Dagur - 03.01.1995, Qupperneq 11
Þriðjudagur 3. janúar 1995- DAGUR -11
Norræn æska - norræn list eða „Et
levende Norden“ er heiti á norrænu
samstarfsverkefni er fram fór í
grunnskólum á Norðurlöndunum á
síðastliðnum vetri. Verkefnið var
styrkt af norrænu ráðherranefndinni
og tilgangur þess að efla tilfinningu
nemenda í efri bekkjum grunnskóla
fyrir listum og menningarlífi, gefa
þeim kost á að kynnast listamönn-
um og að síðustu að efla skilning á
milli þjóða. Verkefnið fór fram á
alls átta svæðum á öllum Noröur-
löndunum að Islandi meðtöldu og
varð Akureyri og Eyjafjarðarsvæðið
fyrir valinu hér á landi. Verkefnið
fór að miklu leyti fram í þrennu lagi
eða í þremur lotum en í nokkrum
skólum var ákveðið að vinna það
smám saman yfir allt skólaárið.
Nemendur úr Myndlistaskólanum á Akureyri ásamt leiðbeinendunum,
Maria Hagberg, sænskum lcikara, og Ditte Rejers, sænskum myndlistar-
manni. Hcr cr hópurinn við umhverfislistaverk við Siippstöðina á Akureyri.
Ditte Rejers i'rá Svíþjóð er hér að vinna með krökkum í Myndlistaskólanum
á Akurcyri.
Sköpun - skilningur - upplifiin
- meginefni norræns samstarfsverkefnis í grunnskólum
Fyrsta lota hins samnorræna verk-
efnis hófst í október og stóð yfir fram
í nóvember. Önnur lotan fór fram í
febrúar og mars og þriðja og síðasta
lotan stóó yfir í síóari hluta maímán-
aðar og byrjun júní. Norrænt listafólk
annaðist leiðbeiningar að mestu ásamt
kennurum viðkomandi skóla og ein-
stökum innlendum listamönnum.
Nemendum var kynnt leiklist, mynd-
list og tónlist og tóku þeir fullan þátt í
þeim verkefnum sem leióbeinendur
og kennarar skipulögðu. I skýrslum
frá leióbeinendum kemur fram al-
menn ánægja með störf að þessu verk-
efni og einnig með áhuga og framlag
hinna íslensku grunnskólanema. Stór
hluti nemenda grunnskólanna á Akur-
eyri og í Eyjafirði tóku á einhvem hátt
þátt í þessu verkefni; bæði þar sem
þaó tengdist sérstökum þemavikum
innan skólanna og einnig þar sem
hvert verk var unnió sjálfsætt með
viðkomandi hópum eða bekkjardeild-
um. Láta mun nærri að um 650 nem-
endur í 12 skólum á þessu svæði hafi
notið leiósagnar hinna norrænu lista-
manna auk þess sem mun fleiri nem-
endur nutu flutnings verka sem skóla-
félagar þeirra unnu í tengslum vió
samnorræna verkefnió.
Leiklist, myndlist og „raku“
leirbrennsla
Norræna samstarfsverkefnið hófst í
tveimur skólum á Akureyri; Lundar-
skóla og Oddeyrarskóla, með því að
Kristiina Hurmerinta frá Finnlandi
vann leikverk með nemendum úr þess-
um skólum. Notaði hún meðal annars
minni úr goðafræðinni cn einnig
kristnitöku Islcndinga á Þingvöllum ár-
ið 1000 sem grunn að leikverkunum.
Hurmerinta starfar við framúrstefnu-
brúðuleikhús í Vaasa og komu ein-
kenni þess glöggt fram í verkum henn-
ar þar sem hún notaói lifandi fólk; í
þ>essu tilviki nemcndur fyrir leikbrúð-
ur. Hluti af uppfærslum hennar fólst í
leikmynd og búningum en hún er
einnig starfandi myndlistarmaður. Aðr-
ir listamcnn sem komu til starfa á Ak-
ureyri og í Eyjafirði í fyrstu lotu verk-
efnisins voru Edward Fuglö frá Klakks-
vik í Færeyjum, Björn Asle Tollan frá
Þrándheimi í Noregi, Olle Kortekangas
frá Esbo í Finnlandi og Greta Hessel-
berg Klemetsen frá Hortcn í Noregi.
