Dagur - 06.01.1995, Side 15
Föstudagur 6. janúar 1995 - DAGUR - 15
ÍÞRÓTTIR
SÆVAR HREIÐARSSON
Knattspyrna:
Guðmundur Benediktsson
til liös við AIK í Svíþjóð?
- sænsk dagblöð segja málið í höfn
Sænska dagblaðið Dagens Ny-
heter sagði frá því í gær að Guð-
mundur Benediktsson, Iands-
liðsmaður í knattspyrnu, væri
genginn í raðir sænska úrvals-
deildarliðsins AIK frá Stokk-
hólmi. „Guðmundur er mjög
áhugaverður leikmaður,“ segir
Hans Backe, þjálfari liðsins, og
hann segist vonast til að Guð-
mundur verði mættur til leiks
þegar æfingar heíjast á mánu-
daginn. Þegar Dagur spurði
Guðmund hvort hann væri bú-
inn að yfirgefa herbúðir Þórsara
og kominn í raðir AIK svaraði
hann því neitandi.
f gær léku handknattleikslið KA
og Þórs æfingaleik í KA-heimil-
inu en það er ekki oft sem akur-
eyskum áhorfendum gefst kost-
ur á að sjá þessi lið reyna með
sér í vetur. Eftir jafnan fyrri
hálfleik hafði KA öruggan sigur
ílokin, 27:19.
Sá sem vakti mesta athygli í
leiknum var ungur markvörður
KA-liðsins, Birkir Magnússon,
sem varði alls 23 skot. Liðin
skiptust á að skora í fyrri hálfleik
og staðan í leikhléi var 10:9 fyrir
Þór. Eftir hlé réðu Þórsarar illa við
„Ég hef heyrt frá íslendingi í
Svíþjóó sem hefur verið að
hringja fyrir bæði AIK og Vastra
Frölunda. AIK bauð mér að koma
út næsta mánudag. Þeir byrja að
æfa þá og vilja að ég verði með í
undirbúningnum fyrir tímabilið en
þetta er ekki komió lengra en það.
Ég er spenntur fyrir að skoða þetta
dæmi en ég hef ekki íhugað það
meira en bara að fara út og æfa
með þeim,“ sagöi Guðmundur og
bætti því við aö enn væri óákveó-
ið hvort hann færi til æfínga í Sví-
þjóö eftir helgi.
„Mér þykir þetta hálf hlægilegt
að þetta skuli vera komið í blöðin
Birki og eftirleikurinn var auð-
veldur fyrir KA. Markahæstur
KA-manna var Jóhann Jóhanns-
son með 7 mörk og Atli Samúels-
son og Þorvaldur Þorvaldsson
skoruðu 5 mörk hvor. Hjá Þór
skoruðu Geir Aóalsteinsson og
Páll Gíslason mest, 5 mörk hvor.
Frestun
Iæik Þórs og ÍA í úrvals-
deildinni í körfuknattleik, sem
lcika átti í gær, var frestað
vegna vcðurs og settur á 11. jan.
án þess að það sé búið að ræða
þetta við mig en þetta er oft svona
þegar byrjað er að tala um þessi
mál þá hleður það utan á sig,“
sagði Guðmundur og aðspurður
sagði hann að Svíþjóð væri ágætur
kostur fyrir knattspymumann.
„Þarna eru sterk lió sem hafa stað-
ið sig vel eins og landsliðið og
Gautaborg í Evrópukeppninni.
Knattspyrnan þarna hlýtur að vera
á mikilli uppleið,“ sagði Guð-
mundur en sagðist þó enn ekki
farinn að æfa sig í sænskunni.
Eins og fram hefur komið í
Degi á Guðmundur og knatt-
spyrnudeild Þórs í deilum við Ek-
eren þar sem belgíska félagið stóð
ekki við samninga sína við Þór.
Guðmundur sagði lítið hafa miðað
í þeim málum. „Ég held að málið
sé stopp eins og er. Það á að reyna
að leysa þaö í gegnum sendiráðið
úti en ef ekkert kemur út úr því þá
verður að fara meó þetta í gegnum
FIFA og láta þá hafa áhrif á mál-
ið,“ sagði Guðmundur en hugsan-
lega gæti þetta sett strik í reikn-
inginn fyrir hann. „Ég veit ekki
hvort þeir gætu kornið í veg fyrir
að ég færi til Svíþjóóar. Þeir stóðu
ekki við samninga og ég veit ekki
hvert gildi þcirra er ef þeir hafa
staðið við þá,“ sagði Guðmundur.
Allnianna Idrottsklubben Solna
(AIK) er fornfrægt félag sem
stofnað var árið 1891. Liðið leikur
heimaleiki sína á Raasunda leik-
vanginum í Stokkhólmi sem tekur
tæplega 28.000 manns. Liðsbún-
ingurinn félagsins er gulur og blár
og ef Guðmundur gengur til liðs
við félagið þarf hann að venja sig
á að klæðast „KA-litunum.“ AIK
hefur átta sinnunt unnió sænska
meistaratitilinn en síðast náði liðið
þeim árangri fyrir 58 árum, 1937.
Fjórum sinnum hefur liðið orðið
bikarmeistari í Svíþjóð, síðast
1985. Á síðasta tímabili endaði
liðið í sjötta sæti en eftir vel-
gengni Islendinga með öðrum lið-
um í Svíþjóð hefur liðið falast eft-
ir íslenskum leikmönnum. Fyrr í
vetur reyndi félagió að næla í Lár-
us Orra Sigurðsson en það var um
seinan þar sem hann þáói tilboð
frá Stoke. Vástra Frölunda hefur
einnig sýnt Guðmundi áhuga en
það lið leikur í sænsku 1. deildinni
og fyrir skömmu gekk Kristófer
Sigurgeirsson, kantmaður Breiða-
bliks, til liðs við félagió.
