Dagur - 18.01.1995, Blaðsíða 1

Dagur - 18.01.1995, Blaðsíða 1
78. árg. Akureyri, mWvikudagur 18. janúar 1995 12. tölublað Skandia Lifandi samkeppni W - lœgri iSgjöld Geislagötu 12 • Sími 12222 Samhug- ur í verki - landssöfnun vegna náttúruhamfara í Súöavík Þjáning og sorg íbúa í Súðavík og gífurlegt eignatjón kallar á skjót viðbrögð annarra íslendinga þeim til hjálpar og stuðnings. Af þeim ástæðum hafa Rás I og II hjá Ríkisútvarpinu, Ríkissjón- varpið, Stöð 2, Bylgjan, FM-95,7, Aðalstöðin, X-ið, Brosið, og Al- þýðublaðið, Dagur, DV, Morgun- blaðið, Morgunpósturinn og Tím- inn ásamt Pósti og síma ákveðið í samvinnu við Rauða kross Islands og Hjálparstofnun kirkjunnar að efna til söfnunar á meðal allra landsmanna. Landssöfnunin „Samhugur í verki“ hefst annað kvöld, 19. janú- ar, klukkan 19.55 með ávarpi for- seta Islands, frú Vigdísar Finn- bogadóttur, samtímis á báðum sjónvarpsrásunum og öllum út- varpsrásum landsins. Sjá bls. 3. GG Gífurlegt snjómagn á Norðurlandi. Margrét EA-710 fékk á sig brotsjó á leiðinni til Súðavíkur: Verður frá veiðum í margar vikur vegna skemmdanna Samheijatogarinn Margrét EA-710 fékk á sig brotsjó á níunda tímanum á mánudags- kvöldið þegar skipið var statt út af Dýraflrði með um 9 hjálpar- sveitarmenn um borð, sem skipið hafði tekið á Þingeyri. Förinni var heitið til Súðavíkur með hjálparsveitarmennina, en einnig mun hugmyndin hafa verið að - viðgerð fer fram á Akureyri taka Ieitarmenn á Flateyri. Brúin laskaðist, siglingartæki flest ónýt og um tíma sló skipinu öðru hvoru flötu meðan stýrinu var aftur komið í lag. Einnig komst sjór í vistarverur skipverja. Togarinn hafði verið á veiðum á Vestfjarðarmiðum en leitað vars í Dýrafirði á sunnudeginum ásamt fleiri skipum. Ákveðið var að leggja leitinni á Súðavík lið með því að flytja þangað hjálparsveitar- menn. Þrír togarar, Baldvin Þor- steinsson EA, Guðbjörg IS og Vigri RE komu strax til aðstoðar og lóðsuðu Margréti EA til Þing- eyrar. „Við teljum að skipið hafi ekki verið í hættu en það liggur næst fyrir að sigla skipinu til Akureyrar til viðgerðar í góðu veðri og eftir Dagsprent hf.: Söfnun hluta- « i i fjármiðarvei Fyrir liggja loforð um 18,5 milljónir króna í nýtt hlutafé í Dagsprent hf., sem gefur út dagblaðið Dag. Dagsprent hf. er í greiðslustöðvun og lýkur henni 24. janúar nk. Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga samþykkti síðla síóasta árs að KEA og Kaffibrennsla Akureyrar legðu fram 10 milljónir króna í nýtt hlutafé í Dagsprent hf. gegn því að aðrir hluthafar legðu fram sömu upphæð, þ.e. 10 milljónir króna, í hlutafé. Af þessum tíu milljónum hafa nú safnast 8,5 milljónir króna í nýtt hlutafé. Eins og fram hefur komið sam- þykkti hluthafafundur 27. desem- ber sl. að færa hlutafé Dagsprents hf. niður um 95%. Hluthafar höfðu hálfs mánaðar frest til þess að neyta forkaupsréttar og rann hann út í síóustu viku. Hörður Blöndal, framkvæmdastjóri Dags- prents hf., segir að fáir hluthafar hafi nýtt sinn forkaupsrétt, m.a. hafi framsóknarfélögin í Eyfirði og á Akureyri, sem voru til sam- ans þriðji stærsti eignaraðilinn að Dagsprenti hf. fyrir niðurfærslu hlutafjár, ekki neytt forkaupsrétt- ar. Auk Kaupfélags Eyfirðinga og Kaffibrennslu Akureyrar hafa eft- irtaldir aðilar samþykkt að leggja nýtt hlutafé í Dagsprent hf.: Lím- miðar Norðurlands 2,5 milljónir, Höldur hf. 1 milljón, Kaupmanna- samtök Akureyrar 1 milljón, Út- gerðarfélag Akureyringa hf. 1 milljón, starfsmenn í Dagsprenti hf. 1 milljón og Hlutabréfasjóður Norðurlands 500 þúsund. Til við- bótar þessu nemur hlutafé annarra fyrirtækja og einstaklinga samtals um 1,5 milljón króna. óþh Mynd: Robyn að búiö verður að koma einhverj- um siglingartækjum um borð en það er fyrirsjáanlegt margra vikna stopp. Þetta er verulegt tjón, brúin skemmd og tæki skemmd