Dagur - 03.01.1995, Síða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 3. janúar 1995
ENSKA KNATTSPYRNAN
SÆVAR HREIÐARSSON
Gamla árið kvatt með stæl
Heil umferð var leikin í enska bolt-
anum á gamlársdag þar sem mikið
var um falleg mörk og glæsileg til-
þrif og ljóst að baráttan um titilinn
verður jöfn og spennandi í vor.
Blackburn Rovers bætti stöðu sína
á toppi úrvalsdeildarinnar þrátt
fyrir að hafa leikið illa gegn Crys-
tal Palace. Manchester United náði
sér ekki heldur á strik og gerði
jafntefli í Southampton en lið
dagsins voru Liverpool og Totten-
ham sem bæði virðast óstöðvandi
þessa dagana og hafa komið vel út
úr jólahátíðinni.
C. PALACE-
BLACKBURN 0:1
Blackbum tryggði stöðu sína á
toppnum með enn einum sigri á úti-
velli en Iióið hefur nú sigraði i 7 af
12 útileikjum. Leikurinn var lítið
fyrir augað og marktækifærin voru fá
og komu meó löngu millibili. Chris
Armstrong, framherji Palace, hefur
aðeins gert tvö deildarmörk í vetur
og hann fékk tvö ágæt færi til að tvö:
falda þá tölu en klúðraði báðum. I
fyrri hálflcik skallaði hann naumlega
framhjá og í síðari hálfleik náöi hann
ekki að koma boltanum framhjá Tim
Flowers eftir að hafa sloppið einn í
gegn. Eina mark leiksins kom á 65.
mínútu og þar var Tim Sherwood á
ferðinni. Nigel Martyn varði skot frá
Jason Wilcox og boltinn virtist á leið
útaf þegar að Chris Sutton náði að
skalla aftur fyrir markið þar sem
Sherwood konr á feröinni og potaði í
netið. Crystal Palace hefur nú leikið í
12 tíma og 5 mínútur án þess að
Urslit
Úrvalsdeild:
í gær:
Aston Villa-Leeds 0:0
Blackburn-West Ham 4:2
Ipswich-Leicester 4:1
Liverpool-Norwich 4:0
Ncwcastle-Man. City 0:0
N. Forest- C. Palace 1:0
Sheff. Wed.-Southampton 1:1
Wimbledon-Everton 2:1
Gamlársdag:
Arsenal-QPR 1:3
Chelsea-WImbledon 1:1
Coventry-Totenham 0:4
C.Palace-Blackburn 0:1
Everton-Ipswich 4:1
Leeds-Liverpool 0:2
Leicester-ShefT. Wed. 0:1
Man. City-Aston Villa 2:2
Norwich-Newcastle 2:1
Southampton-Man. Utd. 2:2
West Ham-N. Forest 3:1
Staöan
Blackburn 2216 4 2 49:1852
Man. Utd. 22 14 4 4 42:1946
Liverpool 2313 6 4 44:19 45
N. Forest 2312 6 5 36:23 42
Newcastle 2211 7 4 39:2440
Tottenham 22 9 6 7 38:3433
Leeds 22 9 6 7 29:2733
Norwich 23 9 6 8 21:2233
Wimbledon 23 9 5 9 28:3732
Sheff.Wed. 23 8 7 8 30:3031
Man.City 23 8 6 9 33:3830
Chelsea 22 8 5 9 29:3029
Arsenal 22 7 7 8 26:2528
QPR 22 7 6 9 34:38 27
Southampton 23 6 9 8 34:3927
West Ham 23 7 4 12 21:28 25
Coventrv 22 6 7 9 20:3825
C.Palace 23 5 8 1015:2223
Aston Villa 23 4 10 9 27:33 22
Everton 22 5 7 1021:3122
Leicester 23 3 6 14 22:41 15
Ipswich 23 4 4 1525:47 16
skora og greinilegt að eitthvað veró-
ur að breytast ætli liðið ekki að fara
beintniðurí l.deildí vor.
