Dagur - 06.01.1995, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Föstudagur 6. janúar 1995
DACDVELJA
Stjörnuspa
eftlr Athenu Lee
Föstudagur 6. janúar
(S
Vatnsberi
(20. jan.-18. feb.;
Þú nærb ekki aö koma öllu í verk
sem þú ætlaðir þér vegna of mik
illar bjartsýni á þann tíma sem þú
hefur. Eitthvaö kemur þér á óvart
í dag.
(i
Fiskar
(19. feb.-20. mars)
)
Þú ert rökfastur og ákvebinn svo
nú skaltu reyna að sannfæra fólk
um ab hjálpa þér. Þú færð ítarleg
ar fréttir innan skamms. Happa
tölur: 1,15, 34.
Hrútur
(21. mars-19. apríl)
Hæfileiki þinn til ab fást vib stab-
reyndir og koma þeim á framfæri
nýtur sín vel í dag. Þetta verður
rómantískur dagur í alla stabi.
Naut
(20. apríl-20. maí)
)
Þú kemst að því að þú ferð of
hratt yfir en þessi kraftur þinn
mun leiba til þess ab þú nýtur
virðingar og þakklætis. Vertu vib-
búinn einhverju óvæntu í kvöld.
(M
Tvíburar
(21. maí-20. júm)
)
Óvænt þróun innan fjölskyldunn-
ar reynir á þolinmæði þína. Einka-
málin þarfnast skjótrar lausnar svo
gefðu þér tíma til að sinna þeim.
<31
Krabbi
(21. júní-22. júlí)
)
Þú ert sjálfum þér nægur núna
svo leystu málin sjálfur og forð-
astu ruglandi athugasemdir frá
öðrum. Umræða um málefni fjöl-
skyldunnar leiðir til skilnings.
CyMBljón 'N
\/V>lV (23. júli-22. ágúst) J
Þú kemst yfir dálítil vandræbi í
fjármálum með þolinmæði og
könnun á öðrum leibum. Forb-
astu flóknar abstæöur en reyndu
þess í stað að skemmta þér.
(SL
Meyja
(23. ágúst-22. sept.
0
Vertu á varbbergi; sérstaklega í
vinnunni því einhver situr fyrir
þér. Kynntu einmana manneskju
fyrir vinum þínum. Happatölur: 7,
23, 35.
«vbg 'N
(23. sept.-22. okt.) J
Orð sem kastað er fram af illsku
varpa skugga á þennan dag. Ef
þú lætur sem ekkert sé verður
þab besta hefndin. Aukin ábyrgð
leggst á heimilið.
(\mc Sporðdreki^
(23. okt.-21. nóv.) J
Þú skalt ekki reiða þig algerlega á
abra varbandi undirbúning
skemmtunar. Athugaðu vel hvab
hefur verib ákvebið. Ástin
blómstrar.
CÆJV Bogmaður ^
\/3tX (22. nóv.-21. des.) J
Þetta er góbur dagur fyrir þig ef
}ú stendur í samkeppni eða stór-
kaupum. Vertu vibbúinn and-
stöðu í mikilvægu máli.
f mí' Steingeit ^
lT7l (22. des-19. jaji.) J
Þér leiðist svo reyndu að finna
upp á einhverju nýju. Þú færð
uppörvandi fréttir af fjarlægum
vini sem leiða til endurfunda.
£
v
X
Ég get ekki beðið eftir að
við giftumst Hamlet... við
eigum svo ]/
margt sam- 3
eiginlegt
CHfiií
n-'i°
Þú hefur gaman af lestri
og mér finnst gaman að
horfa á þig lesa
Það er ekki nóg til að
byggja á traust samband
A léttu nótunum
Þetta þarftu
ab vita!
Gób vist á sjúkrahúsinu
Jón: Mér er sagt að Grímur sé á sjúkrahúsinu; hvernig líbur honum?
Helgi: Sæmilega, en ég býst þó ekki vib ab hann fari þaöan fyrst um sinn.
Jón: Því heldurðu það? Sástu lækninn?
Helgi: Nei, en ég sá hjúkrunarkonuna.