eða ónýt, en ég átta mig ekki á því hvort það er meira nú en í janúar- mánuói 1993 þegar Margrétin fékk einnig á sig brotsjó sem eyðilagði brúna og öll siglingartæki,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, fram- kvæmdastjóri Samherja hf. GG Harmleikurinn í Súðavík: Leitað við erfiðar aðstæður Margrét EA verður frá veiðum næstu vikur. Mynd KP Kolbeinsey ÞH sleit landfestar - skipinu siglt Höfnin er hreinlega ófær fyr- ir svona skip í þessu veður- fari,“ sagði Helgi Kristjánsson hjá Höfða hf. í gær. Kolbeinsey ÞH sleit landfestar sem verið var að reyna að hemja hana með í gærmorgun, en þá hafði skipið andæft í sólarhing fyrir utan Húsavíkurhöfn. Ekki var viðlit að hemja skipið vegna veðurs og sjógangs og var því siglt til Akureyrar þar sem það landaði afla sínum í gær. Um 45 til Akureyrar tonnum af ísuðum fiski úr skipinu var ekið frá Akureyri til Húsavík- ur en einnig var landað um 35 tonnum af frystum fiski. Aflaverð- mæti eftir veiðiferðina var um 12 milljónir, þar af 9 milljónir fyrir frysta fiskinn. Mikið sog var í Húsavíkurhöfn í gær, svipað og daginn áöur. Mikill sjór var og vaxandi, auk þess var að skipta um átt og brim- ið kom meira vestanað. IM Þrotlaus leit hefur staðið yfir í Súðavík allan síðasta sólar- hring og skömmu áður en blaðið fór í prentun í gærkvöld var enn eins saknað, ellefu höfðu fundist á lífl en þrettán voru látnir. Ljóst er að snjóflóðið er með þeim mannskæðari á þessari öld. Aðstæður björgunarmanna í Súóavík hafa verió afar erfiðar og þeir hafa unnið þrekvirki. Björg- unarmenn vestra fengu um miðjan dag í gær liðsauka frá Reykjavík, sem kom vestur meö varðskipinu Tý, og þeir hófu leit undir kvöld. Fleiri björgunarmenn voru á leið til Súðavíkur í gær, m.a. björgun- arsveitarmenn frá Sauöárkróki um borð í Mánafossi. Ferð þeirra sótt- ist afar seint vegna veðurhæðar. Annað snjóflóð féll í Súðavík í fyrrinótt og í kjölfarið fór rafmagn af plássinu. Þetta gerði björgunar- mönnum enn erfiðara fyrir og voru aðstæður þó nógu slæmar vegna veðurofsans. Ríkisstjórnin sendi eftirfarandi frá sér að loknum ríkisstjómar- fundi í gærmorgun: „Ríkisstjórn Islands færir því björgunarfólki sem nú leggur svo hart að sér í Súðavík eða berst vió að komast þangað þakkir þjóðar- innar. Vonir þjóðarinnar em bundnar við þrekvirki þeirra og ótrúlegt úthald við erfiðustu að- stæður. Reynslan síðustu tímana sýnir að enn lifir von og ekki verð- ur gefist upp fyrr en sérhver sá sem saknað er hefur fundist. Ríkisvaldið mun gera sitt ýtr- asta til aó bæta það tjón, sem orðið er og í mannlegu valdi er að bæta. Ibúar í Súðavík bera nú þungar sorgarbyrðar og íslenska þjóðin deilir þeim sorgum með þeim. Hörmungar síóustu sólarhringa munu verða til þess að forvarnir vegna snjóflóðahættu verða teknar til endurmats í náinni samvinnu viðkomandi ráðuneyta og heima- manna á hverjum stað.“ I gær sendu ríkisstjómir Noregs og Bretlands og landsstjóm Fær- eyja forsætisráðherra samúðar- kveðjur til íslensku þjóðarinnar og þeirra sem eiga um sárt að binda vegna snjóflóðsins í Súðavík. óþh Prófkjör Framsóknarflokksins á Norðurlandi vestra: Byrjað að telja í dag Eins og sagt var frá í gær var prófkjör Framsóknarflokks- ins á Norðurlandi vestra, sem ljúka átti á sunnudaginn, fram- lengt fram á mánudagskvöld. Það var síðan enn framlengt og lauk ekki fyrr en um miðjan dag í gær. Kjömefnd kemur saman á Sauðárkróki í dag kl. 15.00 og hefst þá undirbúningur talningar. Ekki er búist við að tölur liggi fyrir strax í kvöld, en á morgun ættu úr- slit að vera ljós. Rafmögnuð spenna ríkir í kjördæminu um þessar mundir og bíða menn spenntir eftir úrslitum, einkanlega hvor þingmannanna það verður sem leiða mun listann, Páll Péturs- son eða Stefán Guðmundsson. HA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.