SOUTHAMPTON-
MAN. UTD. 2:2
Manchester United hefur ekki geng-
ió vel í jólavertíðinni. Daninn
Ronnie Ekelund var nálægt því að
skora fyrir Southampton í upphafi
leiks þegar skalli hans af stuttu færi
small í þverslánni og Gary Walsh
mátti hafa sig allan við að verja
skalla frá Iain Dowie. A síðustu mín-
útu fyrri hálfleiks tóku heimamenn
loks verðskuldaða forustu þegar Jeff
Kenna lagði boltann fyrir Jim Ma-
gilton í miðjum teignum og hann
skoraði af öryggi. A 53. mín. jafnaði
unglingurinn Nicky Butt metin meó
fallegu viðstöðulausu skoti af mark-
teig eftir fyrirgjöf frá Eric
Cantona. Butt var nálægt því
að koma United yfir
skömmu síðar en Bruce
Grobbelaar varði meistara-1
lega. Southampton náði aft
ur forustunni á 72. mín. þegar
að David Hughes skoraöi annað
mark sitt í tveimur leikjum eftir góð-
an undirbúning frá Neil Hcaney.
Hughes var þó ekki alveg jafn hetju-
legur hinunr megin á vellinum og að-
eins sex nrínútum síðar náði hann
ekki að hreinsa frá eftir homspymu
og boltinn barst til Cantona úti á
hægri kanti. Fyrirgjöf lrans hitti beint
á kollinn á Gary Pallister sem skall-
aði í netið. Litlu munaói að Jason
Dodd næði aó tryggja heimaliðinu
sigur undir lokinn en Gary Walsh
náði að verja skot hans.
Impey síðan sigurinn með öðru
ódýru marki. Vince Bartram, mark-
vörður Arsenal,
misreiknaði
háa fyrirgjöf
og Impey,
sem beið
fyrir aftan
hann, skall-
aði í netið.
Gary Pallister hafði ástæðu til að
fagna á gamlársdag þcgar hann
skoraði jöfnunarmark Manchcstcr
Unitcd gcgn Southampton.
ARSENAL-QPR 1:3
Lcikmenn QPR komu ákveönir til
leiks og strax á 3. mínútu skoraði
unglingurinn Kevin Gallen fyrsta
markið með viðstöðulausu skoti af
marktcig eftir fyrirgjöf frá Les Ferd-
inand. Daninn John Jensen er einna
helst þekktur fyrir að skora ekki í
deildarleikjum með Arsenal en hann
var marksæknastur leikmanna liðsins
í þessum leik. Hann átti gott skot að
marki QPR í fyrri hálfleik sem var
varið enda bjóst sennilega enginn við
að boltinn rataói í netið. Jensen hafði
aldrei skorað fyrir Arsenal fram til
þessa en eftir 98 leiki, 2 ár, 4 mán-
uði, 2 vikur, 2 daga, 1 klukkutíma og
19 mínútur geröist hið óhugsanlega.
Jensen fékk boltann utan vítateigs og
skrúfaði knöttinn glæsilega í mark-
homið eins og hann hefði aldrei gert
annað en að skora. Anægja Arsenal-
manna entist aðcins í tólf mínútur
því Bradley Allen kom QPR aftur
yfir á 76. mínútu þegar hann potið í
netið við fjærstöng eftir að boltinn
hafði skoppað í rólegheitum framhjá
öllum vamarmönnum Arsenal. Að-
eins einni mínútu síðar tryggði Andy
John „Faxe“ Jcnsen skoraði loks
cftir langa bið.
LEEDS-LIVERPOOL 0:2
Leikur Leeds og Liverpool var ekki
eins skemmtilegur og vonast var til.
Mikið var um miðjuþóf og báðum
liðum gckk illa að skapa sér mark-
tækifæri. Livcrpool náði forustunni á
18. mínútu þegar að Jamie Redknapp
skoraði beint úr aukaspymu sem
John Lukic var of seinn að átta sig á.
Leeds fékk tvö góð færi fyrir hlé og
féllu þau bæði suður-afríska fram-
herjanum Philomen Masinga í skaut.
I fyrra skiptið skallaði hann framhjá
og í það síðara snéri hann boltanum
hárfínt framhjá stönginni. Síðari
hálfleikur var ennþá slakari en sá
fyrri og eina markveróa atvikið kom
á 75. mín. þegar Robbie Fowler
bætti öðru marki við fyrir Liverpool
eftir hrikaleg vamamiistök hjá David
Wetherall.
