Dagur - 18.01.1995, Blaðsíða 2

Dagur - 18.01.1995, Blaðsíða 2
Anna Breiðfjörð Sigurðardóttir Sigurbjörg Sigfúsdóttir Félagar í D.í. Akureyringar athugið! Síðustu dagar innritunar 10 vikna dansnámskeið hefst 21. janúar >• Kennslustaður Oseyri 6, efri hæð. Kennum: Gömlu- og samkvæmis- dansa, suður-ameríska dansa, rokk, tjútt, barna dansa og leiki. Einnig: Nýjustu dansana, hip hop, doop og kahlua groove. Sérnámskeið fyrir félagasamtök og hópa Innritun og allar nánari upplýsingar í síma 11405 og 11693 milli kl. 13.00 og 19.00. ODYRASTA OG BESTA FAANLEGA KENNSLAN NORÐAN HEIÐA VERSLUM í HEIMABYGGÐ Hver tími 50 mín. fyrir börn, VA klst. fyrir fullorðna ( MiUUUU íuiau'1 uoi'iu t.d. sandwcemis fuóla, d/vss oq d/vdttí/1 Ráðhústorsi • Sími 118: FRÉTTIR DAGUR - Miðvikudagur 18. janúar 1995 Menntasmiðja kvenna á Akureyri: Starfsemin á fulla ferð a ny i næstu viku - alls bárust 24 umsóknir um skólavist Starfsemi Menntasmiðju kvenna á Akureyri fer á fulla ferð á ný í næstu viku en þá hefst námskeið fyrir konur sem eru án launaðr- ar vinnu. Alls bárust 24 um- sóknir um skólavist og er útlit fyrir að hægt verði að taka inn allar þær konur sem sóttu um. Pálína Guðmundsdóttir, verk- efnisfreyja Menntasmiðjunnar, sagði í samtali við Dag, að mikill áhugi væri fyrir starfseminni en þó hafi færri konur sótt formlega um skólavist en hún átti von á cn þær eru hins vegar yngri en áður. „Það hefur verið mikið hringt og spurst fyrir en ég held að ástæóan fyrir færri umsóknum en ég reiknaði með, séu erfiðleikar fyrir konur með barnapössun. Maóur verður var við aukna fá- tækt hjá fólki og það gerir því m.a. erfiðara með aö borga barna- pössun.“ Fyrri áfangi kennslunnar stend- ur frá 25. janúar til 17. mars en sá seinni frá 27. mars til 26. maí og er kennt á virkum dögum frá kl. 9- 15. Pálína segir að gera þurfi hlé á kcnnslunni, svo að þær konur sem eru á atvinnuleysisbótum, missi ekki bótarétt. „Fólk sem er á at- vinnuleysisbótum má ekki vera í námi, nema í átta vikur í einu en eftir stutt hlé er hægt aó halda áfram án þess að missa bætur.“ Tvær umsóknir bárust frá kon- um sem búsettar eru utan Akur- eyrar. Önnur þeirra er úr Eyja- fjarðarsveit og hefur sveitarstjórn- in þar samþykkt að standa straum af kostnaði við námið. Hin konan sem búsett er utan Akureyrar, fær einnig inni á námskeiðinu, svo framarlega sem sveitarstjórnin í hennar heimabyggð samþykkir að greiða kostnaðinn við námið. Hugmyndafræði Menntasmiðj- unnar byggir á reynslu frá lýðhá- skólum og kvennadagháskólum á Norðurlöndum og námskeiðum sem þróuð hafa verið fyrir konur hér á landi. A meðal námsþátta á námskeiðinu má nefna íslensku, erlend tungumál, bókhald, tölvu- fræði, sjálfstyrkingu, líkamsrækt, listsköpun og umhverfisvernd. Pálína segir aó mikil þörf sé fyrir starfsemi Menntasmiðjunnar og að margar þær konur sem kynntu sér starfsemina nú hafi lýst yfir áhuga á því aö sækja um á haustönn, svo framarlega sem þessari starfsemi verði haldið áfram. KK Siglfirðingur hf. á