Dagur - 18.01.1995, Blaðsíða 6

Dagur - 18.01.1995, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Miðvíkudagur 18. janúar 1995 Það skorti ekki mat, drykk né skemmtun á þorrablótinu. Þorrablótsncfndin söng og Baldur Baldvinsson annaðist veislu- og söngstjórn. Asta og Bryndís Alfreðsdætur ásamt mági og eiginmanni, Arna Sigurðssyni. Frá menntamálaráðuneytinu Styrkir úr Iþróttasjóði Samkvæmt lögum um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga nr. 78/1989 veitir Alþingi árlega fé í íþróttasjóð. Framlög úr íþróttasjóði skal veita til sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga eða íþróttasamtaka í því skyni að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana sbr. Reglugerð um íþróttasjóð nr. 609/1989. Tekið skal fram að ekkert liggur fyrir um fjárveitingar til sjóðsins 1996 en þær eru ákveðnar í fjárlögum hverju sinni til eins árs í senn. Felur árleg fjárveiting þannig ekki í sér skuldbindingar um frekari styrkveitingar. Umsókn um stuðning úr íþróttasjóði vegna styrk- veitinga ársins 1996 þurfa að berast fyrir 1. maí nk. íþróttanefnd ríkisins, menntamálaráðuneytinu, Sölv- hólsgötu 4, 150 Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöð- um ásamt greinargerð um fyrirhuguð verkefni. Þróunarsetrið Laugalandi auglýsir eftirtalin námskeið: í VEFNAÐI 30 klst. námskeið sem hefst 4. feb. og sfendur til 25. feb. Kennarar verSa Þuríöur Kristjánsdóttir og Gréta Arn- grímsdóttir. í ÞJÓÐBÚNINGASAUMI 40 klst. námskeiö sem hefst í febrúarlok. Kennari veröur Helga Þórsdóttir. í PAPPÍRSMÓTUN 12 1/2 klst. námskeið í muna og öskjugerÖ úr pappír hefst 21. jan. til 1. feb. Kennari verður Bryndís Arnardótt- ir. Einnig eru fyrirhuguÖ námskeiÖ í prjónatækni og með- ferð íslenskra jurta til manneldis þegar líöur að vori. Verður auglýst síöar. Skráning fer fram í síma þróunarsetursins 31316 alla virka daga milli kl. 10 og 14. Tískusýningardaman Vígfúsa Sig- urðardóttir mætti á svæðið og vakti almenna aðdáun fyrir glæsilcgt göngulag. Af sjúkrahúsinu komu hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar og sungu fyrir sjáifar sig; Margareta, Áslaug og Sesselja taka lagið. Sigrún Kjartansdóttir, formaður skemmtinefndar, og Steingrímur Birgisson, sem séð hefur um dinncr- tónlistina um áratugaskeið. Kvenfélag Húsavíkur: Forskot á þorrasæluna Kvenfélag Húsavíkur hélt árlegt þorrablót sitt sl. laugardag, samkvæmt venju viku fyrr en þorri gengur í garð. Sá háttur er á hafður til að þorrablót sveitarfélaga í sýslunni rýmist betur á þorranum og ekki þurfi að halda mörg sömu kvöldin. Um 200 manns sóttu þorrablótið, kvenfélagskonur, gestir þeirra og fleiri, því öllum er velkomin þátttaka í þorrablótum kvenfélagsins. Þátttakendur taka með sér mat og drykk aó heiman til aó neyta meðan á borðahaldi stendur. Sérstök þorrablótsnefnd sér um skemmtidagskrá og setti formaður hennar, Sigrún Kjartansdóttir, sam- komuna. Baldur Baldvinsson var veislustóri að þessu sinni og stjómaði einnig fjöldasöng af mikilli röggsemi. Steingrímur Birgisson lék á píanóið meðan á borðhaldi stóð, samkvæmt venju. Hagyrðingamir Osk Þorkels- dóttir og Þórgrímur Bjömsson fluttu vísur sínar og kváðust á. Einar Georg Einarsson kom frá Hrísey til æsku- stöðvanna á Húsavík og skemmti gestum konunglega. Þorkell Bjöms- son var kynnir á tískusýningu, en sýn- ingarstúlkurnar þóttu ekkert ferlega fallegar. Að lokum var stiginn dans við undirleik hl iómsveitarinnar Gloríu. IM Svala Hcrmannsdóttir, formaður Kvcnfélags Húsavíkur, ásamt eiginmanni, Bárði Guðmundssyni. Myndir: IM Eru allar dömur í sýslunni loðnar á bringunni? - spurðu aðkomumenn- irnir þegar tískusýningardömurnar fóru að sýna nærklæðin. Heima- menn bentu þcim á að kynna sér málið í sundlauginni. UUMFEROAR RÁÐ Vinsamleg ábend- ing til húsráðenda Vegna fannfergis eru það vinsamleg tilmæli til húsráðenda að moka frá húsum sínum þannig að bréf- og blaðberar komist leiðar sinnar. Einnig er gott að hafa útiljós logandi í skammdeginu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.