Dagur - 18.01.1995, Blaðsíða 3

Dagur - 18.01.1995, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 18. janúar 1995 - DAGUR - 3 FRÉTTIR 8ÍUMÓHUSTÍU4 Fjölmenni á Vetrarsport ’95 Góð aðsók var að vélsleða- og útilífssýninguna Vetrarsport ’95, sem haldin var í íþróttaskcnnnunni á Akureyri um hclgina. Versnandi veður þegar líða tók á sunnudaginn hafði þó einhver áhrif. Fjöldi gesta var svipaður og á síðasta ári, eða um 1500 manns. Sýningin þótti hcppnast hið besta, en þar sýndu 19 aðilar vörur sínar, tcngdar vélslcða- mennsku og útivist. Mynd: Halldór. Samhugur í verki: Landssöfnun fjölmiðla hefst annað kvöld Landssöfnun fjölmiðla til styrktar íbúum Súðavíkur hefst annað kvöld, 19. janúar, klukkan 19.55 með ávarpi forseta íslands, frú Vigdísar Finnbogadóttur, samtím- is á báðum sjónvarpsrásum og öll- um útvarpsrásum landsins. Landssöfnunin verður með því sniði að fólk getur hringt í símanúm- er landssöfnunarinnar og tilgreint fjárupphæð sem er sett á greiðslu- kort eða heimsendan gíróseðil. Hins vegar er hægt að leggja inn á sér- stakan bankareikning söfnunarinnar hjá öllum bönkum og sparisjóðum. Símanúmer söfnunarinnar er 800-5050 (grænt númer) en banka- reikningurinn er númer 1117-26 800 í Sparisjóði Súðavíkur. Tekið verður á móti framlögum í símamiðstöðinni frá klukkan 20.00 til 22.00 fimmtu- daginn 19. janúar; frá klukkan 09.00 til 22.00 föstudaginn 20. janúar og frá klukkan 10.00 til 22.00 laugar- daginn 21. janúar og sunnudaginn 22. janúar. Auk þess verður tekið á móti framlögum á bankareikning söfnunarinnar frá 20. janúar til 3. febrúar nk. Þeir sem standa að Landssöfnun vegna náttúruhamfara í Súðavík hvctja alla Islendinga til aó sýna samhug í verki og láta sitt af hendi rakna svo að milda megi áhrif hinna válegu atburða á líf og afkomu fjöl- skyldna og einstaklinga í Súðavík. ___________________________GG Ólafsfjörður: Áfengi og tóbaki stolið á hótelinu Brotist var inn í Hótel Ólafsfjörð aðfaranótt þriðjudags og þaðan stolið nokkru magni af áfengi og tóbaki. Málið upplýstist að fullu síðari hluta dags í gær í samvinnu við rannsóknarlögregluna á Akureyri og reyndust hinir fingralöngu vera hópur unglinga. Málið er að fullu upplýst. GG Fjögur norðlensk fyrirtæki hafa nýverið keypt skip í öðrum byggðarlögum og skrá þau þar: „Þýðir lítið að setja lög ef hægt er að leika á anda þeirra með þessum hætti" Kaup fjögurra norðlenskra fyrir- tækja á sl. ári á skipum úr öðr- um byggðarlögum hafa þannig farið fram að stofnað hefur verið fyrirtæki um kaupin í viðkom- segir Guðni Agústsson alþingismaður andi sveitarfélagi í stað þess að skipið eða báturinn sem verið er að festa kaup á sé skráð beint eign kaupandans. Þetta fyrir- komulag kemur m.a. í veg fyrir Bjórmarkaðurinn hér á landi: Innlendu verksmiðjurn- ar með 68% hlutdeild - markaðshlutdeild Viking Brugg hf. 33,81% í fyrra bjórverksmiðjurnar, leiðslu nam 648 þúsund lítrum, eða 8,94% af bjórmarkaónum. JÓH Innlendu Viking Brugg hf. og Ölgerðin Egill Skallagrfmsson hf., höfðu sem næst jafna markaðshlut- deild á innanlandsmarkaði fyrir bjór á síðasta ári. Báðar juku verksmiðjurnar sölu í magni en Ölgerðin Egill Skallagrímsson jók einnig markaðshlutdeild sfna frá fyrra ári, fyrst og fremst á kostnað innflutts bjórs. Samkvæmt yfirliti Afengis- og tóbaksverslunar ríkisins yfir bjór- söluna 1994 seldu innlendu verk- smiðjurnar tvær samtals tæpar 5 milljónir lítra, sem svarar til röskra 68% af bjórmarkaðnum. Heildar- sala á bjór hérlendis var á árinu um 7,2 milljónir lítra og hafði auk- ist um 1,4 milljónir lítra frá árinu 1993. Ölgeróin Egill Skallagrímsson seldi árið 1993 um 1,6 milljónir lítra af bjór, sem var 28,4% af heildarsölunni. I fyrra var hlutur fyrirtækisins kominn í 34,5%. Samtals var salan 2,5 milljónir lítra. Hjá Viking Brugg hf. var salan 2 milljónir lítra árið 1993, sem svaraði til 34% hlutdeildar á mark- aðnum. I fyrra var markaðshlut- deildin eilítið minni, eða 33,81% og