Edward Fuglö og Björn Asle Tollan
unnu meðal annars að uppsetningu
Þrymskviðu meó börnum í 10. bekk
Gagnfræðaskóla Akureyrar þar sem
Fuglö annaðist hönnum búninga en
Asle Tollan leikstýrói verkinu. Olle
Kortekangas samdi tónlist við verkið
ásamt því að vinna með nemendum við
Gagnfræðaskólann og Tónlistarskól-
ann á Akureyri. Bjöm Asel Tollan og
Edward Fuglö unnu einnig að leiklist-
arverkefnum með nemendum Bama-
skóla Akureyrar og Þelamerkurskóla
auk þess sem Edward Fuglö vann að
myndlist með nemendum Valsárskóla.
Þá er ógetió starfa Gretu Hasselberg
Klemetsen sem kenndi leirbrennslu,
svonefnda „raku“ brennslu í Glerár-
skóla og Gagnfræðaskóla Akureyrar.
Söngleikir og sögur úr
heimabyggð
Önnur lota Norrænar æsku - norrænar
listar hófst í febrúar. I tengslum við
hana komu til Akureyrar; Preben
Friis, leikstjóri frá Danmörku ásamt
Marianne konu sinni, Kaj Puumalain-
en, leikmyndahöfundi frá Finnlandi
og Kristiina Hurmerinta frá Finnlandi
sem kom í annað sinn til Akureyrar í
tengslum vió samnorræna verkefnið.
Meóal þeirra verkefna sem norræna
listafólkið vann að í þessari lotu voru
söngleikir sem Marianne og Preben
Friis settu á svió ásamt Kaj Puumala-
inen í Ólafsfirði og á Arskógsströnd
sem eru nágrannabyggðalög vió Ak-
ureyri. Báðir þessir söngleikir voru
byggöir á sögum og sögnum úr
heimabyggðum nemenda en færðir
Þessi mynd var tekin í Oddeyrar-
skóla. Leiðbeinandi þar var Kristi-
ina Hurmerinta frá Finnlandi.
inn í heim ævintýrisins í hinum leik-
ræna búningi.
Sögulegt þemaverkefni í
Dalvíkurskóla
Eitt viðamesta viðfangsefnið á vegum
hins samnorræna verkefnis, var unnið
á þemaviku í Dalvíkurskóla á þessu
tímabili. Meginefni þess var umfjöll-
um um harðan jarðskjálfta er varð á
Dalvík 2. júní 1934 og Dalvíkingar
minnast nú að 60 ár eru liðin frá þeim
atburði. Jarðskjálftinn er talinn hafa
verið um 6,25 stig á Richter kvaróa en
engir jarðskjálftamælar voru þá til
staðar er mælt gátu styrkleika hans
með nákvæmni. Mikið tjón varð á
Dalvík og í nágrenni í þessum náttúru-
hamföram og er jaróskjálftinn gróinn í
minni fólks er upplifði hann. Nemend-
ur sjötta til tíunda bekkjar Dalvíkur-
skóla fjölluðu um þetta efni frá ýms-
um sjónarhomum. Þeir viðuðu að sér
upplýsingum um atburóinn; meðal
annars úr fréttaskrifum frá þeim tíma
og einnig með viðtölum við fólk er
mundi atburðinn eóa tengdist honum á
einn eða annan máta. Þau fjölluðu
einnig nokkuð um þær þjóðfélags-
breytingar er orðið hafa á þeim 60 ár-
um sem liðin era frá jarðskjálftanum
og bragðu upp ýmsum myndum af
umhverfi og mannlífi á Dalvík á fjórða
áratugnum. í lok þemavikunnar var
gefið út blað með efni er unnið var og
eínnig var gefin út bók með ýmsum
hugleiðingum bamanna er til urðu út
frá sjálfu þemaefninu, bæði í bundnu
og óbundnu máli. Er gaman að sjá
hvað komið hefur í huga bamanna við
umfjöllun um þessar náttúrahamfarir
og á hvem hátt sum þcirra setja þenn-
an atburð og það ástand er hann skap-
aði í samband við nútímann. Ein
stúlka í sjötta bekk lýsir hugrenning-
um sínum í Ijóði er hún kallar Jöróin:
„Haltu þérfast
þv't nú kemur hvasst.