Siglufirði: Togarar útgerðarsnnar öfluðu 6.200 tonn - Siglir aðeins 8 mánuði á sjó Úthafsveiðitogarinn Siglir frá Siglufirði, eign Siglfirðings hf., var keyptur til landsins frá Kan- ada á sl. vori og var við veiðar í 8 mánuði á sl. ári. Afli togarar- ans var 3.100 tonn af úthafs- karfa á Reykjaneshrygg og 800 tonn af þorski í Smugunni og var allur aflinn frystur um borð en um borð er fiskimjölsverk- smiðja, sem vinnur mjög úr öll- um úrgangi. Um 8% af aflaverð- mæti er tilkomið vegna mjöl- framleiðslunnar um borð. Unnið er að því að skrá Sigli hérlendis samkvæmt svokallaðri B-skráningu, og þarf að gera litlar breytingar á skipinu til að uppfylla kröfur Siglingamálastofnunar. Helst er að setja þarf skutrcnnu- loka. Frystitogarinn Siglfirðingur SI- 150 aflaói 2.361 tonn á sl. ári og var aflaverómætið liðlega 300 milljónir króna. GG Landssamtökin Heimili og skóli: Samningamálin þola enga bið - kennaraverkfall gæti skaðað skólagöngu þúsunda barna óbætanlega Yfirvofandi kennaraverkfall hefur neikvæð áhrif á skóla- starfið og skapar kvíða og óró- leika hjá börnunum. Samninga- málin þola enga bið, samnings- aðilar þurfa að vinna hratt og skipulega til þess að koma í veg fyrir óbætanlegan skaða. Þetta er mat landssamtakanna Heim- ilis og skóla, sem hafa lýst yfír alvarlegum áhyggjum vegna yfirvofandi röskunar á skólagöngu 60 þúsund nemenda í grunn- og framhaldsskólum. „Helsta hagsmunamál foreldra og barna er góður skóli. Eitt af frumskilyrðum til þess að bæta skólastarfið er að endurskoða frá grunni löngu úrelt fyrirkomulag, s.s. kennslutíma skóla, starfsdaga kennara og hámarksfjölda í bekkj- ardeildum. Krafa okkar er einset- inn skóli þar sem kennari hefur umsjón meó einum bekk og getur helgaö sig kennslustarfinu eingöngu enda er það ein helsta forsenda fyrir árangri í skóla- starfi,“ segja landssamtökin Heimili og skóli í tilkynningu sinni vegna kennaraverkfallsins. Samtökin höfða til kennara í yfirlýsingunni og segja að til samninga verði þeir að ganga með opnum hug enda sé þeim að fullu Ijóst að óbætanlegt tjón geti orðið á skólagöngu þúsunda barna ef til verkfalls komi. „Ríkisstjórnin hefur mótað menntastefnu í takt við kröfur nú- tímans og lagt fram lagafrumvarp um einsetinn skóla. Þessu hafa foreldrar fagnað en jafnframt spurt hvernig því frumvarpi yrði fylgt eftir. Stjórnvöld geta nú sýnt vilja sinn í verki með því að stíga þau skref sem nauðsynleg cru, s.s. að semja um breyttan vinnutíma við kennara,“ segir jafnframt í yfirlýsingu landssamtakanna Hcimilis og skóla. JÓH Baráttufundum KÍ og HÍK aflýst Kennarasamband íslands og Hið íslenskra kennarafélag tóku þá ákvörðun að aflýsa baráttu- fundum félaganna, sem halda átti í Reykjavík í gær og í Al- þýðuhúsinu á Akureyri í dag kl. 17.00. Kennarafélögin vilja með þcss- ari ákvörðun sýna samhug og hluttekningu með þeim sem eiga um sárt að binda vegna afieiðinga hinna hörmulegu náttúruhamfara í Súðavík. KK

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.