Dagur - 18.01.1995, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 18. janúar 1995
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
AÐRIR BLAÐAMENN:
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285),
KRISTÍN LINDA JÓNSDÓTTIR, SÆVAR HREIÐARSSON (íþróttir).
LJÓSMYNDARI: ROBYN REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
hrint er 1 framkvæmd djörfum hugmyndum.
Sú er einmítt undirstaðan að framþróun og
uppbyggingu í atvinnulífinu. Þorið verður að
vera fyrir hendi.
Smám saman hefur okkur hér á landi ver-
ið að lærast hvaða möguleikar felast í ís-
lensku náttúrunni, út frá sjónarhóli ferða-
þjónustunnar. Jafnframt hafa opnast mögu-
leikar utan hins hefðbundna ferðamanna-
tíma og loks höfum við gert okkur grein fyrir
að íslendingar eru líka ferðamenn í eigin
landi, ekki síður mikilvægir en erlendir gest-
ir.
Ferðaþjónusta að vetrinum verður aldrei
vistarfólki sem dregið hefur að þúsundir
gesta víðs vegar að af landinu. Þessi sýning
er ein sönnun þess sem hægt er að gera til
að draga að ferðafólk, jafnvel þó á miðjum
vetri sé. Sýningarhald úti á landi yfir vetrar-
mánuðina hefur verið talið til bjarsýni og
ævintýramennsku en sýning LÍV urn síðustu
helgi og í fyrra hafa blásið á allar hrakspár
og sannað hvað hægt er að gera ef vel er að
málum staðið og bjartsýni er fyrir hendi.
--LEIÐARI---------------------------------------------
Ferðaþjónusta á miðjum vetri
Ferðaþjónusta hér á landi er ung atvinnu- auðveld leið, íslenska veðurfarsins vegna.
grein en mjög vaxandi, eins og fjölgun er- Hitt er annað að möguleikarnir felast
lendra ferðamanna milli ára ber með sér. kannski einmitt í íslenska vetrarveörinu,
Tölur um tekjur af ferðamönnum fyrir þjóð- samanber vetrarferðir á vélsleðum og jepp-
arbúið undirstrika mikilvægi greinarinnar í um, sem eru ólýsanlegt ævintýri fyrir út-
efnahagslegu tilliti en í greininni má einnig lendinga. Vélsleðasportið hefur mjög færst í
sjá glögglega dæmi um árangur af því þegar vöxt hér á landi á síðustu árum og hefur
þjónusta við vélsleðaáhugamenn skapað
fjölmörg störf hér á landi. Síðustu árin hefur
verið haldin árviss sýning á Akureyri sem
helguð er vélsleðamönnum og öðru úti-
Hagsmunir Akureyringa og landsbyggðarinnar
Gunnar Ragnars, forstjóri Utgerð-
arfélags Akureyringa, skrifaði
grein sem birtist í Degi 13. jan. sl.
og í Morgunblaðinu degi síóar.
Grein þessi ber yfirskriftina:
„...ekki hagsmunir ÚA“.
Grein þessi er um margt at-
hyglisverð, hún lýsir vióhorfum
Gunnars Ragnars til þess málefn-
is að Islenskar sjávarafurðir hf.
flytjist til Akureyrar með sínar
höfuðstöðvar fái þær Útgerðarfé-
lag Akurcyringa hf. í vióskipti til
sín.
Þaó sem fyrst vekur athygli vió
lestur greinar Gunnars er að hann
minnist ekki einu orði á atvinnu-
mál Akureyringa. Hann minnist
ekki einu orði á það sem flutning-
ur ÍS til Akureyrar felur í sér:
Tækifæri til þess að gera Akureyri
að miðstöó viðskipta meö sjávar-
afuróir, tækifæri til að fjölga hér
störfum, tækifæri til þess að auka
hér umsvif á mjög mörgum svið-
um, tækifæri til þess að byggja
upp á Akureyri viðskiptamiðstöð
til mótvægis við Reykjavík og
höfuðborgarsvæóið.
Nei! Gunnar segir málið
eingöngu snúast um hagsmuni ÚA
og um hvort Akureyrarbær eigi
að selja hlutabréf sín. Aö sjálf-
sögðu koma hagsmunir ÚA inn í
þessa umræðu og einnig hluta-
bréfaeign bæjarins í ÚA, en málið
er miklu stærra en það. I mínum
huga snýst málið um það hvort
við Akureyringar berum gæfu til
þess að nýta okkur þetta tækifæri
til að stórauka hér atvinnu og
byggja upp til framtíóar.
Gunnar segir í grein sinni að
mikil vanþekking hafi einkennt
umræðuna um sölumál ÚA. Ekki
veit ég hvort hann á við mig eða
þá starfsmenn KEA og Islenskra
sjávarafurða sem hafa skoðað
þessi mál og tjáð sig um þau, enda
læt ég mér það í léttu rúmi iiggja.