WEST HAM-
N. FOREST 3:1
Lið Notthinghanr Forest átti aldrei
möguleika á Upton Park. Fyrsta
nrark West Ham gerói Tony Cottee
af stuttu færi á 25. mínútu og tveim-
ur mínútum síðar bætti Ian Bishop
öðru marki við eftir homspymu. A
síóustu mínútu fyrri hálfleiks skoraði
Michael Hughes fyrsta mark sitt fyrir
West Ham þegar hann stal boltanum
af Steve Chettle og hamraði af krafti
í netið. Forest náði að minnka mun-
inn á síðustu mínútu leiksins og þar
var varamaðurinn Paul McGregor að
verki. Hann var í þröngu færi utar-
lega í teignum en skot hans hafði
viðkomu í Steve Potts og hafnaði í
netinu.
COVENTRY-
TOTTENHAM 0:4
Tottenham er á mikilli siglingu þessa
dagana og allt gengur upp hjá liðinu,
innan vallar sem utan. Liðið hcfur nú
leikið átta leiki í röð án þess að tapa
og yfirburðir liðsins í Coventry voru
miklir. Heimamenn náðu aðeins cinu
sinni skoti sem hitti á mark Totten-
ham en voru öllu betri í að hitta eigið
mark. Á 7. mínútu kom fyrsta mark-
ið og það var sjálfsmark miðju-
mannsins Julian Darby en hann
skallaði glæsilega í eigið net eftir
homspymu. Tottenham beið með
það fram á 67. nrínútu að bæta við
marki en þá var Nicky Barmby á
ferð með skoti í stöng og inn eftir að
hafa leikið á tvo vamarmenn Coven-
try. Barmby sendi síðan fyrir markið
tíu mínútum síðar þar sem Darren
Anderton kom á fleygiferð og skall-
aði í netiö og á 81. mínútu skoraði
Teddy Sheringham fjórða markið.
MAN. CITY-
ASTON VILLA 2:2
Manchester City hafói tapað fjómm
leikjum í röð áður en liðið tók á móti
Aston Villa. Þjóðverjinn Uwe Rösler
skoraði fyrsta mark liðsins á 14.
mínútu þegar hann fékk boltann
óvænt fyrir framan Nigel Spinks,
markvörð Aston Villa, og skoraði
örugglega. City slapp með 1:0 for-
ustu í leikhléi en undir lok hálfleiks-
ins vildi Villa fá vítaspymu þegar
Terry Phelan virtist verja skalla frá
Andy Townsend með höndum á
marklínu en dómarinn dæmdi ekk-
ert. Rösler skoraði 10. mark sitt í
iúrvalsdeildinni á 54. mínútu með
góðum skalla og sigur virtist í
höfn. Þeir vom þó varla hættir aó
fanga markinu þegar Villa komst aft-
ur inn í leikinn. Steve Staunton tók
homspymu sem hafnaói í síðunni á
Ian Brightwell, vamarmanni City,
sem gat lítið gert^ til að koma í veg
fyrir sjálfsmark. Á 59. mínútu hafði
Villa náð að jafna og að þessu sinni
var það Dean Saunders sem skoraói
þegar hann fylgdi á eftir skoti frá Ian
Taylor sem Andy Dibble náði ekki
að halda.
CHELSEA-
WIMBLEDON 1:1
Fyrri hálfleikur var slakur en Chels-
ca tók fomstu á 57. nrínútu þegar að
Paul Furlong fékk boltann á miðjum
vallarhelmingi gestanna, tók beina
stefnu á markið og skoraði. Heima-
menn héldu forustunni í tíu mínútur
áður en Efan Ekoku jafnaði metin
með góðum skalla. Litlu munaði að
gestimir stælu sigrinum undir lokin
þegar skalli frá Mick Harford fór í
þverslána.
LEICESTER-
SHEFF. WED. 0:1
Eina mark leiksins var glæsilegt en
þaó skoraði Graham Hyde á 40. mín-
útu þegar hann einlék í átt að víta-
teignum og skoraði með þrumuskoti,
í stöng og inn. Leicester barðist vel í
síðari hálfleik og átti annaó stigið
skilið úr leiknum. Liðið fékk víta-
spymu þegar að Ian Nolan felldi
David Lowe á vítateigslínunni en
Steve Thompson skaut í stöng úr vít-
inu. Þetta var önnur vítaspyman á
innan við viku sem hann klúðrar en
David James, markvörður Liverpool,
varð víti frá honum á annan í jólum.
EVERTON-IPSWICH 4:1
Ipswich vann aðeins fimm leiki á
öllu árinu 1994 en útlit var fyrir
sjötta sigurinn á síðasta degi ársins
þegar aó Steve Sedgley kom liðinu
yfir á 9. mínútu. Það var þó það eina
sem Ipswich gerði af viti í leiknum
og yfirburóir Evcrton voru miklir.