Jörðin titrar út um allt
og ber þar engan að. “
Stúlka í fimmta bekk lýsir hug-
renningum sínum á eftirfarandi hátt:
„Það var einu sinni að ég var að
lœra. Allt í einu var eins og flugvél
vœri að lenda á þakinu, síðan byrjaði
allt að nötra og skjálfa. Það hristist
allt eins og ég veit ekki hvað. Við vor-
unt í mjög traustu húsi, en húsið á
móti var að klofna í sundur. Það var
hrikalegt að horfa upp á þetta. Brátt
hœtti titringurinn. Aumingja fólkið
sem bjó í húsinu á móti þurfti aðflytja
burt, því húsið þeirra var gjörónýtt.
Eg má þakka fyrir að ekkert komfyrir
húsið okkar. “
Umhverfislistaverk við
skipasmíðastöð
Þriðja lota Norrænar æsku - norrænar
listar hófst síðla maímánaðar. Þá
komu til Akureyrar þær Ditte Reijers,
myndlistarmaður, og Maria Hagberg,
leikhúsmaður, báðar frá Svíþjóð og
unnu með sjö til tíu ára bömum á veg-
um Myndlistaskólans á Akureyri.
Bömin unnu meóal annars umhverfis-
listaverk á lóð Slippstöðvarinnar hf.,
skipasmíðastöðvar á Akureyri, undir
forystu og leiðsögn hinna erlendu
leiðbeinenda en starfi þeirra lauk meó
sýningu í Myndlistaskólanum á Akur-
eyri.
Mikill áhugi á
áframhaldandi verkefnum
í yfirliti er unnið var af starfsfólki við-
komandi skóla að verkefnunum lokn-
um kemur fram aó vel hafi tekist til í
öllum tilvikum. Flestir starfsmanna
skólanna er gáfu umsögn um verkefn-
in töldu aó þau hafi verið fræóandi og
skemmtileg. Nokkram fannst þau hafa
traflandi áhrif á skólastarf en neikvæó
ummæli voru mjög sjaldséð. Þá var
spurt um tungumálaeiífiðleika á milli
nemenda og einstakra kennara af mis-
munandi þjóóemum. Þar kom fram að
engir teljandi erfiðleikar hafi orðið.
Margir listamannanna tjáóu sig á
enskri tungu og áttu mun fleiri nem-
endur auðveldara með að skilja hana
en norrænu tungumálin. Þá kom fram
að starfsfólki skólanna fannst hinir
norrænu listamenn standa sig vel,
bæói sem listamenn og einnig sem
leiðbeinendur. Mikill áhugi er fyrir
endurtekningu á verkefni sem þessu,
en nokkuó mismunandi sjónarmió
vora um hversu oft efna ætti til þeirra.
Mikill áhugi reyndist fyrir því að fá
íslenska listamenn til að vinna með
grannskólanemum á þennan hátt og
einnig norræna listamenn en minni
áhugi virðist vera á að fá alþjóðlega
listamenn hingað til slíkra verkefna.