Afmælisbarn
dagsins
Orbtakib
Hrikalegt nafn
Einn besti krikketleikari Fijieyja
heitir Talebuamaineiilikenama-
inavalenineivakabulaimakula-
lakeba. Vohandi keppir hann
aldrei á íslandi. Getið þið ímynd-
ab ykkur hvernig Bjarna Fel.
myndi ganga að bera fram þetta
þjálfa nafn?
Þú verður fyrir einhverju áfalli í
upphafi árs, sennilega vegna þess
að þú hefur treyst einhverjum of
vel. Þú lærir á þessu að lokum.
Stöbugleiki ríkir á vinnustað en
þetta verður sérstaklega ham-
ingjuríkt ár þegar ástin er annars
vegar.
Fara ferba sinna
Merkir ab gera eitthvab án þess
að skeyta um skoðanir eða vilja
annarra, fara sínar eigin götur.
Orðtakið er kunnugt frá 19. öld.
Líkingin er dregin af manni, sem
heldur áfram ferð sinni, en lætur
ekki hefta för sína.
Spakmælib
Klæbnabur
Ef sjálfur Ciceró hefði haldið eina
af ræðum sínum meb lak um
herðarnar hefði fólkið hlegib
meira ab búningi hans en dáb
mælsku hans. (Addison)
• ÚA í svibsljósinu
Málefni Út-
gerbarfélags
Akureyringa
hafa verib
mjög í svibs-
Ijósinu ab
undanförnu.
Upphaf máls-
ins var þab ab
jelrrl hugmynd var velt upp
ab bjóba íslenskum sjávaraf-
urbum ab flytja höfubstöbvar
sínar til Akureyrar. í því sam-
bandi var rætt um hugsanleg-
an flutning allra vibskipta UA
frá Sölumlbstöb hrabfrystlhús-
anna til íslenskra sjávarafurba.
Öllum ætti ab vera Ijóst ab hér
eru stórar fjárhæblr í spilínu.
ÚA er stærsta útgerbarfyrir-
tæki landsins, Sölumibstöbin
stærsta fyrirtækl landslns og ís-
lenskar sjávafurbir í öbru sæti.
Samtals veltu þessi fyrirtæki
rúmum 43,5 milljörbum kr. ár-
ib 1993.
• Hver á ÚA?
Hlutabréf Ak-
ureyrarbæjar í
ÚA dróust inn
í þessa um-
ræbu og
hugsanleg
sala á þeim.
Jafnvel er rætt
um hugsan-
legan áhuga Sölumibstöbvar-
innar á þessum bréfum, þab
hefur reyndar ekki fengist
stabfest. Ýmis rök hafa verib
færb fyrir því ab Akureyrarbær
dragi sig út úr rekstri ÚA og
selji sinn hlut. Bæjaryflrvöldum
er hins vegar vandi á höndum
því þau vita sem er ab þau
hafa skyldum ab gegna gagn-
vart umbjóbendum sínum, sem
aubvitab eru hinir réttu eig-
endur bréfanna. Þab væri t.d.
saga til næsta bæjar ef ein-
hverjir abrir en Akureyringar
eignubust meirlhluta í Utgerb-
arfélagi Akureyringa. Nú er
bara ab bíba spenntur eftir
framhaldi málsins, sem víssu-
lega gæti orbib mestu tíbindi í
sögu vibskiptalífs landsins í
langan tíma.
Daubadrukknir
glannar
Vélslebinn,
málgagn
Landssam-
bands íslenskra
vélsleba-
manna, er nú
komib út í 10.
sinn. Ab
vanda er efni
fjölbreytt og margar skemmti-
legar ferbasögur þar ab finna.
Formabur LÍV, Sævar Reynis-
son, ritar athyglisverba grein í
blabib. Þar er til umfjöllunar sá
vandi sem vélslebasportib á vib
ab glíma vegna tíbra slysa sl.
vetur og nelkvæbrar umræbu
vegna þeirra. Sævar segir m.a.
„Þab er stabreynd ab álit al-
mennings á slebamönnum er
meb þelm hætti ab margir
telja okkur hálfgerba villimenn,
sem keyrl um háiendib glanna-
lega og oft á tíbum dauba-
drukkna." Sævar seglr Ijóst ab
þessu þurfi ab breyta, en hlns
vegar geri þab englr nema vél-
slebamenn sjálfir meb öflugu
starfi innan slnna samtaka.
Umsjón: Halldór Arinbjarnarson.