Gunnar heldur því fram í grein
sinni að þeir aðilar sem vilja að
ÚA færi vióskipti sín yfir til ÍS
séu að horfa til hagsmuna IS en
ekki hagsmuna ÚA. Skoðum
þessa fullyróingu hans nánar.
Kaupfélag Eyfirðinga hefur
unnið að því að fá höfuðstöðvar
ÍS hingað til Akureyrar til þess að
efla hér atvinnulíf. í bréfí til Akur-
eyrarbæjar hefur KEA gert grein
fyrir afstöðu sinni til þessa máls
og jafnframt óskað eftir viðræð-
um við bæinn um að fá að kaupa
hlut bæjarins í ÚA. Er Gunnar að
halda því frant að það sem vaki
fyrir KEA með þessu sé að gæta
hagsmuna IS á kostnað ÚA?
KEA er hluthafi í ÍS en KEA er
einnig hluthafi í ÚA, reyndar ann-
ar stærsti hluthafinn þar og sá
langstærsti á eftir Akureyrarbæ.
Þeir fjármunir KEA sem
bundnir eru í hlutabréfum í ÚA
eru margfalt hærri en þeir fjár-
munir sem KEA á bundna í hluta-
bréfum í IS. Mér þykir það und-
arlegt að ætla okkur þá lélegu
hagfræði að fórna meiri hagsmun-
um fyrir minni.
KEA hefur óskaö eftir því að fá
að kaupa hlut bæjarins í ÚA og
lýst því yfir aó ef af því yrði hefði
KEA engin áform uppi um að
selja þau hlutabréf aftur og jafn-
framt að KEA hygðist vera meiri-
hlutaeigandi í ÚA. Hér cr um
mjög stórar upphæðir að ræöa.
Heldur einhver virkilega að ósk
KEA um að fá að kaupa hlut bæj-
arins í ÚA og þar með festa
hundruði miljóna króna til við-
bótar í hlutafjáreign í ÚA sé til
þess að vernda hagsmuni IS eöa
einhverra annarra utanaðkom-
andi? Það er auðvitað stefna KEA
að efla og styrkja rekstur ÚA og
hafa arð af hlutafjáreign sinni í
ÚA. Kaupfélag Eyfirðinga er
ekki í neinu stríði við ÚA, ekki í
stríði við starfsmenn ÚA, ekki
heldur í stríði við aðra hluthafa
ÚA. Þvert á móti. KEA er og hef-
ur verið aðili að ÚA um langt
skeið og hefur sýnt það í störfum
sínum að það vill hag ÚA sem
mestan og bestan.
Gunnar heldur því einnig fram
í grein sinni að það að fiytja sölu á
afurðum ÚA frá SH stefni ÚA í
óvissu og þjóni ekki hagsmunum
ÚA. Eg hef hinsvegar haldið því
fram, m.a. í blaðaviðtali í Degi, að
það sé ekki hættulegt fyrir ÚA að
flytja viðskipti sín yfir til ÍS.
Gunnar veit það jafn vel og ég að
bæði ÍS og SH hafa náð góóum
árangri við aó selja sjávarafurðir.
Bæði þessi fyrirtæki hafa selt
miklu meira magn af hefðbundn-
um bolfisktegundum (sérstaklega
þorski) en þau gera í dag, þannig
að bæði eru vel í stakk búin til
þess að bæta við sig slíkum fiski í
sölu. Ef saga þeirra beggja, IS og
SH, er skoðuð sést aó árangur
þeirra hvað varðar verð á afurðum
er mjög svipaður fyrir sambæri-
legar afurðir. Stundum er annað
fyrirtækið betra en hitt á ákveðn-
um sviðum eða mörkuðum og
svo öfugt. Þessi fyrirtæki eru í
samkeppni, þau horfa á árangur-
inn hvort hjá öðru og ef annað nær
forskoti einhversstaðar, þá reynir
hitt auðvitað að draga það uppi og
fara fram úr. Þannig hefur þetta
gengió til á undanfömum áratug-
um.
Ef staða þeirra er skoðuð í dag
þá er það mitt álit að IS sé komið
lengra hvað varðar fullvinnslu,
þar sem varan er fullunnin í frysti-
húsum hér á landi.
Sambýli ÍS, ÚA,
Háskólans og
Rannsóknastofnun-
ar flskiðnaðarins
hér á Akureyri
mun skapa góðar
forsendur til vöru-
þróunar og öflugrar
markaðssóknar,
sem ÚA yrði þátt-
takandi í og nyti
góðs af.