Duncan Ferguson jafnaði á 26. mín-
útu af stuttu færi og var þetta fjórða
mark hans fyrir Everton. Félagi hans
í framlínunni, Paul Rideout, kom
heimalióinu yfir á 70. mínútu með
skoti neöst í homið frá vítateigslínu
og fjórum mínútum síðar potaði
hann inn öðm marki eftir góóan und-
irbúning frá Andy Hinchcliffe. Á
síðustu mínútu leiksins skoraði síðan
gamla brýnið Dave Watson með
skalla eftir homspymu frá Hinch-
cliffe og Ipswich er enn ömggt í
neðsta sætinu.
NORWICH-
NEWCASTLE 2:1
Strax á fyrstu mínútu skoraói Neil
Adams með skalla eftir að vamar-
menn Newcastle höfðu jjlcynit hon-
um í miðjum teignum. Á 11. mínútu
bætti Ashley Ward öðm marki við
með fallegu skoti eftir að hafa fengió
boltann óvænt í teignum. Eftir þetta
sótti Newcastle án aíláts og liðinu
tókst að brjóta nrúrinn fyrir hlé úr
vítaspymu sem dæmd var eftir að
Paul Kitson hafði verið felldur. Ruel
Fox tók vítið og skoraöi gegn sínum
gömlu félögum. Allan síóari hálfleik
var mikil pressa að marki Norwich
en þar stóð hinn 19 ára Andy Mars-
hall og varði allt sem á markið kom.
Andy Cole fékk besta færið þegar
hann slapp einn í gegn en strákurinn
sá við honum og stuttu síðar varði
hann í tvígang vel frá Kitson. John
Beresford átti skot í stöngina og
Marshall varði frábærlega frá bæði
Robert Lee og Barry Venison áður
en yfir lauk.
1. DEILD
Wolves saxaði á forskot Middlesbro-
ugh á toppi I. deildar á gamlársdag
þegar liðið sigraði Bamsley ömgg-
íega á útivelli, 3:1. Þorvaldur Or-
Iygsson og félagar hans í Stoke
gerðu jafntefli við Middlesbrough,
1:1, og forusta Middlesbrough cr því
einungis fimm stig. Það var Nigel
Gleghom sem jafnaði fyrir Stoke eft-
ir að Steve Wickers skoraði fyrst fyr-
ir Middlesbrough.
Urslit
1. deild
ígær:
Bolton-Reading 1:0
Bristol City-Watford 0:0
Derby-WBA 1:1
Middlesbrough-Barnsley 2:1*
Portsniouth-Burnley 2:0
Southend-Tranmere 0:0
Wolves-Sheff. Utd. 2:2
•Leik hætt i háifleik
Gamlársdag:
Barnsley-Wolves 1:3
Burnley-Southcnd 5:1
Notts County-Luton 0:1
Oldham-Swindon 1:1
Reading-Grimsby 1:1
Sheff. Utd.-Portsmouth 3:1
Stoke-Middlesbrough 1:1
Sunderland-Derby 1:1
Tranmere-Bristol City 2:0
Watford-Port Vale 3:2
WBA-Bolton 1:0
Charlton-Millwall 1:1
Staðan
Middlesbrough 2514 6
Wolvcs
Tranmerc
Bolton
Reading
Sheff. Utd.
Barnsley
Lulon
Watford
Oldhani
Millwall
Stoke
Southend
Grimsby
Derby
WBA
Sunderland
Charlton
Portsmouth
Burnley
Swindon
Port Vale
Bristol City
Notts County
2613 5
2612 7
26 12 7
2611 8
2611 8
2511 5
2510 7
26 9 10
2510 6
25 9 8
25 9 8
2610 5
25 8 10
25 8 9
26 8 7
25 6 12
24 7 9
26 7 8
23 6 9
25 6 8
24 6 7
26 6 5
25 4 6
5 39:22 48
8 47:34 44
7 40:2843
7 39:2943
7 31:2441
7 42:2841
9 29:3038
8 35:3037
7 28:2837
9 36:3236
8 32:3035
8 28:2935
1127:4235
7 35:3534
8 26:2433
1123:3331
7 26:2530
8 36:36 30
1128:38 29
8 26:31 27
1132:4126
1128:34 25
15 20:36 23
15 22:3618