Ingólfur Armannsson, skóla- og
menningarfulltrúi á Akureyri, er hafði
yfirumsjón með hinu samnorræna
verkefni í skólum á Akureyri og við
Eyjafjörð, tók undir þau sjónarmið
sem koma fram í umsögnum skóla-
manna á svæðinu. Hann sagöi aó
einnig hafi verið eftirtektarvert hvaó
ýmsir nemendur, er átt hafi í erfiðleik-
um hvaó skólastarf og nám varðar,
hafi verið áhugasamir um þetta verk-
efni og verió duglegir þátttakendur.
Hann kvaðst telja verkefni af þessu
tagi vel fallin til að ná til þeirra nem-
enda er af einhverjum orsökum hafi
gengið sína eigin götu í skólastarfinu
og átt í erfiðleikum meö að tileinka
sér tiltekin námsefni eóa að samlagast
daglegu lífi. Sömu sögu er að segja af
vióbrögðum þátttakenda; bamanna og
unglinganna í grunnskólum og sér-
skólum á Akureyri og í Eyjafirði.
Langflestum þóttu þessi verkefni
spennandi en mjög fáum leiðinleg.
Mörgum nemendum fannst erfitt að
skilja norðurlandamálin en yfirgnæf-
andi hluti taldi lítil vandkvæði á að
eiga samskipti við erlenda leiðbein-
endur á ensku. Flest ungmennanna
notuðu ensku til samskipta við leið-
beinanda sinn, nokkrir noróurlanda-
mál og reyndar einnig íslensku þar
sem að minnsta kosti einn leibeinanda
skildi nokkuð í henni en aóeins örfáir
kváðust ekki hafa reynt að tala við
hina erlendu aðila á annarri tungu en
íslensku.
/
Anægjulegt ef meira sam-
starf yrði í framtíðinni
Leióbeinendumir létu einnig vel af
dvöl sinni á Islandi og kváðust flestir
hafa vitað nokkuð um land og þjóð
áóur en þeir komu hingað og þeir vora
einnig ánægðir með allan aðbúnaó hér
á landi. Bjöm Asle Tollan frá Noregi
sagði aó frá sínum sjónarhóli hafi
samstarfið verið ánægjulegt. Greta
Klemetsen kvað að æskilegt hefði ver-
ið aó listamennimir hefóu náð að hitt-
ast meira innbyrðis og að meiri sam-
vinna hefði átt sér staó á milli þeirra.
Edward Fuglö frá Færeyjum sagði að
ef til vill hefði verið betra að hafa inn-
lenda listamenn úr heimabyggóum
meó í verkefninu. Þannig hefðu hinir
erlendu listamenn kynnst kollegum
sínum og ef til vill orðið umræður um
íslenskar hefðir og venjur innan hinna
mismunandi listgreina. Ingólfur Ar-
mannsson, skóla- og menningarfull-
trúi Akureyrarbæjar, sagði reynsluna
af þessu verkefni vera mjög góða. All-
ar umsagnir leiðbeinenda og þátttak-
enda væru jákvæóar og sá tilgangur
verksins hafi aó sínu mati náðst áægt-
lega. Alltaf megi segja að eitthvað
geti betur farió og þá verði menn aó
læra af reynslunni. Ingólfur sagði
ánægjulegt ef unnt yrói að koma
einhverju slíku samstarfi á í framtíð-
inni. Efíaust yróu aðrir staðir fyrir val-
inu ef sambærilegt verkefni verður
endurtekið en þá sé spumingin um
annað form og hvað við getum gert
sjálf - til dæmis í samstarfi við inn-
lenda listamenn.
Þórður Ingimarsson.
Þcssi mynd var tekin i Gagnfræðaskólanum á Akurcyri og sýnir atriði úr
Þrymskviðu. Björn Asle Tollan frá Noregi var leikstjóri en um gerð leik-
myndar sá Edward Fuglö frá Færcyjum.
Láttu fagmenn með áratuga reynslu
sjá um viðhaldið
Laufásgötu, Akureyri, sími 96-26300.