbæjar. Alls voru 27 útköll án elds en 46 þar sem um eld var að ræða. Flest eru útköll- in á tímabilinu kl. 18-21 eða 11 og kl. 15-18 eða 10. Stærstu brunatjónin á árinu voru þegar íbúð í Brekkugötu 7 skemmdist af eldi þann 27. sept- ember og þegar íbúðarhúsió Hraunholt 6 skemmdist í eldi þann 29. desember sl. Ekkert manntjón varð í bruna á svæði slökkviliðs- ins. Þetta kemur fram í yfirliti frá Tómasi Búa Böövarssyni, slökkviliðsstjóra á Akureyri. Sjúkraútköll voru 1135 á árinu 1994 þar af 203 utanbæjar en voru 1086, þar af 196 utanbæjar, árið áður. Af þessum 1135 sjúkraút- köllum voru 225 bráóatilfelli. 36 sjúkratúrar voru yfir 50 km að lengd, þar af 18 yfir 100 km. Alls 60 sjúkraflutningar fóru fram á varabílnum, á meðan hinn var upptekinn í öðrum sjúkraflutningi, en hann er ekki mannaður föstum mönnum. KK tala er þó talsvert lægri en á sama tíma í fyrra þegar 728 voru án atvinnu. Ef árin tvö eru borin saman kemur í ljós að um mánaðamótin nóv.-des. var fjöldi atvinnulausra svipaður 1993 og 1994. í desember 1993 fjölgaði hins vegar atvinnulausum um ríflega 260 en um 108 nú, sem fyrr segir. Alls voru atvinnuleysisdagar á Akureyri 11.771 í síðasta mánuði, 6.899 hjá körlum og 4.872 hjá konum. Af þeim 590 sem voru á atvinnuleysisskrá í lok mánaðarins voru 340 karla en 250 konur og atvinnuleysið því meira hjá körl- um, ef marka má þessar tölur. Verkafólk er lang fjölmennasti hópurinn, en 159 verkamenn voru á skrá og 139 verkakonur. Versl- unarfólk er næst fjölmennast, 89 voru á skrá. Líkt og um sama leyti í fyrra var starfsfólk Útgeróarfélags Ak- ureyringa að láta skrá sig atvinnu- laust í gær. Þar er um að ræöa um 200 manns sem verða á atvinnu- leysisskrá þar til vinnsla hefst aft- ur í frystihúsinu, en fyrsti togarinn fór til veiða aðfaranótt 2. janúar. Er starfsfólk ÚA ekki reiknað með í þeim tölum sem raktar voru hér að framan. HA Fyrsti Norðlendingur ársins var ekki allt of hrifinn af því að að Iáta mynda sig. A myndinni er hann mcð foreldrum sínum, Margréti Baidvinsdóttur og Axel Gunnari Vatnsdai og stóru systur, Karen Hrönn, scm cr iiðlcga tveggja ára, fædd 29. ágúst 1992. Mynd: Robyn Norðurland: Akureyringur fyrsta barn ársins Fyrsta barn ársins á Norður- Iandi fæddist á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri að morgni 2. janúar kl. 05.02. Það var drengur, sem vó 3850 grömm, eða 15,5 merkur, og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Margrét Baldvinsdóttir og Axel Gunnar Vatnsdal til heim- ilis að Melasíðu 1 á Akureyri. Klukkan 14.20 í gær fæddist svo annaó barnið á Noróurlandi á þessu ári. Það var sveinbam, sem sá dagsins ljós á Sjúkrahúsinu á Húsavík. Drengurinn var 3350 grömm, eða 13,5 merkur og 51 cm á lengd. Foreldrar hans eru Húsvíkingar, Anna Soffía Hall- dórsdóttir og Pctur Guðni Péturs- son. GG Fæðingum fjölgaði á norðlenskum sjúkrahúsum milli áranna 1993/1994: Nær sex tuglr fæðinga á Húsavík Aárinu 1994 fæddust 415 börn á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri, 210 sveinbörn og 205 meybörn. Það er töluverð Qölgun frá árinu 1993, en þá fæddust á FSA 390 börn, en heldur færra en 1992, en þá fæddust 424 börn. Átta tvíbura- fæðingar voru á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á árinu 1994. Á Sjúkrahúsinu á Húsavík fæddust 58 börn á árinu, 25 svein- börn og 33 meybörn, sem er 50% aukning milli ára, en á árinu 1993 fæddust 39 börn á Húsavík. Á Sauðárkróki fæddust 42 börn á sl. ári, 21 drengur og 22 