salan 48 þúsund lítrum minni en hjá Ölgcrðinni. Sú innflutta framleiðsla sem komst næst innanlandsverksmiðj- unum í fyrra í sölu var frá Brauerei Beck & Co. Sala þeirra l'ram- að sveitarstjórn heimabyggðar bátsins sem verið er að selja geti neytt forkaupsréttar á honum eins og lög sem sett voru eigi alls fyrir Iöngu gera ráð fyrir. Þau skipakaup sem m.a. hafa farið fram með áðumefndum hætti eru kaup þriggja fyrirtækja á Hvammstanga á Sigurborgu frá Vestmannaeyjum en kaupandi er Vonin hf. í Vestmannaeyjum; Sjóli HF sem Skagfiróingur hf. keypti í Hafnarfirði og er togarinn skráður á fyrirtækið Djúphaf hf. í Hafnarfirði; Stokksnes EA sem Samherji hf„ Strýta hf. og Söltun- arfélag Dalvíkur hf. keyptu í Reykjavík, en togarinn var áður skráður á Hornafirði, en kaupandi er Stokksnes hf. í Reykjavík og síðan kaup Jökuls hf. á Raufar- höfn á Asgeiri Guðmundssyni frá Hornafirði, en báturinn er skráður á Atlanúp hf. á Hornafirði en hann mun fá nafnið Atlanúpur. Guðni Agústsson, þingmaður Framsókn- arflokksins í Suðurlandskjördæmi, sagði á fundi með útgerðarmönn- um í Vestmannaeyjum nýverið að með þessum hætti væri verió aó fara kringum lögin og raunar að hæðast að þeim og það þyrfti að stöðva. Guðni sagói aö bæjarráð Vestmannaeyja hefði hvatt veð- hafa til að samþykkja ekki nýja eigendur að Sigurborgu, sem seld hefur verið til Hvammstanga, en eigandi er Vonin hf„ fyrirtæki sem er eign Meleyrar hf„ Kaupfé- lags Vestur-Húnvetninga og Hvammstangahrepps en skráð með aðsetur í Vestmannaeyjum. Stærsti veðhafinn er Fiskveiða- sjóður. „Andi laganna er sá að í hvert skipti sem lífsbjörgin er að fara úr höfn þá hafi heimamenn umþótt- unartíma í heilan mánuð til þess aó kanna hvort þeir ráða við það fjárhagslega að halda skipinu í byggðinni. Eg mun taka þetta mál upp í þingflokki Framsóknarmanna og sjá hvað Framsóknarfiokkurinn vill gera í þessu byggðarmáli og fylgja því eftir. Það þýðir lítið að setja lög ef alltaf er hægt að leika á þau eða anda þeirra meó þessum hætti,“ sagði Guðni Ágústsson. GG Tilraunaverkefni hjá Metró á Akureyri: Gömul plastmálning endurunnin Hjá Metró á Akureyri hafa und- anfarna mánuði staðið yfir til- raunir með endurvinnslu á gam- alli plastmálningu. Verkefnið er unnið í samvinnu við Sorpu hf. í Reykjavík og Sorpsamlag Eyja- íjarðar. Með auknum skilum almenn- ings og fyrirtækja á spilliefnum til móttökustöðva vaknaði sú spurn- ing hvort hægt væri aó endurnýja heillegustu hluta ýmissa vöruteg- unda, svo sem málningar, og minnka um leið þaö magn efna sem þarf að eyða eða urða. Forsvarsmönnum Sorpu ofbauð það magn sem skilað er og í fram- haldinu fór Metró að athuga með endurvinnslu á málningunni sem þangaö berst. Hjá Metró hafði áð- ur verið geró tilraun meö endur- vinnslu á gamalli málningu sem verslunin flutti inn og hafði það gefist ágætlega. Ingimar Friðriksson, fram- - gífurlegt magn fellur til á ári kvæmdastjóri Metró, segir að hér sé um tilraunavcrkefni að ræða sem stendur yfir í nokkra mánuði en síðan verður athugað frekar með framhaldið. Tilraunin snýst aðallega um að athuga bæði magn og ástand málningarafganga sem berast til flokkunarstöðva og breyta þeim í seljanlega vöru. Ef þetta þykir fýsilegur kostur, kem- ur til greina aö stofna sérstakt fyr- irtæki um þessa endurvinnslu. Talið er að hundruð þúsunda lítra af málningu falli til á ári hér á landi og því eru taldar ágætir möguleikar á því að svona endur- vinnsla geti staðið undir sér. Ekki er um það að ræða, að greitt verói fyrir afgangsmálningu, enda eng- inn grundvöllur fyrir því. Hins vegar hefur komið til tals að greitt verði skilagjald fyrir málninga- dósir, sem aftur gæti verið hvatn- ing fyrir fólk aó skila afgangs- málningunni og tómum ílátum. KK Metró fær gamla málningu bæði frá Sorpu í Reyjavík og Urvinnslunni á Akureyri og eru málningadósir og fótur fluttar með bílum norður í sérstök- um kcrum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.