Gcir Aðalstcinsson var atkvæðamikiii í liði Þórs gegn KA-mönnum í gær-
kvöid. Mynd: Robyn
Handknattleikur:
KA lagði Þór
Golf:
opnar Golfbæ
David
Golfarar geta tekið gleði sína á
ný og byrjað að slá af krafti
þrátt fyrir vetur konungur sé
allsráðandi þessa dagana. David
íþróttir
KÖRFUKNATTLEIKUR:
Úrvalsdcild:
Sunnudagur:
KR-Þór kl. 20.00
Tindastóll-Njarðvík kl. 20.00
1. deild kvcnna:
Laugardagun
Tindastóll-Grindvík kl. 14.00
KNATTSPYRNA:
Föstudag og laugardag:
Bautamótiö
Barnwell, golfkennari Golf-
klúbbs Akureyrar, hefur opnað
glæsilega inniaðstöðu í kjallara-
húsnæði endurhæfíngarstöðvar-
innar að Bjargi en eflaust hefur
mörgum golfurum verið farið að
kitla í að fá að slá að nýju.
Eftir nokkurra vikna þrotlausa
vinnu hefur nú verið opnaður
glæsilegur salur og þarna er senni-
lega besta inniaðstaða á landinu
fyrir golfara. Púttflatirnar eru
mjög góðar og öll aðstaða er til
staðar til að æfa sveifluna vió mis-
munandi aðstæöur. Auk þess er
alltaf heitt á könnunni og góó að-
staða til að slappa af yfir kaffi-
sopa. David opnaði aðstöðu sína í
byrjun nýs árs og hefur verið opió
frá kl. 10 á morgnana til 22 á
kvöldin. í framtíðinni er þó ráð-
gert að aðstaðan standi öldruðum
til boða frá kl. 10 til 14 og eftir
það verði opnað fyrir aðra fram til
kl. 22.00. Golfáhuginn er mikill á
Akureyri en þessi aðstaða er ekki
einungis ætluð fyrir forfallna golf-
fíkla. Öllum sem hafa áhuga á aó
kynna sér hvað þama er í boði er
frjálst að líta við, skoða sig um og
sjá hvað er á boðstólnum. David
mun í vetur vera með námskeið
við allra hæfi og hvetur fólk til að
láta sjá sig á nýja staðnum. Fólk
getur mætt hvenær sem er að
prófa og fyrir þá sem ekki hafa
áhuga á að hamast við að berja
kúlurnar þá er ódýrt að leika sér á
púttsvæðinu og þiggja kaffibolla
með.
Guðmundur Bencdiktsson segir sænsku blöðin fuil fljót á sér mcð frcttirnar.
Innanhússknattspyrna:
Bautamótiö hefst
íkvöld
Um helgina fer fram sannkallað
Norðurlandsmót í innanhúss-
knattspyrnu þegar Bautamótið
verður haldið á Akureyri. Alls
munu mæta til leiks 19 lið víðs
vegar af Norðurlandi og má bú-
ast við líflegri keppni. Mótið
hefst í kvöld kl. 20.15 og lýkur
seinni partinn á morgun.
Þeim 19 liðum sem mæta til
keppni er skipt í þrjá rióla og
verða tveir þeirra spilaðir í kvöld
og einn á morgun. Urslitakeppnin
hefst síðan um kl. 15.10 á morg-
un. I A - rióli eru lið KA a, Þórs b,
Dalvíkur b, Völsungs a, SM og
Magna. I B-riðli eru KA c, Þór a,
Dalvík a, Þorsteinn Sv., Reynir og
HSÞ b. í C-riðli eru Leiftur,
Neisti, Þór c, Völsungur b, Hvöt,
Tindastóll og KA b. Leikið verður
í A-riðli í KA-heimilinu í kvöld
og í B-riðli í íþróttahöllinni. Leik-
ir í C-rióli og úrslitakeppnin fer
síóan fram í KA-heimilinu á
morgun.
íþróttamaður KA
1994 krýndur
Á sunnudag kl. 15.00 fer fram í
KA-heimilinu krýning fþrótta-
manns KA 1994. Þar verður
tiikynnt hver verður fyrir valinu
þetta árið en á síðasta ári var
það Vernharð Þorleifsson, júdó-
maður, sem hlaut nafnbótina.
Áfíóttafráboltabullum
Lceds er enn og aftur talið á
höttunum á eftir nýjum fram-
hcrja. Að þcssu sinni er það
Anthony Yeboah hjá Eintracht
Frankfurt sem sagöur er á leið
til liðsins en hann hefur átt í
crjum við þjálfara Frankfurt.
Hann cr fáanlegur fyrir rúntar
3 milljónir punda og undan-
farna daga hefur sést til hans
bæði í London og Leeds en tal-
ið er aó hann eigi einnig í við-
ræðum við Arsenal. Yeboah er
mikill markahrókur cn líkar
illa við kynþáttahatur þýskra
áhorfenda.
Kjörió fer fram með þeim hætti
að allar deildir félagsins tilnefna
tvo úr sínum röðum og einn úr
öórum deildum. Það er síðan hlut-
verk aðalstjómar að kjósa á milli.
Öllum er velkomið að mæta í KA-
heintilið og þiggja kaffíveitingar
sem foreldrarfélag KA sér um. Ut-
nefninguna ber upp á afmælisdag
KA, sem var stofnað 8. janúar
1928.
Ný
námskeið
eru að hefjast
Hringdu strax.
Líkamsræktin
Hamri
Simi 12080