stúlkur sem er töluveró fækkun milli ára, en á árinu 1993 fæddust þar 72 börn, 31 drengur og 41 stúlka. Ein tvíburafæðing var á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Á Sjúkrahúsinu á Blönduósi fæddust 25 börn á árinu, 14 dreng- ir og 11 stúlkur. Á árinu 1993 voru fæóingar þar 30 og 22 á ár- inu 1992. Á Sjúkrahúsinu á Siglufirði fæddist 21 barn á sl ári, 12 svein- böm og 9 meybörn. Þaó er eilítil fjölgun, því á árinu 1993 fæddust þar 17 börn. Eðlilega er hér ekki um heild- artölu fæddra Norðlendinga á ár- inu 1994 að ræða. M.a. sækjast sængurkonur í Vestur-Húnavatns- sýslu nokkuö eftir því að fæða börnin á Sjúkrahúsinu á Akranesi og eitthvað er um fæðingar í Reykjavík og víðar. í Reykjavík fæddust tvennir þríburar sem ann- ars vegar búa á Húsavík, þeir Arn- ar Már, Sævar Guðmundur og Gunnar Jón, og svo hins vegar Akureyringarnir Hafsteinn, Hauk- ur og Hinrik. GG Flugeldasala með besta móti Svo virðist sem flugeldasala hafi verið með líflegasta móti fyrir þessi áramót, í það minnsta á Akureyri. Stærstu söluaðilarn- ir voru íþróttafélagið Þór og Hjálparsveit skáta og á báðum stöðum voru menn ágætlega sáttir við afraksturinn. Helgi Pálsson, framkvæmda- stjóri Þórs, sagði söluna hafa gengið ljómandi vel og hún hafí verið mun meiri en í fyrra. „Þaö seldist tvisvar upp hjá okkur. Dag- inn fyrir gamlársdag var allt búið og um nóttina fengum við viðbót- arsendingu frá Reykjavík meó leigbíl og hún seldist öll.“ Helgi sagðist ekki hafa skýringar á reið- um höndum með hvað skýrði aukna sölu nú en vafalaust hafi margt hjálpast að. Þór bauð upp á nýtt kortatímabil og auk þess fengu þeir sem keyptu fyrir 3.000 kr. eða meira, frítt kort í Iíkams- rækt. Þaö sagði Helgi að mjög margir hefðu nýtt sér. „Við veró- um síðan að fá meiri flugelda fyrir þrettándagleðina okkar,“ sagði Helgi. Magnús V. Amarson, sveitar- foringi í Hjálparsveit skáta á Ak- ureyri, sagói söluna hafa verið svipaða í magni og í fyrra, en minni í krónum talið vegna verð- lækkunar. „Heilt yfir erum við ekkert óánægðir. Mér sýnist þetta vera svipað og í meðalári og við virðumst ekki hafa misst neina markaðshlutdeild." Flugeldasalan er ein megin tekuöflunarleið hjálparsveitarinnar og sagði Magnús að um 65% af tekjunum á hverju ári kæmu frá hcnni. Hlutur flugeldasölunnar sem fjáröflunarleiðar hefur þó aó hans sögn minnkað á undanföm- um árum, vegna aukinnar sam- keppni o.fl. „Meðan við vorum cinir á markaðinum dugði Uug- eldasalan okkur, en nú gerir hún það ekki. Við erum samt alveg sæmilega sáttir við okkar hlut og sjáum fram á að geta staðið við þær skuldbindingar sem við ré- umst í á árinu og rekið sveitina,“ sagði Magnús. HA Bréf í Skagstrend ingi hf. vinsæl Hlutabréf voru seld á Verð- bréfaþingi í síðustu viku fyrir 326 milljónir króna. Af fjórum norðlenskum fyrirtækj- um á Verðbréfaþingi var mest selt í Skagstrendingi en taka skal fram að sala í útboðum Hlutabréfasjóðs Norðurlands og KEA eru ekki skráð á þingið. I yfirliti um söluna á Veró- bréfaþinginu má sjá að bréf seld- ust í Skagstrendingi hf. fyrir 22 milljónir króna, í Útgeróarfélagi Akureyringa hf. fyrir 14 milljónir, í Þormóði ramma hf. fyrir 9 millj- ónir og í Sæplasti hf. fyrir 4,4 milljónir króna. Eftirtektarvert er að í þessari síðustu viku var mikil sveifla á gengi bréfa í Skagstrendingi því sölur á bréfum í fyrirtækinu eru skráðar lægst á genginu 2,09 en hæst á genginu 2,90. JÓH

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.