Ég er þeirrar skoðunar að það
styrki viðkomandi frystihús að
vera framleiðandi aó ákveðnum
sérvörum, þar scm hinn erlendi
kaupandi er í raun aö gera samn-
ing við ákveðið frystihús, fyrir
milligöngu sölusamtaka, að það sé
Magnús Gauti Gautason.
betri staöa til lengri tíma heldur en
að vera framleiðandi að massa-
vöru sem seld er eingöngu undir
nafni sölusamtaka, þar sem kaup-
andinn hefur ekki hugmynd um
frá hvaða frystihúsi varan er kom-
Einnig er ég eindregið þeirrar
skoðunar að staða ÚA muni
styrkjast við það að ÍS flytjist
hingað til Akureyrar. Sambýli ÍS,
ÚA, Háskólans og Rannsókna-
stofnunar fiskiðnaóarins hér á Ak-
ureyri mun skapa góðar forsendur
til vöruþróunar og öflugrar mark-
aðssóknar, sem UA yrði þátttak-
andi í og nyti góðs af.
Varðandi eignarhlut ÚA í SH
vil ég benda á að ÚA getur átt
hann áfram, þó aó afurðir ÚA
verði seldar í gegnum IS. Ef ÚA
hinsvegar veldi að fá hann
greiddan út gæti ÚA notað þá fjár-
muni til annarra hluta, t.d. keypt
hlutabréf í ÍS. Ég fullyrði að ef
ÚA kemur í viðskipti við IS verð-
ur ÚA gert kleift að kaupa þar
hlut og komast þar til áhrifa.
Að lokum vil ég skora á Akur-
eyringa að nýta þetta tækifæri sem
okkur gefst nú til stórkostlegrar
atvinnuuppbyggingar hér, en láta
ekki úrtölumennina ráða ferðinni.
Magnús Gauti Gautason.
Höfundur er kaupfélagsstjóri Kaupfélags
in. Eyfiróinga.
Bréf KEA til bæjarráðs Akureyrar
Akureyri 5. janúar 1995.
Bæjarráð Akureyrar
Formaður Jakob Björnsson
Stjóm Kaupfélags Eyfirðinga fjallaði á fundi sínum þann 4. jan. sl. um hugsanlegan flutning á höfuðstöðv-
um Islenskra Sjávarafurða hf. (ÍS) til Akureyrar.
Flutningur á höfuðstöðvum Islenskra Sjávarafurða hf. hingað til Akureyrar yrði mjög mikil lyftistöng fyrir at-
vinnulíf hér í bæ, hér myndu skapast tugir nýrra starfa meö þeim margfeldisáhrifum sem þeim fylgja.
Kaupfélag Eyfirðinga vill stuðla að því að af þessum flutningum geti orðið og hefur unnið að því innan Is-
lenskra Sjávarafurða hf.
Staðan í því máli er að okkar mati eftirfarandi:
Meirihluti er fyrir því innan stjórnar IS og meðal hluthafa IS að flytja höfuðstöðvamar til Akureyrar ef
Útgerðarfélag Akureyringa hf. (ÚA) felur IS að selja afuróir sínar.
Einnig þarf IS tryggingu fyrir því að ÚA verði ekki flutt úr viðskiptum við ÍS ef breytingar verða á eign-
arhaldi bæjarins á ÚA eða ef breytingar verða á meirihluta innan bæjarstjómar Akureyrar. Stjórn IS mun
koma saman til fundar 12. janúar nk. og mun þar fjalla um framtíðarstaðsetningu á höfuðstöðvum IS, því
er nauðsynlegt að fyrir þann tíma liggi afstaða Akureyrarbæjar fyrir.
I ljósi ofangreindrar stöðu óskar Kaupfélag Eyfirðinga eftir vióræðum við Akureyrarbæ um að Kaupfélag Ey-
firðinga kaupi hlutabréf bæjarins í ÚA. Ef samkomulag um slíkt næðist væri jafnframt tryggt að IS myndi
flytja til Akureyrar og hér myndu skapast tugir nýrra starfa.
Kaupfélag Eyfirðinga telur eðlilegt að ef Akureyrarbær ákveður að selja hlutabréf sín í ÚA verði þau seld til
heimaaðila, þannig að yfirráðin yfir fiskveiðiheimildum ÚA færist ekki úr höndum bæjarbúa, heldur verði á
höndum heimaaðila sem hefur alla hagsmuni af því að hér verði áfram rekin öflug útgerð og fiskvinnsla á veg-
um ÚA.
Hagsmunir Kaupfélags Eyfirðinga eru augljóslega að hér á starfssvæði þess verði rekið sem öflugast atvinnu-
líf og hagsmunir Kaupfélags Eyfiróinga, hagsmunir Akureyrarbæjar og hagsmunir íbúa hér fara að öllu leyti
saman.
Til að fyrirbyggja hugsanlegan misskilning skal það tekið fram að það er ætlun Kaupfélags Eyfirðinga, ef af
kaupum verður, að vera meirihlutaeigandi í ÚA og engin áform eru uppi um að selja þau hlutabréf aftur.
Svar óskast við fyrstu hentugleika.
Virðingarfyllst f.h. Kaupféiags Eyfirðinga,
Magnús Gauti Gautason,
Kaupféiagssstjóri.